Alþýðublaðið - 09.12.1994, Side 7
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
7
Erlend hringekja
Ráðherrar í ríkisstjórn íhalds-
inanna í Bretlandi hafa látið gera fyr-
ir sig skýrslur um hugsanleg áhrif úr-
sagnar Stóra Bretiands úr Evrópu-
sambandinu. Astæðan fyrir því er
fremur sú að konta sér upp vopnunr
til að eiga við sívaxandi andstöðu
íhaldsþingmanna við sambandið, en
að búa sig undir að sú gæti orðið
raunin.
En sú staðreynd að þessar skýrslur
skuli yfirhöfuð vera gerðar segir sína
sögu um þá stefnu sem Evrópuum-
ræðan í Bretlandi er að taka og um
að svo virðist senr þeir ílialdsþing-
menn. sem tortryggnir eru gagnvart
Evrópusambandinu, séu að ná að
snúa umræðunni sér í hag.
Naum atkvædagreidsla
Þann 28. nóvember síðastliðinn
komst John Major, forsætisráðherra,
naumlega í gegnum atkvæðagreiðslu
í þinginu um aukið fjárframlag Breta
til Evrópusambandsins. Þar munaði
einungis 27 atkvæðum, sem telst lít-
ill meirihluti á þeini löggjafarsam-
kundu. Þessi munur hefði jafnvel
verið enn minni ef John Major hefði
ekki lagt lff rikisstjómar sinnar að
veði í atkvæðagreiðslunni. Þessi ráð-
stöfun hefur þó verið dýru verði
keypt. Atta íhaldsþingmenn, sem
greiddu atkvæði gegn þessari ráð-
stöfun, hafa nú fengið að hlaupa út-
undan sér og em því ekki lengur
seldir undir svipu tlokksaga Ihalds-
flokksins. Þessir þingmenn em því
vart taldir lengur til þingflokksins og
þar af leiðandi hefur rikisstjórn Maj-
ors í raun ekki meirihluta í þinginu.
En það sem er kannski enn verra
er að nú er lýðum Ijós hinn djúpstæði
ágreiningur íhaldsmanna um Evr-
ópumálin. Kenneth Clarke, fjármála-
ráðherra, styður einingu Evrópu-
gjaldmiðils, meðan hávaðasamur
hópur þingmanna lítur á Evrópusam-
bandið sem bandalag svindlara og
spilltra embættismanna með vægast
sagt annarleg stefnumið, hulin sjón-
um almennings.
Óstödug ríkisstjórn
Kosningakerfi eins og hið breska,
sem býður upp á meirihlutastjóm
eins stjórnmálaflokks, á að koma í
veg fyrir óstöðugar ríkisstjórnir. En
Bretar em nú að komast að hinurn
bitra sjinnleik að svo þarf ekki að
vera. í dag em hávaðasamir upp-
reisnarseggir f þingliði íhaldsmanna,
Major óþægari Ijár í þúfu en stjómar-
andstaðan.
Það þarf svo sem ekki að koma á
óvart að Evrópusambandið valdj
klofningi í breska íhaldsflokknum. í
kosningununr 1992 gerðu báðir stóru
flokkarnir í Bretlandi lítið úr sam-
runanum sem gert er ráð fyrir í Ma-
astricht-sáttmálanum. En síðan þá
hefur látlaus áróður andstæðinga
Evrópusambandsins innan íhalds-
flokksins, fengið sívaxandi hljóm-
gmnn í bresku þjóðfélagi. Þjóðin
virðist í vaxandi mæli þreytt á „skrif-
ræðinu í Brussel".
Þeir íhaldsmenn sem telja að Evr-
ópusambandinu sé ekki við bjarg-
andi, em líklega fremur fáir. Þeir eru
sundurleitur hópur og láta jafnvel
stjórnast af gremju jafnt og af háleit-
um hugsjónaástæðum. En óttinn við
evrópskt ofurríki á sér djúpar rætur í
llokknum.
Þjódaratkvædagreidslur
Hin erfiða atkvæðagreiðsla í þing-
inu hefur að öllum líkindum aukið
líkurnar á því að endurskoðaður Ma-
astricht- sáttmáli og hugsanlega Evr-
ópumyntin, verði sett í þjóðarat-
kvæðagreiðslu. Atburðirnir í þing-
sölunt hafa leitt fram í dagsljósið,
hve Evrópumálin em umdeild og
hinar miklu ástríður sem þessi mála-
flokkur virðist kalla fram í mönnum.
Kröfur um þjóðaratkvæðagreiðslu
hafa sífellt orðið háværari og nú er
svo komið að hinn fransk-enski auð-
jöfur, sir James Goldsmith, hefur
boðist til að stofna sérstakan stjóm-
málatlokk utan um þessa einu kröfu.
Frjálslyndir demókratar hafa löng-
um lýst yfir stuðningi við hugmynd-
ina um þjóðaratkvæðagreiðslu um
Evrópumálin. Astæðan fyrir því er
sú að þeir hafa verið viðkvæmir fyrir
gagnrýni, vegna þess að þeir em eini
stjómmálaflokkurinn í Bretlandi
senr telur aukinn Evrópusamruna
æskilegan og hneigist til federal-
Major: Erfiðara að eiga við uppreisnarseggina í eigin flokki, en stjórnar-
andstöðuna.
isma. Þeir hafa löngum þótt „draga
taum Brussel" eins og það er kallað-
Það að leggja málið í hendur þjóðar-
innar sjá þeir sem leið út úr þeim
vanda.
Tapar Verkamannaflokkur-
inn á Evrópumálunum?
Nú er hugsanlega komið að því að
stóm flokkamir tveir verði að gera
Áróður Evrópusambandsandstæðinga höfðar til fólksins: Michael Port-
illo, ráðherra í ríkisstjórn Majors og efasemdarmaður um Evrópusamrun-
ann, gefur eiginhandaráritanir.
sér Ijóst að Evrópumálin séu of við-
kvæm til að hægt verði að höndla
þau á annan hátt en að leggja þau í
dóm þjóðarinnar. Verkamannaflokk-
urinn, sem er hlynntur Evrópusam-
mnanum, mun að öllum líkindum
vinna næstu þingkosningar ef allt fer
sem horfir samkvæmt skoðanakönn-
unum. Þeir standa frammi fyrir
áþekku vandamáli og Frjálslyndir
demókratar og virðast tilbúnir til að
sættast á sömu lausn. Ihaldsmenn
virðast einnig vera að komast á þá
skoðun að nauðsynlegt sé að leyfa
þjóðinni að eiga síðasta orðið. Maj-
or, sem hefur hingað til hafnað hug-
myndum um þjóðaratkvæði um Evr-
ópumál, stendur frammi fyrir því að
Evrópusinninn og utanríkisráðherr-
ann Douglas Hurd, segir um þau um-
mæli hans: „Aldrei að segja aldrei."
Þrátt fyrir að Noregur hafi hafnað
Evrópusambandsaðild, þá sýnir
reynslan það að fulltrúar atvinnulífs
og stjómmálamenn ná yfirleitt að
snúa þjóðum á sitt band hvað varðar
afstöðu til Evrópusamrunans. En
þrátt fyrir að ráðherrar láti af þeirri
skoðun sinni að það sé þingsins ein-
göngu, að taka afstöðu til endurskoð-
unar Maastricht-sáttmálans árið
1996, þá vita þeir hvað það þýðir að
láta þjóðinni allri eftir að taka
ákvarðanimar. Ef Bretar segðu nei í
sh'kri atkvæðagreiðslu um nánara
samstarf Evrópusambandsríkja, þá
getur enginn verið viss um að þjóð-
aratkvæðagreiðsla um úrsögn úr
sambandinu fylgi ekki í kjölfarið.
Byggt á The European / mám
Segja Bretar sig úr Evrópu-
sambandinu?
Aukin tíðni afbrota á Norðurlöndum áhyggjuefni:
Ofbeldið daglegt brauð
Þrátt fyrir að Evrópumálin hafa
yfirgnæft nánast alla fjölmiðlaum-
fjöllun á Norðurlöndunum undan-
fama mánuði, þá hafa síðdegisblöðin
þar verið upptekin af öðmm málum
sem ef til vill hafa vakið upp jafnvel
enn meiri umræðu á meðal almenn-
ings: Ofbeldi.
Aukið ofbeldi á Norðurlöndunum
hefur ekki farið framhjá neinum og
nú er svo komið að íbúar þessa
heimshluta telja sig ekki geta gengið
um götur óhultir. Fregnir af morðum
og öðmm ofbeldisverkum hjá frænd-
þjóðum okkar, sem borist hafa hing-
að til lands, em aðeins hluti af raun-
vemleikanum. Þegar norrænum dag-
blöðum og héraðsfréttablöðum er
flett má allsstaðar finna frásagnir af
hrottafengnum líkamsárásum,
nauðgunum og jafnvel morðum.
Fjöldamord
Ódæðisverkið sem framið var í
Stokkhólmi fyrir stuttu hefur orðið
til þess að óhug hefur slegið að
sænsku þjóðinni og svo á einnig við
urn almenning í nálægum löndum.
Einsog kunnugt er þá skaut brjálaður
byssumaður í fylgd með tveimur fé-
lögum sínum skaut innum fordyri
eins vinsælasta skemmtistaðar í
Stokkhólmi með þeim aileiðingum
að þrír létust og að minnsta kosti 21
særðist; sumir þeirra lffshættulega.
Svo virðist sem skotmaðurinn hafi
hleypt af sjálfvirkum riffli sínum af
handahóli eftir að honum og félög-
um hans hafði verið meinaður að-
gangur að skemmtistaðnum. Það
fylgdi sögu lögreglunnar af atburðin-
um að hinn grunaði væri nýbúi af
suður-amerískum uppruna. Þar með
er einnig gefið í skyn að mönnunum
gæti hafi verið meinaður aðgangur
sökum kynþáttar síns.
Kynþáttahatur
Það væri þá ekki í fyrsta sinn sem
rekja má morð og ofbeldi til kynn-
þáttahaturs í Svíþjóð. Fyrir þremur
árum síðan ógnaði leisermaðurinn
svokallaði öllum lituðum nýbúum í
Stokkhólmi. Nafngiftina fékk hann
fyrir að nota leisergeisla til þess að
bæta miðið á byssu sinni. Leiser-
maðurinn er grunaður um að hafa
drepið og sært 7 til 9 nýbúa á Stokk-
hólmssvæðinu.
I haust bárust einnig fregnir af því
að óður byssumaður hafi myrt 7
manns í smábænum Falun í Svíþjóð.
Sá mun hafa verið fyrrverandi her-
maður og notaði hann sjálfvirkan
herriffil við verknaðinn. Engar við-
unandi skýringar hafa verið gefnar á
þessu ódæði.
Þá eru ekki nema tvær vikur síðan
ungir bræður í Suður- Svíþjóð vom
handteknir og grunaðir um að hafa
barið félaga sinn til ólífis með múr-
steini. Sá atburður varð síðan til þess
að rifja upp enn óhugnanlegri at-
burði þar sem böm hafa orðið öðrum
bömum að bana.
Börn ad verki
Fyrir tveimur árum voru barnung-
ir piltar í Englandi fundnir sekir um
að hafa rænt og myrt tveggja ára
dreng á hrottafenginn hátt. Svipað
tilfelli kom upp í Noregi nú í haust.
Þar em ennþá yngri drengir gmnaðir
um að hafa beitt jafnaldra sinn of-
beldi sem síðan mátti rekja til dauða
hans.
Tölur sýna að morð em nokkuð al-
geng í Noregi og Svíþjóð hvort sem
um er að ræða þéttbýli eða dreifbýli.
Þá hafa verið upplýst umfangsmikil
mál í Noregi sem tengjast kynferðis-
legu ofbeldi. í kjölfar allra þessara
hræðilegu atburða hefur farið af stað
umræða sem leitt hefur til þess að
fleiri mál af sama toga hafa komið
fram í dagsljósið.
Hið sama má segja um atburði og
umræðu á íslandi. Vemleg aukning
virðist hafa orðið hér á landi á und-
anfömum ámm. Fréttiraf vopnuðum
ránum, líkamsárásum og nauðgun-
um em nánast orðnar daglegt brauð í
íslenskum fjölmiðlum. í mörgum
þessara tilfella hefur lögreglu reynst
erfitt að fá skýringu á verknaðinum.
Stundum virðast gerendur einungis
vera að fá útrás fyrir ofbeldishneigð
sína. Dæmin sanna þetta, þar sem
ráðist er á böm í strætóbiðskýlum og
þau lamin og rænd án þess að árásar-
mennirnir hafi mikið upp úr krafsinu
fjárhagslega.
Orsakir?
Fjölmiðlar, atbrotafræðingar og
aðrir sérfræðingar á Norðurlöndun-
um sem um þessi mál fjalla, em ekki
á einu máli urn það hvaða af-
leiðingar ítarleg umljöllun um
ódæðisverk af þessu tagi hefur.
Það er þó greinilegt að umræða
fjölmiðla hefur leitt í ljós, að
vandamálið er stærra en menn
hafa ætlað hingað til. Margir
Ijölmiðlar á Norðurlöndunum
hafa bent á að opin umfjöllun
um ofbeldið í samfélaginu hafi
einmitt orðið til þess að vekja
menn til umhugsunar um hvar
orsakana.sé að leita.
Nærtækustu skýringamar
hafa verið sóttar í aukið magn
ofbeldisefnis í fjölmiðlum og
tölvuleiki þar sem þátttakend-
um er beinlínis umbunað fyrir
ofbeldi og rnorð. Einnig hefur
verið bent á að vopnaeign virð-
ist vera almennari én margir
hafa ætlað í þessum löndurn. Þá
hafa margir fræðingar stað-
næmst við aukna vímuefna-
notkun á síðustu árum sem allt-
af hafi aukin afbrot í för með
sér.
Fjölmiðlar hafa verið sam-
mála unr það að allt geti þetta
ýtt undir ódæðisverk af þeim
toga sem hér hefur verið lýst, en
megin orsakana verði þó að
leita í uppeldinu sjálfu. Það sé
ekki hægt að banna fjölmiðla
eða tölvur, heldur hljóti að
þurfa auka fræðslu og forvarna-
starf í skólakerfmu og síðast
en ekki síst á heimilunum
sjálfum.
Húsbréf
Utdráttur
húsbréfa
Nú hefur farið fram útdráttur húsbréfa í
eftirtöldum flokkum;
1. flokki 1989 -17. útdráttur
1. flokki 1990 -14. útdráttur
2. flokki 1990 -13. útdráttur
2. flokki 1991 -11. útdráttur
3. flokki 1992 - 6. útdráttur
2. flokki 1993 - 2. útdráttur
Koma þessi bréf til innlausnar 15. febrúar 1995.
Öll númerin verða birt í næsta Lögbirtingablaði.
Auk þess verða númer úr fjórum fyrsttöldu
flokkunum hér að ofan birt í DV föstudaginn
9. desember. Upplýsingar um útdregin húsbréf
liggja frammi í Húsnæðisstofnun ríkisins, á
Húsnæðisskrifstofunni á Akureyri, í bönkum,
sparisjóðum og verðbréfafyrirtækjum.
cSg húsnæðisstofnun ríkisins
Lj HÚSBRÉFAOEILD • SUÐURLANOSBRAUT 24 • 108 REYKJAVlK • SlAAI 69 69 00