Alþýðublaðið - 05.05.1995, Síða 11
FÖSTUDAGUR 5. MAÍ1995
ALÞÝÐUBLAÐIÐ
11
ú t I ö n d
úthellingamar
rerða mun meiri"
Eymdarleg svipmynd frá götum Sarajevo þar sem fallhlífar hafa verið
hengdar upp til að dylja umferð fyrir leyniskyttum.
Friðargæsluliðar Sameinuðu þjóðanna bera fallinn félaga sinn um borð i herþotu á flugvellinum í Sarajevo.
„Hernaðaríhlutun
væri tilgangslaus.
Hún myndi bara
styrkja skæruliða-
hreyfingu Bosníu-
serba. Vesturveldin
skilja ekki að hér -
einkum og sér í lagi í
Bosníu - snýst stríðið
um stofnun nýrra
þjóðríkja, til að
mynda Stórserbíu
eða Stórkróatíu. Og
múslimarnir vilja líka
breyta Bosníu í
íslamskt land."
Fjölþjóðaríkið
Júgóslavía er hrunið,
nú hefur geysað stríð í
Bosníu í þrjú ár. Von-
ast Serbar til þess að
hinn stóri slavneski
bróðir í Moskvu taki
loks opinberlega upp
þeirra málstað?
„Serbneska stjórnin
bíður í ofvæni eftir falli
Jeltsíns. Hún hefur
lengi haldið uppi sam-
bandi við rússneska
þjóðemissinna. Æ ofan
í æ koma rússneskir
hershöfðingjar til
Belgrad og iofa
bræðralag hinna grísk-
kaþólsku rétttrúnaðar-
þjóða. Yrðu þessi öfl
ofan á í Rússlandi,
myndu þau ganga í
bandalag við Serba taf-
arlaust. Það myndi
breyta öllum aðstæðum
á Balkanskaga mjög
snarlega."
Munu hörmung-
arnar á Balkanskaga
þá breiðast enn meira
út?
„Hvert einasta ríki á
skaganum sér sína eig-
in dýrðlegu fortfð og
gónir á þau landssvæði,
sem tilheyrði því þá.
Nágrannarnir benda
hvor öðrum bara á þá
glæpi sem þeir hafa
gerst sekir um. Það
hefur þróast upp eins konar Balkan-
fasismi.“
Er yfirleitt mögulegt að halda
friði á Balkanskaga þegar svona
mikið pólitískt eldsneyti er fyrir
hendi?
„Það eina sem gæti tryggt friðinn
væri íhlutun stórveldanna eða Sam-
einuðu þjóðanna. Ef þróun mála
verður hins vegar látin vera í hönd-
um þjóða Balkanskagans, þá munu
blóðsúthellingarnar verða mun
meiri. Þjóðernishreinsanir Serba
vora áætlaðar út í æsar af núverandi
valdhöfum. Þetta er ekki stnð sem
snýst um efnahagslegt eða pólitískt
forræði, heldur snýst það um að
mynda ný þjóðnki - þar verður ekk-
ert pláss fyrir þjóðemisminnihluta."
Þú stakkst sjálfur upp á laus-
legu ríkjasambandi áður en stríðið
braust út árið 1991. Hefði verið
hægt að bjarga Júgóslavíu?
„Þegar Króatía og Slóvenía lögðu
til að stofna ríkjasamband, gerðu
þau það vafalaust með það í huga að
næsta skref yrði algjört sjálfstæði
•••
'
Serbneskir hermenn í Króatíu 1991 standa yfir líki eins fórnarlambs styrjaldarinnar.
lýðveldanna. En þrátt fyrir það: For-
seti Júgóslavíu, Slobodan Milosev-
ic, ber að mínu mati einna mesta
ábyrgð á eyðileggingu Júgóslavíu.
Með því að nota þá afsökun, að hann
berðist fyrir Júgóslavíu, ætlaði hann
sér að ná völdum yfir hinum í þá
daga enn alvalda kommúnistaflokki
og yfir hemum. Ef honum hefði tek-
ist þetta, hefði hann þar með náð
völdum yfir allri Júgóslavíu.“
Voru Vesturlönd þá ekki til-
neydd að viðurkenna sjálfstæði
Sióveníu og Króatíu til þess að
koma í veg fyrir að herir Milosev-
ics næði að vaða fram alla leið að
Ölpunum?
„Án þessarar viðurkenningar hefði
stríðið farið á alveg sama veg. Her-
inn hefði ekki haft bolmagn til að
sigrast endanlega á báðum Norður-
lýðveldunum. Þegar tilraun Milosev-
ics til að ná allri Júgóslavíu á sitt
vald hafði mistekist, galdraði hann
fram kenninguna um Stór-Serbíu - á
meðan hann hélt áfram að tala opin-
berlega um að bjarga Júgóslavíu."
Telur þú, sem fyrrverandi
skæruliði, að landshættir Bosníu
geri það landsvæði óstjórnanlegt?
Myndu friðargæslusveitir Samein-
uðu þjóðanna geta komið friði á í
landinu, ef þær bara mættu grípa
af meiri krafti inn í?
„Hernaðaríhlutun væri tilgangs-
laus. Hún myndi bara styrkja skæru-
liðahreyfingu Bosníuserba. Vestur-
veldin skilja ekki að hér - einkum
og sér í lagi í Bosníu - snýst stríðið
um stofnun nýrra þjóðríkja, til að
mynda Stór-Serbíu eða Stór-Króatíu.
Og múslimarnir vilja líka breyta
Bosníu í íslamskt land. Hugmynd Iz-
etbegovic forseta um að gera lýð-
ræðisríki úr Bosnfu er óframkvæm-
anleg með stjórnmálaflokki, sem
einkennist af alræðishugmyndafræði
og skorti á umburðarlyndi. Þessi
stefna myndi kúga öll önnur þjóð-
emi. Aftur á móti er það alveg rétt,
að múslimar hafa þurft að þola mik-
ið óréttlæti."
Serbarnir í Bosníu vilja líka
þvinga sínar hugmyndir upp á hin
þjóðabrotin. Munu þeir fá að
halda því landi sem þeir hafa
komist yfir?
„Að sjálfsögðu hafa Serbamir her-
sett of mikið land. Þeir vita það vel
og hyggjast nota það í samningapoti.
Besta lausnin fyrir Bosníu-Herzego-
vínu væri að verða langtímavemdar-
svæði Sameinuðu þjóðanna. En að
búast við svo miklum afskiptum og
fjárútlátum af Vesturveldunum væri
einfaldlega bamalegt.“
Mun sameinuð Júgóslavía
nokkru sinni eiga möguleika á að
líta dagsins Ijós á ný?
„Nei, sá draumur er liðinn. Eftir
verða lítil, sjálfstæð ríki, sem munu
verða tengd nánum efnahagslegum
og menningarlegum böndum. Kalda
stríðið er liðið með hmni kommún-
ismans - nú föllum við aftur í það
tímabil, þar sem smáríki útkljá deilu-
mál sín á milli." ■