Tíminn - 22.08.1968, Qupperneq 2
2
TIMINN
FIMMTUÐAGUR 22. ágúst 1968.
INNRASINITEKKOSLOVAKIU
»
i
t
<
STADAN Á MIÐNÆTTI
Mynd Iþessi var tekin í Prag í gær. Hiúsið á m'yndinni er aðsetur miðstjórnar kommúnistaflokks Tékkóslóvakíu, en þar ,var Dubcek
og nokkruim öðrum leiðtogum haldið í stofufangelsi fram eftir degi, en þeir síðan fluttir brott með leynd. (Símsend mynd)
NTB-Prag, miðvikudag.
ic í yfirlýsingu, sem undirrit
uð er af 11 ráðherrum í stjórn
Dubceks er. lýst yfir fullum
stuðningi við hin löglega
kjörnu yflrvöld, samkvæmt
stjórnarskrá ríkisins. Segir í
yfirlýsingunni, að hernámið,
sem hafi átt sér stað án vitund
ar og vilja stjórnarinnar,
brjóti herfilega í bága við
alþjóðarétt og grundvallarsjón
armið hins alþjóðlega komm-
únisma. Hvorki Dubcek né aðr
ir af fremstu leiðtogum lands
ins eru meðal þeirra, sem
rita undir yfirlýsingu þessa, ein
faldlega vegna þess, að þeir
voru innilokaðlr. Svipuð mót
mæli hefur ráð miðstjórnar
tékkneska kommiúnistaflokks-
Ins látið frá sér fara.
■Ar f kvöld skýrði tékkneska
fréttastofan Ceteka frá því, að
Alexander Dubcek, leiðtogi
tékkneska kommúnistaflokks-
ins, Josef Smirkovskij, forsetl
þjóðþingsins, Josef Spacek,
meðlimur flokksráðsins ' og
Frantisek Kriegel, meðlimur
miðstjórnarinnar, hefðl verið
ekið á brott I brynvörðum bíl
til óþekkts staðar. Voru þeir«
bundnir á höndum og fótum.
Þessir fjórir leiðtogar höfðu
setið í stofufangelsi í dag í
byggingu miðstjórnar flokks-
ins. Fjöldl annarra tékkneskra
Ieiðtoga voru í raun fangar inn
rásarherjanna í hinum mörgu
opinberu byggingum, sem tekn
ar höfðu verið herskildi.
★ Laust fyrir kl. 11 í kvöld
að ísl. tíma tilkynnti tékkneska
fréttastöðin Cel t’ a að hún
væri komin í hendur ,,erlend
um hersveitum“. Fram að þeim
tíma hafði Ceteka óhindrað án
nokkurrar íhlutunar sent út
fjölda tilkynninga, sem for-
dæmdu innrásina og nefndu
sovézku-hermennina ,,hemáms-
Iið“. Kl. 10.45 í kvöld til-
kynnti fréttastofan: ,,Frá og
með þessari stundu er loklð
hinni frjálsu fréttaþjónustu
Ceteka.“ Síðasta setningin sem
fréttastofan sendi út og ekki
var skrifuð til cnda hljóðaði
svona: „Verði sendar frekari
fréttatilkynningar héðan koma
þær ekkl frá . . .”
Meira kom ekki.
★ í kvöld fór sendinefnd
þingmanna til sovézka sendi-
ráðsins í Prag til þess að
grennslast fyrir um, hvað orð
ið hefði um aðra sendinefnd,
sem farið hefði tll sendiráðs
ins fyrr um daginn. Þingmanna
nefndinni var vlsað á braut af
sovézkum hermönnum og seint
I kvöld var enn ekki vitað,
hvað komið hcfði fyrir fyrrl
sendinefndina.
★ Sovézkar hcrsveitir réðust
í kvöld inn í byggingu tékkn
eska þjóðþingsins í Prag með
an fulltrúar þingsins sátu þar
á fundi, að þvi er fréttastofan
Ceteka skýrir frá. Segir í frétt
inni, að fulltrúarnir hafi hald
ið áfram viðræðum sínum,
eins og ekkert hefði I skorizt.
★ f kvöld var skýrt frá því,
að til átaka hefði komið milli
Tékka og sovézkra hermanna.
í Prag hefðu fjórir menn fallið
og margir særzt. Á tímabili
leit út fyrir, að til blóðugrar
uppreisnar kæmi. Unglingar
köstuðu heimatilbúnum benzin
sprengjum, svokölluðum Molo
tov-kokkteilum að sovézkum
skriðdrekum, sem umkringt
höfðu útvarpsbygginguna í
Prag. f um það bil tvær klukku
stundir mátti heyra miklar
sprengjudrunur og gný frá
þungum vopnum, sennilega
sprengjuvörpum. f Bratislava,
höfuðborg Slóvakíu kom einnig
til átaka. Þar féllu tveir menn
fyrir sovézkum byssukúlum og
þrír særðust. í Kosice I austur
hluta Slóvakíu var 17 ára gam
all drengur skotinn til bana,
en þrír menn særðust í átök
um við sovézkar hersveitir, er
fóru í gegnum bæinn.
ic Sovézkir skriðdrekar hófu
skothríð á þjóðminjasafnið I
Prag í dag. Fólk gekk í átt að
skriðdrekunum og kallaði til
hermannanna, hvers vegna þeir
gerðu þetta. Fólkið hrópaði:
Farið heim og segið félögum
ykkar, '*að við þurfum ekki á
hjálp að halda til að vcrja
sósíalismann í Tékkóslóvakíu.
ic f allan dag var fjöldi
sjúkrabíla á ferð um Prag og
víða i borginni mátti heyra
skothríð. Á mörgum stöðum
loga eldar og inikil reykský
stíga lil himins. Mest var þó
um, að sovézkir hermenn skytu
yfir höfuð æsts mannfjölda,
sem safnaðist saman til að mót
mæla innrásinni, eða sprengju
vörpur sendu kúlur inn á
efri hæðir bygginga. Ekki voru
nein merki samstilltrar and-
stöðu, enda þótt sums staðar
væri beitt vopnaðri mótspyrnu.
ic Gífurlegur mannfjöldi safn
aðist saman á götum Prag og
kom fólkið annað hvort fót-
gangandi eða hópunv saman á
vöruflutningabílum. Mannfjöld
inn hrópaði í takt ýmis slag-
orð, ýmist til stuðnings stjórn
Dubceks eða til að mótmæla
innrásinni. Ókvæðisorðum var
beint að sovézku hermönnun
um. Nokkrir stukku upp á
sovézka skriðdreka og liófu liá-
værar deilur við hermennina.
Ung stúlka sló til byssu sov
ézks foringja og hrópaði:
Farðu heim. Veiztu hvar þú
ert? Þú ert í mínu landi.
Komdu þér í burtu, fíflið þitt.
Foringinn tók brosandi I hönd
stúlkunnar og losaði uni tak
liennar á byssunni um leið og
hann sagði: Ég veit hvar ég
er.
★ Nokkrir þingmenn komu í
dag saman til fundar, en aðeins
nokkrum þeirra tókst að brjót
ast í gegnum múr varðmanna
við þinghúsbygginguna. Marg
ir þingmenn hafa horfið og
sama er að segja um marga af
helztu rithöfundum og öðrum
Iistamönnum Tékkóslóvakíu,
Þ ramhair a bi,- 14