Vísir


Vísir - 01.09.1976, Qupperneq 9

Vísir - 01.09.1976, Qupperneq 9
yism , Miövikudagur 1. september 1976 9 Haustsýning Félags islenskra myndlistarmanna var opnuö siöastliöinn laugardag aö Kjarvalsstööum. Þaö er aö sjálfsögöu fagnaöarefni eftir Kjarvalsstaöadeiluna og far- sælar iyktir hennar, aö sýning félagsins skuli komin á fyrri staö aftur. Allt hiisiö er undir- lagt. 139 verk eftir 46 listamenn voru valin af sýningarnefnd, úr um 300 verkum er bárust. Valiö viröist hafa tekist allvel og sýnir vel þá framsókn og breidd, er einkennir islenska myndiist I dag. Ýmsar liststefn- ur eru kynntar og leiöir til margra átta i senn, standa opn- ar. Myndir eftir Sigurö Sigurös- son sj ást ekki oft á sýningum, en Kisilgúr. Jóhannes Geir Jónsson. Einar Hákonarson skrifar: Allt húsið er undorlegt þegarþaö hendir, er yfirleitt um aö ræöa þaulhugsuö og vönduö vinnubrögö, þar sem saman fer næmt listrænt innsæi og hljóöleg lotning fyrir viöfangsefninu. Ragnheiöur Jónsdóttir Ream, er meö sinn djarfa pensildrátt i þrem landslagsmyndum, þó klettamynd hennar samsett, næöi ekki saman aö sinni. Jóhannes Geir Jónsson, á þarna fallegar og stemmnings- rikar myndir, og er langt síöan að ég hef séö eins góö myndverk frá hans hendi. Heiöavötnin hans Kristjáns Daviðssonar, flæöa nokkuö spennulaust yfir myndflötinn. Annars standa fáir Kristjáni á sporði hvaö snertir meöferð lit- anna, sem eru hans sterkasta hliö. Þinn heimur — min veröld. Bragi Ásgeirsson. Farfuglar. Sigurjón Ólafsson. Kjartan Guöjónsson slær sveifluna af miklum krafti og viröist aukast öryggi meö hverri mynd. Valtýr Pétursson er hljóðlát- ari og segir ekki mikiö I þeim tveim málverkum, er hann sýnir. Hörður Agústsson á i all knöppum dansi i smámyndun- um sex, sem þarna hanga eftir hann. „Nýgræðingur” Einars Þorlákssonar virkar ekki nægi- lega þroskaður enn, vegna hrárra lita, Pastelmyndirnar tvær „Uppstilling” og „Útsaumur”, eru mun sam- stilltari i litameðferð. Haukur Dór Sturluson, á þarna allkröftug málverk og teikningar, krafturinn og ákaf- inn gengur þó úr hófi fram i stóra, rauða málverkinu. Mynd- þrenna Bjargar Þorsteinsdóttur nær ekki þeirri spennu, sem æskileg væri vegna of jafnra lita og stærða i formi, en hún er fag- lega gerð. Gunnar örn Gunnarsson hefur misst flugið dálitið siöan á sýningu hans i kjallara Norræna hússins, og hefur litur- inn aöallega lagt á flótta frá ho num. Nokkur bægslagangur er i myndum Arnar Þorsteinssonar, málverk kallað „Baö” er all sannfærandi. Sáldþrykksmyndir Þóröar Hall eru einu grafikmyndirnar á sýningunni, og þær eru virki- lega vel gerðar myndir og dular. Mjög áberandi á sýningunni eru „Klippmálararnir” svo nefndu, með Magnús Kjartans- son i broddi fylkingar. Vinnu- brögð af þessutagi eru ekki ný af nálinni. Myndir þeirra Magnúsar, Sigurðar örlygs- sonar og Ómars Skúlasonar eru að visu ólikar, en myndhugsun- inogafstaöan til myndgeröar er sú sama, og apa þeir sumt hvað eftir öörum. ómar og Magnús eru hvaö skyldastir, en Siguröur byggir myndir sinar hreinna upp. Myndirnar likjast milli- bilsástandi átaka og með meiri ögun formsins, kæmi festa i þær. Litameðferðin er þó lengra komin, sérstaklega hjá Ómari. Bragi Ásgeirsson sýnir myndir af kynfærum, sem hann hefur viðað að sér úr ýmsum áttum og klippt til, I þeim til- gangi að skapa vissar stemmningar. Mynd han „Þinn heimur — min veröld” sam- bland af fuglsvængjum o.fl. er sterkasta verk hans á sýning- unni. Eirikur Smith á smekklega unnar vatnslitamyndir af fólki i landslagi, mér sýndist það vera hulduverur. Eyjólfur Einarsson er i sókn I sinu málverki, en Jóni Reykdal vantar lif i' myndirnar. 1 myndvefnaði ber Asgerður Búadóttir höfuð og herðar yfir stallsystur sinar, sem þarna sýna vefnað, og hef ég ekki i langan tima séð eins vel unnin og heilleg verk i þessari list- grein. Myndverk þeirra hjóna Margrétar Þ. Jóelsdóttur og Stephen Fairbairn eru fölar og átakalausar. Það dugir ekki bara vandað og fallegt hand- Tvö SS I morgunleikfimi. Magnús Kjartansson. bragð, innri optisk spenna verð- ur að koma til. Skúlptúrinn er af skornum skammti, en eins og oft áður er það kempan Sigurjón Ólafsson, sem heldur uppi merki þeirrar listgreinar hvað mest. Far- fuglar hans fljúga vel og af miklum krafti. Og gaman er af stóru hvitu formunum, sem vaxauppúr gólfinui endanum á vestri sal. Myndir Ragnars Kjartans- sonar njóta sin mun betur smáar, en stórar. Hallsteinn Sigurðsson er skiptur milli massivra forma og járnaleiks. Glermyndir Eyborgar Guð- mundsdóttur taka sig ágætlega út á ganginum. Leifur Breiðfjörð hefur sér- stöðu i islenskri list, vegna gler- mynda sinna, sem eru unnar af smekkvisi og ekki sakar að efnið er mjög fallegt fyrir aug- að. Stóra hringlaga myndin er skrautleg þegar sólin skin i gegnum hana. Ég hef leyft mér að finna að einu og öðru á þessari stóru sýn- ingu og gæti sem best tint fleira til, en læt þetta nægja. Haust- sýning G.I.M. 1976 sannar enn betur nú, hve nauösynleg hún er. Ungt fólk fær þarna tækifæri til að koma fram, og viður- kenndara myndlistarfólk kemur oftar fram en ella. Almenningur kynnist þeim hræringum, sem eru að gerast i myndlist okkar árlega og þá er tilganginum náð. Ég vil þvi hvetja fólk til þess að skoða þessa sýningu, en hún stendur til 12. september. Kynjaskógur. Sigurður Sigurðsson.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.