Alþýðublaðið - 31.12.1992, Blaðsíða 11

Alþýðublaðið - 31.12.1992, Blaðsíða 11
Fimmtudagur 31. desember 1992 11 Staldrað við Nokkrar línur frá sveitarstjórnarmönnum Alþýðuflokksins í tilefni áramóta Björn Sigurbjörnsson, bæjarfulltrúi Sauðárkróki Árið 1992 á margan hátt gott ár Árið 1992 var íbúum Sauðárkróks á margan hátt gott ár. Þrátt fyrir að nokk- urt atvinnuleysi hafi verið á árinu var stöðug og jöfn vinna í frystihúsunum í bænum og byggingaiðnaðurinn blómstraði. Á árinu sáu menn lang- þráðan draum rætast er byggingafram- kvæmdir Bóknámshúss Fjölbrauta- skóla Norðurlands vestra miðaði vel áfram. Á árinu voru afhentar 10 ibúðir sem byggðar voru samkvæmt félagslega íbúðakerfmu og hafist var handa um byggingu á 7 íbúðum í sama kerfi. Vemleg vöntun hefur verið á íbúðum í bænum og víst er að það hefur haft áhrif á fjölgun íbúa í bænum. íbúum fjölgaði á Sauðárkróki urn 2,7% milli ára og eru nú samkvæmt bráðabirgða- tölum frá Hagstofunni 2652. Getum við mjög vel unað, en á Norðurlandi vestra fjölgaði íbúum um 0,1%. Við horfum bjartsýn til ársins 1993 með von um að það verði okkur gott ár. Þrált fyrir ýmsar blikur á lofti og bar- lóm um erfiða tíma þá horfum við frant til ársins með eftirvæntingu og staðráð- in í að gera allt okkar besta til að efla heimabyggðina sem mest. Rætt hefur verið um að hefja byggingu á vatns- pökkunarverksmiðju á árinu, efla at- vinnulífið á allan liátt og ljúka bygg- ingu íþróttahússins auk þess að halda áfram byggingu Bóknámshúss, Stjóm- sýslumiðstöðvar og leysa úr brýnni þörf vegna dagvistunar bama í bænum. Að síðustu óska ég öllum gleðilegt árs og friðar. Guðmundur Árni Stefánsson, bæjarstjóri Hafnarfirði Horft um öxl og fram á veg Það verður ekki framhjá því horft að ársins 1992 verður minnst einkanlega fyrir þann samdrátt og þá erfiðleika, sem að þjóðarbúi okkar íslendinga hef- ur steðjað. Atvinnuleysi hefur haldið innreið sína og almennur samdráttur í lífskjörum fólks hefur verið fyrirfinn- anlegur. Og ekki er allt talið enn í þeim efnum. Blikur em á lofti um samsvar- andi þróun mála á næsta ári. I því ljósi er vitanlega eilítið napurt um að litast um áramót, þegar horft er um öxl og árið 1992 gert upp og skyggnst er fram á veg. Hitt er þó jafn- skýrt að við íslendingar höfum allar forsendur til að vinna okkur út úr þeim vanda sem aðsteðjandi er. Lífsgrundvöllur þjóðar okkar er styrkari en svo að þær stoðir sem við höfum sett undir samfélag okkar bresti með hvelli þó á móti blási um stundar- sakir. Með samstilltu átaki og jafnvægi hugans tekst okkur að mæta þessu and- streymi og snúa vöm í sókn. Vitaskuld hlýtur þjóðin að líta til stjómvalda í þessum efnum. Ríkis- stjóm og kjömir fulltrúar hljóta að ntarka veginn lil betri lífskjara. Þeirra ábyrgð er mikil. Ekki verður framhjá því litið við þessi tímamót, að sú leið- sögn hefði mátt vera styrkari og mark- vissari á því ári sem nú er að renna sitt skeið. Verklag ríkisstjómar sem og stjómarandstöðu hefur verið of fálm- kennt og ómarkvisst til að fólk hafi fundið hið nauðsynlega traust á leið- sögninni sem svo mikilvæg er á erfið- leikatímum. I þeint efnum þarf að gera bragarbót á, því leiðsögn forystumanna í stjómmálum segir lítið eða ekkert, ef fólic almennt stendur ekki að baki þeim úrræðum sem gripið er til og vinnur með stjómvöldum. Eðlilegt er að sjálfsögðu að skiptar skoðanir séu um ágæti einstakra að- gerða, en hitt er jafnmikilvægt að al- menningur hafi á því trú og traust þeg- ar hismið er skafið af kjamanum, að ráðstafanir skili árangri til skemmri og einkanlega lengri tíma litið. Á þennan trúnað vantar. Samstarf og samvinna eru lykilorð þegar að kreppir eins og nú. Þessu gagnkvæma trúnaðartrausti þings og þjóðar, ríkisstjómar og fólks- ins í landinu verður á ná frarn til að var- anlegur árangur náist í glímunni við kreppuna. En við lítum til baka með hlutlægni og leitumst við að læra af mistökum fortíðar. Með bjartsýni og blik í augum tökumst við á við verkefni framtíðar. Á nýju ári munu sannanlega skiptast á skin og skúrir sem fyrr. En umfram allt annað er brýnt að fólk gangi inn í nýtt ár með áræði, þor og þrautseigju í far- teski. Ef við trúum á sjálf okkur og þá fjölmörgu möguleika sem em innan seilingar, grípum tækifærin, blásum til sóknar gegn víli og væli, munum við uppskera sem við sáum á nýju ári. Með því verklagi mun hið nýja ár verða okk- ur gjöfult og gott. I þessu ljósi vil ég óska öllum lands- mönnum árs og friðar. Guðfinnur Sigurvinsson, bæjar- fulltrúi Keflavík Bjarsýnir þrátt fyrir erfitt atvinnuástand Því miður hefur atvinnuástandið ekki verið gott mest allt þetta ár hér á Suðumesjunt og varla von á breytingu fyrr en vetrarvertíð hefst í febrúar. Menn bíða þess með óþreyju að úr ræt- ist. Vissulega eru ýntsir möguleikar fyrir hendi. Má þar nefna að þegar hið nýja flugskýli Flugleiða kemst í gagnið á næstunni munu í tengslum við það myndast nokkur ný störf. Við emm að verða óþolinmóð þar sem enn virðist ekkert gerast í Frísvæð- inu en menn vona að það mál taki við sér þegar samningamir um Evrópska efnahagssvæðið em í höfn. Ný smábátahöfn hefur verið tekin í gagnið í Grófinni í Keflavík. Þar skap- ast mjög góð aðstaða fyrir smábáta sem mun verða þeirri atvinnugrein mikill styrkur og er ekki að efa að mikið líf mun verða þar í framtíðinni. I atvinnumálunum hafa menn mestar áhyggjur af þróun rnála hjá íslenskum aðalve'rktökum ef til þess kemur að menn verði að hætta störfum í upphafi nýs árs en mörgum hefur verið sagt þar upp störfum með þriggja mánaða fyrir- vara. Þá mun ástandið enn versna hér á Suðumesjum og erekki á núverandi at- vinnuleysi bætandi. Hins vegar hefur starfsmannafjöldi hjá Vamarliðinu ver- ið um 935 manns samtals á árinu og hefur ekki orðið af frekari fækkun starfsfólks frá árinu 1991. Raunar var ráðið með mesta móti í sumarafleys- ingar sl. sumar sem bjargaði miklu fyr- ir skólafólk. Fjárhagsáætlun Keflavíkurbæjar fyr- ir árið 1993 er í vinnslu og verður væntanlega afgreidd um mánaðamótin janúar/ febrúar. Það er ljóst að atvinnu- ástandið segir til sín f tekjum bæjarfé- lagsins þannig að minna verður af- gangs frá rekstri til fjárfestinga og eignabreytinga en væri í eðlilegu ár- ferði. En tækifærin bíða. Mikil og góð að- staða er fyrir iðnfyrirtæki við Helguvík þar sem 11-12 metra dýpi er við vænt- anlegan hafnarbakka. Rætt hefur verið um að reisa þar þilplötuverksmiðju og ýmislegt fleira kemur til greina en enn sem komið er hefur ekkert verið ákveð- ið. Menn horfa til aukinnar ferðaþjón- ustu og að ýmsu fleiru er unnið. Við Keflvíkingar erum bjartsýnir á að með nýju ári batni ástandið á ný og að aftur verði næg atvinna fyrir alla. Til marks um bjartsýnina þá var haf- in starffæksla svæðisútvarps á Suður- nesjum, Útvarp Bros sendir út á 96,7 og hefur notið mikilla vinsælda á svæðinu. Stöðin sendir út allan sólar- hringinn alla daga. Hún er staðsett við Hafnargötu í Keflavík. Um þessi jól hefur Keflavíkurbær verið fallega skreyttur af bæjaryfir- völdum og íbúum hans, okkuröllum til mikillar ánægju. Eg færi öllum bestu óskir um gott og farsælt nýtt ár. Ólína Þorvarðardóttir, borgar- fulltrúi Reykjavík Sigw mjog a ógœfuhliðina í fjármálum borg- arinnar Það má segja að skammdegið hafi verið óvenju svart þegar blessuð jólin gengu í garð að þessu sinni. Um fátt hefur verið meira rætt á undanfömum mánuðum en efnahagslega kröm þjóð- arinnar, atvinnuleysi og bágar horfur. Ríkisstjómin hefur gripið til óvinsælla ráðstafana og almenningur herðir sultarólina. Upplausn á Alþingi íslend- inga og dagskipan verkalýðshreyfing- arinnar um átök á vinnumarkaði vom jólaboðskapurinn í ár. Sé litið til höfuðborgarinnar er ekki bjartara um að litast. Fáum dögum fyr- ir jól var lagt fram fmmvarp að fjár- hagsáætlun næsta árs sem sýnir 68% rýmun ráðstöfunarfjár á milli ára og vemlega aukna skuldabyrði. í fjármál- um borgarinnar hefur því sigið mjög á ógæfuhliðina undir stjóm sjálfstæðis- manna á yfirstandandi kjörtímabili, og eru það mikil viðbrigði frá því allt lék í lyndi í góðæri kjörtímabilanna á und- an. En „hvað boðar nýjárs blessuð sól?" Því er vandsvarað að sinni. Vonandi boðar hún betri og bjartari tíð, þó teikn þess séu fá á lofti. Mest er um vert að ráðamenn reynist vandanum vaxnir og efli með sér og þjóðinni baráttuþrek á jákvæðum forsendum. Skammarausi og reiðilestrum verður að linna yfir landi og lýð, því miklu varðar að al- ntenningur missi ekki kjarkinn í böl- móði og ráðaleysi líðandi stundar. Ábyrgð stjómvalda er mikil. Nú reynir á samviskuna og hugsjónimar sem lagt var upp með. Að menn horfist í augu við vandann og leiti raunhæfra úrræða. Að byrðunum sé ekki velt yfir á herðar lítilmagnans heldur séu þær bomar af þeim sem geta axlað þær. Hugtökin samhjálp og jöfnuður em aldrei verðmætari en á erfiðum tímum. Því ríður á að þeir sem standa við stjómvölinn í nafni jafnaðarstefnunnar rísi undir merkjum og gleymi ekki lil- gangi ferðarinnar. Að þeir setjist niður og endurskoði eigið verðmætamat, for- gangsröðun og ráðstöfunannöguleika þess fjármagns sem úr er að spila með hliðsjón af þeim væntingum sem til þeirra eru gerðar. Það verðurekki hald- ið lengra á braut lífskjaraskerðinga, skertrar þjónustu og annarra álagna á almenning. Menn verða að snúa sér að þeim sem hafa breiðu bökin og þykku seðlaveskin - og þó fyrr hefði verið: hafi menn kjark til að seilast í þá sjóði er ennþá von um betri tíð. Að öðrum kosti safna rnenn glóðum elds að höfði sér... og klukkan tifar. Guðmundur Oddsson, bæjar- fulltrúi Kópavogi Öll él styttir upp um síðir Nú um áramótin hljótum við alþýðu- flokksmenn að staldra við og spyrja okkur nokkurra spuminga um stöðu okkar og kannski fyrst og fremst um stöðu okkar flokks. Alþýðufiokkurinn hefur nú verið í ríkisstjóm í tæplega sex ár og hefur þar af leiðandi haft vemleg áhrif á gang landsmála. Það er stundum býsna erfitt að stjóma þessu landi, að efast urn það eitt augnablik, hvort flokkurinn eigi að vera í ríkis- stjóm eður ei. Þó nú um stundir séu erf- iðleikar hjá okkur, þá megum við aldr-

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.