Alþýðublaðið - 05.05.1995, Blaðsíða 9
FOSTUDAGUR 5. MAI 1995
ALÞYÐUBLAÐIÐ
m e n n i n
■ Gluggað í bréf Bólu-Hjálmars þarsem hann segir frá ferðalagi
um Norðurland til Akureyrar
Mér þótti margt skemmtilegt,
en einkum siðferðislegt
Myndin sem dregin hefur verið upp
af Hjálmari Jónssyni í Bólu, einu
nafntogaðasta skáldi 19. aldar, er
nokkurnveginn svona: Úrillur,
beiskur, bláfátækur, níðskældinn
mannhatari sem stóð í grimmu
stríði við heilar sóknir norðanlands.
Þessi mynd er skrumskæling á
margbrotinni persónu og mögnuðu
skáldi. 2. október 1938 birtist í Al-
þýðublaðinu bréfkafli sem Bólu-
Hjálmar skrifaði í Skagafirði í
kringum 1870. Bréfið sendi hann
Bimi Jónssyni, sem þá var ritstjóri á
Akureyri, en ætlaði það fleirum til
lesturs: enda er þetta skemmtileg,
fróðleg og vel stfluð ferðasaga sem
sýnir skáldið í öðru Ijósi en
heimskuleg goðsögnin.
Þú beiddir mig kunningi seinast
orða að skrifa þér línu um ýmislegt,
sem ég gæti til tínt, en einkum hvemig
mér hefði gengið ferðin næstliðið
sumar, þá ég skreið norður að Eyja-
firði mjög vesæll í flóð-
um og vatnavöxtum, og
er það fljótt að segja, að
mér gekk hún vel, bæði
í tilliti til veðráttunnar
en einkanlega þess
góða fólks, sem fyrir
mér varð á leiðinni, ég
þekkti að kalla engan
mann, því mínir fomu
reisubræður vom dauð-
ir. Ég fór ofan Möðra-
vallasókn og hitti að-
eins tvo gamla heiðurs-
menn af þeim fornu
kunningjum, hveijir báðir könnuðust
við mig og gjörðu mér alúðlegar vel-
gjörðir. Þetta voru gömlu bændumir
Sigurður á Ósi og Jón á Syðri Bakka.
Ég kom að bænum Ásláksstöðum og
hitti þar mót von minni bónda Odd
Gunnarssón; kannaðist ég fljótt við
ætt hans og hitti þar góðgjöm og örlát
heiðurshjón. Ég kom að Stóra Dun-
haga og saknaði míns fomkunningja,
sál. Jóns Flóventssonar, en hitti þar í
hans stað greindarlegan og mannúð-
legan búhöld, hjá hverjum ég þáði
skemmtilega næturgisting. Ég kom að
bænum Þríhymingi og hitti bóndann
þar fyrir neðan tún að vatnsveitingar-
stungu. Ég hafði hann aldrei fyrri séð,
en kannaðist við ætt hans. Hann dró
mig ókenndan heim í hús sitt til að
gjöra mér allar þær velgjörðir, sem ég
gat í það sinn þegið. Ég kom að
Skipalóni og var þá svo óheppinn, að
gamli kunningi minn Th. Daníelss.
var ekki heima, en húsfreyja gjörði
mér ei að síður mikinn greiða. Þaðan
kom ég að Gæsum og þáði enn góð-
gjörðir hjá þar búandi heiðarlegri
ekkju. Þaðan fór ég að Dagverðareyri.
Var þá húsbóndinn, Oddur Jónsson,
ekki heima, en ég þáði næturgisting
að húsfreyju og góðkvendislegar vel-
gjörðir. Þaðan kom ég hvergi fyrr en á
staðinn Akureyri. Hafði ég mér til
skemmtunar á leiðinni að horfa upp í
Hlíðina gömlu og sýndist mér hún
hafa tekið ærin svipskipti síðan fyrr-
um að ég við kynntist. Sá ég alls stað-
ar blanka á tvö og þrjú þil, þar sem
fyrmm var ei utan lágar og ljótar kofa-
dyr fyrir bæjardyr og fjóshaugur fyrir
bæjardyrum, frá hveijum jafnan hall-
aði inn í bæinn. Svo kom ég á Akur-
eyri og stóð £ langri fomndran yfir,
hvað sá bær var orðinn útvíkkaður og
húsamargur og sé ég mér ekkert færi á
að rata í gegnum hann. Á heila staðn-
um þekkti ég aðeins 5 manneskjur.
Var það fyrst að telja herra amtmaður
okkar Havsteen. Kom ég í hús hans
og fann hann sem ljúfan og góðgjam-
an höfðingja. Annar var herra kaup-
maður Havsteen gamli og gerði hann
mér vinsamlegar velgjörðir. Síðan
kom ég til ritstjöra herra Bjamar Jóns-
sonar. Tók hann mér með mestu alúð
og gjörði mér miklar velgjörðir. Hann
sýndi mér nákvæmlega kirkjuna, sém
er fagurt musteri, og prentsmiðjuna og
þab VfUvlRi m \9nVa\i fáo:, 0)Íriutan.
rttu tit öiaafaí nteíH, th.n ttiííú:,d.
Wth: ttt (B-fafat C)teÍH, gting þvi
Iwmfciv íteitt.
ajvi fuo*d!ílanit,S'vlh(fa.þill ígfí í,
fiocntt>,Stóerttt®rafaT ÚIxuii£í>.,
*, -SkSveíttfOTlaríicu-tegjtPíbeií.fttuittt
^.OStoISirmc»,CHfa?K9-«átnocg«n.
P^HoliavSkngþcljtbuiner. 3
U. Wfiltþutlujúm þc* 0)t|iii i.mœibtt SWt
J^Uarð'fAfni-íÁ 91j»«1£2o-.. <«.
Ct, Urofobnúcírafié’'
p-Pl3 f3ui Salmia-búþtg S’hra^.btc&t
- 'neð U-tge^um Uar þak
etngta^dttum.
. ttUt-U ul|)ctmaní .
fDL-fjóibíb og i?cik,|jtím3'fttL'^ciIðbtró|}á
* JjOexfiþtv, eti Sfimúi mót,
/fi oStqtctiba^ucn: ^m.S’ÆlaT1
TobbcLkji'
btelf*bvet.
ób, SVngu
Svo kom ég á Ak-
ureyri og stóð í
langri forundran
yfir, hvað sá bær
var orðinn útvíkk-
aður og húsamarg-
ur og sé ég mér
ekkert færi á að
rata í gegnum
hann.
aðferð prentunarinnar. Þóttist ég sjá að
sumu leyti fátækt hennar og undraði
með sjálfúm mér, að nokkrir víkingar
skyldu fá sig til að heija á þennan sak-
lausa aumingja með lagavopnum. Síð-
an kom ég í hús hjá Benedikt gamla
járnsmið og hafði hjá
honum nokkuð, því ég
þekkti hann fyrrum.
Tók hann mér vel og
ræddi margt skemmti-
lega. Loksins lenti ég
hjá Unu Jónsdóttur syst-
ur minni og þeim hjón-
um. Þar var ég um kyrrt
einn dag í góðgjömustu
atlotum og bezta greiða.
Þar sá ég að vísu náttúr-
lega fátækt, en stakleg-
an þrifnað, sparsemi og
hagsýni, og þar hjá tvö
böm þeirra hjóna, mannvænleg og vel
upp alin. Eg gjörði mér það til
skemmtunar um daginn, að ég gekk
um nokkurn hluta bæjarins og kom
inn í sumar sölubúðir, því þá verulega
byijaðist kauptíð. Alls staðar var mér
sýnt gott og mannúðlegt viðmót og
boðnar góðgjörðir. Mér þótti margt
skemmtilegt, en einkum siðferðislegt.
Skipin hímdu við akkeri nær upp við
íjöru og spegluðu sig í sjávarlogninu,
sýndust þar tvö, er eitt var, og stæði
annað á höfði. Hanamir kyijuðu fyrst-
ir allra óttusönginn og reykháfarnir
spúðu árdegis hver í kapp við annan,
hvar af mynduðust skýstólpar yfir
staðnum. Ixstimar dundu að úr öllum
áttum, hlaðnar af landvömnni, en allt
sýndist mér siðferðilegt hjá því, er
íýrrum var. Loksins fór ég af stað frá
Ákureyri í áttina til baka. Hafði ég
jafnframt í hug, ef svo
mætti til bera að ég gæti
að gamni mínu hitt
mann einn, sem hafði
þótzt áður vilja vera
kunningi minn og ég
hugsaði, að ekki væri
svo mannfælinn*, að
hann mundi flýja hreysi
sitt, þótt hann yrði var
um aumingja á leið. Ég
hafði þenkt, að í honum mundi nokkur
maður liggja og brúkanleg sál, eftir
því sem látæðið og tilgerðin vísaði.
Þessi maður er nefndur Jónas Gott-
skálksson söðlasmiður og heyrði ég
hann ætti heimilistilflugt að bæ þeim,
er heitir á Skútum. Þangað hélt ég um
kvöldið og var þá Jónas ekki heima,
en mönnum þótti hans von heim þá
sömu nótt. Húsfreyja lét mér til reiðu
gisting og var ég þar um nóttina við
bezta beina. Þótti mér húsfreyja
greindarleg og kannaðist ég við kyn-
ferði hennar, þá hún sagði mér, og sá
ég hún átti mannvænlega sonu. Maður
gamall, greindur og réttorður, vakti
um nóttina yfir túni og auðræðum, og
frétti ég um morguninn, að Jónas
hefði komið heim um nóttina, en þeg-
ar hann heyrði að ég væri þar staddur í
húsum, reið hann sem skyndilegast í
burt. Var mér sagt, að kvenmaður
hefði verið í för með honum og kom
mér fyrst í hug sú forna afsökun:
Konu hefi ég mér festa etc., því enn
síður hitt, að hann hefði keypt búgarð,
sem hann þyrfti að flýta sér að skoða,
og allra sízt fimm pör akneyta, þar
sem það mikla og myndarlega mylnu-
Ég að vísu fékk frá
honum til baka
falsbréf, sem allt
reyndist hrekkvísi
og lýgi, sumt með
hræsnandi flaður-
mælum.
ALÞYÐUFLOKKURINN
Á REYKJANESI
Dregið í
Lukkuhappdrætti
Þann 8. apríl sl. fór fram dráttur hjá sýslumanni Kópavogs
í Lukkuhappdrætti Alþýðuflokksins á Reykjanesi. Vinning-
ar komu á eftirtalin númer:
Þrjár tölvur Hyundai 466G:
0545 1453 0463
Tíu utanlandsferðir til Dublin á írlandi:
2171 1608 1925 1920 1738
2538 1930 4758 1165 1 483
Fjörtíu vinningar á
hvert númer:
HM '95, tveir aðgöngumiðar á
1712 1114 2176 1680 2186
2535 1730 2131 2191 1733
1796 1168 1478 1725 1716
2637 1753 2260 0910 2708
1598 0501 0548 0355 2371
1448 2111 3000 1589 2878
2086 2211 2091 1624 0304
0552 2508 2999 1743 0354
Ferðavinningar eru afhentir gegn framvísunar vinning-
smiða hjá söluskrifstofu Samvinnuferða/Landsýn, Hafnar-
götu 35, Keflavík, s. 92-13400. Miðar á HM '95 verða af-
hentir gegn framvísun vinningsmiða hjá Alþýðuflokksfé-
lagi Kópavogs, Hamraborg 14a, 2. hæð t.h., Kópavogi, s.
91-44700; föstudaginn 5. maí nk. kl. 16.00-19.00 og laugar-
daginn 6. maí nk. kl. 10.00-13.00. Nánari upplýsingar t.d.
um tölvuvinninga verða veittar í síma 91- 44700 á ofan-
greindum dögum og tímum.
Alþýðuflokkurinn á Reykjanesi.
smíði í sálu hans (með hvert hún hefir
ólétt gengið nokkur ár) þarf ekki að
þiggja styrk frá sýnilegum hlutum, þar
sem ósýnilegur segulstraumur skal
drífa gangverk hennar!! Ég hafði íyrir
fáum ámm lítilfjörlega þénustu gjört
vesalmenni þessu, eftir bón hans, og
keypt mann um hávetur eindregið frá
mér norður til hans að Amamesi, sem
er hátt á tvær þingmannaleiðir. Ég að
vísu fékk frá honum til baka falsbréf,
sem allt reyndist hrekkvísi og lýgi,
sumt með hræsnandi
flaðurmælum. Annað
hefir hann mér ekki gott
sýnt á æfi sinni. Datt
mér því í hug, þar sem
ég átti nú leið um heim-
ili hans, að ómennið
mundi láta svo lítið að
lofa mér að heilsa sér og
tjá sig sem kunnuglega,
til annars góðs vonaði
ég ekki, að því er við vissi úr jafn óríf-
legum stað, og var eins og mér gæti
ekki annað en dottið í hug orðskviður-
inn: Alltjend vita seppamir, hvað þeir
hafa etið. Og hafi þessi maður tjáð sig
svona við marga, þykir mér ekki svo
að undra þótt vinsæld og auðsæld hafi
ekki getað verið að elta hann innan
um veröldina. Og er þessi og annar
eins farmur varla flytjandi á assúrer-
uðu sálarskipi. Við hvaða bryggju
verður honum upp skipað að síðustu?
- Allir í ferðinni voru mér góðir,
Bólu-Hjámar.
Magnússonar.
Teikning Tryggva
mannúðlegir og velgjörðasamir, sem
ég bið guð innilega að umbuna af rík-
dómi gæzku sinnar, enginn meiri hátt-
ar né minni, sem forsmáði mig, nema
þetta eina ómenni.
Ég fór eftir Öxnadal og hitti þar gott
fólk og velgjörðasamt, en ekki sízt
heiðurshjónin á Steinstöðum, hverjum
ég var til forna lítið eitt kunnugur.
Alls staðar þar sem ég fór sá ég mikil
nývirki á orðin, bæimir rifnir úr sínum
gömlu rústum, túnin grædd út og vel
ræktuð, vatnsveitingar komnar víða á
engjar, skorinn mór til eldiviðar,
manndómlegir ruðningar og vegabæt-
ur, timburbrýr yfir vondar ár og kíla,
kirkjur úr timbri og yfir höfuð gott og
mannúðlegt greiðafólk. Þetta er mikil
ánægja að sjá fyrir þann, sem ein-
hveija ræktartilfinning hefir til fóstur-
jarðar sinnar. Loksins komst ég klakk-
laust heim í fletið mitt og er hér með
reisusagan á enda.
Skrifað í janúar á Pálsmessu.
VERZLUNARMANNAFELAG
REYKJAVÍKUR
Framboðsfrestur
Ákveðið hefur verið að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu í
Verzlunarmannafélagi Reykjavíkur um fulltrúa á 20. þing
Landssambands íslenskra verzlunarmanna. Kjörnir verða
47 fulltrúar og jafnmargir til vara.
Listar þurfa að hafa borist kjörstjórn á skrifstofu Verzlunar-
mannafélags Reykjavíkur, Húsi verslunarinnar, fyrir kl.
12.00 á hádegi mánudaginn 8. maí 1995.
Kjörstjórn.
MENNINGARMALANEFND
REYKJAVÍKURBORGAR
Starfræksla
strengakvartetts
Menningarmálanefnd Reykjavíkurborgar auglýsir eftir um-
sóknum vegna starfrækslu strengjakvartetts á vegum
borgarinnar frá 1. september nk.
- Einungis hópar geta sótt um, ekki einstaklingar.
- Laun meðlima svari hálfum starfslaunum listamanna hjá
Reykjavíkurborg og hlíti sömu reglum.
- Kvartettinn starfi sjálfstætt og geri í umsókn nákvæma
grein fyrir starfsáætlun; fyrirhuguðu tónleikahaldi og öðr-
um verkefnum, áherslum í vali tónlistar, hugsanlegum
áformum um upptökur o.s.frv. Kvartettinn komi auk þess
fram nokkrum sinnum á ári á vegum borgarinnar án auka-
greiðslna samkvæmt nánara samkomulagi.
- Starfslaun til kvartettsins eru veitt til eins árs með mögu-
leika á framlengingu.
- Upplýsingar um önnur störf meðlima kvartettsins á
starfstímabilinu fylgi með umsókn.
Umsóknir skulu sendar: Menningarmálanefnd Reykjavík-
ur, Kjarvalsstöðum, v/Flókagötu, 105 Reykjavík fyrir 1. júní
nk. Sérstök dómnefnd velur úr umsóknum.
Allar nánari upplýsingar fást hjá ritara nefndarinnar í síma:
5525131.
Menningarmálanefnd Reykjavíkur.