Vísir - 13.05.1977, Blaðsíða 5
5
„Ég trúi því að ég
snúi brótt
aftur til Nígeríu"
— segir Odumegwu Ojukwu,
fyrrverandi stjórnandi
uppreisnarinnar í Biafra
Ojukwu: „Sárin munu gróa”.
i franska fréttaþættinum sem
sjónvarpið sýndi i fyrrakvöld
var fjallað um ýmsa viðburði i
Afriku sem voru á forsiðum
dagbiaðanna mánuðum saman
meðan þeir voru að gerast, en
eru nú nánast fallnir i
gleymsku.
Hræðilegustu fréttirnar voru
liklega frá Biafra og Biafra ætti
að vera islendingum ferskt i
minni. Leiðtogi hinna ógæ'fu-
sömu ibóa var Odumegwu
Ojukwu, hershöfðingi, sem flýði
land árið 1970 þegar ljóst var að
Biafra átti sér ekki viðreisnar
von.
Ojukwu hefur siðan biiiö i út-
legð á Filabeinsströndinni og
þar hitti fréttamaður Newweek
hann að máli, um tiu árum eftir
að striðið i Biafra hófst.
,,Ef þér gætuð háð Biafra-
striðið upp á nýtt, hvaö mynduð
þér þá gera ööruvisi?
„Þetta er erfiö spurning
vegna þess að striöið kom svo
óvænt fyrir mig, fyrir allt fólkið
i Biafra. Satt að segja var
striðið eins og ósjálfráð varnar-
aðgerð af okkar hálfu. Það var
ekki ákveðin stefna. Það var
ekki ákveðið að nú væri kominn
timi til að fara í strið. Það var
ráðist á okkur og við vörðumst.
Ef ég gæti gert þetta upp á nýtt
held ég að ég hefði reynt að
vinna áróðursstriðið fyrr. Að
koma Biafra á siður dagblað-
anna, og fá þannig aðstoð.”
„Hvernig reiðir yðar fólki,
ibóunum, nú af I Nigeriu?”
„Þegar striðinu lauk var sagt
að það yrðu almennar sættir.Ég
veit að fjölmargir ibóar fóru þá
aftur til Lagos af þvi þeir trúðu
Gowon (fyrrv. forseta Nigeriu).
Gowon stóð aldrei við loforð sin
og ibóarnir fóru þá aftur til
sinna svæða. Þeir eru að jafna
sig, þeir eru hluti af Nigeriu, en
þeir taka ekki þátt i efnahags-
eða pólitisku lifi. Það sem þeir
gera, gera þeir fyrir sjálfa sig
og fjölskyldur sinar.”
„Haldið þér aö það verði
alltaf svo að aörir nigeriubúar
vantreysti ibóunum og leyfi
þeim ekki aö taka þátt i opin-
beru lifi?”
„Þarna skulum við gera
greinarmun. Þegar ég var að
tala um ástandið áðan, átti ég
við meðan Gowon var forseti.
Siðan hann fór frá hafa verið
gefnar út yfirlýsingar sem
benda til þess að herstjórninni sé
umhugað um að Ibóarnir taki
þátt i almennri þróun i landinu.
Það er þvi ekki hægt að segja að
(Gowon) ástandið sé óbreytt.
Það eru að verða framfarir.”
„Finnst yður sárin frá strið-
inu vera að gróa?”
„Sárin munu gróa. Það sem
við höfum áhyggjur af er timinn
sem það tekur. Það eru önnur
verkefni sem þarf að sinna.
Landið þarfnast framfara. Ég
vildi óska að þetta gengi hraðar
fyrir sig.”
,,í strfðinu töluðu margir
fréttamenn um ibóana sem
„gyöinga-Afríku”, haldið þér að
hlutskipti ibóanna verði einnig
að þola ofsóknir i margar
aldir?”
„Ég vona ekki. Tilgangur
ibóa með striðinu var að stöðva
ofsóknir, að stöðva það sem
okkur virtist vera tilraun til að
þurrka ibóana út. Ég held að
eftir þriggja ára strið hafi
þessum tilgangi verið náö. Satt
aö segja er það min skoðun að
þetta hafi verið það sem ibóar
faigu út úr striðinu. Ég held
ekki að það muni gerast aftur i
Nigeriu að einn ættbálkur reyni
að þurrka annan út, eins og
gerðist 1966-67. Mér finnst ég sjá
einlæga tilraun til að taka
ibóana aftur inn i þjóðlifið,. Mér
finnst vera von.”
„Hvað finnst vður um aukin
umsvif Sovétrikjanna i
Afriku?”
„Upphafið á umsvifum Sovét-
rikjanna er að finna i sölu
vopna, sölu á leiðum til kúgun-
ar. Vanþróuðum rikjum er
komið i þá aðstöðu að þau þurfa
aö eyða miklu fé i' vopnakaup.
öll þau Afrikuriki sem hingað til
hafa komist undir áhrif Sovét-
rikjanna hafa greitt það dýru
veröi. Efnahagur þeirra hefur
hrunið. Það er auðvitað mitt
áhugamál að afrikubúar komist
vel af,að hlutskiptiþeirra batni.
Ég held ekki að kaup á byssum
og skotfærum bæti hag þeirra.”
„Ef Biafra hefði náð sjálf-
stæði, hvers konar land haldið
þer að það væri i dag?”
„Eftir timabil uppbygging-
arinnar gæti Biafra hafa risið
upp sem hið eina raunverulega
svarta land i Afriku. Við þurfum
ekki aðstoð hvitra manna.
Biafra hélt út i þrjú ár án telj-
andi utanaðkomandi tækniað-
stoðar. Við hefðum orðið vel-
ferðarriki. Við hefðum getað átt
samvinnu við önnur Afrikuriki
jafnvel við hinn hluta
Nigeriku”.
„Haldið þér að ibúarnir i
Nigeriu séu yður enn trúir?”
„Ef fréttum sem mér berast
virðist sem langflestir þeirra
séu þaö”.
„Hugsið þér stundum um að
snúa aftur til Nigeriu?”
„Ég vildi gjarnan snúa aftur.
Ég held að ég gætihjálpað til við
að sætta ibóa og aðra
nfgeriumenn. Ég held að ég
muni brátt snúa aftur.”
„Sjáið þér eftir þvi að hafa
stjórnað aöskilnaðarhreyf-
ingunni?”
„Nei. Fólki minu var ógnað og
ég gerði það sem sérhverjum
trúum ibóa bar skylda til.”
r VÍSIR i smáar semstórar!
BILAVARAHLUTIR
Nýkomnir varahlutir í
Fíat 125 árg. 70
Fíat 124 árg. '67
VW 1600 árg. '66
Ford Falcon árg. '63
BILAPARTASALÁN
'N Höföatúni 10, sirrii 11397.
'Opiö friá kl. 9-6.30, laugardág^?
kl. 9-3 og sunngdága kl. 1-3.
Chevrolet Cheville Malibu
árg. 1974
Ekinn 60 þ. km
Mjög góður bíll
Skuldabréf
Opið frá kl. 9-7 KJÖRBILLINN
Laugardaga kl. 10-4 1.
Verndið viðkvœman gróður með
MINIGRÓÐURHÚSI
6mx 55cm
ALASKA
UTBOÐ
Tilboð óskast i uþpsteypu og utanhússfrá-
gang þriggja fjölbýlishúsa við Ugluhóla i
Breiðholti III.
Útboðsgögn verða afhent á Verkfræðistofu
Gunnars Torfasonar Ármúla 26, gegn
15.000 kr. skilatryggingu.
Tilboð verða opnuð þriðjudaginn 24. mai
1977 kl. 11.00
Gunnar Torfason, verkfr.