Vísir - 22.03.1976, Blaðsíða 10

Vísir - 22.03.1976, Blaðsíða 10
Enska knattspyrnan: Efstu liðin unnu öll ó útivöllum! — Staða efstu liðanna óbreytt, QPR er enn í efsta sœtinu, en Manchester United, Liverpool od Derby fylgja fast ó eftir Ekkert lát er á baráttunni hjá efstu liðunum I 1. deild um Eng- landsmeistaratitilinn, öll efstu liðin unnu i leikjum sinum á laugardaginn — og það sem meira var, þau léku öll á útivöll- um. Staðan á toppnum er þvf ó- breytt — QPR er efst með 49 stig að loknum 36 leikjum, Man- chester United er i öðru sæti með 48 stig eftir 35 leiki og þar á eftir koma Liverpool og Derby með 47 stig eftir 35 leiki. Ængjo breyting varð heldur á stöðu neðstu liðanna. Sheffield United er þegar fallið i 2. deild, þó að enn sé fræðilegur mögu- leiki á öðru. Þá verður Sheffield að vinna alla leiki sina sem eftir eruogfengiþá27stig — og vona siöan að hin fall-kandldataliðin, Birmingham, Wolves og Burn- ley takistekki að ná sama s.tiga- fjölda. Manchester United sigraöi Newcastle á St. James Park i Newcastle i miklum markaleik, sem einkenndist af varnarmis- tökum á báða bóga — og þegar flautaö var til leiksloka voru mörkin orðin sjö. Manchester náði forystunni I leiknum með marki Stuart Per- son á 13. minútu. Tommy Cássidy ætlaði að senda boltann aftur til markvaröar sins, en Person komst inn I sendinguna og skoraði auðveldlega. Tveim minútum siðar urðu enn ein varnarmistökin hjá varnar- mönnum Newcastle og miðvörðurinn John Bird sendi boltann i eigið mark. Þá var komið að varnar- mönnum Manchester að gera mistök. Gerry Daly mistókst sending til markvarðar sins, Alex Stepney, Micky Burn not- færöi sér þessi mistök og minnkaöi muninn fyrir New- castle. Malcolm MacDonald jafnaði svo metin með fallegu skallamarki — og fjórum min- útum fyrir lok fyrri hálfleiks átti MacDonald hörkuskot á mark Manchester. Boltinn fór i Alan Gowling og f markið. Leikmenn Newcastle byrjuðu siðari hálfleikinn jafnilla og þeir byrjuðu þann fyrri — Pat How- ard skoraði sjálfsmark strax á fimmtu minútu — og átta min- útum siðar skoraði Person sigurmark Manchester eftir góðan undirbúning Steve Copp- ell. Áhorfendur voru 41.424. En litum þá á úrslit leikj- anna: 1. deild Arsenal—West Ham 6:1 Birmingham—Coventry 1:1 Burnley—Tottenham 1:2 Everton—Leeds 1:3 Leicester—Aston Villa 2:2 Manch.City—Wolves 3:2 Middlesboro—Derby 0:2 Newcastle—Manch.Utd. 3:4 Norw ich—Li verpool 0:1 She ff. Utd. —Ipsw ich 1:2 Stoke—QPR 0:1 2. deild Bristol C.—Fulham 0:0 Charlton—Blakc burn 2:1 Chelsea—BristolR. 0:0 Notts C.—Blackpool 1:2 01 dh am—Sun der la nd 1:1 Orient—Luton 3:0 Oxford—Portsmouth 1:0 Plym outh—Hull 1:1 Southamp.—Carlisle 1:1 WBA—Bolton 2:0 York—Notth.Forest 3:2 Sigurganga QPR heldur á- fram. Liðið fékk tvö dýrmæt stig i Stoke og léknú sinn niunda leik iröðán taps — og þar af eru sexá útivöllum. Mark QPR sem lék án Gerry Francis, skoraði David Webb um miðjan fyrri hálfleik og skrifast markiö al- gerlega á reikning dýrasta markvarðar Englands, Peter Shilton i marki Stoke. Don Mas- son tók aukaspyrnu, sendi á Mick Leace, hann sendi áfram á Webb sem skaut lausu skoti beint i fangið á Shilton, en á ein- hvern óskiljanlegan hátt missti hann boltann inn i markið. Fram að þessu hafði Stoke verið betra liðið á vellinum, Sean Haslegrave hafði átt skot i þverslá — og Phil Parkes i markinu hjá QPR varð að taka á honum stóra sinum i tvö skipti til að verja skot frá Jimmy Greenhoff. QPR á nú góða möguleika á að sigra i fyrsta skipti i 1. deild i sögu félagsins, liðið á eftir að leika sex leiki og þar af eru fjór- ir á heimavelli — þar sem QPR hefur ekki tapað leik i deildar- keppninni á þessu keppnis- timabili. Englandsmeistararnir Derby gefa hvergi eftir i vörn sinni fyrir meistaratitlinum og unnu góðan sigur i Middlesbrough. Leikmenn „Boro” sóttu meira i leiknum, en þeim gekk illa að reka smiðshöggið á sóknarlotur sinar, nokkuö sem leikmönnum Derby gekk betur. Charlie George var á réttum stað á rétt- um tlma á 32. minútu fyrri hálf- leiks og skoraði örugglega eftir sendingu frá Leighton James. Síðari hálfleikur gekk svipað og sá fyrri — og þegar sjö min- útur voru til leiksloka sendi Roy McFarland langa sendingu fram á Kevin Hector og hann skoraði annaö mark Derby. Áhorfendur voru 24.000. Liverpool átti i miklum erfið- leikum i Norwich. Ray Clem- ence i marki Liverpool varði tvivegis mjög vel i fyrri hálfleik skot frá Johnny Miller og Ted MacDougall — og i siðari hálf- leik átti Phil Boyer hörkuskot I þverslá. En gæfan var Norwich ekki hliðholl i þessum leik — og á 59. minútu uröu David Jones á mistök I vörninni sem David Fairclough notfærði sér — og skoraði sigurmark Liverpool og sitt fyrsta deildarmark. Ahorf- endur voru 29.038. Chris Nicholl var I sviðsljós- inu I leik Leicester og Aston Villa. Hann skoraði öll mörkin i leiknum, þar af voru tvö sjálfs- mörk. Um siðustu helgi skoraöi hann lika sjálfsmark — og eru þau þvi orðin þrjú sjálfsmörkin sem hann hefur skorað i tveim leikjum. Síðast var þetta leikið eftir 6. október 1923 af Sam Wynn sem lék með Oldham Athletic. Dunchan McKenzie var settur út úr liðinu hjá Leeds fyrir leikinn gegn Everton og stöðu hans tók Carl Harris. Billy Bremner náði forystunni fyrir Leeds i siðari hálfleik, eftir að Dave Lawson markvörður Everton hafði varið vitaspyrnu Fran Gray. Joe Jordan bætti öðru markinu við þegar tiu min- útur voru til leiksloka — og á tveim siðustu minútunum voru skoruð tvö mörk — Mike Lyons fyrir Everton og Carl Harris fyrir Leeds. Ahorfendur voru 28.566. Alan Ball var fljötur að finna leiöina imarkiðhjá WestHamá Hughbury skoraði strax á fyrstu minútu leiksins. Billy Jennings jafnaði stuttu siðar með skalla og á eftir fylgdu tvær vitaspyrnur sem dæmdar voru á West Ham —eftir að Brian Kidd hafði verið brugöið innan vita- teigs. Mervin Day varði fyrra Charlie George skoraði fyrra mark Derby gegn Middlesbrough og er hann búinn að skora mikið af mörkum síöan hann var keyptur frá Arsenal f haust. Myndin er af George að skora sigurmark Dcrby gegn Everton á dögunum. Úlfunum hefur ekki gengiö sem best á keppnistimabilinu og eiga nú hörku fallbaráttu framundan. Þeir töpuðu á laugardaginn fyrir Manchester City og þar áöur fyrir Tottenham. Myndin er frá leik Úlfanna og Tottenham; þaö er markvörður úlfanna Parkes sem slær boltann frá eftir eina af sóknarlotum Tottenham. vitiðsem AlanBalltók.enhann átti ekki möguleika á siðari vitaspyrnunni sem Ball tók einnig. George Armstrong skor- aði þriðja mark Arsenal og Brian Kidd það fjórða rétt í lok hálfleiksins. Kidd var I miklum ham i slð- ari hálfleik — skoraði tvivegis og átti auk þess skot f þver- slána. Steve Daly náði forystunni fyrir Úlfana gegn Manchester City i fyrri hálfleik, en i þeim siðari jafnaði Gerry Keegan fyrir City. Steve Kindon náði aftur forystunni fyrir Úlfana, en ieikmenn Manchester City voru sterkari á lokasprettinum og skoruðu þá tvivegis, fyrst Denn- is Tueart úr vitaspyrnu og siðan Mick Doyle. Ahorfendur voru 32.761. Barry Powell skoraði mark Coventry I Birmingham með. þrumuskoti á 25 m færi i fyrri hálfleik, en Trevor Francis jafnaði fyrir Birmingham úr vítaspyrnu i sföari hálfleik. Vörn Sheffield United — sem núhefur fengiöá sig 70mörk í 35 leikjum eða tvö mörk að jafnaði i leik, hélt út I 90 sekúndur gegn Ipswich — þá skoraöi David Johnson. Eddy Colquhoun jafn- aði fyrir United, en Mick Mills skoraði sigurmark Ipswich. Ekkert mark var skorað i fyrri hálfleik i leik Burnley og Tottenham. En i þeim siðari byrjaði John Duncan á þvi að ná forystunni fyrir Tottenham, Colin Waldron jafnaði fyrir Burnley, en þrem minútum fyr- ir leikslok skoraði John Pratt sigurmark Tottenham eftir góð- an undirbúning Martin Chivers. Áhorfendur voru 15.465. Johnny Giles virðist vera bú- inn að ná góðum tökum á West Bromwich Albion — og undir hans stjórn á liðið nú mikla möguleika á að endurheimta sæti sitt I 1. deild. WBA vann mikilvægan sigur gegn Bolton með mörkum Joe og Mayo og John Wile. Hin forystuliðin I 2. deild, Bristol City og Sunder- land, töpuðu bæði stigum, Bristollmarkalausumleik gegn Fulham og Sunderland gegn Oldham, Graham Bell skoraði fyrir Oldham, en Billy Hughs jafnaði fyrir Sunderland. Staðan i 1. of 2. deild er nú þessi: 1. deild: QPR Man. Utd. Liverpool Derby Leeds Man City Ipswich Middlesb. Tottenham Leicester Stoke West Ham Arsenal Everton Newcastle Coventry Norwich Aston Villa 36 19 11 6 54:26 49 35 19 10 6 59:35 48 35 17 13 5 51:27 47 35 19 9 7 56:31 47 34 17 8 9 54:37 42 33 14 10 9 54:30 38 33 11 14 8 40:34 36 35 13 10 12 37:32 36 36 11 14 11 51:56 36 35 10 16 9 38:44 36 33 13 8 12 41:39 34 36 13 8 15 44:59 34 35 12 9 14 42:40 33 34 11 11 12 49:59 33 33 12 8 13 58:48 32 35 10 12 13 37:47 32 34 11 9 14 49:51 31 35 9 13 13 43:52 31 Birmingham 34 10 6 18 45:61 26 Wolves 35 8 8 19 40:58 24 Burnley 36 7 10 19 39:58 24 Sheff. Utd. 35 2 9 24 24:70 13 2. deild: BristolC Sunderland Bolton WBA Southampt. Luton Notth. For. Chelsea Oldham Charlton Fulham BristolR Hull Blackpool Orient Plymouth Carlisle Blackburn Oxford Portsm. York 35 17 12 6 52:28 46 33 18 6 9 51:32 42 33 16 11 6 49:31 42 34 15 11 8 39:30 41 34 16 7 11 56:40 39 35 16 7 12 48:42 39 35 13 10 12 46:38 36 35 12 11 12 45:43 35 35 12 11 12 49:53 35 33 14 7 12 50:56 35 35 12 10 13 41:’:( :? 34 10 14 10 31:35 34 35 13 7 15 37:40 33 34 11 11 12 33:40 33 33 11 10 12 30:31 32 36 11 10 15 44:48 32 35 10 12 13 38:50 32 34 7 13 1 4 3 3:4 2 27 35 8 11 16 33:48 27 35 8 6 2 1 26:48 22 34 8 5 21 30:59 21 Staða efstu liðanna i 3. deild er óbreytt. Hereford og Brigh- ton unnu sina leiki — og Crystal Palace gerði jafntefli við Mans- field á útivelli 1:1. Mark Palace skoraði Peter Taylor. Hereford er efst með 49 stig. Brighton 46 stig, Crystal Palace er með 45 stig og Walshall er með 43 stig. Neðst eru Sheffield Wed, Swin- don og Halifax— öll með 28 stig. Lincoln sem leikur i 4. deild sigraði Scunthorpe 2:0 á laugar- daginn og hefur Lincoln nú skorað 80 mörk i 34 leikjum. Leikmenn Lincoln eiga góða möguleika á að ná 100 marka takmarkinu þvi að liðið á eftir að leika 12 leiki. —BB / V

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.