Vísir - 10.03.1976, Side 2
Ætlarðu að kaupa ríkis-
skuldabréf?
Kristinn óskarsson, lögreglu-
maöur: — Nei, ég hef ekki hugsað
mér að kaupa rikisskuldabréf að
þessu sinni. Ég hef ekki keypt slik
bréf áður, heldur vil ég leggja
peningana i banka.
tiilmar Björnsson, arkitekt: —
Nei, það ætla ég ekki að gera, ég
hef aldrei keypt rikisskuldabréf.
Ég hef fengið svona bréf gefins.
Ég vil alls ekki leggja peninga i
banka, heldur kaupa mér stein-
steypu og safna henni þangað til
ég á i hús.
Sigurlaug óskarsdóttir, hús-
móðir: — Nei ég ætla ekki að
kaupa rikisskuldabréf. Ég legg
heldur ekki peninga i banka aðal-
lega vegna þess að ég á enga.
Guðbjörg Guðmundsdóttir, nemi:
— Er ekki fylgjandi gróðabraski
auðvaldsins.
Gunnar Kristinsson, ncmi: — Ég
er nemi og hef ekki efni á þvi að
kaupa rikisskuldabréf. Þó ég ætti
pening myndi ég ekki kaupa
rikisskuldabréf.
Jón Hjaltason, hæstaréttarlög-
maður: — Nei, ég geri ekki ráð
fyrir að kaupa rikisskuldabréf aö
þessu sinni. Ég hef einu sinni
keypt mér rikisskuldabréf. Þaö
var þegar út voru gefin bréf
vegna vegar yfir Skeiöarársand.
Miðvikudagur 10. marz 1076 VÍSIR
Aðstöðuleysi útilokar
nákvœmar forspár um
jarðskjálfta hérlendis
,,Það væri ástæöa til að leggja
meira upp úr jarðskjálfta-
rannsóknum og tiiraunum til að
segja fyrir um þá, heldur en
gert cr hcr.
Það eru t.d. yfirvofandi stórir
skjálftar bæði á Suður- og
Norðurlandi. Við höfum lítil tök
á að segja fyrir um þá, bæði
vegna mannfæðar og aðstöðu-
leysis” sagði Páll Einarsson hjá
Kuunvisindastofnun i viðtali við
Vísi.
Visir leitaði umsagnar Páls á
frétt frá kinverska sendiráðinu
er greinir frá nákvæmri forspá
þarlendra visindamanna um
jaröskjálfta.
Skjálftinn, sem var að styrk-
leika 7,3 stig á Richter, varð i
framleiðslufylki i norðaustur
Kina. Vegna forspárinnar tókst
aö koma i veg fyrir að nokkur
ibúanna á svæðinu slasaðist eða
færist, þótt flest húsanna
hryndu og gifurlegar skemmdir
yrðu á öðrum mannvirkjum.
Vakti heimsathygli
„Þetta var visindalegt afrek
hjá kinverjunum og vakti
athygli um allan heim. Þetta er
eitt af megin rannsóknarefnum
þeirra og þeir leggja i þetta
fantalega vinnu og peninga.
Þeir hafa nálgast þetta frá
öllum hugsanlegum hliðum, t.d.
mæla þeir hljóðhraða i bergi og
fylgjast með breytingum á
hegðan dýra.
Það er óhætt að fullyrða að
kinverjar standa a.m.k. jafn-
fætis öörum þjóðum á þessu
sviði, en sovétmenn, japanir og
einnig bandarikjamenn hafa
lagt töluvert i rannsóknir til að
segja fyrir um skjálfta.”
Kinversku jarðskjáiftafræðingunum tókst með rannsóknum sinum að spá nákvæmlega fyrir um
skjálftana i Tingchiakoufylki og komu þannig I veg fyrir manntjón.
Yfirvofandi stórir skjálft-
ar — segir Páll Einarsson
Segja fyrir um
skjálfta i framtiðinni
,,Við höfum nánast ekkert
stundað svona forspár. Við höf-
um hvorki mannskap til þess né
nokkra aðstöðu. Við erum núna
að rembast við að koma upp
skjálftamælum sem er algjört
frumskilyrði.
Forspárnar eru liður i fram-
tiðaráætlunum, en það verður
að byrja á byrjuninni.
Fyrst verður að skilja hvers
vegna jarðskjálftar verða, finna
skjálftabeltin og hvar á mæla
það sem mæla þarf.
Miðað við þá jarðskjálfta sem
við getum reiknað með að verði
hér, finnst mér ekki ógáfulegt
a& leggja meira i þessar
rannsóknir.
Hins vegar koma lika upp
vandamál þegar að þvi kemur
að hægt verður að spá fyrir um
skjálfta.
Þá koma ýmsar spurningar
um t.d. hvað á að gera og hver á
að bera tjón sem yrði t.d. vegna
hugsanlegra fólksflutninga af
hættusvæðum” sagði Páll
Einarsson.
— EB
Ríkisstjórnin stendur
við yfirlýsingu sína
— segir Gunnar Thoroddsen félagsmálaráðherra
„Rikisstjórnin mun standa
við yfirlýsingu þá, sem gefin
var út um húsnæðismálin eftir
viðræðufund minn með forseta
ASl og formönnum landssam-
banda. Sú yfiriýsing fól i sér
staðfestingu á yfirlýsingu fyrri
rikisstjórnar um húsnæðismálin
frá 26. febrúar 1974 með fyrir-
vara um lánakjör”, sagði Gunn-
ar Thoroddsen félagsmálaráð-
lierra i samtaii við Visi.
Visir birti frétt siðastliðinn
mánudag, þar sem vakin var at-
hygli á þvi að lánsfjáráætlun
gerir ráð fyrir að 30% af ráð-
stöfunarfé lifeyrissjóða renni til
fjárfestingarlánasjóðs.
I yfirlýsingu fyrri rikis-
stjórnar, sem staðfest hefur
veriðaf núverandi rikisstjórn er
kveöiö á um aö rikisstjórnin
muni beita sér fyrir þvi að á ár-
unum 1976 til 1980 verði fram-
hald á byggingu hentugra ibúða
fyrir efnalitið fólk. Ennfremur
að lifeyrissjóðir stéttarfélag-
anna fjármagni þessar ibúða-
byggingar með 20% af árlegu
ráðstöfunarfé sinu frá og með
1974.
Rikisstjórnin
ræður ekki
Gunnar Thoroddsen sagði, að
vert væri að vekja athygli á þvi,
að það væri ekki i valdi rikis-
stjórnarinnar að ráða, hvers'J
stór hluti ráðstöfunarfjárins
rynni til fjárfestingarlánasjóða
Það væri lifeyrissjóðanna að
ráða þvi.
Bréfaskipti
1 bréfi, sem framkvæmda-
stióri Sambands almennra lif-
eyrissjóða ritar, segir meðal
annars eftirfarandi um bréf
fjárálaráðuneytisins til lifeyris-
sjóðanna dagsett 23. desember
siðastliðinn.
„Látið er að þvi liggja, að
sjóðfélagar þeirra lifeyrissjóða,
sem ekki kaupa skuldabréf
samkvæmt framansögðu eigi
það á hættu að fá skert lán úr
Byggingasjóði á árinu 1976.”
Þessu svarar Gunnar
Thoroddsen félagsmálaráð-
herra i yfirlýsingu þeirri sem
hann sendi Birni Jónssyni 26.
febrúar siðastliðinn.
„Skerðing lána úr Bygginga-
sjóði á árinu 1976 til sjóðsfélaga
þeirra lifeyrissjóða, sem kaupa
ekkí skuldabréf rikisins fyrir
30% af ráðstöfunarfé sinu, hefur
ekki verið rædd við félagsmála-
ráðuneytið og kemur ekki til
greina.”