Alþýðublaðið - 05.05.1995, Side 12
* * m x XvVmintT m m n * *
mmu7 4 - 8 farþega og hjólastólabflar 5 88 55 22 MPBHBLMfi 'mWFILL/ 4 - 8 farþega og hjólastólabílar 5 88 55 22
Föstudagur 5. maí 1995 67, tölublað - 76. árgangur_________________________________Verð í lausasölu kr. 150 m/vsk
Minningargudsþjónusta
í Dómkirkjunni
Fórnarlamba
seinna stríðs
minnst
Næstkomandi sunnudag, 7. maí,
verður minningarguðsþjónusta í Dóm-
kirkjunni í Reykjavík í tilefni af því að
50 ár eru liðin frá lokum síðari heims-
styrjaldarinnar í Evrópu. Biskup ís-
lands, herra Ólafur Skúlason.
predikar og Davíð Oddsson forsætis-
ráðherra flytur ávaip við upphaf guðs-
þjónustunnar.
í guðsþjónustunni verður minnst
fómarlamba hildarleUcsins mikla, þeg-
ar milljónir manna létu lífið í hat-
römmustu átökum er orðið hafa í Evr-
ópu - og enn em ógróin sár frá þess-
um tíma. Beðið verður fyrir friði um
heimsbyggðina og að skilningur og
kærleikur ráði í samskiptum manna í
stað aflsmunar og vopna.
Við guðsþjónustuna þjóna einnig
dómkirkjuprestarnir séra Hjalti
Skúlason og séra Jakoh Ágúst
Hjáhnarsson. Kammerkór Dómkirkj-
unnar syngur undir stjóm Marteins
H. Friðrikssonar organista. Guðs-
þjónustan hefst klukkan 11:00.
Nýtt tölublað tímarítsins
, Veru komið út
„Otótlegustu
greppittYHÍ pg
feitaboílur
Vera - blað um konur og kvenfrelsi,
2. tölublað ársins 1995 er komið ú.
Ritstjóri blaðsins er Sonja B. Jóns-
Spennandi uppákoma í Leikhússkjallaranum
„Kennslustundin" eftir
meistarann lonesco
Leikaramir Gísli Rúnar Jónsson,
Guðrún Þ. Stephensen og Steinunn
Ólína Þorsteinsdóttir munu næst-
komandi mánudagskvöld leiklesa
einþáttunginn Kennslustundin eftir
snillinginn Eugéne Ionesco - í nýrri
þýðingu Gísla Rúnars - undir stjóm
Bríetar Héðinsdóttur. Á undan ræð-
ir Ömólfur Árnason rithöfundur um
Ionesco og hið svokallaða leikhús fá-
ránleikans.
Einþáttúngurinn nefnist á fmmmál-
inu La Lecon og skrifaði Ionesco
hann árið 1950 á franska tungu for-
feðra sinna í móðurætt. Verkið var
frumsýnt á Théatre du Poche 20.
febrúar árið eftir og þá í leikstjóm
meistara Marcel Cuvelier.
Leiklesturinn í Listaklúbbnum á
mánudagskvöldið hefst um klukkan
20:30. Ollum er heimill
aðgangur og er aðgangs-
eyrir 500 krónur fyrir al-
menning en 300 krónur
fýrir félaga í Listaklúbbn-
um.
Steinunn Ólína Þor-
steinsdóttir og Eugéne
lonesco. Steinunn er
einn þriggja leikara
sem leiklesa Kennslustundina eftir
lonesco í Leikhússkjallaranum á
mánudagskvöldið.
Beocom
BEOCOM 9500
Beocom frá Bang & Olufsen.
Úrvals hönnun og gæði.
Beocom vegur aðeins um 225 gr og
hentar því einstaklega vel í vasa og veski.
Síminn er einfaldur í notkun og með
10 númera endurvalsminni.
Hleðsluspennir fyrir rafhlöður og
íslenskar leiðbeiningar fylgja.
69.980-í)
73.663-
PÓSTUR OG SIMI
Söludeild Átmúla 27, simi 550 öo80
Söludeild Kringlunni, simi 550 6690
Soludeild kirkjustrmti. sími 550 6670
og a post- og simstöðvum um land allt.
‘Afborgunarverð
dóttir. Forsíðuumíjöllunin er um kon-
ur í fangelsi: „Fangar en ekki fólk?“
Eins og undirtitill tímaritsins Veru
gefúr til kynna snýst tímaritið um mál-
efni er snúa sérstaklega að konum. Og
sé 48 síðna blaðinu flett má einungis
finna myndir af sex körlum: Heiðar
„snyrtir" Jónsson er á auglýsingu fyr-
ir þáttinn Fiskur án reiðhjóls, Sigga
Sigurjóns leikara bregður einnig íyrir
í auglýsingu og Bergþór Pálsson er í
aukahlutverki á mynd með Diddú.
Það þarf engum að koma á óvart þó að
þessir þrír séu í Veru. Hins vegar
kemur meira á óvart að sjá Þórarinn
Vaff við greinina Kjarasamningar og
Ingva Hrafn Jónsson. Ingva Hrafn er
að frnna í grein Kristínar Atladóttur
um konur í sjónvarpi og ekkert útskýrt
nánar hvers vegna hann er þar nema ef
vera kynni vegna þess sem segir í
textanum: „Sjónvarpsáhorfendum er
ætlað að horfa á misfríða karlmenn,
suma að vísu stórglæsilega en aðra
sem jafnvel eru hin ótótlegustu
greppitrýni og feitabollur." Ingvi
Hrafn er jú glæsilegur en það er
kannski ofsagt að hann sé stórglæsi-
legur. Að endingu er svo mynd af
Gísla Ásgeirssyni, kennara og mara-
þonhlaupara úr
Hafnarfirði.
Ingvi Hrafn
Jónsson er einn
sex karla sem
hlotnast sá
heiður að birt-
ast á síðum
nýrrar Veru.
Málþing Kvenréttinda-
félags íslands á morgun
Vilji og vænt-
ingarfor-
eldra fram-
tíðarinnar
Kvenréttindafélag Islands heldur
málþing í Komhlöðunni við Banka-
stræti á morgun, laugardag klukkan
10:30, undir heitinu Foreldrar fram-
tíðarinnar - vilji og vœntingar. Mál-
þingið er haldið í tilefni af Ári fjöl-
skyldunnar 1994.
Þeir sem flytja erindi em: Sigríður
Vilhjálmsdóttir þjóðfélagsffæðingur,
Sigríður Jónsdóttir námsstjóri, Þor-
valdur Karl Helgason forstöðumaður
Fjölskylduþjónustu kirkjunnar, Sóley
Bender lektor við Háskóla íslands,
Sólveig Þórðardóttir ljósmóðir, Sig-
urður Snævarr hagfræðingur, Gígja
Sigurðardóttir móðir og Sveinn
Helgason faðir. Málþinginu stýrir
Gerður Steinþórsdóttir kennari og
umræðum í lok þess stjórnar Ingi-
björg Broddadóttir deildarsérfræð-
ingur.
Málþing Kvenréttindafélags íslands
er öllum opið, þátttökugjald er 1.200
krónur og er léttur hádegisverður og
ótakmarkað kaffi innifalið.