Alþýðublaðið - 24.02.1994, Síða 2
2 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
Fimmtudagur 24. febrúar 1994
PRÓFKJÖRSBLAÐIÐ
MfflUBLMIÐ
Fjölmennasti aldurshópurinn, börn og unglingar eignist málsvara
í þjóðfélaginu, Umboðsmann barna. Félagsmálaráðherra lagði
fram stjórnarfrumvarp um nýtt embætti á Alþingi í gær:
HVERFISGÖTU 8-10 - REYKJAVÍK - SÍMI 625566
Útgefandi: Alprent hf.
Framkvæmdastjóri: Ámundi Ámundason
Ritstjóri: Siguröur Tómas Björgvinsson
Auglýsingastjóri: Ámundi Ámundason
Setning og umbrot: Hermóður Sigurösson
Prentun: Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing: 625566
Fax: 629244
AHRIFALAUS HOPUR
EIGNAST MÁLSVARA
Áskriftarverð kr. 1.400 á mánuði. Verð í lausasölu kr. 140
Prófkjör
Alþýðuflokksins
Prófkjör fara fram hjá Alþýðuflokknum í Hafnarfirði og Kópa-
vogi á laugardag og sunnudag. Þar fá kjósendur tækifæri til að
hafa áhrif á það hvemig framboðslistar Alþýðuflokksins í þess-
um kaupstöðum verða skipaðir við sveitarstjómarkosningarnar í
maí. Fjöldi fólks gefur kost á sér til framboðs og flokkurinn get-
ur verið stoltur af þeim mikla áhuga sem fólk hefur á að takast á
við bæjarmálin í sínum heimabyggðum. Kjósendur geta þannig
valið milli margra hæfra einstaklinga sem bjóða fram krafta sína
í þágu bæjarfélagsins undir merkjum jafnaðarstefnunnar.
Hin mikla þátttaka á prófkjörslistum flokksins sýnir styrka
stöðu Alþýðuflokksins í Hafnarfirði og Kópavogi. I Hafnarfirði
vill fólk koma til liðs við farsælan meirihluta flokksins í bæjar-
stjóm. í Kópavogi ríkir mikil óánægja með stjómun bæjarins í
höndum Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks. Þar, ekki síður
en í Hafnarfirði, vilja kjósendur veg Alþýðuflokksins sem mest-
an og stór hópur fólks mun taka þátt í að efla flokkinn með því
að taka þátt í prófkjörinu.
Fórkosningar sem þessar hafa fyrir löngu sannað gildi sitt við
skipan framboðslista stjómmálaflokkanna jafnt til sveitárstjóma
sem Alþingis. Þar er ýmist um að ræða opið eða lokað prófkjör,
forval eða skoðanakannanir. Þessi tilhögun á vali á framboðslista
gerir starf flokkanna opnara og eykur áhuga hins almenna kjós-
anda á að taka þátt í því starfi. Með því að fá tækifæri til að hafa
áhrif á það hverjir skipa framboðslista og velja fólki sæti á lista
fá kjósendur bein áhrif á það hverjir muni taka sæti í sveitarstjórn
eða á Alþingi. Á sama hátt ýta prófkjör undir áhuga fólks á að
taka þátt í pólitík og þá ekki síst bæjarmálapólitík. Fólk þarf ekki
að ganga í gegnum síu flokksstofnana til að geta boðið fram
krafta sína í þágu kjósenda. Þeir sem bjóða sig fram í prófkjöri
gangast undir próf þar sem almennir kjósendur era prófdómarar.
Börnin, þaö er aldurs-
hópurínn frá fæðingu til 18
ára aldurs, fjölmennasti
aldurshópurinn í þjóðfé-
laginu, á sér ekki talsmann
í þjóðfélaginu. Á íslandi í
dag er þessi hópur nærri 30
af hundraði, nærri 78 þús-
und einstaklingar. Jóhanna
Sigurðardóttir lagði fram á
Alþingi í gær stjórnar-
frumvarp um Umboðs-
mann barna. Því embætti
er ætlað að vaka yfir hags-
munamálum barna af
ýmsu tagi jafnframt því
sem það skal hafa eftirlit
með því að þeir sem fjalla
um málefni harna fari að
lögum.
Áður rætt á Alþingi
Alþýðuflokkurinn hefur
fyrr komið að málefnum
bama og ungmenna og varp-
að fram hugmyndinni að
stofnun embættis Umboðs-
manns bama. Það var 1978 í
greinargerð með þingsálykt-
unartillögu um umbætur í
málefnum bama. Drög að
lögum um Umboðsmann
bama komu fram 1981 í
greinargerð frá sifjalaga-
nefnd, og fmmvarp til laga
um umboðsmanninn var lagt
fram á Alþingi 1986 og aftur
árið eftir en varð ekki útrætt.
Annað fmmvarp um málið
var lagt fyrir þingið 1990 og
endurflutt árið eftir, en var þá
vísað til ríkisstjómar að til-
lögu allsherjamefndar.
1 gær flutti Jóhanna Sig-
urðardóttir fmmvarpið sem
stjómarfmmvarp og þess að
vænta að það verði loksins
samþykkt sem lög. Nokkrar
umræður urðu um efni fmm-
varpsins, og almennt á vina-
legu nótunum. Þess er vænst
að fmmvarpið verði senn að
lögum.
Þátttakendur í prófkjöri þurfa að fá tækifæri til að kynna sig og
þau málefni sem þeir bera helst fyrir brjósti. Alþýðublaðið í dag
er helgað prófkjöram Alþýðuflokksins í Hafnarfirði og Kópa-
vogi. Öllum frambjóðendum var gefinn kostur á að skrifa stutta
grein til birtingar í blaðinu sem dreift er á hvert heimili í Hafnar-
firði og Kópavogi í dag. Með því vill Alþýðublaðið leggja sitt af
mörkum til að auðvelda frambjóðendum að kynna sig um leið og
kjósendur fá í hendur nokkrar upplýsingar um þá sem gefa kost
á sér til framboðs.
Sumir hafa hom í síðu prófkjöra á þeim forsendum að þau kljúfi
flokka í stað þess að þjappa fylgismönnum þeirra saman. Enn-
fremur er rætt um að jafnræði sé ekki með frambjóðendum þar
sem sumir hafi efni á að eyða meiru fé til kosningarbaráttu held-
ur en aðrir. Þetta era haldlítil rök. Sú aðferð að láta fámennar
uppstillingamefndir velja frambjóðendur er ekki lýðræðisleg og
hefur oftar en ekki leitt til meiri sundrangar en samheldni innan
flokka. Forkosningar era lýðræðislegur háttur til að velja fram-
bjóðendur á lista. Kjósendur fá að vera með frá upphafi við að
velja þá sem þeir treysta best til að skipa framboðslista við kosn-
ingar. Hvað varðar kostnað við að vekja athygli á sér í prófkjörs-
baráttu þá er óhætt að fullyrða að sá kostnaður er í lágmarki. Fá-
mennið auðveldar fólki að koma sér á framfæri án þess að kosta
til þess miklu fé. En mikilvægust er þó sú staðreynd að hér á
landi era kjósendur ekki ginkeyptir fyrir íburðarmiklum og dýr-
um áróðursherferðum í þágu einstakra frambjóðenda. Enda sýna
dæmin að það er ekki trygging fyrir góðri útkomu á prófkjöri að
eyða miklum peningum í baráttuna.
Um helgina munu þúsundir kjósenda í Hafnarfirði og Kópavogi
taka þátt í prófkjöri Alþýðuflokksins. Nú er það kjósenda að
velja á lýðræðislegan hátt þá frambjóðendur sem koma til með
að leiða flokkinn í komandi sveitarstjómarkosningum. Líkt og
annars staðar skiptir hér hæfni frambjóðenda öllu og brýnt að
kjósendur velji „fólk til forystu“, svo vitnað sé til hafnfirskra
jafnaðarmanna. Tökum þátt og styrkjum þannig lýðræðið í land-
inu.
Verkefni Umboðs-
manns barna
í 3. grein frumvarps til
laga um Umboðsmann bama
er skilgreint í hverju embætt-
ið er fólgið. Sú grein fylgir
hér á eftir í heild sinni:
„ Umboðsmaður barna
skat vinna að því að stjóm-
sýsluhafar, einstaklingar, fé-
lög og samtök einstaklinga
taki fidlt tillit til réttinda.
þatfa og hagsmuna bama. I
starfi sínu skal umboðsmað-
ur bania setja fram ábend-
ingar og tillögur um úrbætur
sem snerta hag barna á öll-
um sviðum samfélagsins.
Umboðsmaður bama skal
einkum:
a. Hafa frumkvœði að
stefimmarkandi umrœðu í
samfélaginu um málefni
bama.
b. Koma á framfæri tillög-
um um úrbœtur á réttarregl-
um og fyrirmœlum stjóm-
sýsluhafa er varða böm sér-
staklega.
c. Stuðla að því að þjóð-
réttarsamningar, er varða
réttiiuli og velferð bama og
fullgiltir hafa verið aflslands
hálfu, séu virtir.
d. Bregðast við telji hann
að stjómsýsluhafar, einstak-
lingar, félög og samtök ein-
staklinga, liafi með athöfnum
sínum eða athafnaleysi hrot-
ið gegn réttindum, þörfum og
hagsmunum barna í samfé-
laginu.
Telji umboðsmaður bama
að ákvœði d-liðar 2. máls-
greinar, kunni að hafa verið
brotið, skal hann beina rök-
JÓHANNA SIGURÐAR-
DÓTTIR félagsmálaráðherra
lagði fram stjómarfrumvarp
um emhœtti Umboðsmanns
barna á Alþingi í gœr. Fjöl-
mennasti aldurshópur þjóðfé-
lagsins á að eignast opinbcran
forsvarsmann sem gœta á rétt-
inda og liagsmuna barna og
unglinga.
Alþýðublaðsmynd/Einar Ólason
studdri álitsgerð til viðkom-
andi aðila ásamt tillögum um
úrbœtur, eigi það við“.
Litið til góðrar
reynslu Norðmanna
Einkum er litið til Noregs
með fyrirmyndina að hinu
nýja embætti. Þar í landi hef-
ur starfað umboðsmaður
bama frá 1981. Norðmenn
bentu á sem meginástæðu til
stofnunar embættisins að
staðreyndin væri sú að böm
væm áhrifalaus hópur í
stjómmálalegu tilliti og því
ekki þess megnug að hafa
áhrif á löggjöf eða ákvarð-
anatöku sem snertir hag
þeirra beint eða óbeint.
I Noregi er það samdóma
álit þeirra sem gleggst þekkja
til að tilgangur norsku lag-
anna hafi náðst, tekist hafi að
koma á fót embætti sem
tryggir norskum bömum að
hagsmuna þeirra er í hví-
vetna gætt við lagasetningu,
skipulagningu og ákvarðana-
töku í samfélaginu.
Á síðasta ári komu Svíar á
embættf umboðsmanns
bama. I Danmörku hefur
fmmvarp í þessa vemna ver-
ið fellt ítrekað. Þar í landi
telja menn að málefnum
bama sé best borgið hjá fé-
lagsþjónustu sveitarfélag-
anna. 1 Finnlandi hefur starf-
að í 70 ár stofnun á vegum
einkaaðila sem unnið hefur
að réttindamálum bama og
umbótum á högum bamaíjöl-
skyldna. Stofnunin kom á fót
starfsemi umboðsmanns
bama 1981 og umræður em
þar í landi um ríkisrekið
embætti umboðsmannsins.
Hinir fullorðnu
stjórna
íslensku þjóðfélagi er
stjómað af hinum fullorðnu.
Ákvarðanir um uppbyggingu
þess, forgangsröð verkefna,
framkvæmir og skiptingu
fjármagns virðast fyrst og
fremst taka mið af hagsmun-
um og þörfum hinna full-
orðnu. Böm em ekki þrýsti-
hópur hér á landi. Þau hafa
ekki neinar forsendur til að
fylgja eftir réttinda- og hags-
munamálum sínum eða
vekja athygli á því sem betur
má fara.
„Heildstæða fjölskyldu-
stefnu skortir hér á landi og
tilhneiging hefur verið til að
skilgreina málefni bama sem
„hin mjúku mál“ með þeim
afleiðingum að þau hafa setið
á hakanum þegar ákvarðanir
em teknar um skipulagningu
þjóðfélagsins og ráðstöfun
fjármuna ríkisins. Því er full
þörf á því að hér á landi starfi
umboðsmaður barna", segir í
frumvarpinu sem nú er til
umræðu á Alþingi.
Það er tekið fram í fmm-
varpinu að ekki sé ætlunin að
setja á stofn embætti seiri taki
við verkefnum sem stjóm-
völdum, stofnunum eða ein-
staklingum, sem liefur verið
falið að vinna samkvæmt
lögum í þágu bama. Það er
heldur ekki ætlunin að hrófla
við fjölmörgum lagafyrir-
mælum sem leggja ýmsar
skyldur áherðar ýmissa aðila
í málefnum bama. Umboðs-
manni bama er ekki ætlað að
hafa afskipti af málefnum
einstakra bama, deilum for-
sjáraðila og stofnana eða öðr-
um einstaklingsbundnum
ágreiningsefnum hvort held-
ur þau eru á sviði bamaréttar,
bamavemdar, skólamála eða
öðmm sviðum. Löggjafinn
hafi nú þegar falið ýmsum
stjómvöldum og stofnunum
að leysa þau verk af hendi.
Engin hætta á
skörun verkefna
En hvar em valdmörk
Umboðsmanns bama?
I fmmvarpinu segir að
ekki sé hætta á skömn á verk-
efnum Umboðsmanns bama
og Umboðsmanns Alþingis
eða einstakra aðila í stjóm-
sýslunni, sem koma að mál-
efnum barna og ungmenna.
Umboðsmaður Alþingis
hefur á sex ára starfstíma haft
afskipti af ýmsum málum
sem snerta böm á einn eða
annan hátt. Má þar nefna
bamavemdar-, forsjár-, og
umgengnismál auk mála-
fiokka sem snerta böm beint
eða óbeint, til dæmis skóla-
mál, bygginga- og skipulags-
mál, heilbrigðismál, al-
mannatryggingamál og
fleira.
Umboðsmanni bama er
hinsvegar ekki ætlað að láta í
ljósi álit á því hvort stjóm-
völd hafi brotið gegn lögum
eða góðri stjórnsýslu við
ákvarðanir eða í úrskurðum í
einstökum málum, til dæmis
í forsjár- og umgengnismál-
um.
„Umboðsmanni bama er
hinsvegar ætlað að leiðbeina
þeim sem hagsmuna eiga að
gæta í slíkum málum um rétt
þeirra til endurskoðunar á
ákvörðun, hvort heldur er
með málskoti til æðri stjóm-
valda eða dómstóla eða með
því að vísa málinu til Um-
boðsmanns Alþingis. Vitn-
eskja Umboðsmanns bama
gæti hinsvegar orðið þess
valdandi að hann læki um-
ræddan málafiokk almennt
til sérstakrar athugunar, teldi
hann að hagsmunum barna
vegið eða réttur þeirra væri
ekki nægilega tryggður. Um-
boðsmaðurbama kæmi síðan
athugasemdum sínum og til-
lögum á framfæri við við-
komandi aðila", segir í fmm-
varpinu. Bent er á að í Noregi
hafi ekki komið til neinna
árekstra milli embætta um-
boðsmanna Stórþings og um-
boðsmanns bama.
Embætti Umboðsmanns
barna á að heyra undir for-
sætisráðuneytið, en forseti
íslands skipar, að tillögu for-
sætisráðherra, í embættið, til
fimm ára í senn. Umboðs-
maðurinn á að hafa lokið há-
skólaprófi, vera 30 ára eða
eldri. Hafi hann ekki lokið
lögfræðiprófi skal ráða lög-
fræðing til embættisins.
• •
ROSKVA
ÓSIGRANDI!
Röskva, samtök l'é-
laghyggjufólks við Há-
skóla Islands, var sigur-
vegari kosninga til
stúdentaráðs sem fram
fóru í fyrradag. Af
þrettán sætum sem kos-
ið var um hlaut Röskva
sjö, Vaka fékk finmt og
óháður listi einn mann
kjörinn. Var inál
manna að Röskva hcfði
unnið þarna mikinn
varnarsigur og sýnt það
og sannað hversu mikill
styrkur býr í þessari
hreyfingu sameinaðra
vinstrimanna. I»ó var
ekki laust við að inenn
hefðu áhyggjur af því
að hið óháða framboð
kæmist í einhverskonar
oddaaðstöðu. Svo varð
ekki. Þetta er fjóröi sig-
ur Röskvu í röð og and-
stæðingarnir virðast
hcillum horfnir.
Alþýðublaðið hafði
samband við formann
Röskvu. Jón Þór Sturlu-
son, og spurði hann út í
sigurinn. „Röskva hélt ró
sinni í baráttunni og kast-
aði sér ekki í sandkassa-
leik Vökumanna og við
uppskárum eins og við
sáðum. Það cr fullkom-
lega Ijóst að málstaður
félagshyggjunnar á sér
mikinn hljómgrunn með-
al háskólanema um þcss-
ar mundir sem og annars-
staðar. Aðspurður um
hvon að þessi sigur gefi
tóninn fyrir borgarsíjóm-
arkosningarnar í vor scg-
ir Jón Þór það ansi lík-
JÓN POR SWRLU-
SON, formaihtr
Röskvu: „Málstaðurfé-
lagshyggjunuar á sér
rttikinn hljómgrttnn. ”
Alþýðublaðsmynd.
/EinarÓlason
legt. „Félagshyggjan hef-
ur mikinn meðbyr um
þcssar mundir,"
ISLENSK BÖRN - áhrifalaus hópur í stjórnmálalegu tilliti.
Alþýðnblaðsmynd / Einar Ólason