Vísir - 12.03.1976, Blaðsíða 5
vism
5
í Vilmundur GyÚa- ^
^ son skrifar. ]
v ,
aðstandenda veitingahúss i
Reykjavik, og ef svo er — þá af
hverju? Þetta og þetta eitt er
kjarni málsins. bau óhugnanlegri
sakamál, sem undanfarið hafa
verið i rannsókn, eru annað og
nýtt sakamál, og þeir sem þar
sitja i gæzluvarðahldi eru vita-
skuld saklausir af öilu öðru en
þvi, sem á þá hefur verið sannað.
x) En það breytir engu um það,
að umfang fjársvikamálanna og
hugsanleg afskipti stjórnvalda
eru óupplýst. Svo og tengsl dóms-
málaráðherra við hina meintu
fjársvikamenn.
Og krafan er sú, að Alþingi taxi
þetta mál fyrir og geri kröfu um,
að mál þessi verði rannsökuð
niður i kjölinn, bæði sakamála-
þátturinn, fjársvikin og hugsan-
legt smygl i öllu sinu umfangi,
svooghugsanleg afskipti, tafir og
undarleg bréfaskipti stjórnvalda.
Ennfremur öll hugsanl. tengsl
fjársvikanna við fjármál stjórn-
málaflokka. Alþingi má ekki
verða innlyksa i því auvirðilega
moldviðri og i þvi sefasjúka bulli,
sem ráðherrann og alfreðarnir
hafa byggt upp. Það er skylda Al-
þingis, ekki einasta við sjálft sig,
virðingu sina og fólkið i þssu
landi, heldur miklu fremur við
komandi kynslóðir, að réttlæti nái
að fullu fram að ganga. Bregðist
Alþingi þessari skyldu sinni,
reynist málflutningur ráðherrans
og alfreðanna það sem dugar og
bitur, þá eru veitt sár, sem lengi
verða að gróa.
Visir á miðvikudag skýrir frá
þvi, að flokksbræður dómsmála-
ráðherra i Skagafirði hafi hafiö
undirskriftasöfnun honum til
trausts og halds. Ekki veit ég
hvort Skagfirðingar eru með
þessu að taka undir þá ljóðrænu
skoðun Gunnars Thoroddsen, að
þeir hafi skömm á skrifum min-
um. En leyfist mér að láta i ljósi
svolitið persónulegt álit: bað
gildir mig einu þótt meirihluti
Skagfirðinga, já, þótt mikill
meirihluti þjóðarinnar fengist til
að skrifa upp á það, að hann hefði
skömm á skrifum minum, að
hann hafi skömm á rökstuddum
spurningum um það hvort dóms-
málaráðherra landsins hafi með
aðgerðum sinum, og vegna
tengsla flokks sins, traðkað á
réttlæti, þvælztfyrir störfum lög-
reglu og þjónað þar með hags-
munum fjársvikara. Réttlæti
verður þá ekki mælt á mælistiku
meirihluta og minnihluta. Sé
þetta skoðun meirihluta á ein-
hverju svæði eða á öllu landinu,
þá er ég minnihlutamaður,
harma skoðanir meirihlutans og
stend samt á minu. En væri nú
ekki hollara Skagfirðingum eða
öðrum að óska eftir rannsókn,
sem þá gæti hreinsað ráðherrann,
enað lýsa yfir órökstuddu trausti,
sem mér sýnist minna á frum-
stæð trúarbrögð en ekki upplýstar
skoðanir.
Og kerfið hikar enn
Allt um það, og hvað sem skoð-
unum Skagfirðinga liður, þá
stendur eftir sem áður, að stór-
kostleg fjársvikamál og frekari
afbrotamál' eru óupplýst. Enn
hefur kerfið þráazt við að stofna
til heildarrannsóknar á breiðum
grundvelli, eins og Kristján Pét-
ursson rökstyður glögglega að
nauðsynlegt sé, i Morgunblaðs-
grein á miðvikudag. Enn hikar
Alþingi að láta fara fram rann-
sókn á þætti stjórnvalda, sem það
þó getur samkvæmt 39. grein
stjórnarskrárinnar. Og enn situr
Morgunblaðið og þegir þunnu
hljóði, þótt það hafi lýst þvi yfir
nær strax og þessi mál komu til
umræðu, að ef i ljós kæmu fjár-
málatengsl stjórnmálaflokksins
og veitingahússins, þá þyrfti að
brjóta þessi mál til mergjar.
En það er mikið i húfi til handa
komandi kynslóðum. Þvi ef að-
ferðir ráðherrans og alfreðanna
hans duga til þess að berja AI-
þingiog dómskerfið til hlýðni eins
og þeir hafa reynt að berja fjöl-
miðla til hlýðni, ef þessir aðilar
gegna ekki skyldum sinum til
hlitar, ef þetta er leiðin til þess að
þagga niður, hvað gerist þá næst?
Styrkir til að sœkja kennaranámskeið
í Bretlandi
Evrópuráðið býður fram styrki til handa kennurum til að sækja
námskeið i Bretlandi á timabilinu júli 1976 — april 1977. Nám-
skeiðin standa að jafnaði i eina viku og eru ætluð kennurum
og öðrum er fást við framhaldsmenntun kennara. Umsækjendur
þurfa að hafa gott vald á ensku. — Nánari upplýsingar og um-
sóknareyðublöð fást i menntamálaráðuneytinu, Hverfisgötu 6,
Reykjavik. Umsóknum skal skilað til ráðuneytisins.
Menntamálaráðuneytið
9. mars 1976.
Kammersveit Reykjavíkur
Tónleikar i Hamrahliðarskóla laugardag-
inn 13. mars kl: 16.00. Stjórnendur: Páll
P. Pálsson og Atli Heimir Sveinsson.
Efnisskrá:
Karlheinz Stockhausen: „Adieu”
Atli Heimir Sveinsson: ,,I call it”
Einsönvgari Ruth L. Magnússon.
Niccolo Castiglioni: „Tropi”
Luciano Berio: „Folk Songs”
Eingsöngvari Ruth L. Magnússon.
Ritarí
óskast til starfa allan daginn. Góð vél-
ritunar- og islenskukunnátta nauðsynleg.
Málakunnátta æskileg.
Umsóknir sendist skrifstofu ráðuneytisins
fyrir 17. þ.m.
Dóms- og kirkjumálaráðuneytið,
11. mars 1976.
Félag starfsfólks í veitingahúsum
Aðalfundur
félagsins verður haldinn mánudaginn 15.
mars n.k. kl. 20,30 að Óðinsgötu 7.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðaifundastörf
2. Önnur mál
Félagsfólk mætið vel og stundvislega.
Sýnið félagsskirteini við innganginn.
Stjórnin.
Staða aðstoðarborgarlœknis
Staða aðstoðarborgarlæknis i Reykjavik
er laus til umsóknar.
Starfið er fólgið i undirbúningi að stofn-
setningu heilsugæslustöðva i Reykjavik,
umsjón með heilsugæslu i skólum, rann-
sóknum á sviði atvinnusjúkdóma, þátt-
töku i stjórn og skipulagi heilsuverndar-
starfs á vegum borgarinnar o.fl.
Æskilegt er að umsækjendur hafi sérstaka
menntun eða reynslu á sviði embættis-
lækninga. Ráðningu kynni að fylgja styrk-
ur til náms i embættislækningum við há-
skóla erlendis.
Umsókn fylgi upplýsingar um nám og
fyrri störf.
Laun samkvæmt kjarasamningi Reykja-
víkurborgar og Læknafélags Reykja-
vikur.
Umsóknafrestur til 5. april n.k.
Staðan veitist frá 15. júni n.k. eða eftir
samkomulagi.
Allar upplýsingar veitir borgarlæknirinn i
Reykjavik.
Reykjavik, 11. mars 1976.
Heilbrigðismálaráð Reykjavikurborgar
SKR]BT®MtM)^(SK!SíIFST®WElIM(W)SKR]BTOV[
(73
>—«
H
<
FR
GR
F3
e^s
*—\
e5>
pfS
53
/■—V
sz
e7S
2S
’—I
sz
•<S
FR
2S
bPS
53
,dU
\f
1
5
medan þér bídid
R
ÍTT]
á venjulegan pappir
af skjölum, bókum, pröfskirt. o.s.frv.
íp
f\
fyrir myndvarpa
SKRIFSTOFIIVELAR H.F.
€7S
&S
>—*
FR
^9
(73
*—i
e3
FR
pn
53
(73
--<
•-i
S2
<
FR
2S
5R
Hverfisgötu 33 Simi 20560
<73
SKRI FSTIIIFaVEICAR) HF (SKRi F£TOFKiyEtAR( MF) SKRl IFSTOFa VE
f I
Bökamarkaóurinn
Í HÚSI IDNAÐARINS VIÐ
INGÖLFSSTRÆTI