Vísir - 21.04.1976, Qupperneq 2
Ragnheiöur ólafsdóttir, fóstru-
nemi.Tvimælalaust flokkasvigið,
þar rikti svo mikil keppni. Það
hefði verið gaman að hafa brun-
keppni, þó það hafi vissar hættur i
för með sér.
A AKUREYRI
r
Hváða grein á nýafstöðnu
skíðalandsmóti fannst þér
skemmtilegust?
Baldvin Stefánsson, járnsmiöur.
Boðgangan, bæði vegna þess að
það var mjög gott veður meðan á
henni stóð,nú svo keppti ég þar.
Einar Gunnarsson, vcrslunar-
maður. Flokkasvigið, þar var
mest spenna. Hver maður i liðinu
er svo mikilvægur fyrir heildina.
Karolina Guömundsdóttir, hús-
móöir. Svigið, þar fannst mér
mesta spennan. Annars ætti endi-
lega að keppa i bruni þar sem að-
stæður leyfa.
tvar Sigmundsson, hótelstjóri.
Flokkasvigið. Það er raunveru-
lega 5 einstaklingskeppnir, en
málið ekki búiö þó einn komist
klakklaust niður.
Hermann Sigtryggsson, móts-
stjóri. Þvi miður get ég ekki
dæmt um það þar sem ég sá að-
eins eina grein, stökkið. Ég var
allan timann i stjórnstöðinni og
heyrði þvi bara frá mótinu en sá
það ekki.
Miövikudagur 21. aprll 1976 VISIR
,Hryggileg mistök
oð nota svartolíu'
Unnið aö viögerö i vélinni á skuttogaranum Brettingi. Getur þaö
hugsast aö bilun þessi stafi aö þvl aö togarinn brennir svartollu?
„Reynslan af svart-
olíunni er að minum
dómi þannig að ljóst er
að um hryggileg mis-
tök er að ræða. Mistök,
sem ekki þurfti að fara
út i.”
Þetta sagði Halldór
Þorbergsson kennari i
Vélskólanum i samtali
við Visi. Skuttogarinn
Brettingur lá þá i höfn
vegna vélarbilunar. Er
það álit ýmsra að það
sé vegna þess að togar-
inn brenni svartoliu.
Vélum Brettings var breytt
þannig að togarinn getur nú
brennt svartoliu. Sú breyting
var framkvæmd i júli siðast-
liðnum. Einnig var á hliðstæðan
hátt breytt vélum i systurskip-
um Brettings það er
japönsku togurunum svonefndu.
Er við höfðum samband við
skipstjórann og vélstjóra á
Brettingi kváðust þeir ekki geta
fullyrt hvort um væri að kenna
þvi að notuð væri svartolia.
Sögðu þeir að menn skiptust i
tvö horn hvað það snerti. Hins
vegar sögðu þeir að ventlar
Brettings væru nú i rannsókn
hjá Rannsóknasofnun iðnaðar-
ins i Keldnaholti.
„Við þurftum ekki að fara út i
þetta, við höfum siæma reynslu
fyrir okkur hjá öðrum þjóðum”
sagði Halldór.
„Við erum eina þjóðin i
Evrópu sem gerir þessa hluti i
fiskiskipum sinum.
Þetta ævintýri á eftir að kosta
okkur ærinn pening. Það er
langt frá þvi að vera forsvaran-
legt að rýra notagildi skipa-
stólsins og stórskemma vélar
skipsins.
Ég tel að það ráði annarleg
sjónarmið hjá þessum mönnum
sem að þessu standa. Þeir gefa
sig út sem sérfræðinga, en ég tel
að þeir geti engir titlað sig sem
slika. Þeir hafa enga reynslu af
keyrslu véla.
Enginn þeirra hefur verið vél-
stjóri til sjós. Hins vegar er
skrifum þeirra ungað út af
sjávarútvegsráðuneytinu, svo
að með eindæmum er.
Tilraunir með endem-
um
Svartoliunefnd hefur sagst
vera að gera tilraunir. Ef al-
vara hefði fylgt þeim hefði verið
reynt að fá samanburð. En ekki
að skipta um i öllum japönsku
togurunum 10.
En við eigum hins vegar sam-
anburð annars staðar frá. Það
eru togararnir ögri og Vigri.
Þeir eru með disel vélar sem
hafa verið keyrðar i 20 þúsund
tima, og hafa þær gengið eins og
klukkur .
Rafmagnsveiturnar á Akur-
eyri eiga hins vegar sams konar
vél sem keyrð er með svartoliu.
Hún er búin að eyðileggja 18 út-
blásturslokur eftir 1870 tima, en
engin hefur farið i ögra og
Vigra.
Falskt verð
Þegar þessir menn reikna, þá
taka þeir alltaf falskt verð á oli-
unni. Hinn raunverulegi mis-
munur oliuverðsins eins og það
er i Evrópu er 24 til 26%. Annar
mismunur er bara heimatilbú-
inn.
Meðan við búum við meiri
mismun er einungis verið að
greiða niður svartoliuna.
Krafan er, að mennirn-
ir verði stoppaðir
Narfaævintýrið sem byrjaði
um áramótin 1968 til 1969 er
sorgarsaga frá upphafi. Þarf
ekki annað en miða við jafn-
gömul skip sem notuðu áfram
svartoliu.
Eimskip hefur svartoliu að-
eins i þremur skipum sinum. Ef
sparnaðurinn er jafn mikill og
svartoliunefnd vill vera láta er
Eimskip auðvitað að fremja
hneyksli.
Krafan er auðvitað sú að
þessir menn verði stoppaður
áður en þeir vinna milljóna tjón.
Hæpinn sparnaður
Túrbinan sem fór i Brettingi
kostar um þrjár milljónir
króna. Ofan á þetta leggst siðan
aflatjón. Til viðmiðunar má
geta að svartoliunefnd telur
sparnaðinn við að nota svartoliu
vera um 6 milljónir á ári
Hins vegar er það ekki fyrr en
i júli sem ár er liðið siðan vélum
Brettings var breytt þannig að
hægt væri að brenna i þeim
svartoliu.
—EKG
Konungsríkið og—
skemmtiiðnaðurinn
Kvikmyndaiönaöinum er
ekkert heilagt. 1 Hoilywood
hefur biblian i heild veriö lögö
til grundvallar kvikmynda-
handriti og slðan filmaö meö
þúsundum leikara, eins og
vinsælt var að tiunda á dög-~
um Cecil B. DeMille, Warner-
bræðra og Howard Hughes. Eitt
þessarar s tó rm yn da r fy r-
irbæra var sýnt um pásk-
ana i sjónvarpinu en látið
duga að styðjast við nýja testa-
mentið einvöröungu. En þeir
eru fleiri en liönir kvikmynda-
jöfrar Hollywood, sem llta hýru
auga til frásagna úr bibliunni.
Danir hafa undanfariö átt ibasli
út af hugsanlegu rikisfra ínlagi
til kvikmyndar um krist, sem
felld hefur veriö að skandi-
naviskum siögæöishug-
hugmyndum. Kannski veröum
við islendingar svo þróaöir sið-
ferðislega seinna meir, að ekki
þyki tiltökumál að sýna þá
mynd i sjónvarpi - þó varla á
páskum fyrr en skandinaviskt
uppeldi islenskra mennta-
manna er fariö að segja til sin
innan þjóðkirkjunnar.
Margt af þvi sem skemmti-
iönaöurinn, þar meö taldar
kvikmyndir, framlciöir fyrir til-
finningamarkaðinn, er þess
eðlis, að betur á við hvatir
mannsins, eins og ætla mætti að
þær hafi verið áður en hann
gerðist homo'erectus, og er þá
tekið mið af hrossum, kindum
og nautpeningi. Mest ber á of-
beldi og kynmökum án
nokkurrar tilfinningar fyrir
æðri skynvitund, og eru raunar
engin viöbrögð i þá átt ókönnuö
nema ef vera skyldi aö láta
aukaleikarana bita gras á
hvanngrænni garðflötinni fyrir
framan hús aðalleikaranna á
meðan þeir gamna sér innan
veggja. Hafi veriö reynt að
hindra þessa þróun, og hiö til-
finningalega afturhvarf til
frumskógarins, hafa kaupa-
héðnar á markaöstorgi holdsins
öskrað á frelsi meö þeim
árangri að allt hefur veriö gefið
laust, nema þá rikisframlag
dana til klámmyndar um krist,
sem þó, samkvæmt öllum fyrri
forleiknum, ætti aö fást án
mikils hávaöa um .sósialan”
rétt kvikmyndaframleiöandans.
Miöaö viö jarðsöguna er
ævivist mannsins á jöröinni
næsta stutt orðin. Á þessari
ævitíö hafa oröiö tveir stórvið-
buröir, sem hafa gert manninn
aö herra jarðarinnar, og gætt
hann þeirri ofurmennsku-
hugmynd, aö honum sé sjálf-
skapað lif eftir dauðann. Hinn
fyrri viðburöurinn átti sér staö,
þegar maðurinn byrjaði aö
ganga uppréttur og greindi sig
þar með frá öðrum dýrum
merkurinnar. Siðan leið langur
timi, uns maðurinn fór aö trúa á
stokka og steina og byggja sér
hugarheim um skurðgoð og dýr,
eins og ketti og hunda.
Hernaður og hetjusagnir leiddu
af sér loftkenndari guði, sem
lifðu og hræröust i krafta-
verkum og endurfæðingum. Hér
var vopndauöinn æösta miö um
skeiö. En mitt i þcssari
helgöngu fæddist kristur til aö
stofnsetja þaö konungsriki
bræöralagsins og misk-
unarinnar, sem enn varir og
hefur gætt manninn siðferð-
isvitund, sem skapar eigi
siðri þáttaskil en þau aö ganga
uppréttur. Margir hafa komið
siðan og viljað frelsa heiminn,
eða a.m.k. leggja hann undir
sig. Riki þeirra hafa komið og
farið eins og leiftur. Þeirra sér
hvergi stað. En riki krists
heldur áfram að vera til, einnig
i samtimanum hvaö sem liður
dönsku rikisframlagi, banda-
riskum stórmyndum eða þeim
guðum, sem eru komnir i stað
þeirra sem Pontíus PDatus trúði
á, og nú heita Marx, Lenín og
Stalin. Svarthöfði