Vísir - 10.03.1976, Blaðsíða 7
VISIR
lYIiövikudagur 10. marz 1976
og Oiafur Hauksson
^ m ^ ^ ^ ^ ^
43 f ferjunni
einn lifði af
Aðeins einn komst af þegar
stór kláfferja féll til jarðar I
Dólómitafjöllum i Italiu I gær.
42 fórust. Eftirlifandi er
fjórtán ára gömul itölsk stúlka
frá Milanó. Orsök slyssins er
enn hulin ráögáta, en rann-
sóknarmenn vonast til aö
stúlkan geti einhverju ljósi á
hana varpað.
1 kláfferjunni voru ferða-
menn og skiðamenn á leið frá
skiðabrekkunum. Sjónarvott-
ur sagði að skyndilega hefði
sér virst klefinn renna aftur-
ábak. Siðan losnaði hann af
burðarvirnum, og féll 50
metra niður i fjallshliðina.
Rannsóknarmenn telja
hugsanlegt að dragvirinn hafi
skyndilega flækst. Við það hafi
burðarvirinn farið úr rás
sinni, og klefinn fallið. Stórt og
þungt stálhjól af nálægu burð-
armastri féll einnig niður — og
lenti að öllum likindum á klef-
anum. Telja rannsóknarmenn
að stálhjólið hafa valdið mesta
skaðanum. Þetta slys er það
mesta sem orðið hefur á kláf-
ferju.
Kiáfferjan féll niður rúma 50 metra áöur en hún lenti i
fjallshliöinni meö 43 innanborös. Stáistykkiö sem liggur
ofan á sundurkrömdum ferjuklefanum Iosnaði úr buröar-
mastri, og féll niður á klefann. Taliö er aö þungt stálið hafi
valdiö dauöa fiestra þeirra sem fórust.
Ford sigraði í Florída
en Carter hlaut mest fylgi meðal demókrata í forkosningunum, þar sem Wallace hafði verið spáð sigri
Ford forseti og Jimmy Carter
fóru hvor um sig með sigur af
hólmi I sinum fiokki i forkosning-
unum í Flórida i gær.
Þegar talningu var lokið hjá
repúblikönum, kom iljós.aö Ford
haföi hlotiö 53% atkvæöa, meöan
keppinautur hans, Ronald Reag-
an, fékk 47%.
Ford: 53%
Á meöan var talingu enn ólokiö
hjá demókrötum, en þar haföi
Carter örugga forystu meö 35%
meöan George Wallace haföi
32%, og var Carter spáö sigri.
Carter kom á
óvart
Þessi sigur Carters kemur
nokkuð á óvart, þvi að George
Wallace hafði sigrað auðveldlega
með um 50% atkvæða i forkosn-
ingunum i Flórida 1972. — Gefur
þetta Carter mikinn byr i seglin i
kapphlaupi demókrata um út-
nefningu flokksins til framboðs i
forsetakosningunum.
Henry Jackson, sem sigraði i
forkosningum demókrata i
Massachusetts i siðustu viku,
fékk þriðja mesta atkvæðamagn
demókrata i Flórida eða 21% (eft-
ir þvi sem menn töldu sig sjá
fyrir). — Þykir það spá góðu um
horfur hans i næstu forkosning-
um.
Reagan: 47%
Mikil kjörsókn
Þátttaka i þessum prófkjörum
flokkanna var mjög góð þrátt fyr-
ir rigningu, þrumuveður og
stormaviðvaranir veðurstofunn-
ar. — A kjörskrá repúblikana i
Flórida var um ein milljón
manna, en hjá demókrötum um
2.4 milljónir. — Þegar talningu
lauk hjá repúblikönum kom i ljós,
að 95% höfðu greitt atkvæði.
Báðir ánægðir
Ford forseti var yfir sig ánægð-
miöe viss um sigurhorfur sinar i
Illinois i næstu viku, og sagði, að
Ford hefði eytt öllu púðri sinu i
(
ur með úrslitin og aðstoðarmenn
hans spá þvi, að eftir úrslitin i
forkosningum i Illinois i næstu
viku megi Reagan heita glveg úr
leik, en þeir eru mjög sigurvissir
fyrir hönd Fords.
Reagan bar sig vel, þegar úr-
slitin voru orðin fyrirsjáanleg, og
kvaðst ánægður með það fylgi,
sem hann hefði hlotið. Hann var
Carter: 35%
undirbúningi forkosninganna i
Flórida, meðan hann sjálfur hefði
þurft að vera með annan fótinn i
Illinois og Chicago til þess að búa
sig undir næstu viku.
Carter hélt mikla sigurhátið
með stuðningsmönnum sinum i
demókrataflokknum, strax og
tölur bentu til sigurs hans. — ,,Ég
er það framboðsefnið, sem er
liklegast til þess aö ná kosningu
sem forseti,” sagði hann.
Wallace lét ekki illa yfir úrslit-
unum, og benti á, að atkvæða-
munurinn væri ekki ýkja mikill.
Kvaðst hann enn eiga góða mögu-
leika i samkeppninni.
Á brattann að
sækja hjá Reagan
Fréttaskýrendur vilja leggja
það upp úr úrslitunum i Flórida,
að ekki standist lengur fullyrð-
ingar Reagans um að leikara-
frægð hans og ræðusnilld geri
hann frambæriiegri sem fram-
bjóðanda repúbikanaflokksins
heldur en Ford. — Ford hafi i
Flórida greinilega sýnt, að hann
geti laðað kjósendur að sér, þótt
hann hafi ekki byrjað geyst kosn-
ingabaráttuna. (Forkosningarn-
ar i New Hampshire, fyrstu for-
kosningarnar þetta árið, vann
Ford mjög naumlega). — Þeir
telja, að nú verði mjög á brattann
að sækjafyrir Reagan, sem fyrir
mánuði var spáð sigri i Flórida,
sem brást svo, þegar á reyndi.
Markmið
forkosninganna
1 forkosningunum eru valdir
fulltrúar i hverju riki til að sitja
landsþing flokkanna, sem haldin
verða i sumar. En landsþingin út-
nefna frambjóðanda fyrir for-
setakosningarnar. Til þess að
hljóta útnefningu flokks sins, þarf
framboðsefni i demókrataflokkn-
um að fá atkvæði að minnsta
1,505 fulltrúa af landsþinginu (af
3,008), meðan repúbikani þarf i
sinum flokki atkvæði 1,130
fulltrúa (af 2,259).
Flokksdéilöirnar~'i Plórida
senda 81 fulltrúa á landsþing
demókrata og 66 fulltrúa á lands-
þing repúblikana.
Tékkneskir
lögreglu-
menn naskir
í þjófaleit
Tékkneska fréttastofan, Ceteka,
greinir frá þvi i gær að lögreglan i
Tékkóslóvakiu hafi upplýst 81%
þeirra 267.000 afbrota, sem framin
voru i fyrra. — Það var 5% aukning
afbrota frá þvi árið áður.
Afengið var talið eiga meginsök á
53% ofbeldisglæpa og 37% innbrota
og þjófnaða.
Skipasmíðar
Japanirvoru í fyrra mestu skipa-
smiðir heims, eins og fyrrum. En
Pólland, Brasilia og Suður-Kórea
hafa dregið á þá i skipaframleiösl-
unni, eftir þvi sem skipaskrá
Lloyds greinir frá.
Heildarsmálestafjöldi skipa
smiðaöra i Japan nam 16,9 milljón
brúttólestum, sem eru um 49,6%
nýsmiðaöra skipa á árinu. — Hefur
kaupskipaflota heims aldrei fyrr
bæst eins mörg ný skip á einu ári.
— Arið 1974var hlutur Japans i nýj-
um skipum um 50,5%.
Pólland, Brasilla og Suður-Kórea
juku við sig i Skipasmiðum samtals
um 454.000 smálestir, en þaö er
næstum jafnmikið og bandariskar
skipasmiðastöðvar skiluðu af sér á
árinu.
Vestur-Þýskaland hleypti af
stokkunum 2,5 milljónum smá-
Iesta, Sviþjóð 2,2 milljónum, Spánn
1,6 milljónum og Bretland 1,2 mill-
jónum lesta. — Er breski skipa-
iðnaöurinn greinilega á niðurleið —
og hafa bretar aðeins einu sinni
smiðað færri skip siðan 1969.
Hver fann upp
talsímann?
Italskættaðir bandarikjamenn
létu ekki á sér kræla, þótt banda/
riska póstyfirstjórnin léti gefa út
frlmerki með mynd af hinum
skoskættaða Alexander Graham
Bell iviðurkenningarskyni fyrir, aö
hann fann upp talsimann.
Italsk-ameriska sögufélagiö
haföiþó áöur reynt að leita tildóm-
stóianna til að fá viöurkenningu á
þvi, að það hefði veriö italinn,
Antonio Meucci, sem fengið heföi
28. desember 1871 einkaleyfi á tal-
simanum. — Bell aftur á móti hélt
opinbera sýningu á uppfinningu
sinni 1876, en dómstólar hafa samt
staðfest einkaleyfi hans á talsim-
anum.
A ltalfu hefur þegar verið gefiö út
frimerki með mynd af Meucci sem
uppfinningamanni talsimans.
Var konu Eddies mis-
þyrmt í fangelsinu?
Irski hryðjuverkamaðurinn
Eddie Gallagher sem kom fyrir
rétt i gær i fyrsta sinn fyrir ránið á
hollenska iðjuhöldinum Tiede
Herrema, hélt þvi fram i réttinum,
að kona hans hefði fætt honum son
sem handleggsbrotinn var á báð-
um. — Kenndi hann um barsmið,
sem kona hans hefði sætt, bams-
hafandi, meöan hún var i fangelsi.
Eitt af skilýrðunum sem
Gallagher setti fyrir þvi að sleppa
gisl sinum, var að konu hans yrði
sleppt úr fangelsi.
Hann spuröi fangelsisstjóra
Limerickfangelsisins.sem hann lét
kalla i vitnastúkuna (en Eddie
flytur vörn málsins sjálfur), hvi
þaö hefði verið nauðsynlegt aö mis-
þyrma konu hans svona.
Aður en fangelsisstjórinn náði að
svara, visaði dómarinn spurning-
unni á bug sem málinu óviökom-
andi.
Lést af völdum
svitaeyðis
Fjórtán ára stúlka i Waterloo i
Iowa i Bandarikjunum lést af völd-
um aerosol-svitaeyðis sem banda-
riskir unglingar anda að sér til þess
að komast i áfengisvimu, svipað og
börgð hafa verið að meö þynni á
Norðurlönúum.
Fannst stúlkan látin i rúmi sinu
og hjá henni plastpoki og svita-
eyöibrúsi. — Sérfræðingar segja
að eimurinn af svitaeyðingum sé
manneskjunni hættulegur ef hon-
um er andað að sér i miklum mæli.
Hefur hann áhrif á hjartaslögin.
Námaslys
Fimmtán námamanna er saknað
eftir sprengingu sem varð I kola-
námu i Partridge i Kentucky i gær
Þeir lokuðust niðri i námunni — og
hefur ekki tekist enn að ná þeim
upp. — Það er talið að methangas
hafi valdið sprengingunni.
Methrísgrjóna-
uppskera
Sérfræðingar spá þvi að hris j
grjónaframleiðsla heims nái á ?
þessu ári 352,4 milljónum smá- ij
lesta, sem sé meira en nokkru sinn, '•}
fyrr i sögu jarðarbúa. — Þett.a jj
þakka menn mest metuppskeru i |
suðurhluta heims vegna góðæris. js
Einkum gekk hrisgrjónauppskeran í
vel hjá Brasiliumönnum.