Alþýðublaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 6
6
ALÞÝÐUBLAÐK)
MIÐVIKUDAGUR 1. MAÍ1996
m a í
Hvert er mikilvægasta verkefni verkalýðs-
hreyfingarinnar 1. maí 1996? Alþýðublaðið
leitaði svara hjá fimm verkalýðsforingjum
Pétur Sigurðsson forseti
Alþýðusambands Vestfjarða
Hrindum
árás ríkis-
stjórnar-
innar
„Brýnasta verkefni verka-
lýðshreyfmgarinnar í dag er að
hrinda árás nkisstjómarinnar á
vinnulöggjöfina. Ef verkalýðs-
hreyfingin leggur ekki allt í
sölumar til að koma í veg fyrir
þennan gerning þá verður
gengið á lagið og hirt af okkur
öll réttindi smátt og smátt. Það
er búið að kveða upp um það af
einhvetjum efnahagssérfr æð-
ingi ríkisstjómarinnar að orlof
á Islandi sé allt of langt. Vinnu-
veitendur em búnir að kveina
yfir því í mörg ár að veikinda-
rétturinn sé of mikill. Svona
verður haldið áfram.
Öll önnur kjaramál felast í
því hvort hætt verður að hrinda
þessari árás.“
Hrafnkell A. Jónsson
formaðurÁrvakurs á Eskifirði
Breytt
skipulag
„Það em tvö samhangandi
verkefni sem ég tel mjög brýn.
Verkalýðshreyfingin ætti bijóti
upp allt sitt skipulag með það
fyrir augum að aðlaga sig nú-
tíma staðháttum til að verða
þar með hæfari til að bæta kjör
launafólks. Ég lít svo á að til
þess að verkalýðshreyfingin
geti orðið það tæki sem hún
þarf, þurfi breytingar á skipu-
lagsháttum.“
Benedikt Davíðsson
formaður ASÍ
Þarfað
rétta kjörin
„Það þarf að rétta kjörin sem
hinn almenni launamaður býr
við nú og tryggja að ffamtíðin
færi okkur ftilla atvinnu fyrir
alla við ásættanleg kjör.“
Sigurður T. Sigurðsson
formaður Hlífar í Hafnarfirði
Brjótum
attur fjand-
samlegar
árásir
,3rýnasta verkefnið felst í
því að bijóta á bak aftur fjand-
samlegar árásir ríkisstjómar-
innar á verkalýðshreyfinguna.
Hér í Hafnarfirði þurfum við
líka að gæta þess að kratamir
nái ekki að útiloka fulltrúa
verkalýðsfélaganna ffá hús-
næðisnefnd bæjarins.
Síðar í haust skulum við bera
saman bækur okkar um hvem-
ig við náum jiví í gegn að
verkafólk á Islandi hafi hlið-
stæð laun og tíðkast á Norður-
löndum. Þama em mínar kröf-
ur komnar.“
Snjólaug Kristjánsdóttir
varaformaður Verkakvennafélagsins
Framsóknar
Stöðugleik-
inn mikil-
vægastur
„Það er ekki langt í að samn-
ingar losni og stærsta verkefnið
felst í því auka kaupmáttinn.
Ég er ekki að tala um kröfur
um miklar launahækkanir held-
ur leiðir til að auka raunvem-
legt innihald buddunnar. Mér
hefur fundist undanfarið að
verðbólga hafi aukist, og
minna sé eftir í buddunni hjá
fólki. Annað og jafnbiýnt verk-
efni er að ganga á hólm við at-
vinnuleysið. Það er skelfilegt
að horfa uppá hversu margt
ungt fólk gengur atvinnulaust.
En það er fyrir öllu að viðhalda
stöðugleikanum.“
Það tekur okkur aðeins
einn virkan dag að koma
sendingum þínum
til skila
Sendingar um land allt
Með næturflutningum fimm
sinnum í viku, milli Reykjavíkur
og Akureyrar og Reykjavíkur
og Egilsstaða myndast samfellt
flutningsnet fyrir póstsendingar um
Norðurland, Vesturland, Suðurland
og Austurland.
Sending er komin á áfangastað
næsta virkan dag
Með samtengingu þessara svæða við bíla er flytja póst um
Suðurnes og Norð-Austurland geta 85-90% landsmanna nýtt sér
þessa bættu þjónustu. Markmið okkar er að póstsendingar sem póstlagðar
eru fyrir kl. 16:30 á höfuðborgarsvæðinu og póstleiðunum
verði komnar í hendur viðtakanda næsta
virkan dag. Til annarra staða tryggjum við að
pósturinn fari ætíð með fyrstu mögulegu ferð.
PÓSTUR OG SÍMI
Við spörutn pér sporin