Vísir - 12.03.1976, Síða 6
Rœndi pófogauk
1 Old Bailey (refsirétti London)
var l fyrsta skipti i gær i sögu rétt-
arins dæmdur páfagauksræningi.
Hann hanði brotist inn i gæludýra-
verslun og stoliö þaðan bláum og
gulum páfagauk sem kallaöur var
Aggie.
Skömmu eftir þjófnaðinn barst
verslunareigandanum bréf þar
sem krafist var 150 sterlingspunda
lausnargjalds fyrir páfagaukinn. —
Eigandinn fór til fundar við ræn-
ingjann.
En i stað þess að rétta ræningj-
anum peningana, rétti hann honum
einn á vangann, svo að ræninginn
missti kassann með Aggie, sem
flaug á brott.
Lögreglan fann Aggie skömmu
siöar og einnig ræningjann, sem
fékk 18 mánaða skilorösbundinn
fangelsisdóm.
Klámmorðið í „Snuff"
var þá sviðsett
Rannsókn er nú lokið vegna
hinna hryllilegu söguloka i klám-
myndinni „Snuff”. New York-búar
höfðu vakið athygli yfirvalda á
myndinni, vegna þess að þar var
sýnt hvernig stúlka' var brytjuð i
spað. Þótti atriðið svo raun-
verulegt, að grunur vaknaöi um, að
morð hefði ekki verið sviðsett,
heldur átt sér stað i raunveruleik-
anum. — Auglýsingar gáfu það lika
fyllilega i skyn.
En niðurstaða rannsóknarinnar
varð á þá leið, að atriðið hefði verið
sviðsett, og kvikmyndamennirnir
beitt ýmsum tæknibrögðum til að
blekkja áhorfandann. M.a. var not-
uð brúða.
Myndin hefur vakið andstyggð
margra, einkanlega rauðsokka,
sem finnst myndin fiytja viðbjóðs-
legan boðskap um hlutverk kon-
unnar. — En yfirvöld telja sig samt
ekki geta bannað sýningar á mynd-
inni.
Ernir verja sauði
fyrir úlfum og refum
Sovéskir fjárhirðar þjálfa gullna
erni sérstaklega til að verja lömb
fyrir úlfum og refum á beitilöndum
i Kirghizia (i sovéska hluta Mið-
Asiu).
Tass skýrir frá þvi i gær, að ernir
i eigu þriggja fjárhirða á sam-
yrkjubúi um beitilönd i Pamir-
fjöllum hafi drepið tylft úlfa og
hundruð refa (fyrir utan alla hér-
ana). — Er örnunum þakkað það að
menn eru þarna nú óhultir með
fjárhópana fyrir dýrbitum.
Fjárhirðarnir þjálfa ernina, eins
og áður var gert með fálka þjóð-
höfðingjum til skemmtunar. Nema
smalarnir eru ekki að þessu fyrir
sportið, heldur nauðsynina. —-Einn
örn, sé hann velþjálfaður, getur
enst smalanum tuttugu ár.
Þessir ernir hafa 2,5 metra
vængjahaf og eru svo sterkir, að
þeir geta hafiö sig á loft með full-
vaxinn úlf i klónum. Láta þeir úlf-
inn siðan detta niður á kletta. Lifi
úlfurinn það af, endurtekur örninn
bragðið, uns hann er ánægður með
árangurinn. Um úlfinn er ekki
spurt.
m . ■_
Föstudagur 12. marz 1976 VISIR
Harður árekstur
Mjög harður órekstur varð i útjaöri Belgrad i Júgósiaviu i gær. Aætiunarbifreið frá Júgóslaviu og
tveir vörufiutningabiiar frá Tyrklandi rákust þar á og höfnuðu utan vegar. Þrettán júgóslavar létu lífið
en tuttugu slösuðust. — Myndin hér er frá slysstaðnum.
Vigtarsvik í kom-
verslun sjálfsögð
Fyrrum eftirlitsmaður með
kornvigtum i Bandarikjunum bar
þvi vitni undir eiði i bandariska
þinginu i gær, að vigtarsvik þættu
sjálfsagður hiutur hjá flestum
fyrirtækjum I kornversiun
Bandarikjanna.
Bar Jeese Rosen það fyrir land-
búnaðarnefnd öldungadeildarinn-
ar, að yfirmönnum margra korn-
fyrirtækja væri vel kunnugt um,
að svindlað væri á vigtinni fyrir-
tækjunum i hag, þegar bændur
legðu inn kornið.
„Starfsmenn, sem mögla gegn
þvi að taka þátt i svindlinu, eiga á
hættu að verða sagt upp vinn-
unni,” sagði Rosen.
Þingnefndin hefur tekið upp
þráðinn að nýju við rannsókn
kornsvikamálsins, sem leitt hefur
til þess að um sextiu eftirlitsmenn
rikis og fleiri hafa verið dæmdir.
— Flest svindltilvik, sem komist
hefur upp um, áttu sér stað i New
Orleans-umdæminu.
Þingið hefur nú til athugunar,
að rikið taki að sér eftirlit með
kornvigtun i stað einkafyrirtækja
hingað til.
Rosen sagði, að brögð væru að
þvi, að gæðaflokkar korns, sem
sent væri til landa eins og Bangla-
desh eða annarra þróunarrikja,
væru ofmetnir.
PATTY LÖGST í INFLÚENSU
Réttarhlé hefur veriö gert I
málaferlunum vegna Patriciu
Hearst, þvi að hún er lögst i
inflúensu.
Patty var flutt úr fangaklefa
sinum i gær og lögð inn á
sjúkrahús, og eftir að læknar
höfðu gengið úr skugga um, að
það var flensa, sem að henni
gekk, var hún flutt aftur i
fangaklefann.
Réttarhöldin hafa nú staðið
sjö vikur, en gert er ráð fyrir
að málflutningur haldi áfram
á mánudaginn.
"——--------------——
Leitað að
týndu fórn-
arlambi kláf-
ferjuslyss
Lögregla og hjálparsveitir
leituöu i gær án árangurs að
manni sem kallaður var týnda
fórnarlambið I slysinu i Dóló-
mitafjöllum á ítaliu, þegar
kláfferja með 43 innanborðs
hrapaði til jarðar, með þeim
afleiðingum að 42 létust, en 14
ára stúika komst af.
Sá sem leitað er að heitir
Fabio Rustia, 39 ára gamall. 1
fyrstu var haldið að hann hafi
farist i kláfferjunni ásamt
konu sinni og tveimur sonur.
En ættingjar þeirra sem hafa
skoðað likin, segjast ekki sjá
hann þar.
Vangaveltur eru um að hann
hafi ekki verið i kláfferjunni,
heldur hafi ákveðið að fara
niður fjallið á skiðum. Hann
hafi svo fengið lost þegar hann
sá ferjuklefann falla, og sé
einhvers staðar á reiki i fjöll-
unum.
Stríðsgkepamenn
hólpnir eftir áiið
Simon Wiesenthal, sá sem helg-
að hefur ævi sina leit að striðs-
glæpamönnum nasista, segir, að
fresturinn til að færa fyrir rétt
meira en 100.000 striðsglæpa-
menn þriðja rikisins sé að renna
út. »
Þessi austurriski gyðingur,
sem átti t.d. drjúgan þátt i þvi, að
israelar höfðu hendur i hári
Adolfs Eichmanns, sagði i gær, að
þúsundir striðsglæpamanna, sem
enn leika lausum hala, gætu and-
að léttar, þegar timamörkin, sem
vestur-þýska stjórnin setti við
árslok 1976, rynnu út. — Þá á sök
striðsglæpamanna að vera fyrnd.
Wiesenthal sagðist vita um i
Bandarikjunum að minnsta kosti
62 fyrrverandi nasista, sem upp-
vfsir hefðu oröið að striðsglæpum.
Hann sagði, að þetta hefðu verið
sjálfboðaliðar nasista i gjöreyð-
ingarbúðum.
Hann bar sig upp undan þvi, að
skrifstofubáknið i Bandarikjun-
um kæmi i veg fyrir, að þessir
menn svöruðu til saka. Benti
hann á, að það hefði tekið niu ár,
frá þvi að hann fann fyrrverandi
fangabúðastjóra i New York, og
þar til sá sami fékkst framseldur
Simon Wiesenthai ineð mynd af striðsglæpamanni og einum bilnum,
sem nasistar notuðu til að flytja gyðinga I gasklefana, og höfðu þá
rauöa krossinn til biekkingar.