Vísir - 03.02.1977, Side 4
4
Fimmtudagur 3. febrúar 1977
vism
Umsjón:
GuðmumJur
Pétursson
Sovétríkin
frjálsari en
Danmörk,
ef þau ef na
loforð sín,
— segir sagnfrœðingurinn, Andrei Amalrik
Andrei Amalrik,
sagnfræðingur, sem nú
er útlægur úr Sovét-
rikjunum vegna and-
stöðu sinnar gegn
stjórnvöldum, varaði i
gær vesturevrópumenn
viðþvi að treysta um of
rikisstjórnum sinum til
að halda i horfinu sam-
búð þeirra við Sovét-
rikin.
Hann kvaö breta vera eitt
gleggsta dæmiö um stjómmála-
menn, sem tryöu þvi, aö jafn-
vægi væri fundiö i sambúöinni
viö Sovétrikin og ekki mætti
setja þaö úr skoröum út af
mannréttindum ööruvísi en eiga
á hættu breytingar til hins
verra.
Amalrik mælti þetta á fundi
meö blaöamönnum í Káup-
mannahöfn, þar sem mann-
réttindanefndin, er kennir sig
viö Shaharov, kom saman i gær.
„Vestur-Evrópa gerir sér
ekki grein fyrir þvi, að hún er
einungis litill hluti heimsins,
umkringd rikjum, sem vilja
uppræta hana,” sagöi hann.
Hann hvatti vestur-evrópuriki
til þess að leggja fastar aö
Sovétrikjunum á Belgraderáö-
Andrei Amalrfk, sagnfræöingur
og andófsmaöur. Myndin er frá
komu hans til Vesturlanda.
stefnunni næsta sumar að viröa
betur mannréttindi. A ráöstefn-
unni veröur litiö um öxl frá
undirritun Helsinkisáttmálans
hvernig til hefur tekist um sam-
vinnu austurs og vesturs eftir
undirritun hans.
,,Ef Sovétrikin væru látin
halda alla sfna samninga sem
þau hafa undirritaö, væru þau
frjálsara riki en Danmörk,”
sagöi Amalrik.
Flytja B.T. og Berling-
ur úr landi?
1 prentarasalnum hjá Berlingi:
Formaöur prentara (hvithærö-
ur og snýr baki i ljósmyndar-
ann) ráöfærir sig viö félags-
menn vegna deilunnar viö út-
gefendur.
tJtgefendur ,,Ber-
lingske tidende” og
,,B.T.” i Danmörku,
sem hafa ekki komið út
núna þrjá daga i röð,
hafa hótað að flytja út-
gáfustarfsemina úr
landi.
Olaf Poulsen, framkvæmda-
stjóri útgáfunnar, sagöi aö fyrir-
tækiö ihugaöi þennan möguleika.
— En samningaviöræöur hafa
lagst niöur og miöar ekkert i átt
til lausnar.
Deila spratt upp viö prentara
og blaöamenn, þegar innleiöa átti
nýja tækni viö útgáfu blaðanna,
sem mundi fækka starfsfólki um
1,000. Var fólkinu sagt upp, en
hinir lögöu niður vinnu i mót-
mælaskyni.
Otgefendur hafa ekki sinnt til-
mælum Ankers Jörgensen for-
sætisráðherra um aö hefja aftur
útgáfu og fresta deilunni fram yf-
ir kosningar 15. febrúar. svo aö
kosningabaráttan geti fariö eöli-
lega fram.
■ Ullll
I jpSsLI
j | alM
EBE setti
rússum
úr-
slitakosti
um
veiðar
innan
200
mílnanna
Sovétrikin hafa
gengist inn á að hefja
samninga við Efnahags-
bandalag Evrópu um
veiðikvóta fyrir rúss-
neska togara innan
hinnar nýju 200 milna
fiskveiðilögsögu EBE.
Heildarrikin niu settu sovét-
mönnum, austur-þjóðverjum og
pólverjum úrslitakosti 28. janúar.
Ef þessar þjóöir ekki settust aö
samningum um veiöi fyrir togara
sina, fengju þeir ekkert aö veiöa
innan 200milnanna eftir31. mars.
Bretland, sem situr I forsæti
EBE þetta áriö, kom þessum úr-
slitakostum á -framfæri viö
austantjaldsrikin. Sovétmenn
tóku strax vel i aö hefja vibræöur,
en ekkert svar hefur borist frá
austur-þjóöverjum eöa pólverj-
um.
Fram til þessa hefur moskvu-
stjórnin hundsaö öll tilmæli EBE
um viðræöur vegna útfærslunnar.
EBE ætlar sér aö fækka togur-
um þessara þriggja á miöum
innan 200 milnanna á timanum
frá 8. febrúar til 31. mars. Þeim
skipum, sem eftir veröa, verður
úthlutaö sérstökum veiðileyfum.
Þau fá þó ekki að veiða smásild.
EBE gerir sér hugmyndir um
aðleyfa 27 togurum frá Sovétrikj-
unum aö veiða innan 200 miln-
anna, og þó aöeins 17 i einu.
Austur-þjóöverjum er ætlaöur
veiöikvóti fyrir sex togara, þar
sem fimm væru aö veiðum I einu.
Pólverjar fá aö hafa fimm togara
og mega þeirallir vera aö veiöum
i einu.
Gert er ráö fyrir, að sovétmenn
fái aö veiöa allt aö 38.474 smálest-
ir af fiski fram til 31. mars,
austur-þjóöverjar 3,395 smá-
lestir og pólverjar rúmar 3,000
smálestir.
Þessum þrem austantjaldsrikj-
um var veittur tiu daga frestur til
þess aö svara þessu tilboöi.
Spó óframhaldandi kulda í USA
Sumstaðar í Banda-
ríkjunum dró ögn úr
mesta frostinu í gær og
hófst snjómokstur í þeim
borgum, þar sem mestu
hefur kyngt niður.
En veðurfræðingar spá
því, að frost eigi eftir að
herða aftur, áður en þessi
frostavetur Bandaríkj-
anna (sá versti sem kom-
ið hefur á öldinni) líður
hjá.
— Og á meðan menn
kvíða því, að spjöll eigi
eftir að hljótast af flóð-
um, sem fylgja muni
hlákunni, þegar hún loks
kemur, þá valda þurrkar
erfiðleikum í vestur-
rikjunum.
„Það er algert neyöar-
ástand,” sagöi einn sýslu-
nefndarmanna I nágrenni San
Francisco, en þar i sveitum hef-
ur veriö gripiö til þess aö
skammta vatn.
Á meöan 2,000 landgönguliöar
flotans voru sendir til Buffalo aö
moka snjó, eftir fimm daga
samfelldan byl, hafa land-
búnaöarráöunautar áhyggjur af
snjóleysinu á „kornbeltinu
mikla” I vesturrikjunum.
Flesta vetur hlifir snjór þar
jöröinni fyrir frostum og sér svo
fyrir raka að vorinu. Falli ekki
snjór I vesturrikjunum vofir yfir
vatnsskortur.
Hinum megin I Bandarikjun-
um gátu ibúar I Buffalo og nyrst
i New York-riki snúið sér aö sin-
um vanda meö hækkandi sól um
leiö og vindur tók aö ganga niö-
ur. Þar hefur snjókoma verið
176 cm frá þvi 1. janúar og vald-
iö samgöngutruflunum, uns um-
ferð stöðvaðistalveg á föstudag,
þegar geröi blindbyl. (Atta
manns hafa farist lokaöir i bif-
reiðum sinum, fastir i snjón-
um.)
Hitastig komst loks upp undir
frostmark 1 gær i Buffalo, i
fyrsta sinn frá þvi um jól. tbúar
fögnuöu eins og frelsandi engl-
um snjóplógum og hermönnum,
sem byrjuöu að ryðja þar götur i
gær, en skaflar voru allt aö átta
metra háir.
Fundu menn hlýindi i lofti,
einkanlega I Dakotafylkjunum
og miðrikjum, en veðurfræðing-
ar spá þvi samt, að febrúar
veröi kaldari en vanalega.
Sveitafólk i Pennsylvaniu
þurfti þó enga veöurfræöinga til
þess aö segja þvi, hvaö i vænd-
um er. Þaö haföi veitt þvi eftir-
tekt, að jarösviniö hafði fælst
skugga sinn og hlaupið aftur i
holu sina. Þaö er gömul þjóö-
saga, að þegar slikt ber upp á 2.
febrúar, megi búast viö frostum
næstu sex vikurnar til viöbótar.
Bandarikjaþing tók til um-
ræðu i gær frumvarp Carters
forseta um neyðarráöstafanir
vegna skorts á jarðgasi. Það
gerir ráð fyrir, aö skrúfa megi
fyrir gas til ibúa ríkja, sem
sloppiö hafa viö verstu kuldana,
og bæta öörum upp gasskort.
Gasskortur hefur leitt til þess að
tvær milljónir hafa misst at-
vinnu sina i bili.