Alþýðublaðið - 14.05.1993, Side 15
BOKMENNTIR - RITDOMUR
Föstudagur 14. maí 1993
SÁLFRÆÐIBÓKIN
Hreinn Hreinsson skrifar:
Sálfræðibókin
Ritstjórar: Hörður Þorgilsson
og Jakob Smári.
Mál og menning
Reykjavík 1993
FJÖLBREYTT EFNI
Út er komin hjá Máli og menningu Sál-
fræðibókin og er hún ætluð öllum almenn-
ingi. Bókin er afskaplega efnismikil, enda
946 blaðsíður. Efnissviðið spannar allt frá
uppeldi og þroska ungbama til umfjöllunar
um öldrun og dauða, og allt frá hjónabands-
erjum til rannsókna á draugagangi. Sál-
fræðibókinni er skipt upp í 15 meginsvið.
Innan hvers sviðs eru svo 6-10 styttri pistl-
ar sem hver um sig er sjálfstæð umfjöllun
um afmarkaðan hluta meginsviðs. Megin-
sviðin 15 eru: Þroski barna og unglinga -
Uppeldi barna og unglinga - Sálrcen
vandamál barna og unglinga - Þroskafrá-
vik og fötlun - Kynmótun, samskipti kynj-
anna, kynlíf - Hjónabánd og fjölskylda -
Samskipti, viðhorf, fordómar - Vinnan -
Persónuleikinn - Streita og heilsa - Tilfinn-
ingar og tUfmningalegir eiftðleikar - Avani
og stjórnleysi - Geðrœnar truflanir - Efri
árin - Sálfrœðin og yfirskilvitleg fyrirhœri.
Ritstjórar Sálfræðibókarinnar eru tveir
starfandi sálfræðingar þeir Hörður Þor-
gilsson og Jakob Smári. Eiga þeir hrós
skilið því rit eins og Sálfræðibókin er löngu
tímabært. Það er síðan einkar ánægjulegt að
sjá hversu veglega hefur verið staðið að út-
gáfunni loksins þegar svona rit var gefið út.
MARKMIÐ OG EFNISTÖK
I aðfaraorðum Sálfræðibókarinnar kem-
ur fram að markmið bókarinnar sé að kynna
hið breiða svið sálfræðinnar fyrir almenn-
ingi. Til að gera bókina aðgengilega fyrir
alla hefur verið leitast við að forðast upp-
skrúfað fræðimál og sífelldar tilvitnanir í
fræðilegar heimildir. Einnig hefur uppsetn-
ingu eínis verið hagað á þann hátt að bókin
virkar sem einskonar uppflettirit. Fjallað er
um skýrt afmarkað efni í stuttum sjálfstæð-
Hreinn Hreinsson.
um köflum, þannig að auðvelt er fyrir les-
andann að nálgast það efnissvið sem áhugi
hans beinist að.
HÖFUNDAR
Höfundar efnis Sálfræðibókarinnar eru
35 sálfræðingar og einnig eru í hópnum 6
höfundar úr samstarfsstéttum sálfræðinga,
svo sem félagsráðgjafar og geðlæknar.
Ánægjulegt er að sjá að þessir 35 sálfræð-
ingar eru fjölbreyttur hópur. Bæði er þama
um að ræða fólk sem stundar bein meðferð-
arstörf og fólk sem eingöngu fæst við rann-
sóknir og kennslu. Þessi fjölbreytta blanda
eykur gæði bókarinnar þar sem mörg mis-
munandi sjónarhom og viðhorf koma fram.
Em höfundar allt frá því að vera hálfgerðir
dulspekingar upp í það að vera grimmir vfs-
indamenn og er það vel.
ÁHUGAVERÐIR KAFLAR
Flest efnissviðin sem fjallað er um í Sál-
fræðibókinni em áhugaverð, þó flestum
kunni eflaust að finnast eitt svið áhugaverð-
ara en annað. Það fer auðvitað eftir áhuga-
ÁBURÐARDREIFARAR
IkhiIiiiIIo
Áratuga reynsla á (slandi
Nú innrfalið í verði: Vökvastýríng úr ekilssæti á stillingu á áburðarmagni, opnun og lokun.
Sigti til að hreinsa firá köggla og aðskotahluti.
* Hleðsluhæð 92 cm.
* Skálarbreidd 179 cm.
* Dreifibreidd allt að 18-20 m.
* Dreifibúnaðurinn er aflúttaksdrifinn gegnum lokaðan gírkassa, sem er með öryggiskúplingu, sem gefur
stöðugan hraöa viö allar aöstæður.
* Dreifibúnaður allur úr ryðfriu stáli með 8 tíreifispjöldum (mismunandi lengdum.
* Aburðarkassi er bæði á lömum og aftakanlegur, sem auðveldar ásetningu á þrítengibeisli.
* Hefur færanlegan neðri festipinna, þannig að hægt er að setja hann á allar gerðir dráttarvéla.
Ingvar
Helgason hf. vélasala
Sævarhöfða 2, SÍMI 91-674000.
I_s L E N S K
SÁLFRÆÐI
Bókarkápa Sálfræöibókarinnar.
E
l*i
H
B
£
sviði hvers og eins. Kaflamir um uppeldi
bama og unglinga, þroskafrávik og fötlun,
persónuleikann, ávana og stjómleysi ásamt
kaflanum um efri árin eru þau efnissvið
sem veittu mér mesta ánægju við lesturinn.
Uppeldi bama og unglinga er einkar hag-
nýtur kafli og ætti því að gagnast foreldmm
mjög vel. í kaflanum er meðal annars frá-
bær pistill um skammarkrókinn og notkun
hans í uppeldi.
FERSKAR HUGMYNDIR
Kaflinn um persónuleikann er afar gott
yfírlit þar sem öll helstu sjónarmið fræði-
manna koma fram. Kaflinn um ávand og
stjómleysi er nýtt og kærkomið sjónarhom
á áfengismeðferð. Þar kemur til dæmis
fram að algert bindindi sé ekki lausn fyrir
alla sem eiga við áfengisvanda að glíma.
Það viðhorf hefur sjaldan heyrst hér á landi
hingað til. (SÁÁ-menn hafa einokað um-
ræðu um þessi mál án þess þó að styðja mál
sitt haldgóðum rökum - svo sem með því
að vísa á tölur um árangur.)
STREITA OG HEILSA
Kaflinn um streitu og heilsu er að nn'nu
mati sá kafli sem er best heppnaður. Þar er
fjallað um streitu út frá mjög mörgum sjón-
arhomum. Umfjöllunin nær allt frá þeint
lífeðlislegu breytingum sem verða í heila,
og til þess að gefin eru hagnýt ráð til að
minnka streitu. Það em einmitt þessi hag-
nýtu ráð sem eru svo nauðsynleg í bók eins
og þessari. I kaflanum er gefin mjög ná-
kvæm útlistun á því hvemig hægt sé að losa
um streitu. Þæraðferðir sem koma fram em
útskýrðar mjög vel og em því aðgengilegar
öllum þeim sem vilja nýta sér þær.
HÓMER SIMPSON...
Streita er fyrirbæri sem allir í kappakst-
ursþjóðfélagi nútímans finna fyrir, í mis-
miklum mæli þó. Bók eins og sálfræðibók-
in er kjörinn vettvangur fyrir ráð við
„minniháttar vandainálum" sem eru þess
eðlis að fólk þarf ekki nauðsynlega að'feit.i
til sálfræðinga til að lcysa málið. Því má
segja að sálfræðibókin sé forvöm á sumum
sviðum. Hómerar Simpson íslands ættu að
kynna sér þessa umfjöllun vel, þeir geta lát-
ið eiginkonur sínar lesa kaflann fyrir sig
eitthvert kvöldið þegar þær hafa lokið
heimilisverkunum.
GALDRABÓK?
Sálfræðin hefur í gegnum tíðina haft á sér
dularfullt yfirbragð. Ekki er óalgengt að
fólk haldi að sálfræðingar geti á einhvem
hátt lesið hugsanir eða hafi aðra yfirskilvit-
lega hæfdeika. Bók eins og þessi er vel til
þess fallin að breyta viðhorfum fólks í garð
sálfræðinnar með þvf að gefa fólki innsýn í
hver em viðfangsefni þessarar fræðigreinar.
Bókarkápa Sálfræðibókarinnar er hins vaa-
ar í hróplegri mótsögn við innihaldið. Hún
er alsett hinum undarlegustu táknum og
myndum sem þegar betur er að gáð eiga að
vera tákn fyrir hvert efnissvið. Við fyrstu
sýn virðast þetta þó vera tákn sem myndu
sóma sér vel í bók sem fjallaði um galdra og
furðufyrirbæri og því lítt til þess fallin að
minnka hið dulræna yfirbragð sálfræðinnar
sem flestir vilja losna við strax í dag.
AÐFERÐARFRÆÐIN?
Bagalegt er að í Sálfræðibókina vantar
umfjöllun um þær aðferðir sem notaðar eru
við að afla þekkingar í sálfræði. Víða íbók-
inni er reynt að upplýsa um þær aðferðir
sem notaðar eru á hverju sviði en sú um-
fjöllun er í mýflugumynd. Betra hefði v«*;iö
að fjalla um helstu aðférðir í sérstökum
kafla þar sem skýrt væri á mannamáli
hvemig rannsóknir í sálfræði em upp-
byggðar. Ef almenningur er ekki upplýstur
um þessar aðferðir er eins víst að drauga-
sagan um hugsanalestur og stórkostlega
dulræna hæfileika sálfræðinga verði seint
kveðinn niður.
NIÐURSTÖÐUR
Sálfræðibókin er injög efnismikil bók og
því kjörin handbók fyrir heimili. Hún gagn-
ast bæði þegar vandamál koma upp og
einnig við að skilja cigin hegðun betur. Sál-
fræðibókin er vel til þess fallin að minnka
fordóma gagnvart þeim sem eiga við sálræn
vandamál eða fötlun að stríða. Fátt er bt:lp,';
til þess fallið að minnka fordóma en fræðsla
um eðli og orsakir vandamála. Sálfræði-
bókin hefur líka forvamargildi því hún gef-
ur fólki færi á að auka hæfni sína á mörgum
sviðum, til dæmis við uppeldi barna. Gott
uppeldi er besta vömin gegn flestum erfið-
leikum sem upp koma á lífshlaupi einstak-
lings. Sálfræðibókin er góð bók sem allir
ætlu að lesa. Fólki er sífellt að verða það
Ijósara að gott og ánægjulegt líf snýst um
margt annað en góða líkamlega heilsu og
mikla vinnu. Huga þarf að fleiri þáttum til
að lifa góðu lífi. Sálfræðibókin er heppileg
til þess að kynna fólki það sem sálfræðin
hefur upp á að bjóða í þessum efnum.
Stærsti kosturinn við bókina er sá að flest
það sem frarn kemur í henni erstutt með
visindalegum rannsóknuin og eykur það
gildi hennar mjög. Auk þess sen^.það að-
greinir hana frá þeinr nýaldarbókinenntum
sem boða betra líf með aðferðum sem lítið
sem ekkert er vitað um. Sálfræðibókin gef-
ur því fólki kost á að hugsa á nýjum og
ferskum nótum og ekki er vanþörf á því í
spretthlaupsþjóðfélagi nútímans. Að lokum
þetta: Gallalaus er bókin ekki, enda vart
hægt að ætlast til þess af bók um svo lifandi
fræðigrein sem sálfræðin er, en þessir smá-
vægilegu gallar falla í skuggann af af-
bragðsgóðri heild.
Hreinn Hreinsson, höfundur þessa ritdóms lýkur
innan skamms námi í sálfræði og félagsráðgjöf
viö Háskóla íslands.