Vísir - 13.09.1976, Side 7
7
Víkur hvergi út af
aðskilnaðarstefnu
EBE lœtur flug-
rán til sín taka
John Vorster, forsætis-
ráðherra S-Afríku, sagði í
viðtali í sjónvarpi S-
Afríku, að hann hefði
ekki hugsað sér, að
blökkumenn, kyn-
blendingar eða íbúar
asíuættar eignuðust full-
trúa i miðstjórn landsins.
Viðtalið var i tilefni þess, að i
dag eru tiu ár liðin frá þvi, að
Vorster varð forsætisráðherra,
og virðist greinilega þeirrar
skoðunar enn, að aðskilnaður
kynþáttanna sé heppilegastur
landi hans.
---------------------*-
Kyrrð hcfur aftur komist á i
Ilöfðaborg eftir mannskæðar
óeirðir siðustu daga. 20 manns
voru drepnir þar i borg, en ails
hafa nær 300 manns fallið i
óeirðum i S-Afriku siöustu
vikur.
Hann sagði hinsvegar, að
blökkumenn mundu eignast
fulltrúa i stjórnum hinna fyrir-
huguðu 9 fylkja, sem ætlunin er
að stofna i S Afriku.
A föstudag mun hann taka á
móti Henry Kissinger, utan-
rikisráðherra Bandarikjanna,
sem i siðustu viku fordæmdi að-
skilnaðarstefnuna og sagði hana
„ósamboðna mannlegri virð-
ingu”. — Þeir höfðu þá átt við-
ræður i Zurich um vandamál S-
Afriku, en eftir þær sagöi Vorst-
er, að ,,s-afrikumenn mundu
ákveöa innanrikis- og utanrikis-
stefnu sina sjálfir”.
Þrátt fyrir óeirðirnar að
undanförnu, sem sprottnar eru
upp af tilraunum blökkumanna
og kynblendinga til að öðlast
meiri hlutdeild i stjórnun sinna
eigin málefna, sagðist Vorster
vera ánægður með framfarirn-
ar i landinu i stjórnartiösinni. —
Ekki var minnst á þau 300
manna, sem látið hafa lifið i
átökunum undanfarnar vikur.
Utanríkisráðherrar
aðildarrikja EBE hafa
lýst yfir stuðningi
við samningaferð Kiss-
ingers til S-Afriku, en
hún hefst i dag.
Jafnframt lýstu þeir
yfir stuðningi við tillögu
Dietrich Genscher frá
V-Þýskalandi um að
þjóðir heims geri með
sér samkomulag um
framsal á flugræningj-
um.
EBE-löndin níu munu ekki eiga
hlut i neinum aðgerðum gegn
S-Afriku á meðan á ferð Henry
Kissingers stendur, en hann er á
leið til Tansaniu, Zambiu, og
S-Afriku, og ætlar að beita sér
fyrir þvi, að blökkumannameiri-
hluti Namibiu fái stjórn landsins i
sinar hendur, og eins að blökku-
menn Ródesiu fái hlut i stjórn
landsins.
Tillaga Vestur-þýska utanrikis
ráðherrans hlaut einróma fylgi
hinna allra, þar sem hann leggur
til, að undirritaður verði al-
þjóða-sattmáli um flugrán. Mun
hann bera tillögusina upp á alls-
herjarþingi Sameinuðu þjóðanna,
en það hefst siöan i þessum mán-
uði.
Þeir, sem undirrita sáttmál-
ann, skuldbindasig til aðsækja til
saka flugræningja, sem hand-
samaðir eru i lögsagnarumdæmi
þeim, eða framselja þá yfirvöld-
IRA missir spón úr aski sínum
Gaddafi leiðtogi Libiu hefur
gefið I skyn aö hann kunni að
hætta að styðja hryðjuverka-
menn IRA á Norður Irlandi.
Gaddafi sagði að samskipti
stjórnar sinnar við breta og ira
færu ört batnandi og horfur
væru á að stjórnmálasamband
yrði tekið upp viö trland á næst-
unni.
Libiumenn hafa séð hryðju-
verkamönnum fyrir vopnum og
peningum i verulegum mæli siö-
ustu misseri.
VILJA SJALFSTJ0RN
FYRIR KATALÓNÍU
Stærsta mótmælaganga
á Spáni frá því, að borg-
arastríðinu lauk i landinu
fyrir hartnær fjörutíu
árum, var farin i Barce-
lona um helgina. 50.000
manns komu saman í út-
hverfi Barcelona og kröfð-
ust sjálfstæðis til handa
Katilóniu.
Múgurinn söng á katalónsku og
ræðumenn kröfðust þess, að með
lýðræðinu sem spanverjum hefur
verið lofað af stjórnvöldum komi
sjálfstjórn fyrir Katalóniu. Kata-
lónia hlaut takmarkaða sjálf-
stjórn árið 1932, en eftir borgara-
striðið sem hófst skömmu seinna
var héraðið innlimað aftur með
öllu i Spán.
1 borgum Katalóniu og þá
einkum Barcelona mátti sjá fána
héraösins blakta við hún um helg
ina.
um þess lands, sem flugvélin var
frá.
Flóð
Skrifstofumenn i sumum
hverfum Tokio þurftu að fara úr
buxum og skóm á leið sinni til
vinnu fyrir helgina og vaða vatn
uppi hné. Mikil flóð hafa verið i
mörgum löndum Asiu siðustu
daga og fórust a.m.k. 25 af
þrirra völdum i Thailandi.
Heróín fyrir
milljarð
Lögreglan i V-Þýskalandi
hefur handtekið tvo malasiu-
menn og fundið i fórum þeirra
mikið magn heróins. Andvirði
heróinsins. sem vó 43 kiló. er
talið vera rúmlega 1 millj-
arður islenskra króna. Talið
er að heróinið hafi verið ætlað
á markað i Amsterdam. en
borgin er dreifingarmiðstöð
fyrir eiturlyf á Vesturlöndum.
Eitrið var falið i skipi og
náðust smyglararnir þegar
þeir reyndu að koma þvi frá
borði i hafnarborginni
Bremen.
Þetta er stærsta eiturlyfja-
smyglmál sem komiðhefur
upp i Þ\skalandi.
Spánarkon-
ungur fœr
aukin völd
Spánska stjórnin gaf út um
helgina drög aðfrumvarpi sem ef
samþykkt verður mun gefa kon-
ungiaukin völd. Frumvarpsdrög-
in gera einnig ráð fyrir að komið
verði á fót þjóðkjörnu þingi. sem
konungur getur sniðgengið með
þvi að efna til þjóðaratkvæðis um
einstök mál. Stjórnarandstaðan
er andvig frumvarpsdrögunum
og hefúr gagnrýnt stjórnina fyrir
að ráðfæra sig ekki við stjórnar-
andstöðuna um málið. Einnig
hefur stjórnin verið gagnrýnd
fyrir að ætla að fresta úrlausn
ýmissa aðkallandi mála fram
yfir kosningar tii þingsins. Aukin
hætta er nú á verkföllum á Spáni
þar eð verkalýðsfélögin hafa náð
samstöðu um harðari kjarabar-
áttu.