Vísir - 21.04.1976, Blaðsíða 8
8
VÍSIR
Útgefandi: Keykjaprent hf.
Framkvæmdastjóri: Daviö (Juömundsson
Ititstjórar: Þorsteinn Pálsson, ábm.
Ólafur Itagnarsson
Ritstjórnarfulltrúi: Bragi Guömundsson
Fréttastj. erl. frétta: Guömundur Pétursson
Blaðamenn: Edda Andrésdóttir, Einar K. Guðfinnsson, Emilia
Baldursdóttir, Ólafur Hauksson, Óli Tynes, Sigurvcig Jóns-
dóttir, Valgarður Sigurðsson, Þrúður G. Haraldsdóttir.
fþróttir: Björn Blöndal, Kjartan L. Pálsson.
Úllitsteiknun: Arnór Ragnarsson, Þórarinn J. Magnússon.
Ljósmyndir: James H. Pope, Loftur Asgeirsson.
Aglýsingastjóri: Skúli G. Jóhannessoo
Anglýsingar: Ilverfisgötu44. Simar 11660 86611
Afgreiðsla: llverfisgiitu 44. Simi 86611
Ritstjórn: Siðumóla 14. Simi86611.7 linur
Áskriftargjald 1000 kr. á mánuði innanlands.
i lausasölu 50 kr. eintakið. Blaðaprent hf.
Siglufjarðarmálið
Flokksræðishugarfarið hefur í mörg ár gegnsýrt
islenskt þjóðfélag. Engum hlöðum er um það að
fletta, að ritskoðunartilhneigingum vex stöðugt
fiskur um hrygg i skjóli flokksræöisins. Þessi þróun
er sannarlega bein ögrun við frjálsa skoðana-
myndun og sjálfstæðar þjóðmálaumræður i
landinu.
Stjórnmálamenn hafa með lýðskrumi villt
mönnum sýn. Þeir eru fjölmargir, sem hreinlega
átta sig ekki á þeim grundvallaratriðum, sem
frjálst lýðræðisþjóðfélag byggir á.
Afleiðingar lýðskrums og æsistefnu stjórnmála-
manna komu skýrast fram i gær, þegar starfsmenn
fjarskiptastöðvar landssimans á Siglufirði neituðu
blaðamanni Visis, sem staddur er um borð i breskri
freigátu, að senda fréttir til blaðsins.
Þegar bretar fara með flota sinn inn i íslenska
fiskveiðilögsögu til þess að hindra eðlilega fram-
kvæmd löggæslu, eigum við að sjálfsögðu ekki að
auðvelda þeim þann leik á neinn hátt. Þetta á hins
vegar ekkert skylt við frjálsan fréttaflutning.
Þjónusta við bresk herskip og frjáls frétta-
flutningur er sitt hvað. Það er fyrst og fremst vegna
lýðskrums stjórnmálamanna, að jafnvel grand-
varir opinberir starfsmenn gera ekki greinarmun
hér á milli.
Visir ákvað að senda fréttamann með breskri
freigátu i þvi skyni að fylgjast með landhelgis-
átökunum frá þvi sjónarhorni. Ritstjórn blaðsins
taldi rétt að islenskir blaðalesendur fengju kost á að
lesa frásagnir islensks blaðamanns frá breskum
vettvangi, en fram til þessa höfum við einvörðungu
fengið þaðan frásagnir útlendinga.
Engin vandkvæði voru á að koma fréttaskeytum
frá herskipinu i gegnum fjarskiptastöðina i Reykja-
vik. En um leið og skipið var komið austur fyrir
land og treysta þurfti á fjarskiptastöðvar utan
Reykjavikur skall ritskoðun á. Lýðskrumarar i hópi
stjórnmálamanna hafa innrætt fólki þá trú, að i
þessum efnum megi aðeins ein rödd heyrast.
Embættisleg yfirstjórn landssimans er andvig
þessari ritskoðunarstefnu, en hún fær ekkert við
ráðið. Stjórnvöld virðast skorta bæði kjark og
áhrifavald til þess að tryggja hagsmuni sjálf-
stæðrar fjölmiðlunar i landinu. Firrur lýðskrumsins
eru allsráðandi.
í gær óskaði Visir eftir að fá birta auglýsingu i
Rikisútvarpinu, þar sem sagði, að blaðamaður á
vegum blaðsins væri um borð i breskri freigátu.
Auglýsing þessi var bönnuð á grundvelli þeirrar
flokksræðisreglugerðar, sem gildir fyrir auglýsing-
ar i útvarpi og sjónvarpi.
Samkvæmt reglum þeim sem stjórn-
málaflokkarnir hafa i sameiningu sett og þeir i
bróðerni standa vörð um falla auglýsingar af þessu
tagi undir stjórnmálaáróður. Þær stofna óhlut-
drægni útvarpsins i hættu að mati stjórnmála-
flokkanna.
Þessi tvö dæmi, sem hér hafa verið nefnd sýna
glöggt, að við stöndum frammi fyrir verulegri
hættu i þessum efnum. Flokksræðishugarfarið er að
höggva að rótum sjálfstæðrar skoðanamyndunar i
þjóðfélaginu. Siglufjarðarmálið er vissulega próf-
steinn á það, hvort rikisstjórn landsins getur tryggt
hagsmuni sjálfstæðra fréttastofnana. Um viljann
þarf vonandi ekki að spyrja.
Miövikudagur 21. april 1976 vism
Þau tuttugu og fjögur ár, sem
Elisabet englandsdrottning hefur
setiö i hásæti, hefur hún mátt
horfa á breska heimsveldiö
molna niöur, fjárhirslur rikisins
tæmast og efnahagskreppuna
veröa að föstum þætti i dagfari
breskra þegna.
öörum þjóðhöföingjum hefur
veriðvelt ú sessi á þessum tíma.
Allt frá Farúk, konungi Egypta-
lands, til Haile Selassie, keisara
Eþiópiu. — Hásæti Elisabetar
hefur hinsvegar ekki haggast.
Þegar hennar hátign, sem er
fimmtug i dag, litur yfir farinn
veg, má hún samt sæmilega viö
una. Sú félagslega bylting, sem
oröið hefur á veldistima hennar,
heföi áreiöanlega bylt hásæti
margra annarra konunga, sem
samt státa sig af meiri völdum en
bretadrottning.
Jafnvel meöal allra róttækustu
vinstrimanna finnst ekki sá, sem
er óánægður með, hvernig
Elisabet hefur leyst drottningar-
hlutverk sitt af hendi þessi
tuttugu og fjögur ár.
En afmælið vekur upp að nýju
þann kvitt, sem kom upp um að
drottningin kynni áður en langt
um liöur að afsala sér völdum og
láta kórónuna i hendur rikis-
arfanum, hinum 27 ára gamla
syni sinum Charles prins. Sjálf
hefur drottningin ekkert látið
uppi um, að hún hefði neitt slikt í
huga en þeir sem fylgjast hvað
fastast með konungsfjölskyldunni
bresku, telja þetta ekki fráleitt.
Sumir þeirra álita meira að
segja, að dagurinn hafi verið
ákveðinn, sem þjóðhöfðingja-
skiptin skuli fara fram. Það er
hald þeirra, að drottningin vilji
einungis biða þess, að krón-
prinsinn kvænist.
Konungsfjölskyldan er bretum
hugstæð, eins og á við um þegna
konungsrikja yfirleitt. Jafnvel
málgögn vinstrisinna, eins og
„The New Statesman”, fylgjast
af gaumgæfni með hverri hreyf-
ingu hennar. — Það blað viðraði
nú fyrir skemmstu hugmyndina
um að Charles prins leysti móður
sina af hólmi og taldi heppilegast
að biða þess, að hann hefði náð
fullum þroska og fullorðinsaldri.
Drottning i skrautvagni sinum á leiö til setningar þingsins. Drottningin hefur mikiö yndi af hestum
Elizabet II bretadrol
Þeir fengu viöurkenningu fyrir aö vera söluhæstir I febrúar. F.v.
Björgvin Hólm var i ööru sæti, Jón Gislason i fyrsta sæti og Vig-
lundur Magnússon i þriöja sæti.
Dug-
miklir
sðlu-
menn
Fimm strákar fengu nýlega
viöurkenningu hjá Visi fyrir að
vera söluhæstir i febrúar og
marsmánuðum. Einn þeirra,
Björgvin Hólm, var næsthæstur
i febrúar og i mars haföi hann
selt mest af öllum sölubörnun-
um. Geri aörir betur!
Rétt er að taka það fram að-
þar sem þeir Auðunn Gestsson
og óli Þorvaldsson hafa blaða-
söluna að atvinnu taka þeir ekki
þátt i samkeppninni, en þeir eru
alltaf söluhæstir.
Þessir strákar voru duglegastir
viö aöselja Vísi i mars. Þeir eru
f.v. Kristján Pálsson, sem varð i
ööru sæti, Björgvin Hólm haföi
sótt i sig veðriö og var nú i
fyrsta sæti og Guöjón Einarsson
varð I þriðja sæti. — Ljósm.
Jim.