Alþýðublaðið - 01.05.1996, Blaðsíða 15
„Bjóst ég þá til að snúa inn í stofuna á ný, en
þá gaf Högni þessa skipun: „Bjartur, hrintu hon-
um út!" Fékk ég þá hrindingu að aftan frá, og
komst þannig að raun um að þar hafði verið
settur maður að baki mér til þessa starfa."
Bar ég nú hönd fyrir höfuð mér
eftir mætti og reyndi að losa mig
af þeim, er gerðust til að halda
mér, er út kom. Urðu þar ryskingar
nokkrar, og tók ég þar votta að
því, að ég væri með ofbeldi fluttur
burt. Nefndi ég þar sérstaklega til
Pétur Sigurðsson. Spyrnti ég við
fótum alla leið út götuna og er á
brjótinn kom, var mér hótað því,
að mér yrði kastað í sjóinn, ef ég
sýndi mótþróa. Var mér síðan hrint
niður í bátinn og var það nokkurt
fall. Var síðan haldið af stað og
mér haldið, meðan farið var frá
brjótnum. Bilaði (stöðvaðist) síðan
vélin í Ölvi, en svo hét báturinn,
og var þá eftir árangurslausar til-
raunir til að fá hana í lag, komið
með annan bát og var ég tekinn af
tveimur mönnum og settur (eftir
nokkrar stimpingar) yfir í hinn bát-
inn. Að öðru leyti var mér engin
áreitni sýnd á leiðinni.
Er báturinn var svo bundinn við
Norðurtangabryggju (á ísafirði)
kom lögregluþjónninn, Jón Finns-
son, yfir í bátinn og lýsti því yfir
að bátverjar væru teknir fastir.
Fylgdum við síðan lögregluþjónin-
um upp í fangahús.
Gagnsókn frá ísafirði
Þegar fréttist af handtöku Hanni-
bals og flutningnum til ísafjarðar
var verið að halda fund í sjó-
mannafélaginu þar. Fjölmenntu
sjómannafélagsmenn niður á
bryggju og fóru auk þess út á bát
til að tryggja að bátverjar sem
höfðu Hannibal í haldi gengju ekki
úr greipum lögreglunnar. Var þeim
sýnd róleg og þegjandi lítilsvirðing
og voru síðan sem fyrr og segir
fluttir í fangahúsið. Þar sem sýslu-
maður var ekki í bænum þegar
þetta gerðist var þeim þó fljótlega
sleppt.
Klukkan níu þetta sama kvöld
héldu svo ísfirðingar með Hanni-
bal í broddi fylkingar til Bolungar-
víkur á vélskipinu Gunnbirni.
Voru alls um fjörutíu manns á
skipinu og var jafnvel búist við
mótspyrnu í Bolungarvík, en til
þess kom ekki. Jóhannes Teitsson
oddviti kom þó niður á bryggju og
bað menn að halda ekki fund
vegna æsinga, en bátverjar fullyrtu
að þeir væru hinir rólegustu og
hófst fundur um málið klukkan tíu
í Góðtemplarahúsinu.
Fundurinn stóð til að ganga þrjú
um nóttina og urðu umræður mjög
heitar, þótt allt færi friðsamlega
fram. Af hálfu verkalýðssinna töl-
uðu meðal annarra Hannibal, séra
Páll Sigurðsson og Guðmundur G.
Hagalín, en Jóhannes Teitsson
oddviti og Halldór Kristinsson
læknir voru meðal þeirra sem
héldu uppi vörnum fyrir atvinnu-
rekendur. Urðu þeir að láta í minni
pokann, þótt þeir viðurkenndu það
ekki þar og þá.
Fundur þessi hafði mikil áhrif á
almenningsálitið í þorpinu, enda
segir Hannibal að málstaðurl at-
vinnurekenda - og einkum þeirra
Bjarna og Högna - hafi veriðlill-
verjandi þar sem kaupið í Bolulng-
arvík hafi verið mun lægra en
gerðist annars staðar á Vestfjörð-
um og var þó hvergi hátt. Blaðið
Skutull á ísafirði nefndi sem dæmi
um ranglætið að kvennakaupið á
ísafirði hafi verið farið að slaga
upp í karlakaupið í Bolungarvík!
Hér verður þessi deila ekki rakin
nánar, en lyktir urðu þær að félag
þeirra Högna og Bjarna gekk að
kröfum verkalýðsfélagsins eftir
töluvert stapp og var afgreiðslu-
banni þá létt af því. Vestfjarða-
sambandið tók málið að lokum að
sér og samdi við félag þeirra tví-
menninga. Var þetta fyrsti stórsig-
ur verkafólks í Bolungarvík og
örvaði það náttúrlega mjög til
frekari átaka og ekki urðu þessir
atburðir síður Hannibal Valdimars-
syni til mikils frægðarauka. ■
Þjóðhátíðamefnd Reykjavíkurborgar óskar
eftir tilboðum í atriði sem flutt yrðu á 17. júní í
ár. Um er að ræða leikþætti, tónlistarflutning
og skemmtiatriði fyrir börn og fullorðna.
Skemmtidagskrá mun standa í miðbænum kl.
14.00 - 17.30 og 20.00 - 01.00.
Umsóknum skal skila fyrir 10\ maí á skrifstofu
ÍTR Fríkirkjuvegi 11, á eyðublöðum sem þar
fást.
Nánari upplýsingar í síma 562 2215.
Þjóðhátíðarnefnd Reykjavíkur.
íþrótta- og tómstundaráð.