Vísir - 12.03.1976, Page 10
(
y
Föstudagur 12. marz 1976 vism
i
Steindór Hjörleifsson og Pétur Einarsson i hlutverkum Gregers Werle og Hjálmars Ekdal í Villiönd
inni.
VILLIÖNDIN frum-
sýnd í Iðnó í kvöld
t kvöld frumsýnir Leikfélag
Reykjavikur eitt þekktasta verk
Ibsens „Villiöndina” i þýðingu
Halldórs Laxness. Leikritið var
áður sýnt I Iðnó 1928, en L.R.
hefurtekiðsjö af verkum Ibsens
til sýningar.
„Villiöndina skrifaði Ibsen
árið 1884 á eftir leikritinu
„Þjdðniðingur”. Þar sýnir
Ibsen hugsjónahetju með sann-
leikspálmann i höndunum sem
býður öllum byrginn, — sem
stendur i leikslok beinn eftir
sem áður,” — sagði Jón
Hjartarson jiegar við spurðumst
fyrir um leikritið. — „I Villi-
öndinni snýr Ibsen við blaðinu.
Algildi sannleikans er dregiö i
efa og varpað fram þeirri hugs-
un hvort blekkingarsé ekki þörf
til að geta lifað llfinu.
Ibsen stillir hér saman
tveimur aðalpersónum sinum,
prestinum Brandi og Pétri
Gaut. Hinum sannleikselskandi
Gregers Werle er teflt fram
gegn H jálmari Ekdal sem bygg-
ir tilveru sina á blekkingunni.
Villiöndin er sigilt og tákn-
rænt verk og geta menn velt
fyrir sér hvort boðskapur þess á
ekki erindi til okkar, eins og
samtiðarmanna Ibsens”, —
sagði Jón Hjartarson að lokum.
Villiöndinni leikstýrir Þor-
steinn Gunnarsson, leikmynd er
eftir Jón Þórisson og um lýsingu
sér Daniel Vilhjálmsson. Hlut-
verkin eru 15 alls. Með helstu
hlutverk fara Steindór Hjör-
leifsson, Pétur Einarsson
Margrét Olafsdóttir, Guðmund-
ur Pálsson, Jón Sigurbjörnsson,
Helgi Skúlason, Sigriður Haga-
lin og Valgerður Dan.
Frumsýning verður i kvöld kl.
8.30.
Tónleikar með
Marteini Hunger
Á sjöundu tónleikum Tónlistar-
félagsins sem haldnir verða i
Dómkirkjunni á sunnudag leikur
Marteinn Hunger Friöriksson
fimm verk á orgel.
Tónleikarnir hefjast kl. 5.
Marteinn Hunger
ieikur á orgel
Þar af eru tvö eftir islenska
höfunda, „Ostinato et Fugetta”
eftir Pál ísólfsson og „Hversu
yndislegir eru fætur friöarboð-
ans” eftir Þorkel Sigurbjörnsson.
Einnig eru á efnisskránni verk
eftir Felix Mendelssohn, Barth-
oldy, Bach og Cesar Franck.
„SÝNINGIN ÍSLENSK
POPLISr' FRAMLENGD
Vegna mikillar aðsóknar hefur
Listasafnið ákveðið að fram-
lengja sýningu á „islenskri pop-
list fram tii mánaðamóta.
A sýningunni eru 43 listaverk
eftir islenska höfunda. Þeirra á
meðal er Erró en fáum hérlendis
hefur gefist kostur á að sjá verk
hans, þar sem hann hefur verið
búsettur erlendis um margra ára
skeið.
Hjá Mjólkurskógi
Hjá Mjólkurskógi heitir leikrit Dylan Thomas sem nemenda-
leikhús Leiklistarskóla tsiands sýnir á sunnudagskvöld. Tilgangur
nemendaleikhússins er að gefa nemendum tækifæri til aö kynnast
rekstri ieikhúss aimennt og brúa þannig bilið milli náms og starfs.
Leikendur eru nemar 4. bekkjar skólans, 11 talsins, og fara þau
með öll hlutverkin sem eru á milli 60—70. Æfingar hófust á leikrit-
inu eftir áramótin og er þetta annað verkefni af tveimur sem nem-
endur spreyta sig á i vetur.
Stefán Baldursson leikstýrir „Hjá Mjólkurskógi”. Leiktjöld og
búninga unnu nemendur undir stjórn Steinþórs Sigurðssonar.
Gunnar Reynir Sveinsson tónskáld útsetti og æfði lögin og samdi
auk þess tvö þeirra. Magnús Axelsson aðstoðaði við lýsingu. 1
sambandi við sýninguna fengu nemendur einnig námskeið i förðun
sem Guðmundur Pálsson leikari stýrði. Annarri undirbúnings- og
tæknivinnu skiptu nemendur á milli sln.
Höfundurinn er velska skáldið Dylan Thomas en hann er þekkt-
astur fyrir þetta verk.
Hann samdi m.a. þætti fyrir BBC. Hjá Mjólkurskógi var upp-
haflega samið fyrir útvarp og var flutt hér 1968. Fjallar það um
martraðir, minningar, hugsanir og raunveruleika fólks i litlu
velsku sjávarþorpi. Leikritið eru margar myndir sem sögumaður
tengir saman i eina heild.
Frumsýning verður I Lindarbæ á sunnudagskvöld kl. 9. önnur
sýning verður á mánudagskvöld.
Kennslukonan setur upp þóttasvip og liður framhjá vondaufum
sjóaranum...
Kammersveitin kynn-
ir samtímotónlist.
i •••
Kammersveit Reykjavikur
heldur tónleika i sal Mennta-
skólans - við Hamrahlið á
morgun kl.4.
Tónleikar þessir voru upp-
haflega ráðgerðir 22. febr. s.l.
en varð að fresta þeim vegna
verkfallanna.
A þessum þriðju tónleikum
Kammersveitarinnar i vetur er
sa m tim a tónlist eingöngu á
efnisskrá.
Sveitin hefur frá upphafi lagt
kapp á að flytjá tónlist sem litt
er þekkt hér á landi um tug tón-
verka frá barokk— timanum.
En jafnframt hefur hún lagt
kapp á kynningu nýlegra tón-
verka og er skemmst að
minnast frumflutnings á nýju
verki eftir Pál P. Pálsson i
desember siöastliðnum.
Verkin sem flutt verða að
þessu sinni er „Adieu” eftir
Karlheinz Stockhausen, „I call
it” eftir Atla Heimi Sveinsson,
„Tropi” eftir Niccolo Casligli-
oni og „Folk Songs” eftir Luci-
ano Berio.
Einsöngvari á tónleikunum er
Rut L. Magnússon, en Páll P.
Pálsson og Atli Heimir Sveins-
son stjórna .Auk fastra félaga
Kammersveitarinnar koma
nokkrir gestahljóðfæraleikarar,
fram á þessum hljómleikum.
I lok tónleikanna er ætlunin
að efna til umræðna með
flytjendum og áheyrendum um
tónverkin, túlkun þeirra og
gildi. Atli Heimir Sveinsson
mun leiða umræðurnar. Með
þessu er gerð tilraun til að auka
tengsl milli áheyrenda og
tónlistarmanna.
SÝN-
INGAR
Kjarvalsstaðir.
Sýning á verkum Asgrims
Jónssonar i 'tilefni aldaraf-
mælis listamannsins. Sýningin
er opin á virkum dögum frá kl.
4-10, laugar- og sunnudags kl.
2-10, lokað á mánudögum.
Listasafn tslands.
Sýning á dánargjöf Gunnlaugs
Schevings og fleiri verkum
safnsins.
tslensk poplist. Sýning á 43
verkum 15 þekktra lista-
manna.
Loftið.
Gunnar örn sýnir 50 kol-
grafik- og blýantsteikningar.
Sýningunni lýkur um hádegi á
laugardag.
Mokka.
Hjalti Þórðarson sýnir 30
akrýl- og vatnslitamyndir.
Sýningunni lýkur á sunnudag.
Iðnaðarmannahúsið, Kefla-
vík.
Steinþór Marinó Gunnarsson
sýnir 45 oliumálverk. lág-
myndir og vantslitamyndir.
Sýningin er opin virka daga kl.
6-10, laugar- og sunnudaga kl.
4-10.