Tíminn - 07.08.1968, Side 5

Tíminn - 07.08.1968, Side 5
5 MEDVIKUDAGUR 7. ágúst 1968. TÍMINN Frá Hólmavík. ÓLAFUR ÞÓRÐARSON: FRA STRONDUM UndanfariS hef ég fengið tæki- færi til þess að kynnast nokkuð Ströndum og Strandamönnum. Þetta er að ýmsu leyti sérstæð byggð. Strandlengjan er æði löng. Það er á þriðja hundrað kílómetra akstur frá Brú við botn Hrútafjarð ar og norður í Ingólfsfjörð, en lengra nær byggðin ekki í dag. Þar fyrir norðan er mikið svæði, sem nú er allt 'komið í eyði, enda vegalaust. Strax og ég kom í Hrútafjörð- km vöktu hinar grösugu hlíðar og ásar athygli mína. Landið virtist grasi gróið eins langt og augað eygði upp á heiðar. Það er ólíkt því, sem ég á að venjast vestur á fjörðum, þar sem hlíðar eru brattar, skriður miklar og fjöllin nakin. Hér er eflaust að finna eina skýringuna á því, að fallþungi sauðfjár á Ströndum hefur ávallt verið einn sá hæsti hér á landi. Þannig er landið allt norður í Bjarnarfjörð. Þar fyrir norðan tek ur við 40 km. strandlengja, sem komin er í eyði, enda undirlendi minna en annars staðar á_ Strönd- um og fjöllin brattari. f Árnes- hreppnum breytist landslagið aft- ur. Þar er undirlendi meira en flesta mundi gruna og víða fagurt um að litast. Þannig eru Strandirnar í fáum orðum, grasi grónar ihejðar og dal- ir, víðast á móti opnu hafi og norðanvindum. En hvernig er þá fólkið, sem þetta svæði byggir? Bæirnir eru víða reisulegir og má þar sjá, að vel er búið. Annars staðar er Ijóst, að mikil breyting hefur orðið á högum fólksins und anfarin ár, einkum þar sem treyst var á sjóinn að verulegu leyti. Á Hólmavík og Drangsnesi er svipað um að litast, eins og í flestum ís- lenzkum sjávarþorpum. Útgerðin er þó minni en áður var, þegar Húnaflói varð fuilur af fiski. Djúpavík, hins vegar, er eins og draugaþorp. Síldarverksmiðjan mikla rotnar niður og bryggjan er komin að falli. Þarna búa aðeins fáeinar manneskjur, þar sem áður var ys og þys og silfri var ausið úr síldartorfunum á Húnaflóa. Þetta er átakanleg sjón. Hún vek- ur mann ósjálfrátt til umhugsun- ar um hinn viðkvæma íslenzka þjóð arbúskap. Við Ingólfsfjörð stendur annar minnisvarði síldarævintýrisins, önnur kyrrlát síldarverksmiðja. Fiskleysið á Húnaflóa hefur haft mikil áhrif á lífskjör á Strönd um, sérstaklega nyrzt, þar sem sjávaraflinn var mikill hluti af tekjum íbúanna. Strandamenn hafa reyndar van- izt harðæri og ýmsum erfiðleik- um. Hér hefur hafís oft legið við strendur og vaidið bæði bændum og sjómönnum erfiðleikum. Enn hefur hafísinn þrengt hagi Stranda manna. Þegar ég kom hingað norð- ur í fyrrihluta júlímánaðar var ís enn þá á Hrútafirði. Vetrarver- tíðin fór að mestu forgörðum, bát- arnir komust ekki á sjó frá apríl- byrjun fil loka júnímánaðar, að heita mátti. Grásleppuveiðarnar urðu með minnsta móti vegna íss- ins og neratjón varð mikið af hans völdum. Kal er gífurlegt í túnum bænda, eins og alþjóð vcit. Kuldinn og þurrkarnir frameftir sumri ullu mönnum iafnframt miklum áhyggj um. Það sem gat sprottið, fékk ekki skilyrði til þess að spretta. Það má með sanni segja. að ástand ið hefur verið allískyggilegt. Hið alvarlega ástand virðist nú heldur nafa Datnað. Bátarnir Stöður skólalækna við nokkra barna- og gagnfræðaskóla borgarinn- ar eru lausar til umsóknar. Umsóknir sendist Heilsuverndarstöð Reykjavíkur fyrir 31. ágúst n.k. Heilsuverndarstöð Reykjavíkur Staða lyflæknis Sjúkrahús Akraness óskar að ráða sérfræðing í lyflæknissjúkdómum næsta haust, eða samkvæmt samkomulagi. Umsóknir ásamt upplýsingum um námsferil og fyrri störf, sendist til stjórnar Sjúkrahúss Akraness fyrir 1. október n.k. Stjórn Sjúkrahúss Akraness. Trúin flytur fjöll. — Við flytjum allt annað SENDIBfLASTÖÐIN HF, BlLSTJÖRARNIR AOSTOÐA fengu sæmilegan afla á færum eft- ® ir að ísinn fór að fjarlægjast. Það var þó að vísu aðeins fremur stutt- an tíma. Þessi afli úr Húnaflóa, sem Strandamenn eru orðnir óvan- ir síðustu árin, virðist þó hafa hleypt nokkru lífi í tuskurnar. Nú sækja sjómenn af krafti, þótt langt sé að fara í fiskinn. Selveiðarnar hafa reynzt sæmi- legar í ?r og reki hefur verið nokkur. Nú síðustu dagana hefur verið dálítil væta og hlýtt. Grasið hefur því sprottið vel, það sem getur sprottið. Víða blasa hins vegar við stórir flákar af arfa á hinum ,, miklu kalsvæðum. Margir bændur hafa gripið til grænfóðursræktar. | Óvíst er þó enn hvernig tekst til | með hana. Þótt ástandið sé þann- ig heldur skárra en það virtist, * má segja, að víða ríki neyðar- | ástand í landbúnaðinum Án mjög i verulegra heykaupa og einhvers K konar aðstoðar frá hinu opinbera, ! er ljóst, að varla verður forðað töluverðum niðurskurði búpenings. « Bændur líta eðlilega til ríkis- ■ valdsins eftir aðstoð. Það er sú samtrygging, sem hlýtur að hlaupa j undir bagga, þegar neyðarástand . ríkir í einstökum landshlutum. ~:i Kuldanum og kalinu má líkja við fellibylji og flóð í öðrum löndum. Þá skýra fréttirnar venjulega frá mikilli aðstoð hins opinbera í við- komandi löndum. Sumum þykir rík „ isvaldið hér vera heldur seint að ,n tilkynna hvað það muni gera til aðstoðar. Efnahagslegt hrun heils É byggðarlags er vissulega þjóðar- 0 böl. Slíkt gæti haft víðtæk áhrif y og orðið dýrkeypt íslenzku þjóð- ffl inni. Skjót og markviss aðstoð @ hins opinbera í slíkum tilfellum H er réttmæt og sjálfsögð. Vorkuldar og kal ættu raunar ekki að vera nýtt fyrir íslenzku !l þjóðina. Annálar skýra frá mörg- s um slíkum málum, og þau eru jafn 1 vel í mannaminnum. Þrjú kalsum- § ur í röð ættu að sannfæra okkur i um það að gera verður ráðstafan- | ir til þess að tryggja öryggi þess- » ara byggða. Hugmyndin um hey- forðabú á miklu fylgi að fagna. i Flutningar á heyi eru nú ólíkt auð I veldari en þeir voru, eftir að farið i var að vélbinda það og búa til hey- « köggla. Þessari hugmynd þarf að || hrinda í framkvæmd hið snarasta. 1 Sumir lesendur kunna að vísu að g segja, að eins mætti leggja niður S búskap í þessum landshlutum. | Þeir vita ef til vill ekki, að á % Ströndum stendur sauðfjárræktin !• með einna mestum blóma hér á ^ landi. Þar hefur fallþungi dilka ár eftir ár verið meiri en víðast ann- ars staðar. Þarna eru mikil beiti lönd og uppblástur og eyðing lítil. Ljóst er, að sauðfjárræktin á ólíkt meiri rétt á sér hér en á Suður- landi, þar sem landsauðn er að verða á stórum svæðum vegna of- beitar, og afurðir sauðfjárins eru aðeins nluti af því, sem gerist á Ströndum. í sveitunum er mikið rætt um skipulagsmál landbúnaðarins. eða réttara sagt skipulagsleysi þeirra. Menn minnast bess þegar offram- leiðsla var á mjólk og bændur voru hvattir til þess að fækka kún- um en auka sauðfjárræktina. Þá |j varð offramleiðsla, á kjöti og upp- blástur landsins jókst. Allt fram á síðustu daga hefur verið unnið að myndun nýbýla, góðum jörðum hefur verið skipt og þær gerðar að smábýlum á sama tíma og áróður er rekinn fyrir stækkun búanna. Mönnum sýnist Ijóst, að í skipu- lagsmálum eru stór verkefni fram undan, ekki aðeins á sviði landbún aðar, heldur einmg í öllum öðrum atvinnugreinum. Raunar óttast ég ekki um fram- i, tíð Strandanna. Strandamenn hafa • séð hann svartan fyrr. Þeir og for J feður þeirra hafa boðið harðind- | unum byrginn Öldum saman og aldrei látið bugast. Þeir munu ,« heldur ekki bogna nú. Stranda- 4 mehn eru sannfærðir i trú sinni á ■* landið og framtíð þess. ■ A VlÐAVANGI Norræni sumar - háskólinn Merkur þáttur í norrænu samstarfi er Norræni suraar- háskólinn. Hann er nú að störf um hér á íslandi í fyrsta sinni, en hefur starfað undanfarin 18 ár. Þátttakendur munu tæjáoga 300 að þessu sinni, þar af um 215 frá hinum Norðurlöndun- um. Starfi skólans er þannig háttað, að í ýmsum háskólabæj um á Norðurlöndum eru starf andi umræðuhópar, er taka fyr ir ýmiss konar vandamál líð- andi stundar. Fulltrúar þessara starfshópa koma svo saman á sumri hverju, bera saman bæk ur sínar og ræða þær hugmynd ir, sem fram hafa komið í starfshópunum. Með starfi Norræna sumarhá skólans er stefnt að því að koma á samvinnu norrænna há skólaborgara, sem leggja stund á sem flestar fræðigreinar til að ræða vandamál, sem eru sameiginleg fyrir þær allar, en þó utan þröngra marka þeirra, hverrar um sig. Hér er um merkilegt starf að ræða, sem án efa á eftir að draga nokkuð úr þeim agnúum, sem verða á því sérfræðingaþjóðfélagi, sem nútímaþjóðfélag er orðið. Hætt an er sú, að menn einangrist um of í fræðigrein sinni og loki sig af fyrir þeim vandamálum, sem við er að etja á hinum ýmsu sviðum þjóðfélagsins. Sérfræð ingurinn þarf að hafa viðan sjóndeildarhring um önnur svið þjóðlífsins en sitt eigið sér fræðisvið. Embættismanna- kerfið Þessa athyglisverðu lýsingu á þvi embættismannakerfi, sem hefur vaxið og þanist út á undanförnum árum hraðar en nokkru sinni fyrr í sögu þjóð arinnar, gefur að Iíta í Reykja víkurbréfi Morgunblaðsins á sunnudaginn: „Þegar talað er um ofvöxt- inn, sem hlaupið hefur í ýmsa þjónustustarfsemi, verður ekki hjá því komizt að nefna emb ættismannakerfið. Það hefur þanizt út hér á landi eins og raunar í mörgum löndum öðr- um. Og þó er sagt, að ætíð skorti menn við lausn marg- háttaðra verkefna, og er það raunar rétt, því að í sjálfu sijr er yfirstjórn lítils þjóðfélags ekki svo miklu fábreytilegri en efnahagsstjóm stórra ríkja. Hins vegar hlýtur öllum þeim, sem eiga mál að sækja til embættismannanna, að koma í hug, hvort ekki sé unnt að viðhafa einfaldari vinnu- brögð en þar tíðkast. Oftast þurfa málefni að fara fyrir fleiri eða færri nefndir og ráð. Yfirmenn virðast ekki geta tek ið ákvarðanir nenia svo og svo margar undirtillur hafi um mál in fjallað, og sannast þá oft að „folöldin hafa líka stert“. Spek ingslegar umræður og vanga- veltur geta varað vikum og mánuðum saman. Auðvitað er gott að rann- saka málefni sæmilega, áður en þau eru afgreidd, en hitt er verra, þegar slík athugun kem- ur í veg fyrir afgreiðslur. Fer þá ekki hjá því, að mönnum komi til hugar, hvort ekki væri betra að veifa stöku sinnum röngu tré en engu.“ En það er ekki nóg að sjá Framhald á bls. 15

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.