Vísir - 21.04.1976, Síða 14
14
Miðvikudagur 21. april 1976
King Kong kominn afturi
ARRRGGHH!
King Kong er kominn aftur!
Nú er verið að gera nýja kvik-
mynd um þennan risaapa, sem
skefldi ibúa New York á hvita
tjaldinu 1933. bar lauk mynd-
inni með þvi að tviþekjur með
vélbyssur eltu risaapann upp á
topp á Empire State bygging-
unni, og skutu hann þar niður.
1 nýju myndinni fer King
Kong upp á toppinn á World
Trade Center, sem nú er hæsta
bygging New York. Þar eru það
nýtisku orrustuþotur sem veit-
ast aö honum með morðtól sin.
Samfara þessu er komið King
Kong æði. Þessi mynd er tekin á
toppi Empire State byggingar-
innar. Það er nú ekki kappinn
King Kong sjálfur sem býr sig
undir að fleygja stúlkunni fram
af húsinu, heldur maður i gervi
górillu. Stúlkan, sem heitir
Chrissie Spinks og er 16 ára, var
á skólaferðalagi i New York,
þegar hún lenti i „faðmi” gór-
illunnar. 1 baksýn sést World
Trade Center, sem i raun eru
tveir skýjakljúfar standandi
hlið við hlið, 110 hæða háir.
Empire State byggingin er 102
hæða há.
Krónprínsinn
er sískotinn
Karl bretaprins, rfkisarfi hefur
viðurkennt að hann sé alltaf að
verða ástfanginn af nýrri og nýrri
stúlku.
Þessi eftirsóttasti piparsveinn
breta kvaðst hreinskilnislega
ekki enn vera reiðubúinn til að
giftast.
,,Ég hef orðið skotinn i alls kon-
ar stulkum og þvi ætla ég svo
sannarlega að halda áfram”
sagði prinsinn timaritinu
Woman’s Own.
,,En ég hef þó ekki gifst þeirri
fyrstu, sem ég varð skotinn i,”
bætti hann við.
,,Ég verð að athuga rækilega,
hvað gifting er, svo hjónaband
mitt geti enst eitthvað sagði
prinsinn.
,,Ég hef lært af mistökum ann-
arra, og ætla þvi að velja mér
lifsförunaut af natni.”
Karl prins er nýorðinn 27 ára og
er liðsforingi að nafnbót i her
hennar hátignar.
Snögg viðbrögð þessara
slökkviliðsmanna komu i veg
fyrir að félagi þeirra brenndist
iliiiega. Hann cr sjálfur slökkvi-
liösmaður i slökkviliði St. Louis
i Bandarikjunum. Liðiö harðist
við mikinn bruna i vöruhúsi,
þegar eldur læsti sig i hlíföar-
kápu slökkviliösmannsins.
Nærstaddir slökkviliðsmenn
gripu hann, og byrjuðu aö rifa
hliföarkápuna af, meðan aörir
komu meö vatnsslönguna og
bunuðu hressiiega. bað haföi
allt að segja, og slökkviliðsmað-
urinn slapp með minniháttar
brunasár. Ljósmyndarinn
Larry Williams var nærstaddur,
og festi atvikiö svona snilldar-
lega á filmu.
r
„I Guðs bœnum,
Haraldur,
skjóttu!"
Hæstiréttur Bandarikjanna
hefur úrskurðaðað lögsem banna
kynvillu, brjóti ekki i bága við
stjórnarskrána.
i u.þ.b. 30 rikjum Bandarikj-
annaer kynvilla bönnuð með lög-
um. Tveir kynviilingar i Virginíu
höfðuöu mál fyrir undirrétti, þar
sem þeir fóru fram á að rétturinn
urskuröaði að lög gegn kynvillu
brytu i baga viö stjórnarskrána.
Rétturinn úrskurðaði að lögin
brytu ekki i bága við stjórnar-
skrána. Kynvillingarnir áfrýjuðu,
og málið fór alla leið til hæsta-
réttar, sem staðfesti dóm undir-
réttar.
Alrikisstjórnin i Washington
hefur ekki skipt sér af kynvilling-
um, nema hvað menn eru reknir
úr hernum, ef þeir verða uppvisir
að kynvillu. Islendingar eru eitt-
hvað frjálslegri i þessum efnum,
am.k. i orði, þvi hér er engin
tilraun gerð með lögum til að
hindra samskipti kynvillinga.
Kviknaði í
slökkviliðsmanninum
Kynvillan ekki
með í stjórnar-
skrónni í USA
Umsjón:^
ólafur Hauksson
v '
Bjór
með
for-
ongr-
inum
Slagurinn utn farþegana í
áætlunarfiugi milli landa er mjög
harður.Flugfélögingera allttil að
vekja athygli á sér, og reyna að
lokka og laöa farþegana til sin.
Bandariska flugfélagið TWA
(Trans World Airlines) ákvað að
bjóða öllum farþegum svalandi
bjór, ef þeir þyrftu að biða lengur
en 14 minútur eftir að farangur-
inn kæmi úr vélunum. Þannig átti
að slá á óánægju þeirra sem
þyrftu að biða lengi, og tryggja að
þeir ferðuðust aftur með flug-
félaginu.
Aldrei kom þó til bjórdrykkj-
unnar. Fyrstu dagana voru hlað-
mennirnir svo snöggir, að enginn
þurfti að biða lengur en 14 minút-
ur. Viku eftir að ákvörðunin um
bjórinn var tekin, komu fulltrúar
áfengisvarnaráðs, og bönnuðu
þetta kostaboð flugfélagsins.
Sögðu fulltrúarnir að þetta yki
aðeins áfengisneyslu, og væri~hún
þó næg fyrir.
Nú geta menn bara beðið i 14
minútur og lengur, með jafn
þurrar kverkar og áður.