Vísir - 26.01.1977, Qupperneq 3
3
vísm
Miðvikudagur 26. janúar 1977
SAMTÖK FRJÁLSLYNDRA OG
VINSTRIMANNA ENDURREIST?
Magnús Torfi boðar til
fundar í flokksstjórn SFV
Magnús Torfi Olafsson, for- óskum rúmlega 2/3 hluta
maöur Samtaka frjálslyndra og flokksstjórnarmanna SFV og
vinstrimanna, hefur orðið við boðaö til fundar I flokksstjórn-
inni 5-6. mars næstkomandi, að
þvi er segir i Nýjum þjóðmáíum
málgagni SFV, sem komu út i
gær.
I blaðinu segir, að i flokks-
stjórn SFV hafi verið kjörnir 75
manns úr öllum kjördæmum á
siðasta landsfundi, sem haldinn
var 1974. Hafi 53 þeirra óskað
eftir, að flokksstjórnin verði
kölluð saman, og skrifleg beiðni
þar að lútandi hefði borist s.l.
mánudag frá 42.
Sem kunnugt er samþykkti
framkvæmdastjórn SFV i
okt. siðastliðnum að leggja
niöur störf. Flokksstjórnin er
hins vegar framkvæmda-
stjórninni æðri samkvæmt
skipulagi SFV, og þarf einungis
15 flokksstjornarmenn til þess
að óska eftir fundi i henni.
í blaöinu er skýrt frá þvi, aö
við könnun á vilja flokks-
stjórnarmanna hafi komiö i ljós,
að niu þeirra heföu sagt skilið
viö Samtökin. —ESJ
„Séní órsins"
í Svíþjóð treður
upp í Reykjavík
Sænsku visnasöngvararnir
Lena Nyman og Rune Anderson
eru nú stödd hér á landi i boði is-
lensk-sænska félagsins og Nor-
ræna hússins. Þau haida hérna
þrenna tónleika, og verða þeir
fyrstu annað kvöld ki. 20:30.
Lena Nyman er þekktari fyrir
leik sinn en söng. Hún kom fyrst
fram i kvikmynd 7 ára gömul, en
varð fræg fyrir leik sinn i kvik-
myndum Vilgöt Sjömans
„Forvitin — gul” og „Forvitin —
blá”. Hún leikur nú eitt aðalhlut-
verkið i „Nótt ástmeyjanna” eftir
Per Olov Enquist hjá Dramaten i
Stokkhólmi.
Sænska blaðið „Damernas”
kaus Lenu Nyman „Séni ársins”,
fyrir frammistöðu hennar i Nótt
ástmeyjanna og reviunni „Svea
Hund” og fyrir túlkun hennar á
ljóðum Karin Boye.
Samstarf þeirra Lenu og Rune
Andersson hófst fyrir þremur ár-
um og hafa þau siðan gefið út
þrjár plötur. Rune Anderson er
meðal yngri fulltrúa hinna hefð-
bundnu, næstum sérsænsku
trúbadúra, eða visnasöngvara,
sem syngja ekki eingöngu visur
annarra heldur semja sjálfir ljóð
og lag.
Hann hefur i ljóðum sinum
mest fjallaö um einmanaleikann i
borgum og fólk sem er á einhvern
hátt öðruvisi en við hin. Segist
hann álita að söngvar um vanda-
mál þessa fólks veki umræður
um þau, hvort sem fjallaö sé um
þau á sorglegan eöa fyndinn hátt.
A tónleikunum munu þau Lena
Nyman og Rune Anderson flytja
visur og kvæði eftir ýmis sænsk
skáld, en meirihluti visnanna eru
eftir Rune. Undirleikari er Karl
Möller. Fyrstu tónleikarnir veröa
eins og áður sagöi á morgun
fimmtudag, en hinir tveir verða á
laugardaginn og sunnudaginn og
hefjast þeir báðir kl. 16. —SJ
Menntamálaráðherrar Norðurlanda:
„NORRÆNT HÚS"
í FÆREYJUM OG
MENNINGARMIÐ-
STÖÐ í
FINNLANDI
Ákveðið hefur verið að
hefja byggingu /,norræns
húss" í Þórshöfn í Færeyj-
um, og er gert ráð fyrir, að
smiði hússins taki 3-4 ár.
A fundi menntamálaráðherra
noröurlanda, sem haldinn var i
Kungalv I Sviþjóð á dögunum, var
samþykkt að efna til norrænnar
samkeppni arkitekta um gerð
hússins, og veittar i þvi skyni 175
þúsund krónur danskar, sem
jafngildir hátt á sjöttu milljón
islenskra króna Aætlaö er, að
húsið kosti samtals um 9 milljónir
danskra króna, eða hátt I 300
milljónir, islenskra, og er lóöa-
kostnaður þá ekki meðtalinn, en
færeyingar munu greiða hann
einir.
Þá var einnig, samþykkt á
þessum fundi að stofna norræna
menningarmiðstöð I Sveaborg I
Finnlandi, er vinni að þvi aö
koma á fót myndlistarsýningum
og annast dreifingu þeirrá, veita
upplýsingar um norræna mynd-
list, koma á fundum og nám-
skeiðum um ýmis efni á áhuga-
sviði myndlistarmanna og fleira.
Stofnunin á að taka til starfa áriö
1978. —ESJ
Stjórnarkjör í
Rithöfundaráði:
Matthías
Johannessen
formaður
Matthias Johannessen, skáld
hefur veriö kjörinn formaður
Rithöfundaráðs islands tii
næstu 3 ára. A fundi stjórnar
rithöfundaráös INorræna hús-
inu, s.l. föstudag baðst Indriði
G. Þorsteinsson undan endur-
kjöri sem formaöur. Aðrir i
stjórn voru kosnir Einar
Bragi, skáld og Guömundur
Danielsson, rithöfundur.
L .....................