Alþýðublaðið - 09.12.1994, Síða 2
2
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FOSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
fMDIIMÍDII)
20837. tölublað
Hverfisgötu 8 -10 Reykjavík Sími 625566
Útgefandi Alprent
Ritstjórar Hrafn Jökulsson
Sigurður Tómas Björgvinsson
Umbrot Gagarín hf.
Prentun Oddi hf.
Ritstjórn, auglýsingar og dreifing
Sími 625566
Fax 629244
Áskriftarverð kr. 1.550 m/vsk á mánuði.
Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Kosningamál
Alþýðuflokksins
Við næstu kosningar hefur Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokk-
ur íslands - setið samfellt í ríkisstjómum í tvö kjörtímabil. Þessi tími
hefur verið þjóðinni um margt erfiður, enda hefur stöðnun ríkt í at-
vinnumálum landsmanna. Alþýðuflokkurinn hefur tekist á við erfitt
ástand með ábyrgum hætti og að mörgu leyti hafa umbótamál flokks-
ins markað dagskrá stjómmálanna síðasta áratug. Enginn getur með
sanngirni sagt, að þróttmikil þátttaka flokksins í ríkisstjómum hafi
ekki skilað árangri, þó auðvitað hafi gengið misvel að koma málum í
höfn. Það virðist nokkuð algilt lögmál að erfiðleikar í efnahagsmálum
bitni á þeim flokkum sem sitja í ríkisstjóm hverju sinni. Núverandi
ríkisstjóm hefur náð miklum árangri í efnahagsmálum og ætti því að
njóta góðs af.
í kosningabaráttunni hljóta alþýðuflokksmenn að Ieggja mikla
áherslu á það sem unnist hefur. Verðbólga mælist vait og böndum
hefur verið komið á vextina. Hvorutveggja er afar mikilvægt fyrir
fjárhag heimilanna og hagvöxt, enda hefur efnahagslífið tekið kipp
síðustu mánuði. Mikilvægasta mál kjörtímabilsins. og það sem hefur
mest áhrif til lengri tíma, var samningurinn um Evrópska efnahags-
svæðið. I því máli hafði Alþýðuflokkurinn forystu, en stjómarand-
staðan sýndi ábyrgðarleysi sem hún vill nú ekkert við kannast.
A kjörtímabilinu hefur verið tekið af festu á fjármálum ríkisins og er-
lend skuldasöfnun stöðvuð. Þrátt fyrir þetta aðhald hefur ýmsum
merkum umbótamálum verið hrint í framkvæmd. í því efni má minna
á nýjar heilsugæslustöðvar, fjölgun á sambýli fyrir fatlaða, aukning á
vistunar- og hjúkmnarrými fyrir aldraða, húsaleigubætur og átak í
húsnæðismálum.
Annað helsta kosningamál Alþýðuflokksins verða atvinnumálin. í
viðtölum Alþýðublaðsins við fjölmarga forystumenn flokksins nú í
vikunni kom eindregið fram, að atvinnumálin em það sem heitast
brennur á alþýðu manna. Til að uppræta atvinnuleysið og skapa störf
fyrir þúsundir landsmanna á næstu ámm þarf framsækna atvinnu-
stefnu. Aukið frjálsræði í viðskiptum með EES og GATT, samfara
stöðugleika innanlands, er sá gmnnur sem í framtíðinni verður að
byggja á. Frjálslynd jafnaðarstefna er skýr valkostur við „sjóðasukk-
stefnu“ framsóknarmanna allra flokka, sem kostað hefur þjóðina
ómælda fjármuni á síðustu áratugum. íslendingar þurfa að laða til sín
erlenda fjárfestingu, auk útrás í íslensku atvinnulífi og samvinna bet-
ur menntun, hugvit og nýsköpun í nýrri tækni og framleiðslu. Forsjár-
hyggja framsóknarstefnunnar er úrelt pólitík, sem alls ekki má inn-
leiða aftur.
Þriðja kosningamálið mun snúast um kjaramál og velferðarmál. í
þessum efnum verður Alþýðuflokkurinn að kappkosta að skýra stefnu
sína vel fyrir kjósendum. Abyrg og skýr stefna jafnaðarmanna verður
borin saman við þau gegndarlausu yfirboð sem nú em í uppsiglingu
hjá stjómarandstöðunni og Jóhönnu Sigurðardóttur. Almenningur á
heimtingu á því, að batanum sem nú fer í hönd, verði skipt réttlátlega
og tekið verði á skuldastöðu heimilanna. Neytendamál verða ofarlega
á baugi og Alþýðuflokkurinn á að reka harða stefnu fyrir rétti neyt-
enda í landinu.
Fjórða kosningamálið verður spumingin um aðild íslands að Evrópu-
sambandinu. Hér á flokkurinn að nýta sér þau sóknarfæri sem skýr
stefna hans hefur í þessu efni, enda em aðrir flokkar margklofnir í af-
stöðu sinni. Enginn vafi er á því, að þetta verður eitt helsta úrlausnar-
efni næstu ára í íslenskum stjómmálum. Alþýðuflokkurinn á að var-
ast að reka þetta mál einhliða sem utanríkismál, heldur tengja það at-
vinnumálum, kjaramálum og neytendamálum - almennum velferðar-
málum. A þann hátt á að tengja þetta brýna hagsmunamál öðmm
þeim málum sem heitast brenna á Islendingum. Umsókn um ESB-að-
ild getur aldrei orðið eina - eða helsta - kosningamál Alþýðuflokks-
ins, heldur getur flokkurinn mtt brautina með því að útskýra fyrir
kjósendum kosti aðildar og mikilvægi fyrir þróun íslensks samfélags.
Sterk málefnastaða og stefnufesta em aðal Alþýðuflokksins. Flokkur-
inn hefur sýnt djörfung og fmmkvæði í stefnu sinni. Þetta eiga al-
þýðuflokksmenn að nýta sér í komandi kosningabaráttu.
O, Argentína...
„Hverjar eru þínar tillögur til að auka arðsköpun í íslensku at-
vinnulífi? - Spurði Hannes Hólmsteinn, hirðmaður Davíðs, Jó-
hönnu Sigurðardóttur í grillinu á skjánum þeirra félaga Marðar.
Þrátt fyrir sjö ára setu í ríkisstjórn, meðal annars sem vinnu-
markaðsráðherra, vafðist Jóhönnu tunga um tönn. Hún varð
klumsa. Forritið spannaði greinilega ekki þessa vídd. Þetta af-
hjúpaði í einu vetfangi hugsunarvillu þeirra, sem festst hafa í
fari þess sem kalla má „félagshyggju fortíðar“.“
Hverjar era þínar tillögur til að
auka arðsköpun í íslensku atvinnu-
lífi? - Spurði Hannes Hólmsteinn,
hirðmaður Davíðs, Jóhönnu Sigurð-
ardóttur í grillinu á skjánum þeirra
félaga Marðar.
Þrátt fyrir sjö ára setu í rikisstjóm,
meðal annars sem vinnumarkaðsráð-
herra, vafðist Jóhönnu tunga um
tönn. Hún varð klumsa. Forritið
spannaði greinilega ekki þessa vídd.
Þetta afhjúpaði í einu vetfangi hugs-
unarvillu þeirra, sem festst hafa í fari
þess sem kalla má félagshygaju for-
tíðar. I pólitík er ekki nóg að vilja
öllum vel; menn verða að vita hvem-
ig unnt er að gera vel. Annars vekja
menn upp falskar vonir; bregðast
umbjóðendum sínum. Lofa upp í
ermina sína. Standa ekki við stóru
orðin. Skili atvinnulífið ekki vöran-
um verður minna til skiptanna, hvað
svo sem líður reiðilestri stjórnmála-
nianna. Það dugar ekki að æpa.
Saga kommúnismans er saga
Pallborðið
manna sem í upphafi vildu vel en
gerðu illa. Evita Peron vildi vel. Hún
gaf út tilskipun um tvöföldun lág-
markslauna. Atvinnulífið stóð ekki
undir því. Niðurstaðan varð verð-
bólga í þúsundum prósenta og hran í
atvinnulífinu. Skjólstæðingar Evitu
urðu að berfætlingum örbirgðarinnar
í Argentínu. Argentínumenn, sem
allir töldu að ættu sér glæstasta fram-
tíð í Suður-Ameríku, hrandu niður á
stig fátæktarog vonleysis. Þjóðin var
að lokum hneppt í skuldafangelsi.
Pólitfkin læstist inni í hatri og hleypi-
dómum „pópúlismans". Söngleikur-
inn um Evitu er þvf í reynd harm-
saga.
Ad svara fyrir sig
Jafnaðarmenn hefðu ekki verið í
vandræðum með að svara Hannesi
Hólmsteini, sem vert væri. Verkin
sýna mcrkin. Eigum við að taka
nokkur dæmi?
EES-samningurinn, sem Alþýðu-
flokkurinn einn þingflokka beitti sér
fyrirog studdi frá upphati til enda, er
ágætt sýnishom. Hann er í sjálfu sér
svar við því hvemig jafnaðarmenn
vilja auka „arðsköpun í íslensku at-
vinnulífi". Lífskjör þjóðarinnar
byggjast á þeim innflutningi sem
fæst fyrir útflutning. EES-samning-
urinn er um að tryggja íslenskum út-
ílutningi hindranarlausan markaðs-
aðgang á mikilvægustu mörkuðum
og að tryggja íslensku atvinnulífi
samræntdar samkeppnisreglur á við
keppinauta. Hann skapar sjávarút-
veginum sem við lifum á ný tækifæri
til vöraþróunar, fullvinnslu og mark-
aðssetningar - og færir þannig vinnu
inn í landið. Hann hefur því bætt
skilyrði fyrirtækja til arðsköpunar;
bætt samkeppnishæfni þeirra. Þann-
ig hjálpar hann fyrirtækjum til að
grynnka á skuldum og skapar tæki-
færi til nýfjárfestingar - atvinnu.
Islenskir jafnaðarmenn hefðu get-
að þulið sambærileg dæmi endalaust
fyrir Hannesi Hólmsteini. Flest öll
nýmæli í íslenskri löggjöf gegn ein-
okun og fyrir auknu viðskiptafrelsi
eru til komin að framkvæði Alþýðu-
flokksins. Ráðherrar Alþýðuflokks-
ins hafa beitt sér fyrir afnámi einok-
unar á útflutningi. Fyrir samkeppnis-
lögum. Fyrir frjálsum fjármagns-
flutningum. Þeir hafa beitt sér gegn
einokunarkerfi landbúnaðarins. Þeir
hafa beitt sér einarðlegast fyrir
GATT-samningnum, sem tákna
upphaf endalokanna á einokunar-
keríinu, sem hneppt hefur bændur í
fátæktargildru ofstjórnar og einok-
unar. I leiðinni hefði mátt benda
Hannesi Hólmsteini á að ýmsir hörð-
ustu andstæðingar Alþýðuflokksins í
baráttu gegn einokun og fyrir við-
skiptafrelsi, fyrir afnámi forréttinda
hinna fáu og fyrir almennum leik-
reglum í efnahagslífinu, hafa komið
úr röðum Sjálfstæðismanna.
Gangverkid
Alþýðutlokkurinn hefur sýnt í
verki að hann skilur gangverkið í
efnahagslífinu. Alþýðuflokksmenn
skilja að það eru takmörk fyrir því,
sem ríkið getur tekið í sinn hlut, án
þess að það kyrki að lokum heil-
brigðan vöxt í atvinnulífinu. Ef láns-
fjárþörf ríkisins sogar til sín allan
innlendan sparnað, eins og gerðist í
fjármálaráðherratíð Olafs Ragnar,
rjúka vextir upp úr öllu valdi. Þar
með stöðvast fjárfestingin. Þar með
stöðvast nýsköpunin. Þar með byrjar
atvinnuleysið. Þar með byrjar verð-
bólgan. Og þar með verður pólitíkin
sjúk af hatri vegna vonbrigða al-
mennings með svikin loforð „pópú-
listanna", sem reynast þeim ævin-
lega verst, sem þeir þykjast vilja
best.
Islenskir jafnaðarmenn hafa fyrir
löngu lært þessa lexíu. Þeir hafa lært
hana af sárri reynslu, þvf að félags-
liyggja fortíðarinnar frá Sovéti til
Suður- Ameríku hefur alls staðar
skilið eftir sig sviðna jörð og tóman
disk.
Einmitt vegna þess að við viljum
halda uppi öflugu velferðarríki; ein-
mitt vegna þess að það er okkar sið-
ferðilega skoðun og lífssýn, að mað-
urinn sé félagsvera þar sem við ber-
um sameiginlega ábyrgð hvert á
öðru, vitum við að verðmætasköpun-
in verður að vera í lagi ef velferðar-
ríkið á ekki að hrynja. Arðsemi at-
vinnulífsins verður að vera í lagi til
þess að við getum borgað reikninga
velferðarríkisins. Svo einfalt er það.
Snud og sud
Þess vegna voram við reiðubúnir
til að hemja útgjaldaþensluna í opin-
bera geiranum. Þess vegna viljum
við ekki að ríkið rými fyrirtækjunum
af lánamörkuðunum. Þess vegna
viljum við afnema einokun og for-
réttindi og skapa atvinnulífinu um-
gjörð, sem byggir á almennum regl-
um, en ekki mismunun fyrirgreiðslu-
potsins. Það er lítið hald í fjármagns-
tekjuskatti, ef ekkert er fjármagnið.
Hátekjuskattur er bara snuð ef vöxt-
ur atvinnulífsins skapar ekki háar
tekjur.
Vaxandi atvinnulíf og velferð á
varanlegum granni era tvær hliðar
sama máls. Ef menn skilja ekki
nauðsyn arðsemi í atvinnulífinu mun
velferðin fara forgörðum. Sama
hvað menn segja. Jafnvel þótt menn
æpi sig hása. Það er eins og fyrri dag-
inn: Meira vinnu vit en strit.
Höfundur er formaður
Alþýðuflokksins - Jafnaðarmannaflokks
(slands-og utanríkisráðherra.
Dagatal 9. desember
Atburdir dagsins
1641 Flæmski málarinn Anthony
van Dyck deyr í Lundúnum, 42 ára;
eftir hann liggja mörg meistaraleg
portrett af enska aðlinum. 1910
Tyrkir berja niður uppreisn araba í
Palestínu. 1971 300 börn á munaðar-
leysingjahæli drepin þegar Indverjar
gera loftárásir á Dacca í Pakistan.
1990 Samstöðuleiðtoginn Lech Wa-
lesa verður forseti Póllands.
Afmælisbörn dagsins
John Milton enskt stórskáld, orti
meðal annars Paradísarmissi og
Paradísarheimt, 1608. Douglas Fa-
irbanks yngri bandarískur kvik-
myndaleikari, 1909. Elisabeth
Schwarzkopf þýsk sópransöng-
kona, einkum dáð fyrir túlkun á
verkum Mozarts og Richards
Strauss, 1915. Kirk Douglas banda-
rískur leikari, sérfróður í harðjöxl-
um, 1918. Bob Hawke litríkur ástr-
alskur stjómmálamaður, ráðherra frá
1983-91, 1929.
Annálsbrot dagsins
Féllu tvö systkin í bameign sín í milli
í ísafjarðarsýslu, Daði Sigurðsson og
Guðrún Sigurðardóttir að nafni,
bæði fyrir innan 20 ár að aldri. Sett
til kongl. Majest. um Iíf þeirra. Hann
var 17 vetra, en hún 16.
Sjávarborgarannáll, 1721.
Ord dagsins
Aldrei nokkur hefur halur
hreystilegar varið sig,
þvíflöskur einsog fallinn valur
fundust kringum duuöun mig.
Páll Ólafsson.
Módgun dagsins
Hræddari mundir þú hafa verið því
að þú ert mestur í málinu sem refur-
inn í halanum.
Brandur sterki viö Vakur Þórdísarson;
Hávarðar saga ísfirðings.
Málsháttur dagsins
Aumur er sá sem enginn hnjóðar í.
Lokaord dagsins
Dagar mínir eru liðnir einsog skuggi
sem fer hjá og kemur ei aftur.
Dánarorð onska guðfræðingsins Richards
Hookers (1554- 1600).
Skák dagsins
Ógæfan gerir ekki ævinlega boð á
undan sér. Staða dagsins virðist, við
fyrstu sýn, ekki bjóða uppá mikil tii-
þrif. En O. Daniel’an, sem hefur
hvítt og á leikinn, fann snjalla leið til
að rúlla yfir Borisov á opnu skák-
móti í Bmo fyrir þremur áram. Spurt
er; Hvað gerir hvítur?
í fyrsta lagi: 1. Bxc6! bxc6 2. Rxc6
Df8 3. Hd8 Re8 Svartur pakkar í
vörn, einsog sagt er, en það kemur að
litlu haldi. 4. Dc5!! og Borisov gafst
upp, enda allar leiðir lokaðar. Til
dæmis: 4. ... Bb7 5. Re7+ Kh8 6.
Rg6+! Það getur verið örlagaríkt
þegar menn gleyma að lofta út fyrir
framan kónginn.