Vísir - 31.03.1976, Síða 5
í
Astin blómstrar hjá hugstola fólki. Lucia og Max (Charlottc Rampling og nirk Bogarde) njóta ástar-
innar innilokuð á heimili Max.
SÁLARVÖRÐURINN
stjörnu-
kíkirinn
____________J
Ilafnarbió ★ ★ ★ ★
The Night Porter
(N æturvörðurinn)
Bandarisk, itölsk, 1974
leikstjóri Lilian Cavani
Hvernig geta ómennskir
menn lifað i borgaralegu þjóð-
félagi? Hvernig geta fyrrver-
andi SS foringjar Þriðja rikisins
aðlagast borgaralegu lifi og
stundað venjuleg störf, þar sem
þeir hafa ekkert ofurvald yfir
mannskepnunni?
Þessum spurningum og
mörgum fleiri er varpað fram i
The Night Porter. Reynt er að
skyggnast bak við grimu eins
foríngjans Max (Dirk Bogarde),
sem er næturvörður á hóteli i
Vin á sjötta áratugnum. Hann
hefur reynt að innibyrgja
sektarkennd sina með þvi að
sökkva sér i starf sitt. Hann
kaus næturvarðarstarfið, þvi
eins og hann segir, skammast
hann sin i dagsljósinu. Hann vill
lifa einn og ótruflaður, fá frið.
En svo er ekki. Aðrir þýskir
foringjar úr SS halda með sér
reglulega fundi, sem þeir kalla
réttarhöld. Þar kryfja þeir for-
tið sina til mergjar i tvennum
tilgangi, til þess að eyða sektar-
kenndinni og einnig til að draga
fram i dagsljósið vitni, sem
gætu reynst þeim hættuleg og
,,koma þeim fyrir”.
Einn daginn koma hjón á
hótelið til Max og reynist konan
vera stúlka úr fangabúðunum,
sem Max hafði gert að ástmey
sinni. Þeim verður mikið um
þessa endurfundi og brugðið er
upp svipmyndum úr fangabúð-
unum. þar sem Max pyndar
stúlkuna, Luciu (Charlotte
Rampling).
Eiginmaður Luciu leitar
hennar og hefur fengið lögregl-
una i lið með sér og nasista-
félagar Max leita hans.
Eina leiðin sem þau geta
valið sér er að mynda sinn eigin
heim og þau loka sig þvi inni i
ibúð Max. En að lokum sverfur
hungrið að, þvi félagar Max
girða fyrir það að hann fái mat-
væli og auk þess loka þeir fyrir
ljós og hita, þannig að lokum er
ekki nema um eitt að velja...
i auglýsingu Hafnarbiós er
vitnað i Newsweek og sagt að
Siðasti tangó i Pris hverfi i
skuggann fyrir þessari mynd.
Þess vegna leggja ansi marg-
ir leið sina i Hafrrarbió i trausti
þess að sjá mergjaða klám-
mynd. Vafalaust verða þessir
menn fyrir vonbrigðum, þvi
temað i myndinni er lifsfirring
uppgjafarnasistaforingja en
ekki klám.
Leikur þeirra Bogarde og
Rampling er hreint frábær og
hrein synd að Bógarde skuli
ekki hafa fengið fleiri hlutverk,
þar sem hann fær tækifæri til að
túlka tilfinningar, en raun ber
vitni um. Auk þess er myndin
vel unnin, vel klippt og sumar
tökur skemmtilegar, sem undir-
strika andlega eymd foringj-
anna.
Ef þú viltsjá góða mynd (ekki
klámmynd), sem skilur mikið
eftir sig, skaltu leggja leið þina i
Hafnarbió
Laugarásbíó
Waldo Pepper ★ ★ ★ ★
Háskólabíó
Nashville ★ ★ ★
Bæjarbió
Exorcist ★
Tónabíó
Lenny ★ ★ ★ ★
Haf narbíó
Næturvörðurinn ★ ★ ★ ★
Þegar eiginmaðurinn yfirgef-
ur hótelið á leið til Berlinar,
ákveður Lucia að verða eftir.
Max og hún hittast og þau
taka upp kvalalostaleikina, sem
þau höfðu stundað fyrir strið, en
i ljós kemur að tilfinningar
þeirra rista mun dýpra og þau
eru ástfangin hvort af öðru.
Pirk Bogarde og Gabriele F'er-
zetti i hlutverkum sinum i The
Night Porter. Þeir leika þar
báðir fyrrverandi SS-foringja. A
þessari mynd er verið að undir-
búa ..réttarhöldin” yfir Max,
þar sem hann er neyddur til að
rifja upp reynsiu sina úr strið-
inu gegn vilja hans.
Endurminningar úr striðinu þyrlast upp þegar Max og Lucia hitt-
ast aftur óvænt. i fangabúðunum var Lucia ung stúika, sem SS-
foringinn Max, gerði að ástkonu sinni og þröngvaði henni til fylgi-
lags við sig, svo hann fengi útrás fyrir kvalalosta sinn.
LAUGARAS
B I O
Sími 32075
Viðburðarrik og mjög vel
gerð mynd um flugmenn,
sem stofnuðu lifi sinu i hættu
til þess að geta orðið frægir.
Leikstjóri: George Roy Hill.
Sýnd kl. 5 og 9.
Bófinh
með bláu augun
Ný kúrekamynd i litum með
ISLENSKUM TEXTA.
Sýnd kl. 7 og 11.
Blóðsugu sirkusinn
Ný, bresk hryllingsmynd frá
Hammer Production i litum
og á breiðtjaldi.
Leikstjóri: Robert Young.
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
ISLENZKUR TEXTI
Klute
Æsispennandi og mjög vel
leikin, bandarisk kvikmynd i
litum og Panavision.
Aðalhlutverk: Jane Fonda
(fékk Oscars-verðlaunin fyr-
ir leik sinn i myndinni)
Donald Sutherland.
Bönnuð innan 16 ára.
Endursýnd kl. 5, 7 og 9.
ISLENSKUR TEXTI
Valsinn
Les Valseuses
Heimsfræg djörf ný frönsk
kvikmynd i litum. Aðalhlut-
verk: Gérard Pepardieu,
Patrick Dewacre, Miou-
Miou.
Bönnuð innan 16 ára.
The Conversation
Mögnuð litmynd um nútima-
tækni á sviði, njósna og
simahlerana i ætt við hið
fræga Watergatemál
Leikstjóri: F'rancis Ford
Coppola (Godfather)
Aðalhlutverk: Gene
Hackman
islenskur texti
Sýnd kl. 5, 7 og 9
TÓZVABÍÓ
Simi31182
Voru guðirnir
geimfarar
Chariots of the Gods
Þýzk heimildarmynd með
ensku tali. Myndin er gerð
eftir metsölubók Erichs von
Pauiken með sama nafni.
ISLENZKUR TEXTI.
Sýnd kl. 5, 7 og 9.
5
Per
ÍSLENZKUR TEXTI.
Ný dönsk djörf sakamála-
kvikmynd í litum.
Leikstjóri: Erik Crone.
Aðalhlutvcrk: Ole Ernst,
Fritz Helmuth, Agneta Ek-
manne.
Sýnd kl. 6, 8 og 10.
Bönnuð börnum innan 14
ára.
Sími: 16444.
Næturvörðurinn
Viðfræg, djörf og mjög vel
gerð ný itölsk-bandarisk lit-
mynd. Myndin hefur alls
staðar vakið mikla athygli,
jafnvel deilur, en gifurlega
aðsókn. I umsögn i blaðinu
News Week segir: Tango i
Paris er hreinasti barna-
leikur samanborið við
Næturvörðinn. Dirk
Bogarde, Charlotte
Rampling. Leikstjóri:
I.iliana Cavani.
ISLENSKUR TEXTI
Bönnuð innan 16 ára.
Sýnd kl. 3, 5.30, 9 og 11,15.
LEIKHÚS
u-.iki-liac;
KIT K|AVÍKl IR
3* 1-66-20
VILLIÖNDIN
i kvöld kl. 20,30.
6. sýn. Gul kort gilda.
SKJALDHAMRAR
fimmtudag. — L’ppselt.
SAUMASTOFAN
40. sýn. Föstudag kl. 20,30.
EQUUS
25. sýn. laugardag kl. 20,30.
KOLRASSA
sunnudag kl. 15.
VILLIÖNDIN
sunnudag kl. 20,30.
7. sýn. Græn kort gilda.
SKJALDHAMRAR
þriðjudag kl. 20,30.
Miðasalan i Iðnó opin kl. 14
til 20,30. Simi 1-66-20.
[þjóðleikhúsib]
NATTBÓLID i kvöld kl. 20
föstudag kl. 20
SPORVAGNINN GIRND
fimmtudag kl. 20.
Næst siðasta sinn.
KARLINN A ÞAKINU
föstudag kl. 15. Uppselt.
laugardag kl. 15.
Sunnudag kl. 15
CARMEN
laugardag kl. 20
Litla sviöið:
INUK
fimmtudag kl. 20,30.
Miðasala 13,15-20.
Simi 1-1200.
Leiktéfag
Kópavogs
Barnaleikritið
Rauóhetta
syning fimmtudag kl. 8.30
laugardag kl. 3.
Miðasala sýningardaga.
Simi 41985.
LEIKFÉLAG
SELTJ ARNARNESS.
Illauptu af
þér horniu
sýning i Félagsheimili Sel-
tjarnarness
i kvöld kl. 20.30
fimmtudag kl. 20.30
sunnudag kl. 20.30
Miðasala frá kl. 5 sýningar
daga.