Alþýðublaðið - 24.02.1994, Page 18
18 ALÞÝÐUBLAÐIÐ
PRÓFKJÖRSBLAÐIÐ
Fimmtudagur 24. febrúar 1994
Hvers vegna prófkjör?
Alþýðuflokkurinn og jafnaðarstefnan
leggur áherslu á rétt einstaklingsins til að
hafa áhrif á starf og stefnu. Hann ástundar
lýðræðisleg vinnubrögð og vill að allir
jafnaðarmenn og stuðningsmenn jafnaðar-
stefnunnar séu virkir þátttakendur í
stefnumótun og vali á mönnum til
trúnaðarstarfa. Hann hefur treyst á
almenna dómgreind stuðningsmanna
sinna. Reynslan hefur sannað að fólk kann
að meta það traust sem felst í slíkum
vinnubrögðum. Pað var undirstrikað í
síðustu bæjarstjórnarkosningum þegar
Alþýðuflokkurinn fékk sex bæjarfulltrúa.
Alþýðuflokkurinn í Hafnarfirði er ávallt
reiðubúinn að leggja menn og málefni
undir mat bæjarbúa. Svo einfalt er þetta.
Prófkjörið
Kosning í prófkjöri Alþýðuflokksins í
Hafnarfirði fer fram laugardaginn 26.
febrúar og sunnudaginn 27. febrúar
næstkomandi. Kosið er í Alþýðuhúsinu
Strandgötu 32.
Kjörfundur er frá klukkan 10:00 til 20:00
á laugardaginn og 10:00 til 20:00 á
sunnudaginn.
Pátttaka í prófkjörinu er heimil öllu
stuðningsfólki Alþýðuflokksins í Hafnarfírði
sem kosningarétt hefur í bæjarstjórnar-
kosningum 28. maí í vor.
Allir félagar í F.U.J. í Hafnarfirði hafa
kosningarétt í prófkjörinu.
Kjósa skal með því að setja tölustafína 1
til 12 framan við nöfn frambjóðenda.
Merkja skal mest við 12 nöfn en minnst
við 6 nöfn, annars er kjörseðillinn ógildur.
Allt stuðningsfólk Alþýðuflokksins er
hvatt til að taka þátt í prófkjörinu. Þannig
hefur það áhrif, bæði á menn og málefni.
Sjáumst í Alþýðuhúsinu 26. og 27. febrúar.
Kaffiveitingar verða seldar í Hafnarborg
báða dagana meðan kjörstaður er opinn.
Frambj óðendur
Alþýðuflokksins
Andrés Ásmundsson,
38 ára byggingafræðingur
Anna María Guðmundsdóttir
31 árs fóstra
Anna Kristín Jóhannesdóttir
37 ára kennari
Eyjólfur Sæmundsson
43 ára verkfræðingur
Guðbjörn Olafsson
26 ára símsmíðameistari
Guðjón Sveinsson
47 ára verslunarinaður
Helga Hafdís Magnúsdóttir
45 ára skrifstofumaður
Hrafnhildur Jónsdóttir
34 ára þjónustustjóri
Hrafnhildur Pálsdóttir
26 ára skrifstofumaður
Magnús Árnason
29 ára sagnfræðinemi
Magnús Hafsteinsson
36 ára verktaki
Ómar Smári Ármannsson
39 ára aðst.yfirlögregluþjónn
Tryggvi Harðarson
39 ára blaðamaður
Unnur Aðalbjörg Hauksdóttir
35 ára verkakona
Valgerður M. Guðmundsdóttir
46 ára káupmaður