Alþýðublaðið - 24.02.1994, Síða 9
ALÞÝÐUBLAÐIÐ 9
Fimmtudagur 24. febrúar 1994_________
KÓPAVOGUR: Rúnar Geir-
mundsson
Köllum Loft
til starfa
Þegar ég frétti að
Lofitur Þór Pétursson
ætlaði að gefa kost á sér í
prófkjör Alþýðuflokks-
ins í Kópavogi fyrir
sveitarstjórnarkosning-
amar í vor, fagnaði ég
því. Mig langar með ör-
fáum orðum að hvetja
Kópavogsbúa til að veita
Lofti gott gengi á kom-
andi A-lista.
Hvers vegna? Jú, allt
frá því ég kynntist Lofti
fyrst árið 1976, en þá var
hann formaður nema í
húsgagnaiðnum og ölull
talsmaður jafnaðarstefn-
unnar, sannur krati frá
bamæsku og baráttu-
maður fyrir lýðræðisleg-
um vinnubrögðum innan
iðnnemahreyfingarinn-
ar, sem þá var full af
kommum og marxistum
sem gám ansi oft verið
erfiðir viðureignar, en
þar kom Loftur mörgu
góðu til leiðar.
Undanfarin tíu ár hef-
ur Loftur rekið sitt eigið bólstmnarfyrirtæki bæði
einn og með öðmm, ár sem hafa verið erfið vegna
samkeppni erlendis frá. Hann hefur verið harður bar-
áttumaður fyrir því að lítil iðnaðar- og þjónustufyrir-
tæki á borð við hans, fái af sér staðið þá hörðu sam-
keppni erlendis frá sem orðið hefur þess valdandi að
hundruð eða þúsundir góðra fagmanna hafa horfið
til annarra staifa.
f Sem formaður Meistarafélags húsgagnabólstrara
hefur Loftur barist fyrir því að ríki og sveitarfélög
hlúi að þeim fáu og litlu iðnfyrirtækjum sem þó em
eftir í landinu og beini sínum viðskiptum til þeirra.
Það myndi styrkja undirstöður þeirra. Smáfyrirtæki í
iðnaði em uppspretta nýrra starfa og helsta vopnið
gegn atvinnuleysi.
Ég óska Kópavogsbúum til hamingju með það að
Loftur Þór skuli nú bjóða sig fram til góðra verka og
vona að sem flestir mæti í prófkjörið um helgina og
kjósi Loft í ömggt sæti, þar sem hann mun sóma sér
veþmeð því ágæta fólki sem á listann fer.
Ég er sannfærður um það að félagar okkar í for-
ystusveit Alþýðuflokksins í Kópavogi taki góðum
dreng fagnandi og muni nýta sér krafta hans í fram-
tíðinni.
Höfundur er framkvæmdastjóri.
KÓPAVOGUR: Sigríður
Jónsdóttir
Égvil
berjast fyrir
réttlæti
Kópavogur er bær í
ömm vexti, en þar er þó
ýmislegt sem þarf að
huga að. A undanfömum
ámm hefur mikið verið
byggt í Kópavogi en
ekki alltaf verið hugsað
um þá þætti, sem nauð-
synlegir em öllu mann-
lífi, svo það geti dafnað
eðlilega. Það sjónarmið
hefur verið ríkjandi, að
það sem gefur meira í
aðra hönd hvað varðar peninga hefur stjómað ferð-
inni.
Kirkjan
Á þessu kjörtímabili ætluðu stjómvöld að fara
með offorsi og ráða ferðinni, hvað sem fólkið t bæn-
um segði. Samþykkt var í bæjarstjóm að byggja
kirkju á Víghólnum í trássi við fbúana og hafist var
Loftur Þór Pétursson.
Rúnar Geirmundsson.
PROFKJ ORSBLAÐIÐ
handa þrátt fyrir allar viðvaranir. Þá reis söfnuðurinn
upp og mótmælti. Við svo búið varð meirihluti bæj-
arstjómar að viðurkenna, það er Framsóknar- og
Sjálfstæðismenn, að völdin væm ekki í þeirra hönd-
um.
Nú situr eftir sviðin jörð og hrópleg sár, sem ber
menjar eftir þau átök sem áttu sér þar stað. Það hefði
ef til vill verið skynsamlegra að hlusta á aðvaranir
fyrrverandi ráðamanna, sem þekktu sitt fólk. Þetta er
liðin tíð og nú er söfnuðurinn að byggja kirkju yfir
fólkið sitt í Digraneshltðum. Vonandi verður þetta
atvik til að draga lærdóm af.
Forstöðumaður sundlaugar
Mikil átök urðu urn forstöðumann sundlaugarinn-
ar. Flestir höfðu búist við því, að forstöðumaður
gömlu sundlaugarinnar myndi halda sínu starfi
áfram þegar nýja sundlaugin yrði tekin í notkun. Það
urðu því sérstök vonbrigði, þegar honum var sagt
upp starfi og nýr forstöðumaður ráðinn, einkum
vegna þess, að hin nýja sundlaug hafði verið hugar-
fóstur fyrrverandi forstöðumanns og mikið baráttu-
mál.
Á þessu kjörtímabili hafa verið ráðnir tveir for-
stöðumenn að sundlauginni.
Endurskoðandi
bæjarreikninga
Endurskoðandi bæjarreikninga var líka látinn
Qúka, þar sem nú átti að taka ærlega til hendi og
leggja spilin á borðið. Fjárhagsáætlunin stóðst ekki
betur en svo, að í síðasta mánuði ársins 1992 skrif-
uðu bæði forseti bæjarstjómar, Amór Pálsson, og
bæjarstjóri í jólablöðin, að skuldimar myndu lækka
um 230 ntilljónir, en þær lækkuðu bara ekki neitt.
Á árinu 1994 er gert ráð fyrir að laun endurskoð-
enda muni hækka um 137% frá árinu 1990, þegar
skipt var um endurskoðenda.
Rekstrarstjóri bæjarins
Rekstrarstjóri var kominn vel inn í mál bæjarins
þegar starf hans var lagt niður og hann látinn fara.
Hann sótti þá um starf starfsmannastjóra, en fékk
ekki. Trúlega ekki réttur pólitískur litur?
Það hefur verið mjög kostnaðarsamt fyrir Kópa-
vogsbæ þegar starfsfólk, sem hefur unnið af atorku
og áhuga fyrir bæinn, hefur verið látið víkja úr starf
vegna annarlegra sjónarmiða.
Umhverfismálin
Kópavogur skipaði sér á bekk meðal fremstu bæj-
arfélaga á Islandi hvað varðar uinhverfismál, á fyrra
kjörtfmabili, þegar reglugerð um Umhverfisráð í
Kópavogi var samþykkt og garðyrkjustjóri ráðinn.
Með stofnun garðyrkjudeildar gátu bæjaryfirvöld
fengið betri yfirsýn yfir stöðu umhverfismála og
þannig staðið að framkvæmdum á hagkvæmari og
markvissari hátt.
Þrátt fyrir að umhverfismálin séu ein af mikilvæg-
ustu málunt framtíðarinnar var Umhverfisráðið gert
að engu og garðyrkjustjóri mátti taka föggur sínar og
fara. Með nýju skipuriti var verið að skipa skipulags-
málum og framkvæmdamálum á stall, sem þýðir
einungis, að umhverfismálunum er vikið til hliðar
fyrir sjónarmiðum peningahyggjunnar.
Höfundur er bæjarfulltrúi og myndmenntakennari. Hún tekur
þátt í prófkjöri Alþýðuflokksins í Kópavogi.
HAFNARFJÖRÐUR/KÓPA-
VOGUR: Sigurður Pétursson
Treystum
ungu fólki -
treystum
framtíðinni
Þegar Alþýðuflokkurinn tók upp opin prófkjör við
val á frambjóðendum þótti það djarft og ffamsækið
skref. Það þarf ekki að koma á óvart, þegar flokkur
jafnaðarmanna á í hlut. En eins og allir vita hafa
lognmolla og sofandaháttur ekki verið meðal ein-
kenna Alþýðuflokksins síðasta áratuginn eða meir.
Miklar vonir voru bundnar við prófkjörin, sem að-
ferð til þess að fá fram skoðun sem flestra kjósenda
við uppröðun listum. Þær vonir hafa ræst og styrkt
þá venju innan flokksins. Alþýðuflokkkurinn hefur
sýnt að hann er opinn, lýðræðislegur flokkur þegar
kemur að framboðsntálum. Samt er ekki því að neita
að vissir hlutir í sambandi við prófkjörin, sem telja
verður til baga, hafa komið fram og þróast með
þeim.
Kostnaður frambjóðenda hefur oft á tíðum farið í
óhugnanlegar upphæðir, þannig að þeir sem ekki
ráða yfir ijármagni hafa verið vonlausir um árangur.
Ekki hefur þetta verið
áberandi hjá Alþýðu-
flokknum, en mest borið
á slíku í kosningum
meðal sjálfstæðismanna.
Annað atriði sem vak-
ið hefur athygli, bæði hjá
Alþýðuflokknum og
öðrum flokkum, er hve
erfitt ungt fólk hefur oft
á tíðum átt uppdráttar í
almennum prófkjörum.
Einnig hafa konur mátt
láta í minni pokann í
slíkum slag oftar en vera
skyldi. Ekki skal fjölyrt
um ástæður þessa, en ein
ástæðan er oft sú að at-
kvæði dreifast mjög í
kosningum sem þessum,
sérstaklega þegar margir
jafningjar bjóða sig
fram.
Sigurður Pétursson.
Mikið úrval ungs
p/n ®
folks
Þessar hugrenningar
sækja á nú þegar nálgast
prófkjör í tveimur af
traustustu vígjum okkar
jafnaðarmanna í Hafnar-
firði og Kópavogi. Á
báðum stöðum er hópur
valinkunnra jafnaðar-
manna í framboði, eldri
sem yngri. Þar fara
fremstir forystumenn
flokksins í þessum næst-
stærstu bæjum landsins,
margreyndir í félagsmál-
um og stjómmálum.
Ungt fólk tekur virkan
þátt í prófkjömnum, og
vekur sérstaldega athygli
fjöldi ungra jafnaðarmanna sem býður sig fram í
Hafnarfirði. Sannar það enn að Alþýðuflokkurinn í
Hafnarfirði er flokkur unga fólksins í bænum þar
suður í hrauninu.
Meðal þeirra sem gefa kost á sér fyrir Alþýðu-
flokkinn í Hafnarfirði em margir sem starfað hafa
fyrir FUJ í Hafnarfirði og setið í stjórn Santbands
ungra jafnaðarmanna undanfarin ár. Þar em þau
Kristín List Malmberg, Gúðbergur Olafsson, Magn-
ús Hafsteinsson og Sigþór Ari Sigþórsson, öll þraut-
reynd í félagsmálum. Ungt fólk sem haslar sér nú
völl í atvinnulífinu, og munu verða flokknum til
framdráttar í baráttunni.
1 Kópavogi gefur Hreinn Hreinsson núverandi
formaður FUJ í bænum kost á sér. Um hann gildir
hið sama auk þess sem hann er þekktur fyrir hnyttin
pólitísk tilsvör eins og komið hefur fram í Alþýðu-
blaðinu. Allt þetta fólk hefur tekið þátt í uppbygg-
ingu SUJ undanfarin misseri, og er tilbúið að axla
ábyrgð fyrir flokkinn og sína heimabyggð.
Hreinn Hreinsson.
Sigþór Ari Sigþórsson.
Sameinumst um Sigþór Ara í Hafnarfirði
Það er ljóst að margir stuðningsmenn Alþýðu-
flokksins í Hafnarfirði munu eiga erfitt nteð að gera
upp á milli þess fjölda ungs fólks sem er í boði í próf-
kjöri flokksins. Því er hætta á að dreifing atkvæða
verði mikil og enginn fulltrúi ungs fólks nái að verða
meðal efstu manna á listanum. Til þess að tryggja
hlut ungs fólks á listanum, þurfa Hafnfirðingar því
að sameinast um að styðja einn úr hópnum í eitt af
efstu sætunum sex. Áðeins þannig mun fulltrúi
ungra jafnaðarmanna ná lykilstöðu. Þess vegna hvet
ég alla jafnaðarmenn í Hafnarfirði til að styðja
Sigþór Ara Sigþórsson í eitt af sex efstu saetunum
á lista Alþýðuflokksins við næstu bæjarstjórnar-
kosningar.
Sigþór Ari hefur verið formaður í Félagi ungra
jafnaðarmanna í Hafnarfirði og setið í stjóm SUJ.
Hann hefur ennfremur gegnt trúnaðarstöðum fyrir
Röskvu, samtök félagshyggjufólks í Háskólanunt.
Sigþór hefur starfað fyrir Hafnaríjarðarbæ, og þekk-
ir vel til mála á þeim bæ. Hann er verkfræðingur að
mennt og vel heima í öllu er viðkemur framkvæmd-
um, skipulags- og umhverfismálum. Hann hefur
starfað að málefnum ungs fólks í mörg ár. Fullyrða
má að Sigþór Ari þekkir til aðstæðna ungs fólks og
er verðugur fulltrúi þeirra.
Alþýðuflokkurinn - fyrir breytingar
Þegar Alþýðuflokkurinn setti sér sem reglu að
velja frambjóðendur á lista flokksins með prófkjör-
um, þótti það djarft tiltæki á sínunt tíma. Jafnaðar-
menn hafa sýnt að þeir treysta stuðningsfólki sínu til
að velja fúlltrúa sína í trúnaðarstöður í bæjarstjórn-
um og á þingi. Ungt fólk er einn stærsti kjósenda-
hópurinn í Hafnarfirði og Kópavogi. Tryggjunt ungu
fólki framgang í prófkjörum Alþýðuflokksins, og
sýnum að jafnaðarmenn þora að treysta unga fólkinu
fyrir ábyrgðarhlutverki. Hlutverki sem það hefur
sýnt með störfum sínum að það rís vel undir. Hreyf-
ing jafnaðarmanna mun njóta þess unt framtíð.
Höfundur er sagnfræðingur.
KÓPAVOGUR: Margrét B.
Eiríksdóttir
Mannlíf eða
malbik?
í Kópavogi í dag
hugsa bæjaryfirvöld um
malbik, - ekki mannlíf
eða menningu. Ekki um
ungt og uppvaxandi
fólk. Ekki um þarfir
þeirra sem komnir eru á
efri ár. En er þetta það
sem fólkið vill? Er ekki
betra að veljá gæði frem-
ur en magn? Það er álit
mitt að hér þurfi að
verða hugarfarsbreyting.
I staðinn fyrir að dekra við verktaka viljunt við
hlynna að mannlega þætlinum í bænurn.
Utþenslustefna núverandi meirihluta bæjarstjóm-
ar í Kópavogi er komin út í hreinar öfgar. Bærinn
keppist við að bólgna sem mest út og verða risastórt
bæjarfélag. Ljóst er að nú á að ráðast í úthlutun lóða
í Fífuhvammslandi og þarmeð stórfellda aukningu
íbúa í bænum.
Á sama tíma blasa við uggvænlegar staðreyndir á
byggingasvæðunum á Nónhæð og í Suðurhlíðum
þar sem íhaldið segist hafa selt allar lóðir. Þar er allt
eitt flakandi sár og virðist verða svo um mörg ár enn.
Þegar ekið er um þessi hverfi kemur í ljós að upp-
steyptar byggingar þar eru margar hveijar til sölu. I
stóiri blokkarbyggingu hafa aðeins örfáar íbúðir
selst. Byggingameistarar sem hafa byggt húsin geta
ekki selt. Hið mikla lóðaframboð sem Kópavogur
hefur státað af hefur skapað vandamál, sem bygg-
ingameistarar og bærinn kljást nú við. Samt skal
haldið áfram uppbyggingu sem kostar ómælt fé í
þjónustu fyrir fólk sem á að flytja í bæinn. Til hvers?
Kópavogsbúar ættu umfram allt að varast ofþensl-
una í byggingamálum f kaupstaðnum, enda eru vítin
til að varast þau. Kópavogur hefur áður kynnst of-
þenslu sem þessari. Hún þýddi um árabil að bæjar-
búar voru illa settir í skólamálum og annarri þjón-
ustu við íbúana. Nú stendur til að endurtaka þann
leik, ef íhaldið fær að ráða hér í bæ. Að sjálfsögðu
verða menn nú að stíga á bremsuna, - hætta verk-
taka- og byggingaméistaradekri íhaldsins, - og fara
að taka á málum íbúanna sjálfra. Þar eru mörg verk-
efni óleyst, og mun merkilegri og verðugri en að
belgja bæinn út og reikna með 800 íbúa fjölgun á ári
hverju í náinni framtíð eins og nú er stefnt að.
I mínum huga boða slíkar framkvæmdir ekki ann-
að en gúmmítékka sem Kópavogsbúar verða að
greiða, enda kemur að skuldadögum fyrr en varir. Er
þó skuldsetning bæjarfélagsins ærin fyrir þótt ekki
verði enn bætt við hana.
Ég tel mig geta talað fyrir hönd krata í Kópavogi
þegar ég fullyrði að verkefnin framundan em fólgin
í betri þjónustu við alla aldurshópa í bænum, að ekki
sé talað um stórfellda eflingu atvinnulífsins í bæn-
um, sem lítið hefur verið sinnt á undanfömum árum
af núverandi meirihluta.
Svo ég nefni dærni um þjónustu sem að stómm
hluta hefur verið vanrækt í bænum, nefni ég málefni
unglinga. Þar hefur eitthvað verið að gert í samvinnu
við skólana. Eftir stendur sú staðreynd að einmitt
þeir unglingar sem mests stuðnings þarfnast, krakk-
ar sem úthýst hefur verið vegna hegðunar- og aga-
vandamála, eiga í engin hús að venda í dag. Það er
vitað að þessum hópi má finna efnisfólk, sem oftar
en ekki má bjarga með þróttmiklu og heilbrigðu
starfi, enda segir máltækið að oft verði góður hestur
úr göldum fola.
Kópavogur var í eina tíð þekktur fyrir öfluga fé-
lagsþjónustu og vissulega eimir enn eftir af þeiirí
uppbyggingu, sem Alþýðuflokkurinn átti stærstan
þátt í að koma á fót. Núverandi meirihluta helur þó
tekist að draga verulega úr þessum þætti í starfsemi
bæjarfélagsins og er það miður. Ég hef orðið vitni að
niðurskurði á þjónustu við aldraða. Þetta blöskrar
mér að horfa upp á. Félagslegt öryggi bæjarbúa
verður að setja á oddinn. Án þess verður bærinn okk-
ar næsta lítils virði.
Þegar ég flutti í bæinn fyrir rúmum 20 ámm
blómstraði hér menningarlíf sem vakti athygli langt
út fyrir bæinn. Hvað hefur gerst á þessu sviði? Bæj-
aryfirvöldum hefur tekist að slökkva þann menning-
areld sent hér logaði fyrmrn. Ég vil leggja áherslu á
að bærinn kveiki þann eld að nýjú.
Kópavogsbúar. Ég hef ákveðið að gefa kost á mér
í prófkjöri míns flokks, Alþýðufiokksins, sem fram
fer á laugardag og sunnudag. Ég óska eftir að fá
brautargengi á lista okkar við bæjarstjórnarkosning-
amar í vor. Ég mun vinna í anda félagshyggju og
frjálsræðis í bæjarstjóm Kópavogs, - fyrir íbúana og
málefni þeirra, gegn óskynsamlegri útþenslu, sent
aðeins stefnir að því að skerða þjónustuna við þá
sem í dag búa í bænum.
Höfundur er söiufuiitrúi hjá Flugleiðum. Hún tekur þátt i
prófkjöri Alþýðuflokksins i Kópavogi.