Tíminn - 22.08.1968, Síða 1
Gerizt áskrifendur að
Tímanum.
Hringið i síma 12323
Auglýsing í Tímanum
kemur daglega fyrir augu
80—100 þúsund lesendá.
176. tbl. — Fimmtudagur 22. ágúst 1968. — 52. árg.
Tékkneskir leiðtogar
í höndum Sovéthersins
.. i •i_ iÍuE Sw r :
Þessi mynd af sovézkum skriðdreka á Venceslas-torgi í Prag ( gærmorgun er táknræn fyrir sovézkt ofbeldi í Tékkóslóvakíu. Mikill fólksfjöldi er á götunum, I baksýn er ÞjóSminia.
safnið, en styttan er af einum dýrlinga Tékka, St. Venceslas. (Símsend mynd)
• Herlið frá Sovétríkjun-
um, Austur-Þýzkalandi, Pól-
landi, Búlgaríu og Ungverja-
landi, réðist í fyrrinótt inn
yfir landamæri Tékkóslóvak-
íu og hernumu landið. Þrátt
fyrir nokkur átök við óbreytta
tékkneska borgara, sem nokkr
ir hafa misst lífið, hefur her-
námið kostað litlar blóðsút-
hellingar til þessa.
• Innrásarherinn hefur tek
ið öll völd í landinu. Alex-
ander Dubcek og aðrir tékk-
neskir leiðtogar hafa verið
handteknir, og herma fregnir
að í gærkvöldi hafi |>eir verið
fluttir til óþekkts staðar í
böndum. 4 ráðherrar eru í
Júgóslavíu.
• Innrásarherinn hefur
stöðvað frjálsar útvarps- og
sjónvarpssendingar að mestu,
og í kvöld var tékkneska
fréttastofan CETEKA stöðv-
uð í fréttasendingum.
• Víða í Prag hefur komið
til nokkurra átaka, og inn-
rásarherinn hefur skotið úr
skriðdrekabyssum og vélbyss
um á byggingar og stundum
á fólk. Er hverfið umhverfis
hús útvarpsins í Prag að
miklu í rústum.
• Innrásin í Tékkóslóvakíu
hefur verið fordæmd um all-
an heim, nema í hinum hörð-
ustu kommúnistaríkjum. —
Kommúnistar Evrópu hafa
klofnað, og styðja júgóslav-
neskir og rúmenskir kommún
istar Tékka, ásamt vestræn-
um kommúnistaflokkum.
• Leiðtogar Rúmeníu
styrktu í gær varnir sínar á
landamærunum og mynduðu
nýjar hersveitir verka-
manna, bænda og mennta-
manna. Leiðtogi Rúmena
sagði í dag, að aldrei yrði
þolað að sjálfstæði Rúmeníu
yrði virt að vettugi.
• Öryggisráð Sameinuðu
þjóðanna kom saman í dag,
og samþykkti, eftir mótmæli
sovézka fulltrúans, að taka
innrásina i Tékkóslóvakíu á
dagskrá. Fulltrúi Tékka hjá
S.þ. lagði formlega fram mót
mæli gegn innrásinni, og
krafðist þess að allt erlent
herlið yrði kallað til baka.
Myndir og frásagnir: Bls. 2, 3, 5, 6, 7, 9, 12, 13, 14 og 16