Alþýðublaðið - 24.02.1995, Qupperneq 8
8
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
HELGIN 24.-26. FEBRÚAR 1995
Katrín Bjarnadóttir: Sannfærö um að okkur takist að vinna þingsæti fyrir
Alþýðuflokkinn. A-mynd:E.ÓI.
iðnaðinum hefur verið töluverð
vinna undanfarin 4 til 5 ár, en flest
verkefnin kláruðust á síðasta ári. Nú
er hins vegar fyrirliggjandi stækkun
við Litla-Hraun, þannig að það kem-
ur eitthvað á móti.
Annars er atvinnulííið hér á Sel-
fossi mest tengt verslun og þjónustu
og á sumrin fjölgar töluvert í kring-
um okkur útaf hinni miklu sumar-
húsabyggð í nágrenninu. Selfoss er
orðinn mikill verslunarbær."
Nú hefur Alþýðuflokkurinn
ekki átt þingmann í kjördæminu
síðastliðið kjörtímabil. Attu von á
því að nú verði ráðin bót á því?
,Já, ég er sannfærð um það. Mað-
ur heyrir það meira að segja hjá hin-
um ílokkunum að þeir telji okkur
líkleg til að fá mann kjörinn."
Katrín Bjarnadóttir skipar 4. sæti á lista Alþýðuflokksins á Suðurlandi
Austurlönd fjær
Á hverju ári annast skrifstofa Eimskips í Hamborg flutning á þúsundum gámaein-
inga af inn- og útflutningsvöru íslendinga á leið sinni til og frá Austurlöndum fjær.
Samstarfsaðilar Eimskips í þessum flutningum eru öflug alþjóðleg flutningafyrirtæki
eins og Hapaq-Loyd, Mærsk, Evergreen, K-line og Mitsui. Með því samstarfi tryggir
Eimskip viðskiptavinum sínum fyrsta flokks flutningaþjónustu við Austurlönd fjær.
Jóhann Tr. Sigurðsson skipar 5. sæti á lista
Alþýðuflokksins á Suðurlandi
r
Islensk ull hlýrri en erlend
Katrín Bjarnadóttir, hár-
greiðslukona á Selfossi, er í fjórða
sætinu á framboðslista Alþýðu-
flokksins í Suðurlandskjördæmi fyr-
ir næstu Alþingiskosningar. Katrín
hefur lengi starfað á vettvangi Al-
þýðuflokksins á Selfossi og í kjör-
dæminu. Alþýðublaðið hafði sam-
band við hana til að ræða við hana
um stöðuna, um sóknarfærin, um
málefnaáherslur og hina flokkana.
Hvernig sýnist þér stemmning-
in í flokknum vera, Katrín?
„Stemningin er góð, það þýðir
ekkert annað en að vera bjartsýnn.
Nú er allt að fara á fullt í Alþýðu-
flokksfélögunum og mikið af ungu
fólki komið til starfa, eins og sjá má
á efstu sætum framboðslistans."
Hvar í kjördæminu er fylgi AI-
þýðuflokksins mest?
„Flokkurinn á mest fylgi í þéttbýl-
isstöðunum."
Hvaða málefni eru efst á baugi í
kjördæminu? Eru það Evr-
ópumálin, atvinnumálin
eða eitthvað annað?
„Maður heyrir nú ekki
mikið rætt um Evrópumálin
almennt. Ég held að fólk spái
ekki mikið í þau. Atvinnu-
málin eru efst á baugi. Staðan
er þannig á Selfossi í dag að
hér eru um tvöhundruð
manns atvinnulausir í 4000
manna byggð. I byggingar-
Jóhann Tr. Sigurðsson.
framkvæmdastjóri ístex í
Hveragerði, er í fimmta sæti
framboðslista Alþýðuflokks-
ins á Suðurlandi. Hann og fé-
lagar hans tóku við þrotabúi
Álafoss fyrir fjórum árum og
hafa byggt fyrirtæki sitt, ístex,
upp af miklum dugnaði bæði í
Mosfellsbæ og í Hvera-
gerði,en þar er nú rekin ullar-
þvottastöð sem skapar um 20
manns atvinnu. Alþýðublaðið
hafði samband við Jóhann og
átti við hann spjall um stöðu
iðnaðarins.
Hvernig gengur ullariðn-
aðurinn núna?
„Ég get nú bara talað fyrir
okkar fyrirtæki, ístex, en það
hefur gengið allþokkalega.
Álafoss varð gjaldþrota árið
1991 og þetta fyrirtæki var
stofnað þann I5. október það
sama ár. I byrjun var við-
skiptatraustið lítið og því tók
tíma að vinna það upp. En fyr-
irtækiö hefur staðið undir sér
og við emm hóflega bjart-
sýn.“
Hvernig skiiyrði eru iðn-
aðinum sköpuð?
„Ef við horfum á það þegar
fyrirtækið var stofnað þá hafa
skilyrðin batnað undanfarin
tvö ár. Vaxtastigið er lágt og
verðbólgan er lftil. Hingað til
hefur leiðin aðeins legið upp á
við þó ávallt megi gera betur í
því að skapa iðnaðinum skil-
yrði.“
Hver er sérstaða íslenskr-
ar ullar í samanburði við er-
lenda ull?
„Islensk ull er viit og jrckkt
víða erlendis. Hún er mun
hlýrri en hin erlenada. Svo er
það togið og þelið, jtetta er
sérstök blanda af ull. Sumir
setja það þó fyrir sig hvað hún
virðist snörp viðkomu. En það
em hlýindin og uppbyggingin
sem em hennar aðalsmerki.
Gæðin farið sívaxandi. Ef við
horfum fimm ár aftur í tímann
þá hefur ullin snarbatnað.
Bændur vom á sínum tíma
hvattir til að rýja í nóvember,
en þá er rúið tvisvar á ári því
það er einnig gert í febrúar til
mars og eftir þetta hafa gæðin
snaraukist. I fyrra komu til
okkar 420 tonn af nóvember-
ull þannig að mikil aukning
hefurorðið og umhirðan verð-
ur ávallt betri. Það hafa opnast
möguleikar til að nýta alla þá
ull sem til fellur.“
Er þetta aftur orðin blómleg út-
flutningsgrein?
„Stórt er spurt. Hún verður aldrei
eins stór og hún var á blómatímanum
þegar Álafoss og Sambandið vom í
þessu en ég hef trú á því að fram-
leiðslan fari frekar upp á við þó ekki
verði eins og áður.“
Nú hefur Alþýðuflokkurinn far-
ið með iðnaðarmálin síðustu ár.
Hvað viltu segja um fram-
göngu flokksins i þessum mála-
flokki?
„Ég myndi gefa ráðhenum flokks-
ins þokkalega einkunn fyrir sína
framgöngu. Jón Sigurðsson var iðn-
aðarráðherra þegar ullariðnaðurinn
var að syngja sitt síðasta árið I99l.
Hann kom að endurreisn fyrirtækja
sunnan heiða sem og fyrir norðan.
Mín kynni af honum vom góð. Ég
held að þeir hafi báðir staðið sig vel í
þessu ráðuneyti, hann og Sighvatur
Björgvinsson."
Telur þú að málflutningur Al-
þýðuflokksins hafi hljómgrunn í
kjördæminu og hverjar eru líkur á
að það takmark náist að vinna
þingmann.
„Líkumar em alljjokkalegar. Þetta
verður harður slagur. Það em hér tvö
framboð sem ekki vom síðast, Egg-
ert Haukdal og Þjóðvaki, þannig að
hér stefnir í harðan slag. Stefna
Alþýðuflokksins á sér ágætan hljóm-
gmnn. Suðurlandið er landbúnaðar-
kjördæmi og Alþýðuflokkurinn er
ekki þekktur fyrir að eiga mikinn
stuðning bænda, en hér em margir
þéttbýlisstaðir og mest af fylginu mun
koma þaðan, þó ég sé ekki að segja að
flokkurinn sé fylgislaus í sveitum.
Menn em bara hóflega bjartsýnir og
vonast eiiir góðri niðurstöðu."
Þannig að það er hugur í þér?
„Alþýðuflokkurmn hefur allt að
vinna.“
Jóhann Tr. Sigurðsson: Þetta verður harður slagur en Alþýðuflokkurinn
hefur allt að vinna. A-mynd: E.ói.
Atvinnumálin eru
efstábaugi
„Vanti þig ráðgjöf og vandaða
flutningsmiðlunarþjónustu vegna
flutninga til og frá Austurlöndum fjær
skaltu hafa samband við Eimskip."
Eimskip býður viðskiptavinum upp á heildarlausnir í flutninga-
þjónustu, inn- og útflutning, vöruhúsaþjónustu, innanlands-
flutninga, framhaldsflutninga og forflutninga erlendis.
Hjörtur Hjartar,
forstöðumaður í Hamborg
EIMSKIP
Sími 569 71 00 • Fax 569 71 79
Netfang: mottaka@eimskip.is