Vísir - 10.03.1976, Síða 13
Bikarinn
af stað!
Fyrstu leikirnir I bikar-
keppninni i handknattleik
karla verða leiknir i Laugar-
dalshöllinni i kvöld. Verða þar
tveir leíkir á dagskrá, og má
búast við aö þeir geti orðið
báðir all-skemmtilegir.
t fyrri leiknum mætast 2.
deildarlið Fylkis og Leiknis,
en Leiknir kom mjög á óvart i
bikarkeppninni i fyrra, þar
sem liðið komst i undanúrslit.
Siðari leikurinn verður á milli
1. deildarliöanna Þróttar og
Hauka, og eru það einu 1.
deildarliðin sem mætast i
þessari umferð mótsins.
Haukarnir verða án Eliasar
Jónassonar, sem verið hefur
einn besti maður liðsins i vet-
ur, en hann slasaðist illa i leik
landsliðsins og pressuliðsins á
dögunum og hefur legið á
sjúkrahási siðan. —klp—
Reykjavikurmeistarar Armanns i sundknattleik 1976.
Ármann með
fullt hús!
Ármenningar fóru ósigraðir i
gegnum Reykjavikurmótið i sund-
knattleik, sem iauk i Sundhöllinni i
gærkvöldi. Þá áttust við Armann og
KR og lauk þeirri viðureign með sigri
Ármanns 7:4.
Fyrir leikinn voru ármenningar
búnir að tryggja sér sigur i mótinu svo
að þessi leikur var nánast formsatriði.
Það var þó ekki að sjá þegar i laugina
var komið þvi að ekkert var gefið eftir
og mikið gekk á allan timann. Menn
héldu þó sundskýlunum heilum — en
fyrir kemur að þær séu rifnar i tætlur
þegar mest gengur á i sundknattleikn-
um — og þó nokkuð var um að menn
væru kaffærðir all-kröftulega.
Armenningar höfðu 2:1 yfir eftir
fyrstu hrinuna, en eftír aöra hrinu var
staðan jöfn 3:3. í þeirri þriðju skoruðu
ármenningar eitt mark en KR-ingar
ekkert, og í siðustu hrinunni skoruðu
þeir 3 mörk gegn 1 marki KR, þannig
að lokatölurnar urðu 7:4.
Stefán Ingólfsson var markhæstur
ármenninga i leiknum — skoraði 4
mörk. Guðmundur Ingólfsson skoraði
2 mörk og Ingvar Sigfússon 1 mark.
Ólafur Gunnlaugsson var markhæstur
KR-inga með 3 mörk.
Annenningar hlutu alls 8 stig i þessu
móti, KR 3 stig og Ægir 1 stig. Næsta
sundknattleiksmót verður Sigurgeirs-
mdtið sem hefst I byrjun næsta mán-
aðar, en tslandsmótið verður þar næst
á dagskrá —ibyrjun mai — og fer það
fram i Laugardalslauginni.
—klp—
--------------- *
KR fékk
Coca-Cola
bikarinn!
Körfuknattleiksmenn KR eru
öruggir um að fara ekki bikar-
lausir út úr þessu keppnistima-
bili. Þeir tryggðu sér einn i gær-
kvöldi — Coca Cola bikarinn — en
um hann kepptu fjögur efstu liðin
11. deildinni i ár, KR, ÍR, Ármann
og Njarðvík.
Úrslitaleikur mótsins var á
milli KR og 1R i gærkvöldi og lauk
honum með sigri KR-inga, sem
skoruðu 81 stig gegn 78 stigum ís-
landsmeistaranna. Armann
hreppti þriðja sætið með þvi að
sigra Njarðvik með tveggja stiga
mun — 94:92.
IR-ingarnir léku i gær án Kol-
beins Kristinssonar og Þorsteins
Hallgrimssonar — og veikti það
liðiö mikið. KR-ingarnir voru aft-
ur á móti með fullt lið — nema að
„Trukkurinn” var lasinn og lék
litiö meö, enda skoraði hann ekki
nema 15 stig i leiknum, sem er
það minnsta sem hann hefur
skorað siðan hann kom til lands-
ins.
Um miðjan fyrri hálfleikinn var
staðan 17:16 fyrir 1R, en i hálfleik
hafði KR örugga forystu — 40:28.
Þegar rúmlega tvær minútur
voru eftir af leiknum var staðan
77:63fyrirKR. IR náðiað minnka
bilið i 79:77, en KR tókst þá að
skora eina körfu og tryggja sér
sigur —- 81:78.
Gunnar Jóakimsson var stiga-
hæstur KR-inga i leiknum — skor-
aði 16 stig. Hjá IR voru bræðurnir
Jón og Kristinn Jörundssynir
stigahæstir — báðir með 17 stig.
Leikur Armanns og Njarðvikur
um 3ja sætið var jafn og
skemmtilegur allan timann. Ar-
mann hafði 4 stig yfir i hálfleik
49:45 og rétt fyrir leikslok höfðu
þeir 6 stig yfir — 94:88. Njarðvik-
ingarnir skoruðu 4 siöustu stig
leiksins, og urðu þvi lokatölurnar
94:92 Ármanni i vil.
Jimmy Rogers var stigahæstur
Ármenninga með 30 stig. Jón
Sigurðssn kom næstur honum
með 25. Hjá Njarðvik voru þeir
stigahæstir Stefán Bjarkason 24
og Kári Marisson með 17 stig.
1 kvöld verða KR-ingarnir aftur
á ferðinni i Hagaskólanum —
leika þá við Fram i 1. deildinni.
Annað kvöld verða tveir leikir i
Bikarkeppni KKI i Hagaskólan-
um —Njarðvik leikur við Breiða-
blik og IR við Ármann. _kip_
ÞRÍR FYRSTU
FRÁ SVISS
Svisslendingar áttu þrjá fyrstu
menn i Evrópubikarkeppninni i
stórsvigi sem l'ram fór i Jasna í
Tékkóálóvakiu I gær. Peter
Schwendener sigraði, hann fékk
timann 2:59,03 minútur, Christian
Sottaz varð annar og Christian
Hemmi varð þriðji. Fjórða mann
áttu italir — Tiziano Bieller sem
fékk timann 3:00,53 minútur.
Fyrirliöi Milford, Bob
Mclver meiöist i leiknum....
Útaf með dómarann....
Það vakti mikinn fögnuð áhorfenda I leiknum á milli Fram og Vals i 1. deild kvenna i gærkvöldi þegar
annar dómari leiksins, Kristján örn Ingibergsson, rak kollcga sinn úr dómarastéttinni, Jón Friðsteins-
son, frá bekk Framliðsins og upp i áhorfendastúku. Jón mun hafa verið að kalla eitthvað inn á völlinn,
enda einn dyggasti stuðningsmaður Fram, sem kemur i Laugardalshöllina — og mun Kristján ekki hafa
verið allskostar ánægður með það. Hér má sjá Jón skunda brosandi yfir völlinn, en Kristján stendur
ábúöarmikill við linuna og bendir upp i áhorfendastúku.... Ljósmynd Einar.
Það var ekki oft sem valsstúlkurnar fengu tækifæri til að skora I leiknum við Fram I gærkvöldi. Hér
hefur þó Harpa Guðmundsdóttir sloppið á milli þeirra Oddnýjar Sigsteinsdóttur og Guðríðar Guðjóns-
dóttur — númer 9 — sem er dóttir þeirra Guðjóns Jónssonar og Sigriðar Sigurðardóttur sem i mörg ár
léku með Fram og Val og auk þess fjölda landsleikja. Ljósmynd: Einar.
Uníted í undanúrslít
ensku bikarkeppnínar
— eftir að hafa sigrað Úlfana í framlengdum leik og mœtir
Englandsmeisturunum Derby County
Manchester United tryggði sér
réttinn til að leika i undanúrslit-
um ensku bikarkeppninnar i gær-
kvöldi, þegar liðið sigraði Úlfana
3:2 i framlengdum leik á Molin-
eux i Wolverhampton.
Það leit ekki vel út hjá Man-
chester i fyrstu — þvi að strax á
annarri minútu leiksins sendi
Steve Kindon boltann i markið
hjá United — og um miðjan fyrri
hálfleikinn bætti John Richards
öðru markinu við. •
En þó að móti blési — og Man-
chester missti Lou Macari útaf
vegna meiðsla, gáfust leikmenn
liðsins ekki upp — og fyrir leikhlé
tókst Stuart Person að minnka
muninn fyrir Manchester með
fallegu marki.
1 siðari hálfleik tókst svo Brian
„Betri en
Pelé"
— segir Georg Best
sem hefur undirritað
samning við
bandarískt félag
,,Ég er betri en Pelé þegar
frægðarsól hans skein sem hæst”
sagði irski vandræðamaðurinn og
glaumgosinn Gcorg Best þegar
hann kom til Los Angeles i
Bandarikjunum i s.l. viku. Best
undirritaði þá samning við knatt-
spyrnuliöið Los Angcles Aztecs
sem hann mun leika með það sem
cftir er af keppnistimabilinu.
Við þetta tækifæri mætti hann i
skitugum gallabuxum og T-
skyrtu með þriggja daga gamalt
skegg — og var allsendis ófeiminn
við að gefa út yfirlýsingar um
hvcr væri besti knattspyrnumað-
urinn í heiminum i dag.
—BB
Greenhoff að jafna fyrir United
— og leikar stóðu 2:2 eftir venju-
legan leiktima. Þá var framlengt
—-og begar sjö minútur voru liðn-
ar af framlengingunni skoraði
Sammy Mcllroy sigurmark Man-
chester United, sem leikur gegn
Derby á Hillsbrough, leikvelli
Sheffield Wednesday, i undanúr-
slitunum 3. april n.k. Hin liðin i
undanúrslitunum eru Southamp-
ton og Crystal Palace sem leika á
leikvelli Chelsea, Stamford
Bridge i London.
Annars urðu úrslit leikja i gær-
kvöldi þessi:
Bikarkeppnin
Wolves — Manch. Utd.
1. deild
Leeds — West Ham
2. deild
Fulham — Southampton
3. deild
C. Palace —Port Vale
Grimsby — Walsall
Halifax — Gillingham
Preston — Chesterf.
Swindon — Rotherham
Skoska bikarkcppnin
Hearts —Montrose '
Fram tryggði sér svo gott sem
islandsmeistaratitilinn i hand-
knattleik kvenna i gærkvöldi með
þvi að sigra Val með 13 mörkum
gegn 5. Þá tryggðu ármanns-
stúlkurnar sér silfurverðlaunin
með þvi að sigra FH með 15
mörkum gegn 10, en v alsstúlk-
urnar, sem lengi vel voru taldar
öruggar með sigur I mótinu,
verða að sætta sig við þriðja sæt-
ið.
Eini möguleikinn á að Fram
missi af titlinum i ár er að iiðið
tapi fyrir KR i næsta leik, en það
er siðasti leikur mótsins. Heldur
eru litlar likur á þvi — þótt svo að
KR hafi sigrað Fram i Reykja-
vikurmótinu — þvi Fram er nú
raeð mun betra lið, og á ekki að
( STAÐAN ]
Staðan i tslandsmótinu i hand-
knattleik 1. deild kvenna eftir
leikina i gærkvöldi er nú þessi:
Fram — Valur 13:5
Ármann — FH 15:10
KR — Vikingur 9:8
Fram 13 11 1 1 198:115 23
Ármann 13 10 1 2 190:138 21
Valur 13 10 0 3 201:123 19
FH 13 8 0 5 169:138 16
KR 13 5 1 7 132:165 11
Vikingur 13 1 1 10 110:172 5
Breiðablik 12 2 1 9 101:175 5
Keflavik 12 0 1 11 124:199 1
Næstu leikir: A laugardaginn
leika Keflavik — Breiðablik og
laugardaginn 21. mars verður
siðasta umferðin, þá leika: Kefla-
vik — Valur, Breiðablik — FH,
Fram — KR og Vikingur — Ar-
mann.
vera i neinum vandræðum með
KR-stúlkurnar.
Valsstúlkurnar byrjuðu ágæt-
lega i leiknum i gær — skoruðu
tvö fyrstu mörkin — en Fram
jafnaði og var einu marki yfir i
hálfleik 4:3.
I siðari hálfleik fór allt úr
skorðum hjá Val, og áður en varði
var Fram komið með góða stöðu.
Þegar svo Sigrún Guðmundsdótt-
ir — sú besta i liði Vals i vetur —
meiddist og varð að yfirgefa
völlinn, hrundi ’valsliðið gjörsám-
lega, og Fram sigraði í leiknum
með 13 mörkum gegn 5. Skoruðu
valsstúlkurnar þvi ekki nema 2
mörk i siðari hálfleik,' en fengu á
sig 9.
Valsstúlkurnar voru taldar
sigurstranglegastar i mótinu þar
til fyrir nokkrum vikum. Höfðu
þær þá ekki tapað leik og sýnt
mikla yfirburði. En þá lagði FH
þærað velli, siðan Ármann og svo
Fram i gærkvöldi.
Framstúlkurnar höfðu mikla
yfirburði i leiknum eins og
markatalan sýnir. Hjá þeim kom
ný stjarna fram á sjónarsviðið,
hin 14 ára gamla Guðriður Guð-
jónsdóttir, sem var markhæst i
leiknum — skoraði 4 mörk. Hún á
ekki langt að sækja kunnáttuna i
handknattleik, faðir hennar er
Guðjón Jónsson núverandi þjálf-
ari liðsins og margfaldur meist-
ari með Fram i handknattleik.
Móðir hennar er Sfgriður Sigurð-
ardóttir, sem i mörg ár lék með
Val, og var ein besta handknatt-
leikskona landsins á sínum tima
— var m.a. kosin „Iþróttamaður
ársins” — eina islenska iþrótta-
konan, sem hefur hlotið það
sæmdarheiti.
Arnþrúður Karlsdóttir lék nú
aftur með Fram, eftir meiðsli
sem hún hlaut i starfi sinu sem
lögregluþjónn fyrir nokkru.
Skoraði hún 3 mörk, en það gerði
einnig Guðrún Sverrisdóttir, sem
var áberandi góð i vörninni.
Hjá Val var litið um stjörnu-
leiki að þessu sinni — landsliðs-
fyrirliðinn Hrefna Bjarnadóttir
komst ekki einu sinni i liðið frekar
en i siðasta leik, þótt svo að hún
komist i landsliðið!! Björg Guð-
mundsdóttir var markhæst Vals-
stúlknanna — skoraði meira en
helming markanna sem liðið
gerði — eöa 3 talsins.
Valur á áð leika við Keflavik i
siðustu umferö mótsins, og ætti
það að vera nokkuð öruggur sigur
hjá Val. Það nægir samt ekki til
að hljóta silfurverðlaunin — þau
hljóta að falla ármannsstúlkun-
um i skaut, nema þær fari aö tapa
fyrir Viking i sfðasta leiknum.
Armannsstúlkurnar sigruðu
FH i gærkvöldi með 15 mörkum
gegn 10 eftir að hafa verið 9:5 yfir
i hálfleik. FH byrjaði á þvi að
taka þær Erlu Sverrisdóttur og
Guðrúnu Sigþórsdóttur úr umferð
i ieiknum i gær. Við það opnaðist
fyrir hinar, og komst Ármann I
6:0 áður en FH hætti við „púka-
leikinn”....
Þetta forskot sem Ármann fékk
nægði liðinu til að sigra með fimm
marka mun. Þriðji leikurinn i 1.
deildinni i gærkvöldi var á milli
KR og Vikings og lauk honum
með sigri KR 9:8. kb/—klp—
Kambaboð-
hlaupið ó
laugardag
Kambaboðhlaup fer fram á
laugardaginn fjórða árið i röð.
Illaupið verður frá Kambabrún
að ÍR-húsinu við Túngötu og er
vegalengdin um 40 kilómetrar.
Keppt verður i fjögra manna
sveitum og er þegar vitað um
fjórar sveitir, sveit 1R, FH, HSK
og Menntaskólans við Tjörnina.
Hlaupið hefst kl. 14:00 á laugar-
daginn. —BB
Ármann með
kynningardag
Glimufélagið Ármann gengst
fyrir kynningardegi i iþróttahúsi
Kennaraháskólans nk. sunnudag
kl. 16:00.
Þar verða allar deildir félags-
ins kynntar i leik, keppni og sýn-
ingu. Aðgangur er ókeypis.
„FÆR ENGAR
5 MILLJÓNIR"
segir formaður Víkings um laun nýja þjólfarans
Norska blaðið VG skýrir frá
þvi i vikunni að Islenskt knatt-
spyrnufélag — Vikingur — hafi
nýlega ráöið til sin enska þjálf-
arann, Billy Haydock, sem nú
starfar hjá 3. deildarliðinu
Preston. Segir blaðið að Hay-
dock hafi gert samning við Vik-
ing til tveggja ára, og fái hann i
sinn hlut 175 þúsund norskar
krónur, sem eru liðlega fimm
milljónir króna islenskar. Auk
þess fái hann hús og bil til af-
nota á samningstimanum.
Við snerum okkur til Jóns
Aðalsteins Jónssonar, formanns
Vikings, og spurðum hann hvað
væri hæft i þessari frétt blaðs-
ins. „Þetta er algjörlega úr
lausu lofti gripið” sagði Jón.
„Það fyrsta er að við höfum
gert samning við Haydok frá 15.
mars til 15. ágúst eða i fimm
mánuði og eru laun hans liðlega
100 þúsund á mánuði sem alls
ekki er óeðlilegt. Hitt er rétt, að
við sjáum honum fyrir húsnæði
og afnot af bifrcið á samnings-
timanum.”
—BB
Umsjón: Kjartan L. Pálsson og Björn Blöndal
Gullið blasir við
framstúlkunum!
Sigruðu Val 13:5 í 1. deild kvenna í gœrkvöldi
— Armann vann FH 15:10 og ú að nú silfurverðlaununum
nema allt fari úr skorðum í síðustu umferðinni