Vísir - 01.06.1977, Blaðsíða 5
VISIR Miðvikudagur 1. júni 1977.
5
Varðeldomir verða
tendraðir um
gervallt Bretland
og pragt i London frá mánudegi
til laugardags, i næstu viku. En
drottningin og maður hennar,
Filipus hertogi, eru sér þess vel
meðvitandi aö efnahagur lands-
ins er bágborinn. Þau hafa þvi
fyrirskipað að kostnaöur skuli
vera eins litill og mögulegt er að
komast af meö. Þau hyggja einn-
ig á gönguferðir um fátækari
þaö tákn sé þeim ákaflega mikil-
vægt.
Fyrir nokkrum dögum brá hún i
fyrsta skipti út af þeirri venju
sinni aö minnast ekki á stjórn-
mál. Hun lýsti áhyggjum sinum
yfir aðskilnaöarsinnum i Skot-
landi og Wales (en raunar á ákaf-
lega mildan og kurteisan hátt)
..Ég get ekki gleymt þvi að ég var
Yfirleitt er það við hátiðleg og.
...alvarleg tækifæri sem drottn
ingin sýnir sig, en hún....
LOKSINS!
Hvers vegna ekki líta inn
Kúluspil Riffill
Sjónvarpsleiktæki Vélbyssa
Kafbátabyssa og fleira.
Loftvarnabyssa Gos — sælgæti
Leiktœkja-
salurínn
JokCt'
GRENSÁSVEGI7
Opií alla daga kl. 12-23.30. sFem'aldT
— Hótíðahöldin vegna 25 óra
ríkisafmœlis Elísabetar
bretadrottningar nó
hómarki í nœstu viku
Samkvæmt konunglegri til-
skipun er ftrustu sparsemi gætt
við hátiðahöldin i tilefni þess að
Elisabet önnur hefur nú rikt yfir
breska samveldinu i tuttugu og
fimm ár. Engu að siður ætti næsta
vika að verða hreinasta ævintýri
fyrir þá sem búa — eða verða
staddir I London, þvf hún verður
hápunktur hátiðahaldanna.
Tilstandið hefst i garði Windsor
kastala á mánudaginn. Kastalinn
er i útjarðri höfuðborgarinnar og
þar mun drottningin og fjölskylda
hennar taka á móti fjölmörgum
tignum gestum.
Þegar rökkva tekur mun
drottningin tendra griöarmikinn
varðeld i hallargarðinum. Um
leiö og sá eldur sést verða kveikt-
ir fleiri, á nærliggjandi hæðum.
Þegar til þeirra sést verður
kveikt á enn öðrum, lengra i
burtu og þannig munu varðeld-
arnir breiðast út um allt Bret-
land.
Þetta minnir á stjórn Elisabet-
ar fyrstu, þegar eldar voru tendr-
aðir um allt ríkiö, áriö 1588 til að
vara við komu spánska innrásar-
flotans.
Gullnir vagnar,
gullin fley
Daginn eftir ekur drottningin i
gullnum viðhafnarvagni til guös-
þjónustu i Santki Páls dómkirkj-
unni. Skrautklæddir lifverðir á
hestum munu fylgja vagninum.
En að þeirri „seremóniu” lokinni
bregöa drottningin og maður
hennar sér i gervi Jimmy Carters,
hins alþýölega, og fara fótgang-
andi um borgina.
A fimmtudaginn fer drottningin
i gullinni fleytu upp ána Thames.
Þegnar hennar munu hylla hana
frá bökkum árinnar og griöarleg
flugeldasýning er fyrirhuguð,
þegar kvölda tekur..
Siöar i vikunni munu svo 1500
menn úr hinum ýmsu lifvarðar-
sveitum rikisins marséra fyrir
drottninguna. Samkvæmt 200 ára
gamalli hefö munu þeir bera fána
sem minna á vigvelli þá, gamla
og nýja, sem viðkomandi sveitir
hafa barist á.
Það verður þvi mikiö um pomp
hluta borgarinnar, til að hitta
þegna sína.
Farsælt hjónaband
Það er óhætt að fullyröa að með
hljóðlátum virðuleik sinum hefur
drottningin unnið hugi og hjörtu
þegna sinna á þeim tuttugu og
fimm árum sem hún hefur rikt yf-
ir þeim. Jafnvel hörðustu „and-
royalistar” viöurkenna að per-
sónuleg framkoma hennar sé
óaðfinnanleg.
örgustu kjaftakerlingum hefur
aldrei tekist að tengja nafn henn-
ar á nokkurn hátt við nokkuð sem
einusinni liktist hneyksli. Börn
hennar, og aðrir tilheyrandi kon-
ungsfjölskyldunni, hafa einnig
fengið strangar siðareglur til aö
lifa eftir.
Drottningin hefur raunar ekk-
ert eiginlegt vald lengur. Hún er
aöeins tákn um forna tima. En
bretar eru flestir sammála um að
krýnd drottning hins „Sameinaða
konungsrikis”.
Þegar hún örstuttu siðar heim-
sótti Skotland, þyrptust skotar
tugþúsundum saman út á göturn-
ar til að hylla hana. Hún mun
einnig heimsækja Wales og Norö-
ur-trland i tilefni hátiðahaldanna.
Það steðja ýmis vandamál aö
Bretlandi I dag. Til eru menn sem
segja önugir aö það væri nær aö
fást viö þau en vera með pomp og
pragt yfir úreltu embætti. En
flestir eru á ööru máli. Vegfar-
andi sem breskir sjónvarpsmenn
tóku tali, sagði: „Þegar menn
eiga I erfiðleikum er gott aö geta
gleymt áhyggjunum um stund.
Og sérstaklega hljóta menn að
geta notiö þess að halda silfur-
brúðkaup eftir tuttugu og fimm
ára farsælt hjónaband. A „hjóna
band” hennar hátignar og þjóðar-
innar hefur ekki borið skugga,
þótt á ýmsu hafi gengið i öðrum
þjóömálaþáttum”.
getur þó lika hlegiö.
sus
HEIMDALLUR
S.U.S.
efnir til skógrœktarferðar í
Heiðmörk annað kvöld
fimmtudag 2. júní
Lagt verður af stað frá
Valhöll Bolholti 7 kl. 20.00
Félagar fjölmennið.