Vísir - 24.01.1976, Side 1
Er hifaveita viðhald
eða
— sjá baksíðu
Ægir bíður fyrirmœla frá London
Varðskipið Ægir var á miðnætti
siðastliðnu innan um fjörutlu
breska togara sem ailir voru að
veiðum i landhelginni. Var þá frá
þvi á hádegi búið að biöa fyrir-
mæla frá London um hvort togar-
arnir ættu að hlýða skipunum
Þrastar Sigtryggssonar, skip-
herra, um að hætta veiðum.
Um hádegisbilið i gær, hótaði
Þröstur að klippa ef ekki yrði
hlýtt og renndi upp að einum tog-
aranum. Ekki liggja fyrir ljósar
fréttir af þvi hvort það var alvar-
leg tilraun til að klippa. Aðstoðar-
skipið Miranda bað þá um
tveggja tima frest til að fá fyrir-
mæli frá London um hvað gera
skyldi. Um miðnætti var sem sé
ekkert svar komið, og Ægir biður
enn aðgerðarlaus.
Varðskipin klippi ekki
Lúðvik Jósepsson, alþingis-
maður, var mjög harðorður I garð
stjórnarinnar i sjónvarpsþættin-
um Kastljós i gærkvöldi. Hann
kvað hana hafa skrökvað að þjóð-
Sveifarás í
farangrinum
— blaðamenn Vísis á „rúntinum"
með Iscargo í Álaborg og Bergen
— sjá bls. 4-5
Concorde velkom-
in til Síberíu!
—en hver borgar dýrum dómum fyrir að fá
að fljúga á tvöföldum hljóðhraða ÞANGAÐ?
— bls.8
HVAÐ?
— sjá erlenda
myndsjá
bls. 7
Hvíti stormsveipurinn
á götum Reykjavíkur
—með blaðamenn Vísis í humátt á eftir sér
_____________— sjá bls. 15
Harðar deilur um
fjármál á fundi
Alþýðuflokksmanna
— baksíða
Þetta aukalega:
Laugardagsblöð Visis hafa ýmsa efnisþætti sem ekki eru I hin-
um blööunum. Það má minna á skákþátt, krossgátu, poppþátt,
bridgeþátt og vinsælustu litmyndasögur landsmanna: Hroli,
Agga, Mikka Mús og Teit töframann. FLETTID BARA
inni um að varðskipin hefðu fyrir-
mæli um að ganga jafn hart fram
og áður.
Lúðvik sagði, að boðið til Geirs
Hallgrimssonar um að koma til
London til viðræðna, beinlinis
grundvallaðist á þvi að varðskip-
in létu togarana i friði á meðan.
Hann las orðrétt úr bréfi Harolds
Wilson til Geirs Hallgrimssonar.
Þar sagði meðal annars:
,,Dr. Luns hefur skýrt mr.
Callaghan frá mati sinu á ástand-
inu i þessum efnum eftir heim-
sókn hans til Reykjavikur i sið-
ustu viku. Hann hefur gert það að
tillögu sinni að við drægjum frei-
gátur okkat til baka þannig að
viðræður gætu hafist að nýju.
Jafnframt hefur hann lýst þvi
sem persónulegu áliti sinu að tog-
arar okkar yrðu ekki fyrir aðkasti
af hálfu varðskipa ykkar. 1 þeirri
vissu að slikt vopnahlé myndi
stuðla að þvi að skapa grundvöll
að árangursrikum samningum,
er mér ánægja”.... o.s.frv.
Ekki bundnir af skoðun-
um breta
Jleuter fréttastofan hefur hins
vegar eftir ólafi Jóhannessyni,
dómsmálaráðherra, að islenska
rikisstjórnin sé á engan hátt
bundin af þeirri skoðun breta að
togararnir fái að vera i friöi.
Telur hann mestu fásinnu að tog-
ararnir beinlinis græði á þvi að
herskipin fari burt. Að þeir fái
þar með að veiða óáreittir.
—ÓT
,,My horse spiser grass
in Laugarness.
Dcn koster þrjú shillings and five pence
og borges strax”
Þannig kváðu menn i gamla daga, þegar túristar
fóru að venja komur sinar til landsins, og leigðu
sér gjarna hesta til útreiðar. Kom þá oft flatt upp
á landann, enda ekki þá fyrir að fara dönsku- og
enskukennslu i barnaskólum. Sumir kunnu þó ráð
við þessu, og lærðu rulluna utanað, sem þeir svo
fluttu þegar túristarnir föluðust eftir hestum til
leigu.
Annars á vist annar hver maður nú hross, eða
hefur aðgang að einu sliku, eins og þessir hressu
félagar sem Visismenn hittu upp við Fákshúsin.
Þeir voru að viðra hestana sina. Blaðamaður Vis-
is tók eitt hrossið tali, og spurði það álits á land-
helgismálinu. —óH/Ljósm. Visis: Loftur
SJABLS. 3