Alþýðublaðið - 31.12.1992, Síða 13
Fimmtudagur 31. desember 1992
13
Tomba, golfarinn Faherty og danski landsliöseinvaldurinn.
Frá Alþýðuflokks-
félagi Kópavogs
Munið spilakvöldið í Hamraborg
4. janúar klukkan 20.30.
Allir velkomnir
Almennur fundur 11. janúar
Stjórnin
Þetta sögðu íþrótta-
stjörnur heimsins á ár-
inu sem er að líða
TVÍRÆÐ SVÖR
STJARNANNA
Áriö 1992 sem nú líður í aldanna
skaut var mikið íþróttaár. Reuter-
fréttastofan tíndi saman ýmis gull-
korn sem höfð voru eftir frægum
íþróttamönnum og konum. Mörg
voru þau ærið skemmtileg og hreint
ekki klisjukennd, eins og oftast vill
brenna við.
Eins og þetta: „Áður fyrr þurfti ég að
vera með þrem konum til klukkan
fimm. En núna þegar ég er að æfa,
verða það fimm konur til klukkan þrjú
í staðinn. (Alfredo Tomba, ítalska
skíðastjarnan lét þetta flakka þegar
hann var að undirbúa sig undir
Ólympíulcikana. Og honum gekk
bara vel þrátt fyrir kvennafarið, gull
í stórsvigi og silfur í svigi).
„Það er ekkert orð til yfir brun á
senegölsku, vegna þess að við höfum
engin fjöll. Ég var svo hræddur að ég
var alveg að því kominn að æla. En ég
komst að því að öryggisbúnaðurinn var
í fínu lagi. (Haft eftir fulltrúa Sene-
gals í brunkeppni OL, en árangur
hans þótti ekkert afburða góður).
„Það hefur verið mikið að gera síð-
ustu vikumar. Til að geta æft almenni-
lega hef ég orðið að hætta í brennivín-
inu og að syngja karaoke. (Japaninn
Kopa sem vann til bronsverðlauna í
skotfimi Ólympíuleikanna)
„Ég hef ekki sofið dúr. Þama var
fólk sem hraut á sjö tungumálum.
(Þetta sagði írskur íþróttafréttarit-
ari sem kvartaði undan þröngum
kosti í blaðamannabænum á Ólymp-
íuleikunum)
„Ég hef ekkert á móti því að konur
leikmanna sleppi inn á hótelið okkar.
Ástin er stórfín fyrir fótboltamenn,
bara að menn séu ekki að stunda hana í
hálfleik. (Richard Möller Nielsen,
danski landsliðseinvaldurinn, þegar
hann var aö segja blaöamanni frá
leyndarmálinu við sigur Dana í Evr-
ópumeistaramótinu í knattspyrnu).
„Ég gleðst hans vegna,... en þetta er
eins og að horfa á tengdamúttu aka
fram af klettum, á mínum bíl. (Terry
Venables, framkvæmdastjóri Tot-
tenham, þegar hann reyndi að út-
skýra hvernig honum leið, þegar
Paul Gascoigne fór yfir til ítalska
liðsins Lazio).
„Kannski var það ofsögum sagt þeg-
ar ég sagði að 80% af tennisstjömum
kvenna væm feitar gyltur. Það rétta er
að 75% þeirra em feitar gyltur. (Hol-
lenski tennisleikarinn Richard Kraj-
icek sagði þetta á Wimbledon-mót-
inu í tennis).
„Fyrst datt mér í hug að drepa hann.
En hann átti víst bæði konu og böm,
svo ég hætti við það. (Breski golfarinn
David Feherty sem varð fyrir nöðru-
biti í Wentworth).
„Ef tveir eða þrír af gæunum fót-
brotna og nokkrir verða fyrir eldingu,
þá á ég góða möguleika á sigri. (John
McEnroe hafði semsagt ekki mikla
trú á að sigra á Wimbledonmótinu í
tennis).
„Ég kaus að taka tvö víti. Ég hefði
verið algjör fábjáni ef ég hefði reynt að
spila boltanum úr þessari stöðu. (Þetta
sagði Elaine Johnson, sem varð fyrir
því að slá boltann í tré, en þaðan
skoppaði hann og lenti í brjóstahaldi
hennar).
í ótal útgáfum.
Bók sem endist ár eftir ár - eftir ár...
flLOFAX
cd
Tö
<5
HALI.ARMÚLA 2 / AUSTURSTRÆTI 18 / KRINGLUNNI
Sími 91-813211 / Sími 91-10130 / Sími 91-689211
Fax 91-689315 / Fax 91-27211 / Fax 91-680011