Vísir - 05.03.1977, Síða 20
VÍSIB
Laugardagur S. mars 1977
Kjaramálin:
Samninganefnd
ASÍ á fundi á
mánudag
„Samninganefnd Alþýöu-
sambandsins kemur saman til
sins fyrsta fundará mánudag-
inn, og eftir þaö ættu viöræöur
aö geta hafist”, sagöi ólafur
Hannibalsson, skrifstofustjóri
ASl i viötali við Visi.
A kjaramálaráðstefnu ASl
var kjörinn 21 maður i
samninganefnd, en ýmsir aö-
ilar innan ASt áttu sföan aö
skipa 15 til viöbótar og hafa
þær tilnefningar verið aö
koma inn þessa dagana.
— ESJ
Tugirórekstra
í blíðviðrinu
Fádæma taugaveiklun greip
um sig meðal ökumanna i
Reykjavik í gær I sól og biiöu.
Frá hádegi tilklukkan 20 uröu
24 árekstrar og þar af uröu 16
árekstrar frá klukkan 15 til 20.
Slysarannsóknardeild lög-
reglunnar kunni engar skýr-
ingar á þessu árekstursfári
þar sem ökuskilyrði voru eins
og best veröur á kosiö. Umlerö
var hins vegar geysimikil all-
an daginn i gær og kannski er
árekstrafjöldinn ekki svo æö-
islegur þegar tillit er tekiö til
fjölda bila sem voru á götun-
um.
Sem betur fór voru ekki slys
á fólki nema i einu tilfelli þar
sem ökumaöur var fluttur á
sjúkrahús eftir aftanákeyrslu.
— SG
Loðna til
Bolungarvíkur
Mjög góö loönuveiöi var siö-
asta sólarhring. 49 skip meö
um 15 þúsund tonn höföu til-
kynnt um afla er Visir ræddi
við loönunefndarmenn i gær-
kvöldi.
bróarrými er nú þrotiö á
þeim stööum þar sem styst er
að sigla meö aflann. Fóru bát-
arnir meö aflann allt frá Seyð-
isfirði og vestur um til Bol-
ungarvikur.
Til Bolungarvikur hefur
ekki komið loðna frá þvi I
upphafi vertiðar. En i sumar
var verksmiöjan þar miðstöö
loönubræöslunnar, enda þá
styst aö sigla þangað með
afla.
Undanfariö hefur rannsókn-
arskipiö Bjarni Sæmundsson
veriö viö loðnuleit viö Vest-
firöi og fundiö töluvert magn.
Er búist við aö skipin sem
sigla til Bolungarvikur kanni
þaö svæöi og reyni hugsanlega
aö kasta. —EKG
Veiðibann
Ráöuneytiö hefur gefið út
reglugerö um bann viö þorsk-
veiðum meö flotvörpu fyrir
Suöur- og Vesturlandi. Reglu-
gerö þessi, sem sett er aö
fengnum tillögum Haf-
rannsóknastofnunarinnar, er
sama cfnis og reglugerö sem
gefin var út s.l. vetur að til-
lögu fiskveiöilaganefndar.
Samkvæmt þessari reglu-
gerö eru þorskveiöar I flot-
vörpu bannaöar á timabilinu
10. mars til 1. júni 1977 i Is-
lenskri fiskveiöi
landhelgi á svæði sem að aust-
an markast af linu, sem dreg-
in er réttvisandi austur frá
Stokksnesi og vestur um aö
linu.sem dregin er réttvísandi
vestur frá Látrabjárgi.
JARÐSKJÁLFTINN í MIÐ-EVRÓPU MÆLDIST VIÐ KRÖFLU:
Búkarest einangruð
Mikili jaröskjálfti varö i
Rúmeniu I gærkvöldi og er ótt-
ast aö mikið tjón hafi orðiö i
Búkarest höfuöborg landsins og
viðar.
Grátandi simastúlka sem
simasamband náöist viö i Búk-
arest sagöi, aö þaö heföi oröiö
mikið tjón i borginni vegna
skjálftans, og aö ekki væri hægt
aö ná simasambandi viö neinn
aöila i Búkarest, þar sem allar
linur heföu fariö úr sambandi.
Fréttir af tjóninu voru þvi mjög
af skornum skammti í gær-
kvöldi.
Skjálftinn var taiinn vera um
7.2 stig á Richtersskala, og
mældist hann víöa um heim, þar
á meöal á jaröskjálftamælana
viö Kröfiu kl. 19.27. Búkarest er
á miklu jaröskjálftasvæöi og i
um 500 kilómetra fjárlægö frá
Skopje, sem lagöist i rúst i jarö-
skjáifta áriö 1963.
ESJ/Reuter
Skólanemendur I kröfugöngunni. A stærri myndinni hafa
næmst viö húsnæöi próf nefndar i Ingólfsstræti en á þeirri í
eitt kröfuspjaldanna. — Ljósmynd Jens.
Afhentu mótmœla-
bréf til ráðherra
Fjöldi nemenda niunda bekkj-
ar grunnskóia i Reykjavik
heimsóttu menntamálaráöu-
neytiö i gær og afhentu þar bréf
til menntamálaráöherra vegna
framkvæmdar hinna sam-
ræmdu prófa grunnskóia.
,,betta voru ósköp kurteisir og
elskulegir nemendur, sem hing-
aö komu með bréfiö til ráö-
herra”, sagöi Birgir Thorlacius,
ráöuneytisstjóri, i viðtali viö
Visi.
Menntamálaráöherra var
staddur úti á landi, en nemend-
urnir afhentu ráöuneytis-
stjoranum bréf til ráðherrans.
I bréfinu segja nemendur 9.
bekkjar grunnskóla I Reyjavik
viö menntamálaráðherra:
„bessi ganga okkar til yðar I
dag er farin til þess að undir-
strika óánægju okkar með
framkvæmd samræmdra prófa,
sem fram fóru i siðustu viku.
Viö teljum okkur hafa stuðning
meginhluta kennara og skóla-
stjórt. flestra gagnfræöaskóla
landsins. Sem dæmi um órétt-
lætið viljum við benda á það, aö
jafnvel þótt allir nemendur
næöu A-einkunn, gætu aðeins
280 þeirra hlotið hana, af þess-
um 4000, sem tóku prófiö.
Auk þess teljum við tilhögun
prófanna mjög óbótavant. Við
hefðum t.d. gjarnan viljaö
sjá úrlausnirokkar tilað læra af
okkar eigin mistökum.
bess vegna óskum við þess,
að áðurnefnd prófverð ekkilhöfö
til viömiðunar á vorprófi”.
Birgir sagöi, aö hann myndi
ræða þetta mál við ráðherra eft-
ir helgina, og væri þess aö
vænta að ráðuneytiö gæfi út
yfirlýsingu um málið fljótlega.
' ,,Ég sagöi nemendunum, sem
hingað komu, að eftir þvi sem
mér skildist, benti það, sem bú-
ið væri að kanna af úrlausnum i
enskuprófinu til þess, aö
nemendur kæmu allvel eða
mjög vel út. 1 sambandi við þaö
próf urðu mistök og auðvitað
tekur prófanefndin fullt tillit til
þeirra mistaka”, sagöi Birgir.
—ESJ.
Erlendur innflytjandi á LSD
gómaður og dœmdur í varðhald
Bandarikjamaöur nokkur
sem siæddist hingaö til lands I
jánúar var umsvifalaust um-
kringdur af islenskum flkni-
efnaneytendum er vildu kaupa
af honum LSD. Maöurinn var
ekki meö neitt slikt I fórum sin-
um en iét til ieiöast aö annast
pöntunarþjónustuna gegnum
póstkerfiö. Aö vonum var þessi
innfiutningur litinn óhýru auga
af yfirvöldum og afplánar
bandarikjamaöurinn nú þriggja
mánaöa fangelsi og er þar fyrir
utan gert aö greiöa þrjú hundr-
uö þúsund krónur i sekt.
Bandarikjamaöur þessi kom
hingað snemma i janúar sem
blásaklaus ferðamaður og vildi
kynnast landi og þjóð. Fikni-
efnalýöur hérlendur taldivist aö
maður þessi heföi gnótt fikni-
efna meðferðis en það reyndist
á misskilningi byggt. Híns veg-
ar féllst maöurinn á aö skrifa
vinum sinum vestra og biðja þá
að senda sér 90 skammta af LSD
tilað byrja með svo unnt yrði aö
verða við óskum hinna Islensku
ungmenna. bessi fyrsta send-
ing rann i gegn, en til skýringar
má geta þess, að hver skammt-
ur er á stærð við haus á eld-
spýtu og söluverð hér er 1500-
2000 krónur. begar þetta var
komið i umferö komst upp um
máliö og ferðamaðurinn
hnepptur i varðhald.
Hann hafði hins vegar gert
ráöstafanir til áframhaldandi
innflutnings gegnum póst og
næst komu 15 skammtar sem
lögreglan lagði hald á. Siðan
komu 150 skammtar og þeir
féllu einnig I hendur lögreglu.
Sem fyrr segir var banda-
rikjamaðurinn dæmdur til
þriggja mánaða fangavistar og
einnig gert að greiöa 300.000
krónur i sekt. Hóf hann afplánun
I Slðumúlafangelsi en lýkur
henni væntanlega fyrir austan
fjall. Ekkert bendir til þess aö
maður þessi hafi haft fjárhags-
legan ávinning af þessum inn-
flutningi á LSD samkvæmt upp-
lýsingum sakadóms I ávana- og
fikniefnamálum.
— SG
—mmmmm—mmm—J