Vísir - 13.09.1976, Blaðsíða 1

Vísir - 13.09.1976, Blaðsíða 1
Mánudagur 13. september 1976. 219. tbl. 66. árg. Sjálfstætt vandaó 09 hress/legtjp* Maó fejsm Skofglaður sjómaður gekk berserksgang Skaut ó fólk og hús á Höfn í Hornafirði í gœrmorgun — Einn maður varð fyrir skoti og var fluttur á sjúkrahús Ungur maður gekk berserksgang á Höfn i Hornafirði snemma f gærmorgun. Skaut hann úr haglabyssu á allt sem fyrir varð og særði einn mann, sem kom til að aðgæta hvað um var að vera. Byssumaöurinn, sem er sjó- maöur á bát er lá við bryggju i Höfn, haföi setiö aö drykkju um nóttinaásamt öðrum manni. Éitt- hvaömunhafa slest uppávinskap- inn, er liða tók á morgun og bæj- arbúar að risa úr rekkju. Aðkomumaöurinn rauk þá út og náði i haglabyssu, sem taliðer að hann hafi átt um borð i bátnum. Með hana undir hendinni hélt hann af stað til að leita aö þeim sem hann var að rifast við, en fann hann hvergi. Varð hann þá alveg óður og hóf aö skjóta úr byssunni á allt sem hann sá. Voru þaöaðaliega hús og bilar, en m.a. skauthann á dekk á bil sem þarna stóðog tættistþað i sundur. Maður sem þarna kom að, varð fyrir nokkrum höglum sem dreifðust um allt er byssumaður- inn hleypti af. Fékk hann höglin i handlegg, læri og bakið, en mun ekki hafa slasast lifshættulega. Lögreglan i Höfn var þegar kvödd á vettvang, en áður en hún kom var byssumaðurinn búinn með skotin og farinn aftur um borð i bátinn. Þangað hélt lögreglan á eftir honum. — Var hann hinn róleg- er lögreglan kom um borö — af- henti henni byssuna og fór mót- þróalaust með henni i fangelsið á Höfn, þar sem hann situr enn. Það ríkti mikil gleði meðal valsmanna á Laugardalsvellinum í gær eftir að Valur hafði unnið Akranes 3:0 í úrslitaleik Bikarkeppninnar. Hér sjást þeir Sigurður Dagsson, Aili Eðvaldsson, Bergsveinn Alfonsson og Guðmundur Þorbjörnsson hlaupa „heiðurshring" á vellinum með bikarinn eftirsótta. Sjá nánar um iþróttaviðburði helgarinnar í iþróttablaði Vísis sem fylgir blaðinu i dag. Hvert fara ungling- arnir? u Vara vi Moons hérlendis" Skóflu- stunga að kvart- mílubraut Jarðstöðin reist i samvinnu við Mikla norrœna ritsimafélagið „Losnum með þessu undan ákvœðum gamla samningsins" ,,Með þvi að fá Mikla norræna ritsimafélagið til samvinnu við okkur um jarðstöðina losnum við undan ákvæðum gamla samningsins,” sagði Brynjólfur Ingólfsson, ráðuneytis- stjóri i samgönguráðu- neytinu i morgun þegar Visir spurðist fyrir um ástæðu þess að fyrir- hugað er að reisa jarð- stöðina i samvinnu við Mikla norræna. Brynjólfur sagði aö af hálfu Mikla norræna hefði ekki verið fallist á þaö að Islendingar byggðu jaröstöð utan einka- leyfissamningsins, sem gildir til 1984. Þvi hefði veriö um það að ræða að hætta á að vanefna samninginn og lenda i skaða- bótamáli eða að fá Mikla norræna til samvinnu um stöð- ina og losna á þann máta undan ákvæðum samningsins. Ennþá liggja ekki fyrir endanlegar tölur um kostnað stöðvarinnar, en Brynjólfur sagöi það þó vera alveg ljóst aö islendingar myndu eiga veru- legan meirihluta hennar frá upphafi. —SJ Kirkjubóli sóttur heim Halldór ó

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.