Alþýðublaðið - 14.05.1993, Síða 17
Föstudagur 14. maí 1993
17
ÞAÐ ER SITTHVAÐ
VERÐJÖFNUNARGJ ALD OG
VERÐ J ÖFNUN ARGJ ALD
Húsbréf
_______ Innlausnarverð
húsbréfa í
1. flokki 1989
1. floidd 1990
2. flokki 1990
2. flokki 1991
Innlausnardagur 15. maí 1993.
1. flokkur 1989
Nafnverð:
5.000
50.000
500.000
Innlausnarverð:
7.402
74.016
740.157
1. flokkur 1990
Nafriverð:
5.000
50.000
500.000
Innlausnarverð:
6.535
65.347
653.468
2. flokkur 1990
Nafiiverð:
10.000
100.000
1.000.000
Innlausnarverð:
12.907
129.069 '
1.290.690
2. flokkur 1991
Nafnverð:
10.000
100.000
1.000.000
Innlausnarverð:
11.997
119.973
1.199.727
Innlausnarstaður:
Veðdeild Landsbanka íslands
u . Suðurlandsbraut 24.
HÚSNÆÐISSTOFNUN RÍKISINS
1—1 HÚSBRÉFADEILD ■ SUÐURLANDSBRAUT 24 108 REYKJAVlK ■ SlMI 696900
Á undanförnum tveimur áratugum
eða svo hefur verðjöfnun og verðjöf-
nunargjöld verið höfð um ólíka hluti.
Sem dæmi má nefna að verðjöfnun hefur
átt við um jafn óskyld fyrirbæri og
sérstakt gjald sem lagt er á bændur til að
greiða fyrir markaðssetningu landbún-
aðarafurða og gjöld sem lögð hafa verið á
innflutt matvæli. Þá hafa innflutnings-
gjöld af ólíkum toga einnig fengið þetta
kunnuglega samhciti: Verðjöfnunar-
gjöld.
Þessi ófrumlegheit í nafnagift hefði í
gegnum tíðina orskað ýmsan misskilning,
nú síðast í umræðunni um EES-samninginn
og þann aukna innflutning á landbúnaðaraf-
urðum sem kemur í kjölfar hans.
Tollar úr tísku
Verðjöfnunargjöld þau sem EES-samn-
ingurinn heimilar að lögð séu á innfluttar
búvörur eiga ekkert skylt við tolla, hvorki
fjáröflunartolla né vemdartolla. Á undan-
fömum 10 til 15 ámm hafa tollar reyndar
verið að fara úr tísku. Þeir þykja almennt
viðskiptaletjandi og af þeim sökum óæskile-
gir í milliríkjaviðskiptum. í stað tolla hafa
ríki í síauknum mæli verið að taka upp
verðjöfnunargjöld; á ensku varible levies
og væri e.t.v. æskilegra að nefna þau breyti-
leg jöfnunargjöld. Ófugt við tollana eiga
þessi breytilegu jöfnunargjöld ekki að draga
úr viðskiptum heidur er þeim einungis ætlað
að jafna út samkeppnisaðstöðumun upp að
vissu marki. Það þýðir að í stað þess að
vemda heimaframleiðslu innflutningslands-
ins er þeim ætlað að stuðla að samkeppni á
jafnréttisgmndvelli.
Veitir ekki vernd
Þá er annar gmndvallarmunur á tollum og
breytilegum jöfnunargjöldum. Tollurinn
reiknast sem fastákveðið hlutfall af innflutn-
ingsverði. Jöfnunargjöldin leggjast hins
vegar aðeins á einn eða fleiri hráefnisþætti
vömnnar. Sé jógúrt tekið sem dæmi þá
leggst breytilega gjaldið aðeins á mjólk-
urfituhluta vörunnar. Hugsunin að baki
þessu er sú að aðildarríkjum EES er með
þessum hætti heimilt að jafna út kostn-
aðarmun í hráefnisinnkaupum í matvæla-
iðnaði. Astæðan er vitaskuld sú að fram-
leiðsluumhverfi í landbúnaði er mismun-
andi eftir rflcjum, bæði hvað snertir niður-
greiðslur, útflutningsbætur o.fl. Til þess að
samkeppnisiðnaður, í þessu tilviki mjólkur-
iðnaður, sitji við sama borð, hafa EES-
löndin heimild til að jafna út þann kostn-
aðarmun sem af þessu hlýst. Fyrir vikið
veitir jöfnunargjaldið mjólkuriðnaðnum
enga vemd og bændum ekki heldur þar sem
einungis má beita gjaldinu upp að vissu um-
sömdu marki. Reynist bændur og mjólkur-
iðnaður ekki samkeppnisfær miðað við
þessar aðstæður verða báðir aðilar að bregð-
ast við því, en t.a.m. aukinni hagræðingu
eða verða undir í samkeppninni ella.
Föst umsamin stærð
Síðast en ekki síst er breytilega jöfn-
unargjaldið umsamin stærð. Vemdar- eða
fjáröflunartollar em undantekningarlaust
settir að fmmkvæði stjómvalda viðkomandi
rfkis nema um refsitolla sé að ræða og þau
geta ráðskast með þessa skattheimtu að vild.
Breytilega jöfnunargjaldið er hins vegar
stærð sem EFTA- og EB-ríkin hafa samið
um, og eru reyndar þessa stundina að semja
um. Að þeim viðræðum loknum verður
gjaldið hreint „afgreiðslumál" og sú stofnun
eða ráðuneyti sem fer með forræðið ræður
engu um framkvæmdina. Það eina sem
stjómvöld viðkomandi ríkis geta fengið ein-
hverju um ráðið er hvort breytilega verð-
jöfnunargjaldinu verði beitt.
Vörn gegn ójafnri samkeppnisstöðu
Breytilegt jöfnunargjald er því í þremur
mikilvægum þáttum frábmgðið tollurn. í
fyrsta lagi veitir það
innflutningslandinu enga
vemd heldur stuðlar það að
samkeppni á jafnréttisgrund-
velli. 1 öðm lagi er það ekki
föst hlutfallsleg stærð sem
legst á innflutningsverð
heldur legst það á einn eða
fleiri hráefnisþætti. í þriðja
lagi er um að ræða umsamda
stærð sem reiknast af
hráefniskostnaði ef'np..
ströngum reglum.
Að þessum forsendum
gefnum hlýtur niðurstaðan
að vera sú að EES-verðjöfn-
unargjaldið eða breytilega
jöfnunargjaldið er ekki neyt-
endafjandsamlegt gjald hel-
dur mikilvægt tæki sem
aðildarríki EES hafa heimild
til að beita í þvf skyni að
verja sig gegn ójafnri
samkeppnisstöðu.
STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS
Laugavegi 120,105 Reykjavík
Sími 91-25444
Umsóknir um lán vegna framkvæmda á árinu 1994 þurfa að berast Stofnlánadeild
landbúnaðarins fyrir 15. september næstkomandi.
Umsókn skal fylgja teikning og nákvæm lýsing á framkvæmdinni, þar sem meðal annars er
tilgreind stærð og byggingarefni.
Ennfremur skal fylgja umsögn héraðsráðunautar og búrekstrarskýrsla, svo og veðbókar-
vottorð. Þá skal fylgja umsókn búrekstraráætlun til 5 ára og koma þarf fram hverjir
væntanlegir fjármögnunarmöguleikar umsækjanda eru.
Þeir sem hyggjast sækja um lán til dráttarvélakaupa á árinu 1994 þurfa að senda inn
umsóknir fyrir 31. desember nk.
Allar eldri umsóknir falla úr gildi 15. september nk.
Það skal tekið fram, að það veitir engan forgang til lána þó að framkvæmdir séu hafnar
áður en lánsloforð frá deildinni liggur fyrir.
Sérstök athygli er vakin á því að Stöfnlánadeild landbúnaðarins ér óheimilt lögum
samkvæmt að fara á eftir öðrum veðhöfum en opinberum sjóðum. Lántakendum er sérstak-
lega bent á að tryggja sér veðleyfi vegna væntanlegrar lántöku frá lífeyrissjóðum öðrum en
Lífeyrissjóði bænda og öðrum þeim aðilum, sem eru með veð í viðkomandi jörð.
@BÚNAÐARBANKI ÍSLANDS
STOFNLÁNADEILD LANDBÚNAÐARINS
KISILIÐJAN VIÐ MYVATN
: j 7 i r>. 6 n - " u r. u ^ u r- _ i j ú - • r A' ; i, þ j 0 0 a =
Aðalfundur
Kísiliðjunnar hf.
Aðalfundur Kísiliðjunnar hf. verður haldinn laugardaginn 15.
maí nk., kl. 15:00 á Hótel Reynihlíð í Mývatnssveit. Dagskrá
fundarins eru hefðbundin aðalfundarstörf.
Friðrik Sigurðsson
framkvæmdastjóri