Vísir - 22.03.1976, Blaðsíða 1

Vísir - 22.03.1976, Blaðsíða 1
HNEFARNIR A LOFTII Sjá nánar íþróttir bls. 10, 11, 12, 13 og 14 Ólga hjá Gœslunni vegna stöðukekkunar Fyrsti meistari á Oðni mótmœlti of mikið Mikil ólga er nú meðal isgæslunnar vegna þess hefur verið fluttur yfir á starfsmanna Landhelg- að fyrsti vélstjóri á Óðni Árvakur, en það jafn- gildir lækkun i tign, þar sem Árvakur er miklu minna skip. betta mun að hluta hafa verið gert vegna mótmæla hans við þvi að ekkert var gert við vélar Öðins þegar skipið var i endurnýjun úti I Danmörku á dögunum. Þá var hinsvegar settþyrluskýliá skipið, sem vafasamt er að komi að not- um á næstunni. Viðgerðar á vélum var þó sann- arlega þörf, sem sjá má á þvi að Óðinn er nú nánast vélarvana og heldur sig mest i höfn. Þil sem sett var i vélarrúm skipsins úti i Danmörku mun heldur ekki hafa verið sveigju- mælt áður en skipið kom heim, og vindingur á þvi hefur aukið á erfiðleikana. —ÓT ,,Málverkauppboðið i gær var fremur dræmt” segir eigandi Klausturhóla i viðtaii við Vísi. Ljósmyndina uppboðinu i gær. Óánœgður með söluna á myndum Ásgríms — segir Guðmundur í Klausturhólum eftir uppboðið í gœr ,,Ég er óánægður með söluna á myndum Asgrims, þetta er hlægi- legt verð. í heildina er ég samt nokkuð ánægður með Uppboðið, þótt það væri freniur dræmt, en það vcrður lika að athuga að þessi staður er eiginlega ómögulegur til málverkauppboðs,” sagði Guðmundur Axelsson eigandi Klausturhóla i viðtali við Visi. Málverkauppboöið var haldið i Súlnasal Hótel Sögu i gær og varð meira en húsfyllir. Myndir Asgrims Jónssonar, Baula og Túná i Lundareykjadal fóru á rúm tvö hundruð þúsund hvor. Kjarvalsmyndin frá Borgar- firði eystra fékk hæsta boðið, I I I a ■ ■ i ■ i i i ■ i B I I I I I I I I I I I I I tók ljósmyndari Visis, Loftur, á seldist á sex hundruð og tiu þús- B und og Þingvallamynd Kjarvals varð næst dýrust á þrjú hundruð og fimm þúsund. Það vakti athygli að verk þekktra manna t.d. Braga As- geirssonar, Eiriks Smith og Egg- erts Guðmundssonar seldust á tuttugu til þrjátiu þúsund. „Það er ekki nóg að hafa natn- ið, það verður lika að vera hægt að selja. Það verður lika að at- hugast að sumar þessar myndir eru ekki það besta sem þessir menn hafa gert. Þarna voru lika tvær myndir eftir Valtý Pétursson sem fóru á fimmtán þúsund hvor og fleiri dæmi mætti nefna. En þetta er kannski sanngjarnt verð fyrst ekki er boðið hærra,” sagði Guðmundur Axelsson. ______eb GÆSLUVARÐHALDIÐ: Niðursfoða Hœstaréttar í kvðld? — Það skeður ekkert fyrr en i fyrsta lagi undir kvöldið. Mál- flutningur hófst kl. 10 i öðrum málum og óvist hvað hann stendur lcngi. Þannig fórust Birni Helgasyni hæstaréttarritara, orð, þegar Visir.innti hann eftir þvi, hvenær vænta mætti niðurstöðu Hæstaréttar á kæru gæsluvarð- haldsúrskurðar þriggja þeirra, sem inni sitja vegna Geirfinns- málsins. Svo sem þegar er komið fram i fréttum, kærðu þremenning- arnir framlengingu gæsluvarð- halds vista'r um þrjátiu daga, fyrir rúmri viku. Hæstiréttur verður að hafa kveðið upp dóm i málinu innan hálfs mánaðar, svo að niðurstaða verður að liggja fyrir i vikunni. Staðið hef- ur á þvi að réttargæslumenn þremenninganna skiluðu af sér greinargerðum, en að sögn Björns munu nú allir vera búnir að skila af sér. Ef marka má orð Björns, þá verður niðurstöðu ekki langt að biða úr þessu. —VS „Gleyma stund og stað yfir nektarmynda- blöðunum ..." Andrés önd og dönsku blöðin eru talsvert vinsœlli en beru bossarnir, en nektarmyndablöðin seljast ótrúlega mikið. Og nú eru tvö blöð seld hér, sem eingöngu eru œtluð konum .... - Sjó INN-síðu bls. 7 Patty fundin — sja bls. 6 VETUR I EYJUM Þeir kunna aö nvta rólurnar vel, krakkarnir i leikskólanum i Vestmannaeyjum. Það veitir heldurekki af að sameina kraft- ana þegar regngallinn tefur mann. A bls. :! eru svipmyndir af vetri i Vestmannaeyjum. „Kröflu ekki frestað vegna fjárskorts" hersrea9i-1J b«k

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.