Alþýðublaðið - 09.12.1994, Síða 1
Föstudagur 9. desember 1994
Stofnað 1919
188. tölublað - 75. árgangur
Forval Kvennalistæis í Reykjavík:
Elín G. Olafsdóttir sækir
óhrædd að þingkonunum
Guðrún Halldórsdóttir hætt við að draga sig í hlé. Kristín Ástgeirs-
dóttir óskoraður leiðtogi en óánægja meðal yngri kvenna.
„Afhverju ekki? Ég er kona á
besta aldri og mér svellur móður
að láta til mín taka,“ sagði Elín G.
Óiafsdóttir fyrrum borgarfulltrúi
aðspurð hvort hún sæktist eftir
þingsæti í forvali Kvennalistans í
Reykjavík sem nú stendur yfir.
Samkvæmt heimildum Alþýðu-
blaðsins eru talsverðar líkur á því
að Elín geti blandað sér í toppbar-
áttuna, jafnvel skákað Guðrúnu
Halldórsdóttur. Guðrún hafði sagt
samstarfskonum sínum, að hún
ætlaði að draga sig í hlé, en nú hef-
ur hún endurskoðað þá ákvörðun.
Talsverð óánægja er meðal yngri
kvenna í garð Guðrúnar, enda
eygja þær nú síður von um að ná
efstu sætum.
Kristín Astgeirsdóttir er talin
örugg um að hljóta fyrsta sætið, en
mikil óvissa er um röð næstu
kvenna. Forvalið er lokað og að-
eins valinn hópur sem getur tekið
þátt í því. Ekki var auglýst eftir
framboðum nema á vettvangi
Kvennalistans.
- Sjá nánar fréttaskýringu
á blaðsíðu 5.
Elín G: Mér svellur móður.
Formaður fjárlaga-
nefndar Alþingis:
Fjármagns-
og hátekju-
skattur eru
til umræðu
,Já, það er rétt að fjármagns-
tekjuskatturinn og hátekjuskattur-
inn eru til umræðu þessa dagana.
En það eru svosem öll fjárlögin til
umfjöllunar núna. Flokkarnir eru
að fara yfir þetta sín á milli og
ræða málin. Það er náttúrlega ekk-
ert launungarmál að Alþýðu-
flokkurinn og hans forystumenn
hafa margoft talað fyrir bæði fjár-
magns- og hátekjuskatti, en ég vil
ekkert um hugsanlega niðurstöðu
málsins segja á þessu stigi máls-
ins,“ sagði Sigbjöm Gunnarsson
formaður fjárlaganefndar Alþing-
is í gærkvöldi í samtali við Al-
þýðublaðið.
'
: :■
■
: v:'• •
Dagsbrún gefur enn Stjórn Dagsbrúnar gerir það ekki endasleppt við sjúkraliða. Fyrir
nokkru gaf Dagsbrún eina milljón króna í verkfallssjóð sjúkraliða. í gær afhenti Dagsbrún síðan 750 þúsund
króna gjöf til viðbótar í verkfallssjóð sjúkraliða, en verkfall þeirra hefur staðið í liðlega fjórar vikur. Á myndinni
sést Kristín Guðmundsdóttir formaður Sjúkraliðafélagsins taka við ávísuninni úr hendi Guðmundar J. Guð-
mundssonar formanns Dagsbrúnar. A-mynd: E.ÓI.
„Klúðursleg ummæli", segir Guðrún Helgadóttir. A-mynd: E.ÓI.
Aldeilis hægt að treysta
okkur stjórnmálamönnum
- segir Guðrún Helgadóttir, alþingismaður.
,,Ef þetta er stærsta lygi aldarinn-
ar, þá er nú aldeilis hægt að treysta
okkur stjómmálamönnunum," sagði
Guðrún Helgadóttir, alþingismaður,
um leiðara DV og Morgunblaðsins í
gær, en þeir vom helgaðir þeim um-
mælum þingmannsins að hún hefði
„skrökvað svolítið" að blaðamanni
DV á þriðjudaginn.
Guðrún sagði blaðamanni DV þá
um morguninn að hún hygðist ekki
gefa sæti sitt á lista Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík eftir baráttulaust,
en tjáði svo öllum fjölmiðlum síð-
degis að hún hefði ákveðið að taka
fjórða sæti listans, að ákveðinni upp-
röðun efri manna tilskilinni. Guðrún
skipaði við síðustu alþingiskosning-
ar annað sæti Alþýðubandalagsins í
Reykjavík.
Guðrún sagðist viðurkenna að
ummæli hennar um að hafa skrökv-
að hefðu komið klúðurslega út. Hlut-
imir gerðust einfaldlega hratt í pólit-
ík og forsendumar hefðu verið aðrar
þegar hún ræddi við tiltekinn blaða-
mann DV, heldur en síðar um dag-
inn.
„Eg á ekki annað sætið á lista AI-
þýðubandalagsins, en ég ætlaekki að
gefa eftir þingsætið,“ sagði Guðrún
að lokum.
Daðrað yfir glögginni
Á jólaglöggi Regnbogans verður hægt að sjá kvennalistakonur daðra við
karla úr öðrum flokkum - án þess að fá samviskubit, segir í tilkynningu frá
Regnboganum. Þar segir ennfremur að þarna verði hægt að sjá alþýðu-
bandalagsmenn úr öllum örmum flokksins (þeim sem eftir eru) kyrja saman
jólalögg, framsóknarmenn sýna helgileiki (framsækna og þjóðlega í senn),
krata fjalla um siðferðisboðskap jólanna og menn utan flokka tjá stöðu sína
með frjálsum dansi. Spurning glöggsins verði hvort einhverjir og þá hverjir
koma úr felum sem Þjóðvakamenn. Jólaglögg Regnbogans verður haldin að
Pósthússtræti 13 á morgun, laugardag, frá klukkan 18:00 til 22:00.
Jólahlaðborðin:
Etið og drukkið fyrir 80 milljónir
Tekjur veitingahúsanna á höfuðborgarsvæðinu af sölu jólahlaðborða eru
nærri 80 milljónir króna samkvæmt lauslegri áætlun Frjálsrar verslunar. Gert
er ráð fyrir sölu á 20 þúsund máltíðum og að viðbættum vínkaupum eyði hver
gestur alls um fjögur þúsund krónum.
Nánar tiltekið er reiknað með að hver máltíð af jólahlaðborði kosti að jafn-
aði um 2.500 krónur. Til viðbótar komi léttvínsflaska á um 1.500 krónur.
Verð jólahlaðborða er ódýrara í hádeginu en á kvöldin. Mesta salan fer þó
fram á kvöldin og um helgar. Þrátt fyrir 80 milljóna heildartekjur veitingahús-
anna af jólahlaðborðum er afrakstur þeirra þó talin fremur rýr vegna lágrar
álagningar.
Breytt
dagsetn-
ingá
flokks-
stjórnar-
fundi
Flokksstjórnarfundur
Alþýðuflokksins - Jafn-
aðarmannaflokks ís-
lands - sem halda átti á
morgun laugardag frest-
ast um cinn dag. Þannig
veröur fundurinn hald-
inn á sunnudaginn, 11.
desember, í Borgartúni
6, og hefst hann klukkan
10:00. Á dagskrá er sem
fyrr aðeins eitt mál:
Tekjujöfnun og kjara-
samningar. Framsögu
flytur Jón Haldvin
Hannibalsson formaður
Alþýöuflokksins. Fund-
urinn er opinn öllum
flokksmönnum.
■MMHH1
Skáldið sem sólin kyssti
GuðmuufEr Böftvarssonar,
iistræn og vonduft liók eftir Silju
Aftalsteinsdóttur.
Saga Halldóru Briem
Gripandi frásöcn, stórÍ>rotin öriagasaga
eftir Steinunni lóhannesdóttur.
Lífsgleði
VifttöTog endurminningar þjóókunnra
íslendinga. hórir S.Guöbergsson skráöi.
Einu sinni á ágústkvöldi
Söngvasafn Jónasar Arnasonar ineÖ
nótum og myndum eftir valinkunna
listamenn.
Dásamleg veiðidella
Eggert Skúlason skráfti.
Skemmtilegar veiftisögur.
HÖRPUÚTGÁFAN
STEKKJARHOLT 8-10 - 300 AKRANES
SÍÐUMÚLI 29 - 108 REYKJAVÍK