Vísir - 13.05.1977, Blaðsíða 24

Vísir - 13.05.1977, Blaðsíða 24
Minni skuttogararnir 1976: Hœsti hásetahlutur var rúmlega 4,3 milljónir — níu togarar höfðu hósetahlut yfir þrjár milljónir, en sex innan við tvœr milljónir VISIR Föstudagur 13. mal 1977 Orkuöflun við Kröflu: Bora á nýju svœði Borað vcröur I sumar á tvcimur svæðum við Kröflu, ef tekst að útvega fjármagn til borananna. Annars vegar verður borað i suðurhliöum Kröflu, en hins vegar á nýju svæði, sem er hátt i tvo kilómetra suður af stöðvarhúsinu. Aætlað er, að boranir hefj- ist i júni, og ef nægar f járveit- ingar fást, verða 4-5 holur bor- aðar. Eins og Visir skýrði frá fyrr á þessu ári, var nokkur ágreiningur um, hvar ætti aö bora i sumar, en Orkustofnun virðist hafa orðið ofan á með sinar tillögur. — ESJ Á þremur minni skuttogurun- um fór hlutur undirmanns I fyrra yfir fjórar milljónir króna, og á sex skipum tií við- bótarvoru árslaunin milli þrjár og fjórar milljónir. Á aðeins sex minni skuttogur- unum fóru ársiaunin niður fyrir tvær milljónir. Þetta kemur fram I yfirliti um hlut undirmanna á minni skuttogurunum, sem fulltrúar sjómanna iögðu fram á blaöa- mannafundi. Þar er gerð grein fyrir skipta- verðmæti hvers togara um sig, og hlut undirmanns þar af. Sex af niu hæstu skip- unum á Vestfjörðum Sex af þeim niu minni skut- togurum, sem höfðu yfir .þrjár milljónir i hásetahlut, voru gerðir út frá Vestfjöröum. Þessi níu skip fara hér á eftir ásamt hlut undirmanns á hv^rju fyrir sig 1976: Guðbjörg 1S 4.389.868 krónur, Guðbjartur IS 4.383.283, Bessi ÍS 4.113.446 Július Geirmundsson ÍS 3.907.276, Dagrún IS 3.695.481, Sólberg OF 3.690.566, Gyllir IS 3.356.313. Páll Pálsson IS 3.287.520, og Björgvin EA 3.259.756 krónur. Sex lélegustu togararnir Þau sex skip, sem höfðu innan viö tvær milljónir i hásetahiut fyrir „fullt úthald” I fyrra, voru: Hegranes SK með 1.519.910 i hásetahlut, Gullver NS 1.670.534, Hvalbakur SU 1.809.984, Hólmatindur SU 1.855.372, Trausti 1S 1.915.276, og Runólfur SH með 1.960.224 i há- setahlut. Hvert er timakaupið? Ekki liggja fyrir áreiðanlegar tölur um hver sé vinnutiminn á skuttogurunum, svo erfitt er að segja ákveöið um hvert timakaupið sé. Ef hins vegar er miðað við 12 tima vinnu á sólar- hring, þá er hæsta timakaupið hjá undirmanni 1534 krónur, en hiö lægsta 525 krónur. Miöaö við 14 stunda vinnudag er hæsta timakaup hins vegar 1246 krónur, en það lægsta 431 króna. —ESJ Barnaheimilin Nýr lcikskóli tók nýlega til starfa við Suöurhóla I Brciðholtshverfi. Skólinn er I þrem deildum og cru þar sam- tals 115 börn. í þessum leik- skóla var tekin upp sú nýjung að hafa aukaherbergi fyrir hverja deild, þannig að hægt er að taka hluta af barnahópnum út úr til að hlýða á sögulestur og þcss háttar. Að sögn Magnúsar Arnar Antonssonar formanns félags- málaráðs Reykjavikurborgar eru nokkrar aðrar dagvistunar- stofnanir fyrirhugaöar i Breiðholtshverfum á næstunni. Leikskóli verður tekinn i notk- un innan skamms i Seljahverfi. Er hann af sömu stærð og gerð og leikskólinn við Suðruhóla. spretta upp A næstu vikum verður hafist handa við byggingu nýs dag- heimilis i Hólahverfi. Skóladagheimili er taiiö brýnt úrlausnarefni og hafa nú fengist tilboð i innflutta húsein- ingu, sem væntanlega verður reist við dagheimilið I Völvu- felli, sem er innflutt bygging. Er vonast til að það dagheimili geti tekið til starfa i haust. Loks er gert ráð fyrir einu nýju dagheimili i gamla bæn- um. Það er dagheimili verður við Einimel, sunnan Hagamels og er búist við að hönnun ljúki á árinu, þannig að framkvæmdir við dagheimilið fari fram á næsta ári. — SJ Ekið ó unga stúlku Ekið var á unga stúlku á Hafnarfjarðarvegi i nótt. öku- maður bilsins mun ekki hafa orðið hennar var fyrr en of seint og varð stúlkan fyrir bílnum. Hún slasaðist eitt- hvað og var flutt á sysadeild. — EA Hestur varð fyrir bíl Ekið var á hcst á Reykja- nesbrautinni I gærdag. Var maður með hestinum en eftir að hafa orðið fyrir bilnum stökk hcsturinn frá og hljóp hann þá á annan bil sem kom akandi eftir veginum. Stökk hann siðan i burtu illa skorinn. Hesturinn náðist þó aftur og var honum komið i hendur dýralæknis. Bilarnir munu báðir vera eitthvað skemmdir eftir. — EA Átök norðmanna eru í rannsókn Mál norsku' skipverjanna sem lenti saman um borð I norska skipinu Bergbjörn er nú i höndum rannsóknarlög- reglunnar I Reykjavik, en norska sendiráöið mun hafa óskað eftir yfirheyrslum vegna þessa. Annar skipverjinn slasaðist i átökunum og var hann fluttur á slysadeild Borgarspitalans. Hann mun þó ekki hafa verið lagður inn á sjúkrahús. — EA. JWIATTHÍAS ÍHUGAR STÖÐVUN ÞORSKVEIÐANNA I SUMAR „Fyrirhugaöar eru frekari aðgerðir til verndunar þorsks- ins. Það kemur til greina að stöðva þorskvciðar fiskiskipa- flotans um tima i sumar”, sagði Matthias Bjarnason sjávarút- vegsráðherra I samtaii við VIsi I morgun. Eins og Visir skýrði frá i gær er þorskaflinn kominn i rúm 140 þúsund tonn og telja sérfróðir menn að hann fari langt yfir það mark sem fiskifræðingar telja ráðlegt, með sama sóknar- þunga. Matthias Bjarnason sagði. ,,Ég átti nýlega fund með full- trúum Hafrannsóknarstofnun- ar, Rannsóknastofnunar fisk- iðnaðarins, Framleiðslueftirliti sjávarafurða og veiðieftirlits- mönnum ásamt starfsmönnum ráðuneytisins. Þar reifaði ég nokkrar hugmyndir og leitaði álits á þeim. „Það sem helst kemur til greina að gera”, sagði Matthias ennfremur, ,,er að breyta reglu- gerð um lágmarksstærð i þá átt að auka hana. En það er ekki endanlega frá þvi gengið.” Matthias sagði að sifellt hefði lágmarksstærðin verið aukin. Árið 1966 hefði lágmarksstærð þorsks verið 34 sentimetrar, ýsu 31 og ufsa 35. Þessu var fyrst breytt árið 1974, i ráðherratið Matthiasar, i 43 sentimetra hvað þorskinn snerti, ýsu i 40 og ufsa i 45. Og á siðasta ári var lágmarksstærð þorsks aukin i 50 sentimetra, ýsu i 45 og ufsa i 50. Sömu sögu er að segja um möskvastærð, sem á skömmum tima hefur verið aukin úr 120 millimetrum i 135 og siðan 155. Matthias sagöi að óþarft væri að minna á hve friðunarsvæðin hefðu verið aukin gifurlega og veiðieftirlit með skyndilokunum og þess háttar hefði komið til á siðasta ári. Hann sagði það þvi ljóst að gert hefði verið meira en nokkru sinni áður i þá átt að minnka sókn i þorskinn. Þá sagði ráöherra að gjör- breyting hefði orðið á svoköll- uðu smáfiskaarápi eftir að bret- inn hvarf af miðunum og með eigin friðunaraðgerðum okkar. Nú væri i fyrsta skipti hægt að tala um algjöra stjórn okkar á veiðunum. Varðandi þær frekari ráð- stafanir sem fyrirhugaðar eru i sumar, sagði Matthias Bjarna- son sjávarútvegsráðherra að ekki væri hægt að timasetja þær nánar, en samráð yrði haft við sjávarútvegsnefndir beggja deilda alþingis og rikisstjórn- ina —EKG

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.