Vísir - 10.03.1976, Síða 10
Miðvikudagur 10. marz 1976
Lifnar yfir
klúbbunum
Magnús K.r Jakob M. og
Pólmi G. malla saman
ó föstudaginn
Klúbbur 32 mun væntanlega
gangast fyrir annarri
skemmtun sinni n.k. föstudags-
kvöld i Tjarnarbúð.
Ekki var dagskrá kvöldsins
endanlega ákveðin er blaðið fór
I prentun, en tvær hljómsveitir
munu væntanlega koma fram,
önnur undir stjórn Pálma Gunn-
arssonar en hin undir stjórn
Jakobs Magnússonar.
Einn stjórnarmeðlima Klúbbs
32 tjáði Tónhorninu það að
endanleg skipan þessara hljóm-
sveita væri ekki ákveðin, enda
væri hér um nokkurskonar
jamm-session að ræða, en með-
al aðstoðarmanna mætti nefna
Magnús Kjartansson og e.t.v.
fyrrv. félaga Magnúsar i Júdas.
bá hefur Jassklúbbur Hafnar-
fjarðar ákveðið að gangast fyrir
Jasskvöldi á Hótel Loftleiðum
n.k. mánudagskvöld, en nánar
verður skýrt frá dagskrá þess á
laugardaginn.
Þessi fjörkippur I
skémmtanalifinu hér er vel
þeginn um þessar mundir, og
ljóst þykir að menn þeir sem að
þessum klúbbum standa (þ.e.
Jassklúbbum, Samklúbbum og
Klúbb 32 m .m.) standa i þessum
stórræðum af áhuga frekar en
peningalegum husjónum.
örp.
Frá siðustu SAMkomu sem lofaði góðu um framhaldið.
Umsjón: Örn Petersen.
V
PLOTURNAR
STREYMA
Ekki skortir efnið fró
íslenskum tónlistarmönnum
Sóló-plötur virðast nu vera að
komast i tisku hjá islenskum
tónlistarmönnum.
Þetta hljóta að vera gleöileg
tiöindi, þvi fastlega má búast
við, að hér sé um frumsamið
efni viðkomandi að ræða I fiest-
um tilvikum.
Fyrsta sóló-platan á þessu ári
verður væntanlega plata Einars
Vilberg og Co, sem Steinar h/f
gefúr út, en um þessar mundir
er einnig verið að leggja siðustu
hönd á plötur þeirra Vilhjálms
Vilhjálmssonar og Jóhanns
Helgasonar.
Vilhjálmur hefur undanfarið
unnið að plötu sinni suður i
Hljóðrit h/f, og er Magnús
Kjartansson kominn til landsins
frá New York til þess að aðstoða
Vilhjálm við siðustu tónana.
Plata Vilhjálms kemur út á
vegum Fálkans h/f.
Þá hefur Svavar Gests tekið
fjörkipp hvað útgáfu á
„popp-plötum” áhrærir, en með
tilkomuhins nýja stúdiós hans i
Armúla, sem kunnugir telja hið
fullkomnasta hérlendis um
þessar mundir, hefur hann alla
möguleika til þess.
Fyrsta plata Svavars á þess-
um vettvangi i ár, verður
sóló-plata Jóhanns Helgasonar,
sem verið er að leggja siðustu
hönd á, en einnig hefur Svavar
gert samning um útgáfu á
sóló-plötu Björgvins Gislasonar.
vism
PARADIS FER
TIL FÆREYJA
Hljómsveitin Paradis hefur i
ýmsu að snúast þessa dagana,
og miðað við annir þeirra félaga
sem atvinnuhljómlistarmenn,
má með sanni segja að þeir séu i
paradis'.
Hljómsveitin hefur nú hafið
æfingar á efni þvi er kemur tii
með að verða innihald plötu
þeirra, sem gefin verður út hjá
öðrum fyrrverandi hljómanum
Gunnari eða Rúnari.
Efnið mun að mestu leyti vera
samið af Björgvini Gislasyni, og
vera sérstaklega sniðið fyrir
raddsvið Péturs Kristjánsson-
ar.
Pétur sagði Tónhorninu það
nú i vikunni, að tónlist þessi
væri i beinu áframhaldi af þeirri
tónlist sem hljómsveitin hefði
notast við á dansleikjum sinum,
og væri hér um gott efni hjá
Björgvini að ræða.
„Þetta er samið fyrir hljóm-
sveitina, en hans persónulegu
hugarfóstur koma svo fram á
sóló plötu hans”, sagði Pétur.
Um árabil hefur Pétur farið
með hljómsveitir sinar til Fær-
eyja, og svo mun einnig verða i
ár.
Pétur er vinsæll maður i Fær-
eyjum, og jafnan hefur verið
húsfyllir þegar að Pelican
sáluga hefur heimsótt eyjarnar.
í Færeyjum eru nokkrir
skemmtilegir staðir að spila á,
þar sem fólk kemur frekar til að
hlusta en að fá útrás til fótanna,
en eitt það merkilegasta við
þessa staði er það, að þar fær
enginn drykk nema að hafa
borgað skattinn sinn, og þarf þvi
að framvisa kvittun fyrir
greiðslu skattsins við kaup
hvers drykks.
Já, þetta sagði hann Pétur
mér allavega.
„Paradis mun væntanlega
fara til Færeyja i lok mánaðar-
ins, ef samningar takast”, sagði
Pétur. örp.
Á þessari mynd sjáum við samkomuhúsið Klúbbarann i Þórshöfn i
Færeyjum, en þai er Pétur Kristjánsson orðinn nokkuð heimavanur
eftir aðhal'a spilað þar oft á undanförnum árum. Ljósm. B.G.
Paradis æfir nú af kappilögin sem verða á fyrstu plötunni þeirra, en þá plötu mun annarhvor. hljóm-
anna fyrrverandi Gunnar eða Rúnar gefa út. Ljósm. Jim.
Björgvin mun vinna að plötu
sinni einn, og notar til þess fri-
tima sinn, þannig að ekki má
búast við plötunni fyrr en
kannski um jólin.
Rúnar Júliusson mun innan
skamms hefja upptöku á
sóló-plötu sinni I New York, og
mun m.a. njóta aðstoðar Magn-
úsar Kjartanssonar, sem hefur
komið sér vel fyrir i þeirri frægu
borg.
Rúnar mun vitanlega gefa
plötu sina út á eigin merki, eða
útgáfunni GEIMSTEINN.
Þá má nefna Engilbert-Jen-
sen enn einu sinni, en hann mun
hljóðrita sina plötu i London
með aðstoð Gunnars Þórðarson-
ar, og gefa hana út á nafni út-
gáfufyrirtækis Gunnars, ÝMIR.
Þá hefur þvi verið fleygt að
Jakob Magnússon hyggist hljóð-
rita sóló-plötu, enda timi til
kominn.
Ekki má gleyma Sigrúnu
Harðardóttur, en hennar plata
mun koma á markaðinn innan
skamms á vegum útgáfunnar
Júdas h/f.
Þeir Júdasar annast undirleik
fyrir Sigrúnu, og hafa unnið við
það siðan hljómsveitin leystist
upp fyrr á árinu.
Um framtiðaráætlanir þeirra
er ekki vitað, nema.að Magnús
heldur öllum dyrum opnum
fyrir þá félaga i New York,
Vignir Bergman mun vera al-
gjörlega hættur i bransanum, og
þeir Hrólfur og Finnbogi velta
þvi nú fyrir sér, hvort þeir ættu
að sameinast Magnúsi i New
York.
Örp.