Vísir - 22.03.1976, Qupperneq 9
vism Mánudagur 22. mars 1976.
9
Andrés örtd og
dönsku blöðin eru
talsvert vinsœlli
en beru bossarnir,
en nektarmynda-
blöðin seljast
ótrúlega mikið.
Og nú eru tvö
blöð seld hér
sem eingöngu eru
œtluð konum...
Nú bjóöa bókaverslanir upp á
blöö sem eingöngu eru ætluð
kvenfólki. Þar eru birtar
myndir af nöktum karl-
mönnum. Þessi blöð fást hér,
Playgirl og Viva.
Sumir fara i bókaverslanir
aðeins til þess að skoða, en aðrir
kaupa.
Sá sem situr við skrif-
borðið heitir Seqn
Callahan og starfar við
það að fá stúlkur i blaðið
Qui.
Veistu hvaða blöð eru vinsælust hjá is-
lendingum og seljast mest i bóka-
verslunum? Það eru dönsku blöðin.
Hjemmet, Alt for damerne og önnur slik.
Þau eru fádæma vinsæl og einn
afgreiöslumaður i bókaverslun i borginni
hafði þaö á orði, að jafnvel danir skildu
hvorki upp né niöur i þessum áhuga
nágranna sinna. Iivaöa blöð skyldu koma
næst? Jú, bilablöö og tækniblöð ýmiss
konar. Músikblöð eru lika mjög vinsæl og
handavinnublöð — og þá þau dönsku. En
við liöfðum ekki áhuga á neinu þessara
blaða þegar við tókum okkur til og lögðum
leið okkar i bókaverslanir. Áhugi okkar
beindist allur að þessum svokölluðu
ncktarmyndablööum, Playboy, Playgirl
og öðrum slikum.
Seljast þessi blöð mikið? Hverjir
skyldu kaupa þau? Er fólk feimið við að
kaupa þau?
/7Gleyma stund og stað yfir
nektarmyndablöðunum..."
Úrvalið af nektarmyndablööunum er nóg, eöa hvað finnst ykkur?
Toni Holt (t.v.) hefur þaö að atvinnu aö leita uppi karlmenn til þess að taka myndir af í opnu blaösins
Playgirl. Hér hefur hún fundið einn og spjallar um hann við Ijósmyndara sem auövitað er kvenmaður.
Berir karlar ekki jafn
vinsælir og berar konur,
en....
Já, keypt eru þau. Vinsældir
þessara blaða eru þó ekki
eins miklar og þeirra sem ætluð
eru karlmönnum. Það virðast
aðallega vera ungar konur sem
hafa áhuga á Playgirl og Viva.
Eeimnar við að kaupa þessi
blöð? Nei, langt frá þvi.
t einni bókaverslananna var
okkur sagt að Playgirl væri
miklu meira keypt af karl-
mönnum en kvenmönnum! Þá
fengum við lika þær upp-
lýsingar að konur kæmu og
keyptu til dæmis Playboy.
Hvort þær eru þá að kaupa
blaðið fyrir karla sina, eða til
þess að lesa greinar er ekki gott
að segja. Og ekki höfum við
heldur skýringu á þvi hvers
vegna Playgirl er vinsælla hjá
karlmönnum eins og fyrr segir.
Gleyma bæði stund og
stað...
Fólk er gjarnt á að fara
i bókaverslanir aðeins til þess
að fletta blöðum eða bókum.
ekki til þess að kaupa. Þetta
gildir lika um nektarmynda-
blöðin. Afgreiðslufólk hefur
gripið til þess i sumum
verslunum að setja sellófón
utan um blöðin, svo ekki sé hægt
að fletta þeim, án leyfis.
Það eru aðallega karlmenn
sem koma til þess að fletta
nektarmyndablöðum. ..Þeir
koma hingað og fletta einu blaði
af öðru, og þeir gleyma gjör-
samlega stund og stað.
Stundum veltum við þvi fyrir
okkur hvað þessir karlmenn
vinna...
Þetta varð einni afgreiðslu-
konu að oröi og gat varla annað
en kimt. ,,Þeir geta glevmt sér
alveg yfir þessu.”
Fastir áskrifendur
Fastir áskrifendur eru að
nektarmyndablöðunum.
Ekki vitum við þó til að Playgirl
eða Viva hafi enn fengið fasta
áskrifendur hér á landi. Mörg
nektarmyndablaðanna seljast
alveg eða næstum upp i hverj-
um mánuði, en flest eru þessi
blöð gefin út einu sinni i mánuði
Auk Playboy eru seld her
blöðin Qui, Mav Fair, Men Only
Club. Penthouse og svo t.d. blöð
eins og Rapport. Sexy-Pep og
fleiri slik. Bókaverslanirnar
sem við litum við i, voru Bóka
búð Braga. Bókahúsið og Bóka-
búð Lárusar Blöndal.
Hvernig skyldi svo vera að
starfa fyrir þessi blöð? Toni
Holt heitir kvenmaður nokkur
sem hefur það eitt að starfi að
velja karlmenn i opnu blaðsins
Playgirl. Toni er 31 árs gömul
og sér meðal annars um sjón-
varpsþált.
Vill fá myndir af Burton,
Belmondo o. fl.
Meðal þeirra sem Toni Holt
vildi mjög gjarnan fá i opnu
blaðsins eru Lord Snowdon.
Richard Burton. Jean-Claude
Kelly. Jean Paul Belmondo og
Alain Delon. Og hún hefur látið
hafa það eftir sér. að 98% þeirra
sem lesa Playgirl séu giftar
konur. — EA
Meðal söluhærri tímarita
Nektarmyndablöðin eru með-
al vinsælli timarita i bókaversl-
unum. úrvalið virðist lika nóg.
Verslanir versla ekki allar með
sömu blöðin, en Playboy virðist
þó fást i þeim flestum.
„Það er ótrúlega mikið keypt
af þessum blöðum”, sagði af-
greiðslukona i einni verslun-
inni okkur. 1 sömu verslun feng-
um við að vita að Playboy virð-
ist hafa „besta orðið” á sér. Það
er lika komið til ára sinna og þó
að beru bossarnir séu sælgætið i
blaðinu, þá býður það upp á
ágætustu greinar.
Oft eru lika birtir útdrættir úr
nýjum bókum i þessu blaði og
greinarhöfundar eru hinir
akjósanlegustu. Það byggist
þvi ekki eingöngu upp á
myndum af beru kvenfólki.
„Það er nefnilega svo
agæt grein í þessu
blaði...."
Sumir karlmenn reyna að
bjarga andliti sinu þegar þeir
Umsion:
Edda Andrésdóttir
kaupa Playboy með þvi að segja
afsakandi við afgreiðslufólkið:
„Það er nefnilega svo ágæt
grein i þessu blaði....”
0, já, já. En feimni er samt
ekki fyrir hendi hjá fólki. Það
setur það ekki fyrir sig að kaupa
þessi blöð. 1 einni versluninni
var okkur þó tjáð að menn væru
gjarnir á að stinga blöðunum
neðst, ef þeir keyptu fleiri. En
aðrar verslanir höfðu ekki sömu
sögu að segja. Að kaupa
nektarmyndablöð er rétt eins
sjálfsagt og að kaupa Andrés
Ond. Andrés önd er þó vinsælli
og er i sömu röð og hin dönsku
blöðin.
Karlmenn á öllum aldri kaupa
nektarmyndablöð. Þau kosta
frá 300 til 400 krónur. Þeim
finnst það ekki dýrt. En eigi
þeir að kaupa dönsk blöð fyrir
t.d. eiginkonu sina, sem kosta
um 180 krónur, þá eiga þeir það -
til að kvarta yfir þvi hversu dýr
þau eru.
En nú eru komin nektar-
myndablöö ætluð
konum....
En karlmenn eru ekki lengur
einir um hituna. Nú eru komin á
markaðinn hérlendis að
minnsta kosti tvö timarit ætluð
konum eingöngu. Sem sagt, þar
eru einungis birtar myndir af
berum karlmönnum i alls kyns
stellingum. Annað blaðanna er
Playgirl, hitt heitir Viva.
I þessum blöðum er að finna
greinar og sögur og fleira
heldur en eingöngu bera karla.
Tæplega hálft ár er liðið siðan
þessi blöð komu á markaðinn
hér, en eru þau keypt?