Alþýðublaðið - 09.12.1994, Síða 9
FÖSTUDAGUR 9. DESEMBER 1994
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
9
Steinunn Jóhannesdóttir hefur undanfarin fjögur ár verið að skrásetja sögu Halldóru
Briem. Stefán Hrafn Hagalín sló á þráðinn tií Steinunnar í gær og forvitnaðist um bókina:
Einskonar heimkoma Halldóru Briem
Steinunn Jóhannesdóttir, rithöfundur og leikritaskáld: Skrifar Sögu Halidóru Briem; sögu stórbrotinnar konu
sem var í hópi brautryðjenda íslenskra kvenna til náms og jafnréttis; konu sem var Briem og Guðjohnsen og
fékk leiftrandi gáfur, listfengi og glæsileika í heimanmund; konu sem var við nám í Stokkhólmi um leið og Eirík-
ur Briem, Jónas Haralz, Benjamín H.J. Eiríksson og Halldór H. Jónsson. A-mynd: E.ÓI.
Saga Halldóru Briem - Kveðja
frá annarri strönd - eftir Stein-
unni Jóhannesdóttir, rithöfund og
leikritaskáld, er nýkomin út hjá
hinni kröftugu Hörpuútgáfu á
Akranesi. I bókinni (sem þegar er
komin í hóp þeirra söluhæstu) er
sögð saga stórbrotinnar konu sem
var í hópi brautryðjenda íslenskra
kvenna til náms og jafnréttis;
konu sem var Briem og Guðjohn-
sen og fékk leiftrandi gáfur, list-
fengi og glæsileika í heimanmund;
konu sem var við nám í Stokk-
hóimi um leið og Eiríkur Briem,
Jónas Haralz, Benjamín H.J. Ei-
ríksson og Halldór H. Jónsson;
konu sem varð innlvksa í Stokk-
hólmi á stríðsárunum og fluttist
aldrei aftur heim heldur bjó eftir
það á gestkvæmu heimili með sitt-
hvorn fótinn í tvennum menning-
arheimum. Þetta er bók um konu
sem lauk að segja sögu lífs síns á
banabeði og taldi sig þannig hafa
komið heim til íslands - að lokum.
-Halló, Steinunn?
, Já, þetta er Steinunn.“
-Já, komdu sœl ég heiti Stefán
Hrafn Hagalín, blaðamaður á AI-
þýðublaðinu, og var að velta fyrir
mér hvort ég fengi ekki að taka við
þig stutt viðtal um bókina sem varað
koma út eftir þig; Saga Halldóru
Briem?
„Bara svona í síma?“
-Jaaá. “
,Já.“
-Fínt. Segðu mér fyrst, hver var
Halldóra Briem ?
„Halldóra Briem var fyrsta ís-
lenska konan sem fór í nám í ark-
ítektúr og stundaði sitt nám í Sví-
þjóð.“
-Hvencer fór hún út?
„Árið 1935. Hún var útí Stokk-
hólmi í hópi íslenskra námsmanna
sem síðar fóru heim og tóku hér yftr
á ýmsum sviðum þjóðlífsins. Hall-
dóra var þama samtíða Jónasi Har-
alz, Eiríki Briem, Benjamín H.J. Ei-
ríkssyni, Sigurði Þórarinssyni og
fleirum. Hún var semsagt eina ís-
lenska konan í háskólanámi þrátt
fyrir að fleiri íslenskar konur hafi
verið þama í námi á öðmm stigum."
-Var mikið bóhemalífáþessu ein-
valaliði?
,Jú, jú, svona einsog gengur og
gerist. Þetta var ungt og róttækt fólk;
verkfræðingar, hagfræðingar, náms-
menn á tæknibrautum, skáld, lista-
menn og fleiri. Halldóra kemur til
dæmis þama til Stokkhólms rétt á
eftir Halldóri H. Jónssyni arkitekt."
-Stórmennafjöld...
„Það er skiljanlegt þar sem þetta
var einn af fyrstu stóru hópunum frá
íslandi sem fóru út til náms.“
-Kom Halldóra svo heim?
„Nei, hún kom aldrei heim. Hall-
dóra varð innlyksa í Svíþjóð á stríðs-
ámnum. Þá hafði hún ekki alveg lok-
ið sínu námi, en var á leiðinni til Is-
lands þegar allt lokast vegna her-
náms Danmerkur og Noregs. Þá
kynntist hún sínum manni.“
-Hver varþað?
„Hann hét Jan Ek og var ungur
læknastúdent. Síðan varð hann lækn-
ir og doktor í læknisfræði. Þegar
Halldóra giftist Jan giftist hún inní
mjög merka ætt listamanna t Sví-
þjóð.“
-Þessa Ek-ætt?
,Já. E og ká. Ættamafnið er tveir
stafir og skímamafnið þrír; mjög sér-
stakt. Bróðir Jan var til að mynda af-
ar merkur leikari, Anders Ek, og
svilkona hennar var Birgit Cullberg
sem er heimsfrægur dansahöfund-
ur.“
-Starfaði Halldóra sem arkítekt?
,Já, hún starfaði sem arkítekt og
var mjög góður sem slíkur; vann til
verðlauna og ýmissa viðurkenninga
á sínu sviði."
-Hver eru helstu liúsin sem hún
teiknaði?
„Hún fékk mesta viðurkenningu
fyrir íjölbýlishúsahverfi í Vasterás
sem er núna friðað hverfi."
-Varð hún ekki ekkja ung?
„Hún varð ekkja fimmtug að aldri
með fimm böm.“
-Er það rétt að þetta hafi verið
mikið heimili hjá þeim hjónum, mik-
ill gestagangur; hálfgert félagsheim-
ili?
,Já. Sérílagi eftir að hún varð
ekkja. Þetta var hennar aðferð til að
halda tengslum við tungu sfna og
móðurmál; að hafa húsið opið fyrir
íslendinga. Á því byrjaði hún mjög
snemma og eftir að hún verður ekkja
fer hún að leigja þeim húsnæði. Hall-
dóra var til dæmis einn af stofnfélög-
um Islendingafélagsins í Stokkhólmi
og er síðar gerð að heiðursfélaga.
Innan félagsins starfaði hún til
dauðadags.“
-Hvenœr lést hún?
„Hún lést fyrir rétt rúntu ári.“
-Var liún mjög þekkt héma
heima?
„Hún er þekkt í þessunt hópi sem
kom út til náms á sínum tíma og varð
st'ðar áhrifafólk hér í þjóðlífmu.
Einnig var hún til dærnis fyrsta Ung-
frú Klukka. - Heyrðu þú vilt ekki
bara fá bæklinginn svo þú getir haft
þráð bókarinnar réttan?"
-Nei.
„Nú...“
-Segðu mér meira frá Halldóru
Briem.
„Hún var afskaplega heillandi per-
sónuleiki alla tíð. Umsvermuð af ís-
lendingum og þessu fólki og einsog
títt er um Islendinga erlendis vom
tengslin við uppmnann æ meira
virði. Líftð verður býsna tvfskipt
þegar líður á. Fólk saknar sinnar
tungu og menningar. Halldóra er
eiginlega klofin á milli þessara
tveggja landa; milli tveggja heima
og tvennskonar menningar - sænskr-
ar og íslenskrar. Hún hafði ætíð góð
tengsl við menningarlífið í báðum
löndum og því einstaka innsýn.“
-Hvenœr kemur þessi hugmynd í
kollinn á þér; að skrifa sögu Hall-
dóru Briem?
„Eg kynntist henni þegar ég tók
þátt í því, að búa til litla kvikmynd
um hana. Heimildarkvikmynd. Sú
mynd heitir Dódó og hefur verið
sýnd nokkmm sinnum í íslenska
sjónvarpinu."
-Var hún kölluð Dódó?
„Já, hún var kölluð Dódó.“
-Bjóstu þá úti í Svíþjóð?
„Já, ég var búsett úti í Svíþjóð.“
-Þegarþú gerðir myndina?
„Já, þegar þessi mynd var gerð.
Eða sko - ég gerði ekki myndina.
Það var Helgi Felixson sem gerði
myndina, en ég tók þátt í þessu og
tók viðtalið sem var uppistaðan í
þessu handriti. Og þá fann ég það að
hún bjó yfir svo rosalega miklu. Hún
átti svo ríka sögu. Hún átti svo merka
móður, átti svo merka ömmu og svo
forvitnilega ætt. Halldóra var mjög
ættfróð kona.“
-Hver var móðir hennar?
„Móðir hennar var Valgerður Lár-
usdóttir sem var einhver allra fyrsta
íslenska konan til að stunda alvarlegt
söngnám erlendis, en hún fékk
berkla snemma og það batt skjótan
endi á allan hennar drauma.“
-En hver varfaðir hennar?
„Faðir hennar var séra Þorsteinn
Briem, prestur og síðar prófastur á
Akranesi og um tíma ráðherra."
-Stórmerkileg kona atama.
,Já, saga Halldóm tengist svo
mikið bæði íslenskri og norrænni
menningarsögu finnst mér. Hún hef-
ur svo víðtæka þekkingu og tengsl
inní þessa heima."
-Varstu lengi að skrifa Sögu Hall-
dóru Briem?
„Já, ég var mjög lengi að vinna
þetta.“
-Hvenœr byrjaðirðu að skrifa bók-
ina?
„Ég byrjaði áður en ég flutti heim
til Islands; það var vorið 1990. Þá
hóf ég efnissöfnun, tók reiðinnar
býsn af viðtölum við hana, fékk of-
boðsleg ósköp af efni hjá henni til að
hafa með mér heim. Síðan var ég
héma á Landsbókasafninu og las
miklar heimildir - rnjög víða - til að
afla mér þekkingar á þessum tíma.
Náttúrlega er það þannig, að helm-
ingur hennar ævi er fyrir mína daga,
eða svo að segja. Ég þurfti því vita-
skuld að kynna mér svo margt sem
tilheyrir fyrri tímum í Svíþjóð og hér
heima sem ég þekkti kannski ekki.
Ég ferðaðist einnig töluvert í hennar
fótspor; hún bjó á nokkrum stöðum í
Svíþjóð og ég reyndi að komast á
sem llesta af þeim stöðum og enn-
fremur þar sem hún bjó hér heima.
Það gerði ég til að finna pínulítið
svona andrúmsloftið í kringum hana
og umhverfið sem hún dvaldi í þótt
að það sé aldrei hið sama og var á
hennar tíma.“
-Þú hefur sökkt þér ofan í verkið.
,Já, ég sööökkkkkttti mér ofan í
þetta.“
-Er ekki erýitt að komast frá
svonalöguðu?
„Jú, ætli ég sé nokkuð komin frá
því. Það er fyrst núna sem maður er
að jafna sig. Ég lifði mjög náið með
henni finnst mér- allan þennan tíma.
Ég var svosem að vinna annað verk-
efni í leiðinni því ég var að skrifa
leikritið mitt Ferðalok líka. Þetta
togaðist á um minn huga og ég skrif-
aði síðan stanslaust að bókinni í rúmt
ár eftir að hafa sankað að mér öllu
þessu efni.“
-Nú virðist þetta œtla verða ein af
metsölubókunum; hefur selst mjög
vel...
,Já.“
-Heldurðu að Halldóru hefði fall-
ið það vel í geð; að vera orðin met-
söluefni?
,Jaaa, hún hefði kannski verið
svolítið feimin við það.“
-Var hún hógvœr kona?
,Já, á margan hátt var hún það og
héma..., afskaplega vönduð kona.
En ég held samt sem áður að Hall-
dóra hafi verið fús til að fara útí þetta
vegna þess að með þessum hætti hafi
hún komið aftur heim. Bókin verður
einskonar heimkoma fyrir hana. Mér
fannst sjálfri að ég gæti ekki komið
heim frá Svíþjóð án þess að hafa
sögu þessarar konu með mér í far-
teskinu."
rStórbrotið.
,Já. Þetta er stórbrotin saga og
hefur verið mikið ævintýri að skrifa
hana. En erfitt og krefjandi um leið."
-Já, ég get trúað því.
„Svo gerðist það, að undir lokin
var Halldóra orðin dauðaveik, þann-
ig að þetta varð mjög mikið kapp-
hlaup við tímann. Við héldum að við
hefðum nægan tíma og vildum gefa
okkur góðan tíma f verkið, en svo allt
í einu var stundaglasið að renna út.
Þetta var eifitt starf."
-Jamm. Þetta er ágœtt. Takk kœr-
legafyrir spjallið.
„Takk, sömuleiðis.“
ALÞÝÐUFLOKKURINN
Alþýðuflokkurinn:
Flokksstjórnarfundur
Alþýðuflokkurinn - Jafnaðarmannaflokkur íslands - boðar
til flokksstjórnarfundar sunnudaginn 11. desember. Fund-
urinn verður haldinn í Borgartúni 6, Reykjavík, og hefst
klukkan 10:00.
Dagskrá:
1. Tekjujöfnun og kjarasamningar:
Jón Baldvin Hannibalsson.
2. Önnur mál.
Að venju erfundurinn opinn öllum flokksmönnum. Ef til at-
kvæðagreiðslu kemur hafa einungis kjörnir fulltrúar í
flokksstjórn atkvæðisrétt.
Alþýðuflokkurinn á Vestfjörðum:
Kjördæmisþing
Alþýðuflokkurinn í Vestfjarðakjördæmi boðar til kjördæm-
isþings á ísafirði sunnudaginn 11. desember. Þingið verður
haldið í húsnæði Alþýðuflokksins á ísafirði og hefst klukkan
14:00.
Dagskrá:
1. Uppstilling á framboðslista vegna komandi Alþingis-
kosninga.
2. Önnur mál.
Sighvatur Björgvinsson flytur framsögu um stjórnmála-
ástandið.
Jafnaðarmenn í kjördæminu er hvattir til að fjölmenna á
kjördæmisþingið.
- Stjórnin.
Alþýðuflokkurinn á Norðurlandi vestra:
Kjördæmisrád fundar
Fundur verður haldinn í kjördæmisráði Alþýðuflokksins á
Norðurlandi vestra sunnudaginn 11. desember, kl. 13.00.
Fundurinn verður haldinn í sal Verkalýðsfélagsins Fram,
Sæmundargötu 7a, Sauðárkróki.
Dagskrá:
1. Undirbúningur Alþingiskosninga.
2. Önnur mál.
- Stjórnin.
Alþýðuflokkurinn í Reykjavík:
Borgarfulltrúar í Kaffi
Borgarfulltrúar jafnaðarmanna á Reykjavíkurlistanum, þeir
Pétur Jónsson og Gunnar Gissurarson, verða gestir í jóla-
Kratakaffi miðvikudaginn 14. desember.
Að vanda er húsið opnað klukkan 20:30 og á boðstólum
verða kökur, kaffi, kakó og aðrar veitingar.
Jafnaðarmenn í stjórnum, nefndum og ráðum innan borg-
arkerfisins eru sérstaklega hvattirtil að fjölmenna.
- Stjórnin.