Vísir - 31.03.1976, Qupperneq 3
visra Miðvikudagur 31. mars 1976.
3
Þær Olga Simonardóttir, Maria Jónsdóttir og Unnur Sveinsdóttir
ræða við Elsu Hertervig ijósmóður, á fæðingardeildinni.
eftir plássi á deildinni hérna. Við
teljum sjálfsagt að leitað verði á-
fram til Reykjavikur ef um keis-
araskurð eða önnursérstök tilfelli
er að ræða.
Hins vegar leggjum við áherslu
á að deildinni hérna verði ekki
lokað, þannig að þær konur sem
þess óska geti alið börn sin hér
suður frá. Viljum við að kannaðir
verði möguleikar á að endurbæta
aðstöðuna hér, þannig að unnt
verði að starfrækja deildina á-
fram eins og verið hefur,” sögðu
konurnar.
Mótmælalistinn verður tekinn
fyrir á bæjarstjórnarfundi á
fimmtudaginn og konurnar biða
nú eftir viðbrögðum bæjarstjórn-
armanna, en sögðust ákveðnar i
þvi að gefast ekki upp.
Fljótfærnisákvörðun
,,Ég er hrædd um að þessi á-
kvörðun um lokun deildarinnar
hafi verið hálfgerð fljótfærni og
hefði mátt athuga málið betur,”
sagði Steinunn Guðmundsdóttir
yfirljósmóðir fæðingardeildar-
á Sólvangi er Visir spurði um álit
hennar á lokuninni.
„Vissulega mætti bæta við
ýmsu hér og bæta aðstöðuna án
þess að til kæmu nokkrir fæðing-
arsérfræðingar. Ég held að það sé
ekkert hér sem knýr á að deild-
inni verði lokað fremur nú en ver-
ið hefur.
Við höfum reynt að veita sem
besta þjónustu og konurnar hafa
yfirleitt verið ánægðar hér. Mér
finnst alveg möguleikar á þvi að
halda áfram starfinu hér eins og
verið hefur.”
Aðspurð sagði Steinunn að bæj-
arstjórn hefði ekki leitað álits
ljósmæðranna eða rætt málið við
þær áður en ákvörðun um lokun-
ina var tekin.
„Mér finnst nokkuð hjákátlegt
fyrir byggðarlagið að konur hér
þurfi að leita inn til Reykjavikur
til að ala börn sin,” sagði Elsa
Hertervig ljósmóðir er við leituð-
um álits hennar.
„Mér finnst þessar litlu deildir
eiga fyllsta rétt á sér, hér eru
konurnar persónur, sem timi er
til að spjalla við, en ekki númer,”
sagði Elsa.
Á fæðingardeildinni er rúm
fyrir sjö konur. Það sem af er
þessu ári hafa 27 konur alið börn
sin þar og þegar eru bókaðar 42
fyrir næstu þrjá mánuði.
—EB
SAMIÐ VIÐ
YFIRMENN Á
KAUPSKIPUM
Samningar náðust í fyrrinótt
við vélstjóra, stýrimenn, loft-
skeytamenn og bryta á kaup-
skipaflotanum. Efnisatriði
samningsins eru þau sömu og i
almennu kaupsamningunum
milli ASÍ og vinnuveitenda og
samningstiminn sá sami.
Dánar- og örorkubætur skulu
i framtiðinni breytast i hlutfalli
við dagpeningagreiðslur slysa-
trygginga rikisins að breyttum
lögum.
Þá er gert ráð fyrir að lifeyr-
issjóðir þessara yfirmanna
verði aðilar að samkomulagi
ASÍ og vinnuveitenda um mál-
efni lifeyrissjóða.
—VS
Rœðir um ástand-
ið á miðunum
Þröstur Sigtryggsson skip-
herra mun ræða um ástandið á
miðunum á fundi sem Stúdenta-
félag Háskóla tslands boðar til i
kvöld klukkan hálf niu.
Fundurinn er i Lögbergi og er
öllum heimill aðgangur.
Engin ítök í ítak
Visi hefur borist athugasemd
frá Jens Eysteinssyni, Tómasi
A. Einarssyni, Má Gunnarssyni,
Gesti Þorgeirssyni og Elisabetu
Benediktsdóttur þar sem þau
vilja taka fram að þau hafi ekki
verið hluthafar i fyrirtækinu
ttak um skeið og hafi engan hag
haft af hlutdeild sinni i þvi fyrir-
tæki.
Ennfremur að samningagerð
um hönnun Seljaskóla sé þeim
með öllu óviðkomandi.
Kvikmyndasýning
og umrœður um
verndun húsa
ibúasamtök Grjótaþorps
bjóða til kvikmyndasýningar I
Tjarnarbæ, fimmtudaginn 1.
april nk. kl. 21. Sýnd verður 30
minútna löng kvikmynd um
verndun og endurbætur á gam-
alli borg i Bretlandi.
Eftir sýningu myndarinnar
verða umræður um verndun
gamalla húsa almennt. Arki-
tektarnir Gestur ólafsson og
Magnús Skúlason munu hefja
umræður með stuttu spjalli.
Samtökin hvetja allt áþuga-
fólk um húsavernd til að mæta i
Tjarnarbæ.
—VS
Freigótan innan við
þrjór mflur í gœr
Breska freigátan Bacc-
ante F-69, sigldi i gær inn
fyrir þriggja mílna land-
helgi islands milli Dala-
tanga og Norðfjarðar-
horns. Samkvæmt al-
þjóðalögum er herskipum
óheimilt að fara innfyrir
þriggja mílna landhelgi
annars rikis, nema með
sérst.öku leyfi. Það leyfi
var ekki veitt i þessu til-
felli.
Freigátan kom sér fljótlega út
fyrir þrjár milurnar aftur, en is-
lenskt varðskip sem var á þess-
um slóðum varö vart við feröir
hennar.
Landhelgisgæslan tilkynnti
utanrikisráðuneytinu þegar um
þennan atburð og óskaði eftir að
fengnar væru upplýsingar um
það frá breskum yfirvöldum,
hvernig á þessum ferðum
freigátunnar stæði.
Formleg mótmæli vegna
þessa atburðar verða borin
fram i dag.
—EB
SÁLUMESSAN þótti
ekki nógu kirkjuleg
„Sálumessan er tiltölulega litið
þekkt verk. Fólk þekkir Verdi
helst af óperuverkum hans” sagði
Ragnar Arnason, einn af kórfé-
lögum Söngsveitarinnar Fil-
harmoniu.
„Þetta verk átti sér dálitið ein-
kennileg tildrög. Verdi hafði
stungið upp á því við nokkur tón-
skáld að þau semdu saman verk,
þannig að hver semdi sinn hluta.
Úr þessu varð þó ekki að öðru
leyti en því, að Rossini samdi
lokakaflann. Þennan lokakafla
notaði Verdi siðan þegar hann
samdi Sálumessuna til minningar
um vin sinn.
Þegar verkið var frumflutt árið
1874 þótti það gifurlegur tónlist-
arviðburður, en olli hneykslun
þar sem fólki þótti það ekki nógu
kirkjulegt.”
Söngsveitin Filharmonia flytur
Sálumessuna ásamt einsöngvur-
um og Sinfóniuhljómsveit tslands
i Háskólabiói hinn 8. og 10. april
nk. Karsten Andersen mun
stjórna flutningnum.
Söngsveitin hóf æfingar á verk-
inu i janúar sl. og hefur Jón Ás-
geirsson æft kórinn. Kórfélagar
eru 115, allt áhugafólk. Hefur
reynt mikið á starf kórstjórans,
þarsem margir kórfélaganna eru
tiltölulega litið lærðir i sönglist,
auk þess sem timi til æfinga hefur
verið mjög knappur.
Söngsveitin tók einnig þátt i
frumflutningi verksins hér á landi
árið 1968. Þeim flutningi stjórnaði
dr. Róbert A. Ottósson, stofnandi
Söngsveitarinnar.
SJ/Ljósm. Jim
STÓRBINGÓ - STÓRBINGÓ
Félag sjálfstœðismanna í Fella- og Hólahverfi heldur
STÓRBINGÓ
að Seljabraut54 (hús Kjöts og fisks) á morgun, fimmtudag 1. apríl kl.
8.30.
Húsið opnað kl. 7.30.
FJÖLDI GLÆSILEGRA VINNINGA
m.a. má nefna mokkajakka frá Steinari Júlíussyni
Stjórnin