Vísir - 24.04.1977, Blaðsíða 23
vísœ
Sunnudagur 24. aprll 1977
23
: ;WPP>WW11 ......... II. I i . ' V m ... O. n.'IMIIIBIlllwt; —II I 'III llil—I «41 I !■>! ■ !■,»»#> KX* -*ar HUI « V. V, .• , ,,,, , ... ». .,<, ,. fM/,", , w . ■, , ■//,,/,„ «WUK»»,»vWdm , »w'«»**wv<A.*l*|*KV!.v.s*.«OTai»»'»IUIIIimil>
Fjöldamargir aukaleikarar tóku þátt í kvikmyndinni. A Löngustétt var margt um manninn og meðai vegfarenda mátti greina ýmis þekkt andlit, hér eru til dæmis Thoi
Vilhjálmsson og Oddur Björnsson. rithöfundar.
af fréttum úr kvikmyndaverinu i Skeifunni 11, þar sem innvolsið úr Brekkukoti stóð
tilbúið ásamt heyloftinu, — og þar sem nú eru bökuð safabrauð.
Vinnudagurinn var langur og strangur, kvikmyndað var úti i „góðu” veðri en inni i
slæmu. Við leikmyndagerðarmenn höfðum I mörg horn að lita eins og aðrír: fylgjast
með upptökunni og sjá um að allir hlutir væru til staðar, svo sem rjómakökur, hundar
og grásleppur: gera klárt fyrir upptökur næsta dags og ljúka við Löngustétt i tæka tið.
Þar var verið aö setja blúndugardinur, pottablóm og postulinshunda i 60 glugga, stilla
ostum og eggjum út i Smjörhúsinu og þjálfa hesta Þorgeirs i Gufunesi i að ganga i lest
klyfjaða hertum þorskhausum. En þetta silaðist áfram og fyrr en varöi var kominn
september.
16. september. Upptökum lokið i Gufunesi fyrir hádegi. Eldhúsið í Arbæ eftir hádegi.”
Arbæjarmenn sýndu kvikmyndatökunni einstakan velvilja. Þeir lánuðu mikið af hús-
gögnum og myndum og auk þess voru nokkur inniatriði tekin i DillonshUsi, SmiðshUsi
og hlóðaeldhúsinu i Arbæ sjálfum. Einnig var kvikmyndaö i Góðtemplarahúsinu i
Hafnarfirði, Eyrarbakkakirkju og i ibUð gamallar kaupmannsfjölskyldu við Hverfis-
götu. Útiatriði voru m.a. tekin i kirkjugarðinum að Lágafelli, þar sem gröfum og leg-
steinum var f jölgað um heiming, á gömlu steinbryggjunni á Eyrarbakka, i Suðurgötu,
fyrir utan „Næpuna” við Skálholtsstig auk Brekkukots og Löngustéttar. Atriðið þegar
Björn i Brekkukoti fer með Alfgrim i grásleppuróðurinn á björtu vorkvöldi og segir
honum að hann eigi að ganga menntaveginn, var tekið á Kleifarvatni i slyddu og hragl-
anda i septemberlok. Segi menn svo að myndavélin geti ekki logið, þegar á þarf að
halda.
18. september: ,,í Brekkukoti”.
Einna siðast var kvikmyndað við Brekkukotsbæinn, sem reistur hafði verið i Garðin-
um á Jónsmessu. NU var hann grænn og gróinn og rófurnar komnar upp. Og punturinn
og rænfangið náðu Alfgrimi litla i mitti.
4. október. „Suðurgata, forsöngvarahúsið.”
Alfgrimur stendur I rigningunni og biður eftir skugganum á gluggatjaldinu i betri-
stofunniaðSuðurgötu2.Skipt var um gluggatjöld i öllu húsinu eins og svo mörgum öðr-
um sem notuð voru, með góðfUslegu leyfi og mikilli þolinmæði eigendanna.
14. október: „Nútimasenur með Jóni Laxdal.”
Jón var stórkostlegur Garöar Hólm, ég get ekki imyndað mér nokkurn annan leikara
i þessu hlutverki.
18. október: „Þjóðverjarnir fara til Hamborgar. Tekið til I Brekkukoti”.
Upptökunum er lokið. Það eru liðnir 6 mánuðir siðan ég fór með Jón Laxdal og fjár-
málastjórannsemhættiaustur á Eyrarbakka. Brekkukotsbærinn fær að standa áfram,
Torfibóndi i Miðhúsum fær hann uppi lóðargjöldin. Hjallurinn sendur uppi Arbæ, með
þökkum fyrir veitta aðstoð. Rauðmögunum 40 var fleygt i Kleifarvatn, fiskiflugan var
hætt aðsuöa i rænfanginu;það var komiðhaust.
...Madonna... Þarna var loksins sá maður fundinn er kunni að
koma fram við bakarisstúlkur einsog hæfði.”
Afi og amma i Brekkukoti, Regfna Þórðardóttir og Þorsteinn ö.
Stephensen.
Blær. Hver átti að leika Blæ?
Hennar var lengi leitað en svo
fann Handrich unga stúlku á:
skákeinvigi Fischers og
Spasskýs i Laugardalshöilinni.
Hún hét Kristin Petersen og
hafði aldrei leikiö áöur.
Halldór Laxness og kona hans, Auöur Sveinsdóttir f hlutverk-
um biskupshjónanna á söngskenntun Gúðmtíndsensbúöar 50 ára.
I
i
Halldór Laxness tók sjálfur virkan þátt f gerö myndarinnar Hann fylgdist náið með upptökum. lánaöi húsgögn og smáhluti af heimili slnu, þeirra á meðal kiukkuna sem
James Cowan smiðaði áriö 1750og loks lék hann lltið hlutverk, biskupinn yfir tslandi. r