Alþýðublaðið - 09.12.1994, Side 4
4
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
Viti menn
Salernisskattur R-listans.
Fyrirsögn á grein Árna Sigfússonar í
DV í gær.
Ég er ekki samþykk því að
beita þessari aðferð enda á
Guðrún [Helgadóttir] ekki að
ráða uppstillingu á listann.
Hinsvegar er tilboð hennar
kannski skiljanlegt í Ijósi sí-
fellt veikari stöðu hennar
innan tlokksins.
Auður Sveinsdóttir, fyrsti varaþing-
maður Alþýðubandalagsins í Reykjavík,
um það tilboð Guðrúnar að færa sig
niður í 4. sæti gegn því að hún ráði
uppröðun í efstu sætin. Tíminn í gær.
Annars er Sniglaveislan einsog
framreiðsla á veitingahúsi af
fínum klassa, sem enginn get-
ur kvartað yfir. Annað mál
hvort lesandinn á eftir að kalla
bragðið fram í muna eða
munn eftir að lokið er máltíð-
inni. En er á meðan er, verði
ykkur að góðu.
Ritdómur Gunnars Stefánsson um
Siglaveislu Ólafs Jóhanns.
Tíminn í gær.
Árni Þórarinsson byggir upp
vissa spennu milli sín og
Hrafns og er það viðeigandi
hjá „kerlingartusku“ einsog
Hrafn kallaði hann
eftirminnilega.
Ritdómur Jóhanns Hjálmarssonar um
bókina Krumma, Mogginn í gær.
Það er því framundan for-
vitniieg barátta milli forystu-
manna í Alþýðuflokknum, og
þjóðin á eftir að bíða með önd-
ina í hálsinum eftir að sjá
hvaða vopnum þeir félagar
Guðmundur Árni og
Sighvatur beita hvor á annan.
Garri Tímans í gær.
Tvennt er algjörlega óþolandi
í óperunni, að sitja við hliðina
á einhverjum hóstagemlingi
og skrjáfið í
sælgætisbréfunum.
Jeremy Isaacs forstöðumaður óper-
unnar i Covent Garden sem nú dreifir
hálstöflum til gesta fyrir sýningu til að
fyrirbyggja hósta og ræskingar.
Mogginn i gær.
Hvaða traust geta kjósendur
borið til stjórnmálamanns sem
skrökvar fyrir hádegi en segir
satt síðdegis?
Leiðari Morgunblaösins í gær: Guörún
Helgadóttir sagði að hún hefði
„skrökvað svolítið í morgunsárið" að
blaðamanni DV.
Hvernig konur geta hugsað
sér að vera með þessum
manni, það skil ég ekki. Þetta
er fullkominn drullusokkur.
Filmstjarnan Richard Gere um film-
stjörnuna Sylvester Stallone. DV í gær.
Þetta er meira en draumur.
Þetta er martröð. Það er af og
frá að það eigi við rök að
styðjast að það séu einhver
undirmál eða glæpsamlegir
hlutir á ferðinni.
Guðmundur Árni Stefánsson um ásak-
anir sem koma fram i Bankabók Örn-
óHs Árnasonar um gjaldþrot Helgar-
póstsins.
Samskipti Islands við kínversk stjórnvöld
- Innfluttur tvískinnungur.
„Hér er ekki um séríslenskt ósamræmi að ræða, því íslendingar
hafa löngum tekið erlendar stórþjóðir sér til fyrirmyndar í utan-
ríkismálum, í þessu tilfelli Bandaríki Norður-Ameríku. Því má
með segja með sanni að sá tvískinnungur sem einkennir stefnu
íslands sé innfluttur.
Vegna Kínafarar forsætisráðherra
Islands, Davíðs Oddssonar, hafa
sprottið upp nokkrar umræður um
hversu náin samskipti Islensk stjóm-
völd skuli hafa við Alþýðulýðveldið
Kina. Ekki eru allir á eitt sáttir, þrátt
fyrir skýra stefnu hérlendra stjóm-
valda, til dæmis mótmæltu ungir
jafnaðarmenn og stúdentar ferð utan-
rikisráðherra til Kína fyrr á árinu og
ungir jafnaðarmenn hafa einnig lýst
yfir óánægju sinni með ferð forsætis-
ráðherra nú.
Oft er sagt, í mismik-
illi alvöm, að kjósendur
séu fljótir að gleyma og
að í stjómmálum sé tím-
inn fljótur að líða. Ef-
laust er mikið til í þessu
og hlýtur því minnis-
skortur einnig að hrjá
stjómmálamenn. Ungt
fólk á Islandi er hins
vegar ekki búið að gleyma ódæðis-
verkum kínverskra stjórnvalda á
Torgi hins himneska friðar fyrir
fimm ámm. En jafnvel ef litið er
framhjá því sem ógemingur er að
gleyma, em mannréttindamál í Kína
í slíkum ólestri, að það eitt réttlætir
að efast sé um réttmæti farar forsæt-
isráðherrans. Minningin lifir að ei-
lífu um hina óhugnanlegu atburði
þegar þúsundir námsmanna vom
miskunnarlaust aflífaðir fyrir þá sök
eina að kretjast frelsis og lýðræðis-
umbóta.
Tvískinnungur í
alþjódasamskiptum
Þeirri spumingu, hvort menning-
arleg einangmn sé besta leiðin til að
hafa áhrif á stjómarhætti f þeim
löndum þar sem mannréttindi em
hvað grófast fótum troðin - eða
hvort ýta eigi undir efnahagsleg
samskipti við þau - er ekki auðsvar-
að. Hér er um gmndvallarspurningu
sem varla er á færi nema sérfræðinga
í alþjóðastjórnmálum að svara. Hvað
sem því líður er mikilvægt að stjóm-
völd á Islandi móti sér stefnu í þess-
um málum; stefnu sem nái yfir öll
sambærileg tilfelli. Þetta hefur ekki
verið gert, heldur hefur ákvörðun
verið tekin í hveiju tilfelli fyrir sig án
þess að gagnsemi, viðskiptaþving-
ana annars vegar og viðskiptahvetj-
andi aðgerða hins vegar, sé skoðuð.
Ef litið er á stefnu Islands í málefn-
um Kúbu, en nýlega hafa íslendingar
lagst gegn því að viðskiptabanni við
K ú b v e rj a
verði aflétt,
og fyrri
stefnu í mál-
efnum Suð-
ur-Afríku, er
ljóst að þegar
Islendingar
vilja refsa
mannrétt-
indabrjótum
þá skiptir máli hvort menn heita Jón
eða Séra Jón.
Annars konar tvískinnungur fellst
í því að heimsækja ríki þar sem
mannréttindi em fótum troðin til að
tryggja efnahagslega hagsmuni og
rækta frændskap en minnast aðeins
stuttlega á mannréttindákvæði sjálf-
um sér til friðþægingar. Ef vestrænir
þjóðhöfðingjar halda að vinsamlegt
tiltal eitt og sér dugi til að breyta
stefnu Kína í mannréttindamálum þá
er þeirra hundalógík verri en engin.
Ekki séríslenskt
ósamræmi
Hér er ekki um séríslenskt ósam-
ræmi að ræða, því íslendingar hafa
löngum tekið erlendar stórþjóðir sér
til fyrirmyndar í utanríkismálum, í
þessu tilfelli Bandaríki Norður-Am-
eríku. Því má með segja með sanni
að sá tvískinnungur sem einkennir
stefnu íslands sé innfluttur.
Um þessar mundir er hagvöxtur
hvergi meiri en í Kína. Því er ekki
ólíklegt að erlendir aðilar horfi með
löngunaraugum til þessa risastóra
markaðssvæðis og því ber að fagna
því íjárfesting eríendra aðila er
vissulega til hagsbóta fyrir allan al-
menning í Kína. Það er hins vegar
umhugsunarefni, hvort að efnahags-
legur bati verði til þess að draga úr
mannréttindabrotum stjómvalda. Er
ekki líklegra að efnahagslegur stuðn-
ingur við Kína á forsendum mann-
réttindabrjótanna verði til þess að
festa völd þeirra í sessi. Að minnsta
kosti er það öruggt að það er ekki á
stefnuskrá kommúnista í Kína að af-
sala sér völdum.
Höfundur er hagfræðingur og for-
maður Sambands ungra jafnaðar-
manna.
Pallborðið
EJón Þór
Sturluson
skrifar
í heiðursstúkunni - enda
var hann arkitektinn bakvið
hroðalega útreið hennar í
prófkjörinu...
Meira af Reykjanesi.
Prófkjörsbarátta
framsóknannanna er svo
hörð að draga þarf fram al-
elstu menn til að muna
annað eins. Siv Friðleifs-
dóttir þykir nú heldur
sækja í sig veðrið, en hún
stóð höllum fæti í barátt-
unni við Hjálmar Árna-
son og Drífu Sigfúsdótt-
ur. Gamalgrónir framsókn-
armenn í kjördæminu óttast
að harkan verði slík, að
stuðningsmenn þeirra sem
tapa muni ekki styðja
flokkinn í vor...
Enn höfum við tíðindi af
Eggert Haukdal, eftir-
lætisþingmanni Alþýðu-
blaðsins. Eggert vinnur nú
að því öllum árum að fá
sterka frambjóðendur á sér-
lista sinn, sem hann ætlar
að bjóða fram á Suður-
landi. Hann reyndi að fá
oddvita Eyrbekkinga,
Magnús Karel Hannes-
son, f 2. sætið einsog við
höfum þegar upplýst en
Magnús afþakkaði gott
boð. Næst sneri Eggert sér
til Bryndísar Brynjólfs-
dóttur fyrrum bæjarfull-
trúa Sjálfstæðisflokksins á
Selfossi og forseta bæjar-
stjómar. Þetta ber kænsku
Eggerts vitni enda er Bryn-
dís mik-
il kjam-
orku-
kona og
afar
vinsæl á
Sel-
fossi.
Hún
rekur Sjóvá-Almennar í
bænum en er hætt í bæjar-
pólitíkinni, í bili að minnsta
kosti. Bryndís hefði verið
mikill happafengur fyrir
Eggert - en hún hryggbraut
hinn þolgóða biðil frá
Bergþórshvoli. Sjálfstæðis-
menn í kjördæminu anda
léttar, en bíða eftir næsta
leik Eggerts...
Sjálfstæðismenn í
Reykjanesi hafa nú birt
framboðslista sinn, fyrstir
flokka í kjördæminu. Röð
átta efstu er í samræmi við
niðurstöður prófkjörsins.
Það þýðir að öllum líkind-
um að allir þátttakendur í
prófkjörinu (nema einn)
verða þingmenn eða vara-
þingmenn. Ekki slæm upp-
skera það. I heiðurssæti
framboðslistans er hinsveg-
ar frambjóðandinn sem
hafnaði
í neðsta
sæti
próf-
kjörsins:
Salome
Þor-
kels-
dóttir
þingfor-
seti. Athygli vekur að síð-
asti heiðurssætismaður,
Matthías Mathiesen er
hvergi sjáanlegur á listan-
um að þessu sinni. Kannski
þótti sjálfstæðismönnum
ekki fara vel á því að hafa
Salome og Matthías saman
Hundar og áfengi: Hin ósagða harmsaga.
Hinumegin
v/4*-
Sárasótt
í beinni
Þeir ökumenn sem lent hafa í
þeirri óhamingju að aka á eftir
strætisvagni undanfama daga,
hafa vafalaust tekið eftir því að
þar auglýsir frjáls útvarpsstöð ein
hér í borg, eitthvað sem hún kall-
ar POX-leikinn. Þeir sem þekkja
til starfsemi slíkra útvarpsstöðva
vita að það er engilsaxneskan sem
ræður þar lögum og lofum. Því er
forvitnilegt að fletta upp í ensk-fs-
lenskri orðabók merkingu orðsins
POX. Þar segir:
pox (poks), n. 1. hvers konar
sjúkdómur sem lýsir sér í út-
brotum og graftarbólum, eink-
um af völdum veira. 2. sárasótt.
Sögufróðir menn á ritstjóm Al-
þýðublaðsins þykjast vita hvaða
leik menn léku hér til foma til að
ná sér í slíkan glaðning og nú er
bara að forvitnast hvort hér mun
vera um eitthvað slíkt að ræða.
Fimm á förnum vegi Hver verða helstu kosningamálin í vor?
Ingimar Pálsson, tónlistar-
kennari: Atvinnu- og launamál
númer eitt.
Friðrik Rafnsson, ritstjóri:
Húsnæðisbröltið og skuldasúpumar.
Sigurður Ragnarsson, tónlist-
armaður: Launamálin.
Karl Guðbjörnsson, borgar-
starfsmaður: Launamálin em að-
alatriðið.
Þórður Aðalsteinsson, nemi:
Ætli það verði ekki skuldasúpa
heimilanna því launamálin verða lfk-
lega leyst.