Vísir


Vísir - 26.01.1977, Qupperneq 8

Vísir - 26.01.1977, Qupperneq 8
8 Miðvikudagur 26. janúar 1977 vism SPRENGJUÁRÁS Á ELLIÐAÁRNAR Eins og við höfum áður sagt frá hafa Elliðaárnar verið aö angra starfsmenn rafmagns- stöðvarinnar við Elliðaár að undanförnu. Hefur stöðin ekki fengið nægi- legt vatn úr ánni, og er þar um að kenna klakastiflum, sem myndast hafa fyrir neðan Elliðavatn. Starfsmenn stöðvarinnar undir stjórn Jóns Asgeirssonar stöðvarstjóra hafa staöið fyrir þessum sprengingum og notað til þess dinamit með sérstökum kveikjuþræði. Binda þeir stein við hverja sprengju og kasta henni siðan út I ána undir klakann. Nokkrum sekúndum eftir að sprengjan hefur fallið kveður viö hár hvellur, og upp gýs vatn og Is. I flestum tilfellum tekst að rjúfa stífluna með einni sprengju og er þá haldiö ofar að næstu stiflu þar sem önnur „sprengja” er látin falla. Þannig er haldið áfram þar til vatnið fer að renna eðlilega I ánni. Myndirnar hér á siöunni eru teknar i siðustu sprengjuárás starfsmanna rafmagnsstöðvar- innar á klakastiflurnar I Elliða- ánum, og gekk þá mikiö á eins og glöggt má sjá á myndunum. —klp Þeir Páll Sveinsson og Sigurður Sæmundsson að ganga frá einni sprengjunni, sem á aö rjúfa klakastiflu 1 Elliöaánum. Nú er að koma sér út á klakann og I kastfæri við staðinn, þar sem sprengjan á að falla. ts og vatn gýs upp I loftið. Stiflan er þar með brostin og vatnið fer að renna eðlilega á svæðinu. Sprengjunni kastað og nokkrum sekúndum siðar kveður viö hár hveliur Lögreglan er mætt á staðinú og sér til þess að óviökomandi séu ekki að flækjast of ná- lægt sprengjusvæðinu. Ljósmyndir: Loftur Asgeirsson. SANDUR í NEYT- ENDAPAKKNINGUM — fyrir bílstjóra sem ekki nota neglda hjólbarða Þeir bilstjórar sem ekki nota neglda hjólbarða undir bilana sina fá nú sand sér til hjálpar, frá gatnamálastjóranum, i Reykjavik. Bilstjórunum til hagræðis verður sandinum út- hlutað i 15 kilóa pokum. Gatnamálastjóri hefur eins og kunnugt er bent oftlega á hve negld dekk slita malbiki á göt- um borgarinnar. Hefur hann þvi fremur mælt með þvi að menn notuöu ónegld dekk, en heföu sand meö sér I bilnum. Ennfremur hefur hann bent á aö meö saltburði á götur Reykja- vikur mætti hætta notkun negldra hjólbarða. Og nú hyggst gatnamálastjóri afhenda mönnum sand i pokum, ókeypis. Sandurinn verður af- hentur i hverfabækisstöövum gatnamálastjóra viö Meistara- velli, Sigtún og Sævarhöfða virka daga frá klukkan 7,30 til 16. —EKG Vandi Loðskinns hf. að leysast Iðnaðardeild SIS hefur hækk- að tilboð sitt um hráefni til Loð- skinns hf. á Sauðárkróki um 40 þúsund gærur og býður nú alls 75 þúsund. Jón Asbergsson, fram- kvæmdastjóri Loöskinns, segir að þetta gangi langt I að mæta þörfum verksmiðjunnar, en þó vanti 45 þúsund gærur uppá, til aö verksmiðjan geti starfað allt árið. Er von til að hún geti bætt sér þetta upp með gærum frá öðrum aöilum en þeim sem eru aðildarfélög að SIS. 1 viöræðunum hefur Loðskinn h.f. lagt áherslu á aö tryggja sér hráefni i framtiðinni. Haldið verður áfram saningaviðræðum um nokkur atriði sem enn eru óleyst. —ÓT.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.