Alþýðublaðið - 14.05.1993, Blaðsíða 8
8
Föstudagur 14. maí 1993
Hér á myndinni sjást nokkrir starfsmenn söludeiidar landbúnaöarvéla hjá INGVARI HELGASYNI HF. ásamt framkvæmdastjóra
fyrirtækisins. (Frá vinstri) Guðbrandur Elíasson, Guðjón Haukur Hauksson, Júlíus Vífill Ingvarsson framkvæmdastjóri IH, Jóhann-
es Guðmundsson og Skarphéðinn Erlingsson.
NYTT
STÓRVELDI
í SÖLU LAND-
BÚNAÐARVÉLA
Þeir í söludeild landbúnaðarvéla hjá Ingvari Helgasyni
hf. stefna að 50% markaðshlutdeild
FJÁRMAGN TIL
Við fjármögnum að fullu eða lánum til kaupa á hvers
konar vélum, tækjum og búnaði til búreksturs.
Lánstími eða leigutími er oftast 3 til 5 ár.
Upplýsingabæklingar eru í útibúum Landsbanka íslands
og Búnaðarbanka íslands um land allt, en nánari
upplýsingar veita ráðgjafar Lýsingar hf. í síma:
68 90 50
SUMARTÍMI: S^tilie00
s
A£\BÚNAÐARBANKI B, Landsbankl
($) ísiANDS MÁ '•lan(is Suðurlandsbraut 22, 108 Reykjavík, Fax: 81 29 29
Það hafa orðið mikil umskipti hjá Ingvari Helgasyni hf.
síðan fyrirtækið keypti Vélasölu Jötuns hf. eins og hún
lagði sig nú fyrir skömmu. Kaupin gengu í gegn í mars síð-
astliðnum. Þeir hjá IH hafa verið að undanförnu að semja
upp á nýtt við þá erlendu birgja sem Jötun hf. átti viðskipti
við. Þessir samningar hafa tekist vonum framar og er nú
verið að semja við innlenda umboðsaðila og þjónustuverk-
stæði. Jötun hf. hafði víst um 40% markaðshlutdeild af
sölu landbúnaðarvála. Yfirlýst stefna IH er að ná sömu
hlutdeild og auðvitað að gera betur, ná 50% hlutdeild. Al-
þýðublaðið skrapp í heimsókn til þessa nýja stórveldis í
viðskiptum með landbúnaðarvélar og spjallaði stuttlega
við Guðjón Hauk Hauksson í söludeild iandbúnaðarvéla.
,Já, þessar breytingar hafa gengið vonum framar. Þó er mik-
ið verk fyrir höndum þar sem heimsækja þarf hvem einasta
bóndabæ og tala við hvem einasta umboðsaðiia. Bændur hafa
tekið breytingunum vel og salan hefur sömuleiðis gengið afar
vel. Við stöndum nú í stffum viðræðum við erlenda umboðsað-
ila um lækkun á verði vélanna komnum til Islands.
Meðal þeirra merkja sem við emm nú þegar komnir með eru
til að mynda Massey Ferguson, Greenland, Kvemeland, Kuhn,
Claas, Furukawa, BSA, Bögballe, Teno, Trima, AC, MF Ind:
ustrial, Perkins, Dresser, Linde-Lansing, Skidser og Orkel. Allt
heimsþekkt og traust merki sem sannað hafa ágæti sitt í gegn-
um árin.
Við verðum varir við samdráttinn í landbúnaðinum, enda er
spáð um 25% samdrætti á milli ára, ástandið er erfitt hjá bænd-
unum núna. En þetta gengur annars mjög vel hjá okkur. Við er-
um svona að byggja þetta sölu- og þjónustunet upp og þreifa
okkur áfram. Hjá Ingvari Helgasyni hf. er nú hægt að fá allar
helstu heyvinnsluvélar og traktora, ásamt fleiri landbúnaðar-
tækjum.
Nú þegar hafa menn lýst yfir mikilli ánægju með þjónustuna
og við höfum til að mynda tekið upp svokallaða hraðsending-
arþjónustu. Það þýðir í raun og veru að bóndi sem er að hefja
búskap getur komið að morgni og verið búinn að frá afgreitt
allar vélar til búsins að kvöldi. Bændur þurfa sem sagt ekki að
óttast minnkandi þjónustu við þessi umskipti. Auk þess hafa öll
gömlu umboðin, sem Jötun hf. hafði áður hafa nú færst yfir til
IH“, sagði Guðjón Haukur Hauksson að lokum.
Ljósmyndasýning í Geysishúsinu
Fyrsta
kröffu-
gangan
Þessa dagana stendur yfir sýning í Geysishúsinu á myndum úr
fyrst 1. maí kröfugöngu verkalýðsins í Reykjavík en í ár eru liðin
70 ár frá því að fyrsta kröfugangan var farin. Pétur Pétursson þul-
ur sem hafði veg og vanda að því að safna myndum á sýningunna
segir, að sýningin hafi verið mjög vel sótt af almenningi en minna
verið um að verkalýðsleiðtogar heiðruðu sýninguna með nærveru
sinni. Á myndinni hér að ofan getur að líta Jóhönnu Sigurðardótt-
ur félagsmálaráðherra grandskoða ömmu sína, Jóhönnu Egils-
dóttur, sem tók þátt í fyrstu kröfugöngunni í Reykjavík. Sýningin
mun standa yfir til 17. þessa mánaðar.