Vísir


Vísir - 31.03.1976, Qupperneq 4

Vísir - 31.03.1976, Qupperneq 4
4 Miövikudagur 31. mars 1976. vism Neytenda- þjónustan l.angholtsvegi 176 \'iðtalstimi 17-19 Simi 37460 Kvörtunarþjónusta Fjármólastjórn Borgararéttinda- aðstoð Eignaumsýsla Samningsgerð Ristcignatorgið GRÖFINNI1 SÍMI: 27444 Sölustjóri: Karl Jóhann Ottósson Heimasimi 17874 Jón Gunnar Zoega hdl. Jón Ingólfsson hdl. Hósakaup, íbúðarkaup Einbýlishús, raöhús, ibúðir, allar stærðir, kaup, sala, eignaskipti, háar útborganir. Haraldur Guðmundsson, löggiltur fasteignasali, Hafnarstræti 15. Sfmar 15414 og 15415. ÞURF/Ð ÞER HIBYLt Þurfið þér að selja? Þurfið þér að kaupa? Þurfið þér að skipta? Verðmetum ibúðina yður að kostnaöarlausu. HÍBÝLI & SKIP Garðastræti 38. Simi 26277 Heimasfmi 20178 N § Leiga á STÁlRÚLLUPÖLLUM til úti og inni vinnu. Hæð að eigin vali. Einnig STÁLVERKPALLAR. Uppl. í síma 44724 VERKPALLAR ? VONARSTRÆTI 12 Simi 27711 Sölustjori Sverrír Kristinsson Fasteignasalan Fasteignir við allra hæfi Norðurveri Ilátúni 4 a Simar 21870 og 20998. EK3NAÞJÓIVUSTAN PASTEIGNA- og skipasala NJÁLSGÖTU 23 SlMI: 2 66 50 26600 Verðmetum íbúðina samdœgurs Fasteignaþjónustan Austurstræti 17 (Silli& Valdi) simi 26600 Jk Haraldur Jónasson, héraðsdómslögmaður Sími 17938 FASTEIGNAVER h/f, Klapparstig 16, simar 11411 og 12811 Hafnarstræti 11. Simar: 20424 — 14120 lleima : 85798 — 30008 Vilja stuðla að skyn- samlegri notkun fjoru- svteða ó S-V landi Reykjavíkurborg synjar um styrk Takmarkið með þessum rannsóknum er að fá gott yfirlit yfir fjörur á suðvesturlandi, sérstaklcga lifriki þcirra. Út frá þvi ætti aö vera hægt að ákvarða skynsamlega notkun fiörusvæðanna i framtíðinni,” sagði Agnar Ingólfsson liffræð- ingur i viötali við Visi. Kannsóknirnar, sem eru unn- ar á vegum liffræðistofnunar Háskólans, hófust i fyrra og voru þá rannsakaðar fjörur frá Keflavik að Straumsvik. l>á var lcitað til tiu sveitar- félaga um styrk til rannsókn- anna, og veittu þau öll styrkinn að tveimur undanskildum og var Reykjavik annað þeirra. Liffræðistofnunin hefur ný- lega sótt aftur um styrk frá þessum sveitarfélögum og hefur þegar borist svar frá Reykja- vikurborg, þar sem hún telur ekki unnt að verða við beiðninni. „Reynt verður að halda rann- sóknunum áfram i sumar, en framhaldið er þó óvist með öllú, og fer það eftir þeim fjárstyrk sem við fáum. Með þessum rannsóknum er unnt að leggja bakgrunn að skipulagðri notkun fjörusvæðanna, og yrði það við- komandi sveitarfélögum til mikils gagns við ákvarðanir i framtiðinni. Þekking okkar á þeim fjöru- svæðum, sem rannsökuð voru i fyrra, jókst stórkostlega og margt nýtt kom i ljós. Niður- stöðurnar hafa ekki verið teknar saman endanlega ennþá, en meiningin er að setja þær fram i kortum er sýna tegundir og útbreiðslu,” sagði Agnar Ingólfsson. Svipaðar rannsóknir, en þó ekki eins itarlegar, voru unnar i fyrra á fjörum á nokkrum stöð- um við Faxaflóa og Breiðafjörð og var það að nokkru i samhengi við náttúruminjaskráningu Náttúruverndarráðs. Frumvarp um breytingu ó Húskólalögum: Aukin óhrif stúdenta og starfsmanna á stjórn Hl — Það má vera, að þessar breytingar verði umræddar en hvað sem timinn kann að leiða i ljós, þá tel ég að með þessu sé valin skyn- samleg leið til úrbóta, sagði Guðlaugur Þor- valdsson háskólarektor i samtali við Visi um nýja Háskólafrumvarpið. Er hér farinn nokkur milli- vegur milli þess sem nú er, og þvi sem tiðkast viða erlendis. Meginbreytingarnar eru þriþættar. Vissar breytingar eru gerðar á stjórnsýslu háskólans, stofnun nýrrar deildar og breytt prófdómara- fyrirkomulag. Fjölgun stúdenta og starfsmanna i háskóla- ráði Stjórnsýslubreytingarnar eru þrjár að sögn rektors. Fyrst og fremst verður háskólaráð öðru- visi samansett en áður. Sam- kvæmt frumvarpinu verður það skipað rektor, deildarforsetum, sem verða átta með tilkomu nýju deildarinnar, og fjórum fulltrúum stúdenta i stað tveggja nú. 1 þriðja lagi verður sú breyting á, að kennurum fjölgar. Meðtaldir þeim eru starfsmenn stofnana Háskólans. Kjósa þessir aðilar tvo fulltrúa. Þannig skipa Há- skólaráð, ef frumvarpið nær fram að ganga, alls fimmtán manns i stað ellefu samkvæmt núgildandi fyrirkomulagi. — Ég er þeirrar skoðunar, þótt ég sé ekki hlynntur þvi að fjöl- mennir hópar séu að ráðskast með málefni einstakra stofnana, að þessi fjölgun gefi viss fyrirheit um möguleika á aukinni starfs- skiptingu, sagði rektor. Allir fá beinan atkvæðis- rétt i rektorskjöri Hitaveita í Borgarnes Undirbúningsframkvœmdir hafnar — Hitaveitumálin hjá okkur standa þannig, aö við erum aö athuga meö hitaveitu frá Deild- artungu eöa Kleppjárnsreykj- um i Kcykholtsdal, sagði liún- bogi Þorsteinsson, sveitarstjóri i Borgarnesi i samtali við Visi. — Þessi hitaveita er liugsuö fyrir llvanneyri, Borgarnes og allmörg sveitabýli i leiöinni, sagöi hann ennfremur. Húnbogi kvaö þessa leið um 33 km langa og þess vegna er jafn- framt verið að kanna hvort ekki megi ná i vatn eitthvað nær. — ítarlegar rannsóknir fara Iram á Bæ i Bæjarsveit, sagði Húnbogi. Likleg niðurstaða þeirra rannsókna er, aö nægjan- legt vatn megi fá þaðan. Um 8 km styttri leið er að fara og kostnaðurinn mundi minnka um 60 til 70 milljónir ef vel tekst til með borun þarna. Sagði hann undirbúning vera i lullum gangi og stæðu vonir til að borun gæti hafist i mai. — Samkomulag hefur tekist um vatnsréttindi við hluta af landeigendum, bætti hann við, og samningar viö aðra eru á lokastigi. Ef allt gengur vel ætti hitaveitan að vera komin i gagnið 1978. — Fjármögnun framkvæmda cr mjög i óvissu, sagði hann. Reyndar er hún algerlega háð lyrirgreiðslu yfirvalda um lán- veitingar. -- Við munum að sjálfsögðu brýna rikisstjórnina á stefnu- ylirlýsingu hennar um að orku- málin hal'i algeran forgang, sagði Húnbogi Þorsteinsson. —VS önnur stjórnsýslubreytingin er á rektorskjöri. Atkvæðisrétt eiga að hafa allir fastir kennarar við Háskólann og háskólamenntaðir starfsmenn stofnana skólans. Þá fá allir stúdentar atkvæðisrétt. Eiga þeirra atkvæði að vega þriðjung i heild. — Með þessu móti fá allir bein- an atkvæðisrétt, sagði rektor. Það fer svo eítir þátttöku stúdenta i kjörinu hvað hvert eitt atkvæði vegur mikið en saman- lögð gilda þau að þriðja hluta. Þriðja breytingin er svo fólgin i hver aðild stúdenta verður i stjórn deilda og skora við Háskól- ann. Félagsvisindadeild. — Þriðja meginbreyting frum- varpsins felur i sér stofnun nýrr- ar deildar við skólann, félagsvis- indadeild, sagði Guðlaugur Þor- valdsson, rektor. Tel ég þá breyt- ingu verða til mikilla bóta, þvi hún mundi létta miklu af heim- spekideildinni, sem orðin er alltof stór. Sálarfræði, uppeldisfræði og bókasafnsfræði eiga að flytjast yfir i hina nýju deild samkvæmt frumvarpinu. Þegar kennsla i fé- lagsráðgjöf kemst á laggirnar á sú kennsla að fara einnig fram i hinni nýju deild. —VS

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.